Tíminn - 04.01.1977, Blaðsíða 9

Tíminn - 04.01.1977, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 4. janúar 1977 9 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ri.stjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðal- stræti 7, slmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsinga- slmi 19523. Verð I lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr. 1.100.00 á mánuði. Blaðaprenth.f.. Aðförin, sem mistókst Blaðið Visir hefur talið það nauðsynlegt um ára- mótin, að keppa við Dagblaðið sem málsvari heiðarleika og réttlætis og er það ekki nýtt að fé- sýslumenn eins og þeir, sem standa að umræddum blöðum, látist vera réttbornir til að berja sér á brjóst og segi sig heilagri en aðra menn. En illa mistekst Visi þetta hlutverk, þvi að hann beinir einkum geiri sinum að ólafi Jóhannessyni dóms- málaráðherra. Blaðið segir, að ráðherrann hafi brugðizt mjög illa við, þegar Visir hafi upplýst um „sérstæð viðskipti Framsóknarflokksins við veit- ingahúsið Klúbbinn, sem fram fóru á sama tima og dómsmálaráðherra beitti sér fyrir opnun veit- ingahússins, sem hafði verið lokað vegna réttar- rannsóknar”. í tilefni af þessum upplýsingum Visis hafi ráðherrann brugðizt mjög illa við og lát- ið falla hörð ummæli um blaðið og útgefendur þess. Þessi saga Visis er glöggt dæmi um þá „rann- sóknarblaðamennsku”, sem þeir Dagblaðsmenn telja sig höfunda að. Hún er fólgin i dylgjum um aukaatriði, en sleppa þvi sem máli skiptir. Höfuð- árásir Visis á dómsmálaráðherra var ekki i sam- bandi við opnun umrædds veitingahúss, enda viðurkenndi lögfræðingur Visis nokkrum dögum siðar, (5. febr.) að „dómsmálaráðherra var rétt og skylt að aflétta lokun Klúbbsins.” Höfuðárás Visis, sem birtist á forsiðu blaðsins 30. janúar siðastlið- inn, fólst i fimmdálka fyrirsögn, sem hljóðaði á þessa leið. „Alvarlegar ásakanir á hendur dóms- málaráðuneytisins: Sakað um að hefta rannsókn i Geirfinnsmálinu”. í forsiðugreininni er svo vitnað til greinar eftir Vilmund Gylfason, sem birtist inni i blaðinu, og tekin upp eftir eftirgreind ummæli úr henni: „Þegar rannsókn stóð sem hæst vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar siðastliðinn vetur, var maður nokkur yfirheyrður af lögreglumönnum og ýmsar athuganir gerðar á högum hans. Þar var á vettvangi sami maður og nú hefur aftur og vegna annarra upplýsinga verið hnepptur i gæzluvarð- hald. Þegar lögreglumenn voru að yfirheyra hann, kom bréf frá dómsmálaráðuneytinu og þar var efnislega lögreglumönnunum sagt að hætta að áreita þennan mann. Féll málið mikið til niður og var það svo þangað til nú fyrir nokkrum dögum.” Hér er þvi hvorki meira né minna en dróttað að dómsmálaráðherra, að hann hafi af annarlegum ástæðum heft rannsókn i morðmáli. Siðlausari að- dróttun mun ekki hafa verið borin á islenzkan ráð- herra fyrr eða siðar. Það var þessi aðdróttun, sem var orsök þess að dómsmálaráðherra lét hin hörðu orð falla um Visi og aðstandendur hans. Hver get- ur láð dómsmálaráðherra, þótt hann færi um þessa siðlausu aðdróttun hinum hörðustu orðum? Dómsmálaráðherra nefndi mafiu i þessu sam- bandi. Það er nú komið i ljós að hér var um að ræða vandlega undirbúna árás, sem átti að verða ráðherranum og helzt allri rikisstjórninni að falli. Grein Vilmundar var fyrsti leikurinn i tafli, sem vissir forystumenn Alþýðuflokksins höfðu undir- búið og vafalitið haft sinar hjálparhellur. Þetta sást bezt á þvi, að á fyrsta fundi Alþingis á eftir, hóf einn af þingmönnum Alþýðuflokksins, Sighvat- ur Björgvinsson, mikla árás á dómsmálaráðherra og tefldi mjög fram Geirfinnsmálinu. Gylfi Þ. Gislason tók mjög undir þetta i vantraustsumræð- um nokkru siðar. Þessari aðför hefur dómsmálaráðherra nú hrundið og hann stendur sterkari eftir en áður. En lengi mun lifa skömm þeirra, sem að henni stóðu. Visismenn ættu að sjá sóma sinn i þvi að vera ekki að minna á þátt Visis i henni. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Verður Byrd sigur- sælli en Humphrey? Byrd nýtur mikils trausts meðal þingmanna POLITISKUR íerill þeirra Byrds og Humphreys er mjög ólikur. Humphrey hóf feril sinn langt til vinstri, en hefur siðan færzt nær miðjunni. Byrd byrjaði lengst til hægri og starfaði i Ku Klux Klan félagsskapnum illræmda á ár- unum 1942 og 1943. Fyrstu ár sin á Bandarikjaþingi þótti hann mikill hægri maður. einkum i kynþáttamálum.Sið- an hann náði kosningu sem varaformaður þingflokksins 1971, heíur hann óðum færzt nær miðjunni. Honum hefur þvi gengið betur en búizt var við, að halda flokknum sam- an. Margir af frjálslyndustu öldungadeildarmönnum demókrata styðja hann þvi i kosningunni á móti Humphrey, m.a. Adlai Stevensort og Abraham A. Ribicoff. Humphrey nýtur lika stuðnings ihaldssamra öld- ungadeildarmanna. Gliman milli þeirra stendur þvi meira um persónur en málefni. ■Sennilega ræður það úrslitum, að Byrd er talinn enn meiri eljumaðurog aðhann geti bet- ur fylkt liöi um stefnu Carters en Humphrey. Sennilega bætir það ekki heldur fyrir Humphrey, að Mondale, sem verður varaforseti, er frá sama riki og hann. Þ.Þ i ÞESSARI viku mun fara fram söguleg kosning i þing- flokki demókrata i öldunga- deild Bandarikjaþings. Mike Mansfield lætur þá af for- mennsku i þingflokknum og fer þvi fram kosning á eftir- manni hans. Keppendurnir eru tveir eða þeir Hubert H. Humphrey, fyrrum varafor- seti Bandarik janna og öldungadeildarmaður frá Minnesota, og Robert C. Byrd öldungadeildarþingmaður frá Vestur-Virginiu og núverandi varaformaður þingflokksins. Fyrir þá, sem ekki þekkja til þessara keppinauta, nema af frásögnum fjölmiðla, ætti þessi kosning ekki að þykja neitt tvisýn. Humphrey nýtur viðurkenningar sem einn mikilhæfasti núlifandi stjórn- málamaður Bandarikjanna og kom þvi mjög til greina sem forsetaefni demókrata á siðastliðinu ári. Hann hefur reynzt mikilhæfur og vinsæll þingmaður. Byrd er hins veg- ar litið þekktur utan þingsins og kjördæmis sins. Þó er hon- um yfirleitt spáð sigri. Ástæð- an er sú, að hann hefur náð trausti þingmanna sem frá- bær starfsmaður og laginn sáttasemjari. Það styrkir svo stöðu hans, að liklegt þykir að honum og Carter komi vel saman. Það var hinn frægi öldungadeildarþingmaður frá Georgiu, Richard Russel, sem tók Byrd að sér sem eins kon- ar fósturson, þegar hann tók sæti i öldungadeildinni og studdi mjög að frama hans, en Russel var einn mesti áhrifa- maður deildarinnar. Russel hafðilagzt banaleguna, þegar Byrd keppti fyrst um varafor- mennskuna i þingflokknum, en hann veitti Byrd eigi að sið- ur stuðning sinn og er ekki ósennilegt að það hafi ráðið úrslitum. Byrd átti þá i höggi við mjög öflugan keppinaut, sem var enginn annar en Ted Kennedy. Það gerðist i þing- byrjun 1971. Kennedy var þá búinn að gegna varafor- mennskunni nokkra hrið eftir að hafa fellt Long frá Louis- iana. Kennedy þótti hins vegar ekki standa sig vel i stöðunni og það bættist við, að álit hans minnkaði eftir að hann lenti i bilslysinu umtalaða. Úrslitin urðu þvi þau, að Byrd sigraði með 31 atkvæði, en Kennedy fékk 24. MJÖG var rætt um það, þeg- ar þeir Byrd og Kennedy kepptu, að fortið þeirra væri býsna ólik. Kennedy var fædd- nr með silfurskeið i munnin- um, eins og sagt er, en Byrd var fæddur og alinn upp i mik- illi fátækt. Hann missti móður sina, þegar hann var 10 mán- aða gamall og fór hann þá til frænda sins, sem gerði hann að kjörbarni sinu og ber hann siðan nafn hans. Fátækt var mikil á heimilinu og varð Byrd strax að vinna fyrir sér eftir að hann lauk barnaskólanámi. Hann vann næstu árin við ým- is störf, en lengstum þó sem slátrari. Þá vakti hann athygli á sér sem góður fiðluleikari og lék hann oft á skemmtunum. Það þótti furðu sæta, þegar Byrd gerðist svo djarfur að bjóða sig fram til fulltrúa- deildar þingsins i Vestur- Virginiu, þar sem hann hafði hvorki ætterni né fjármagn til að styðjast við. Sögur segja að fiðlan hafi þó komið honum að góðu haldi. Þetta gerðist 1946, enþá var Byrd 28 ára, fæddur 15. janúar 1918. Honum tókst að ná kosningu og sat i full- w- • Robert C. Byrd. trúadeildinni i fjögur ár. Þá náði hann kosningu til öldungadeildar þingsins i Vestur-Virginiu og átti hann þar sæti i tvö ár eða til 1952. Þá náði hann kjöri til fulltrúa- deildar Bandarikjaþings og sat þar i sex ár. Árið 1958 náði hann svo kosningu til öldunga- deildar Bandarikjaþings og hefur hann átt þar sæti siðan. Siðast var hann endurkjörinn á siðastliðnu hausti. Framangreint yfirlit sýnir, að Byrd hefur verið sigursæll i kosningum. Þar veldur senni- lega mestu mikill dugnaður hans og reglusemi. Sagt er, að hann láti sér aldrei falla verk úr hendi og skipuleggi vinnudaginn vel. Hann er bindindismaður á vin og tó- bak. Heiðarleika hans er einn- ig við brugðið. Hann er þægi- legur i umgengi og hefur þótt reynast þingbræðrum sinum hjálplegur, þegar þeir hafa leitað til hans. Dugnað hans má nokkuð ráða af þvi, að hann byrjaði á framhalds- námi nokkru eftir að hann var kosinn á þing i Vestur-Virginiu og hélt hann þvi siðan reglu- lega áfram unz hann lauk góðu háskólaprófi i lögum 1963, en þá varhann búinn að eiga sæti á Bandarikjaþingi i meira en áratug. Hubert H. Humphrey.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.