Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 20

Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 20
LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustig 10 - Sími 1-48-06 Fisher Price leikföng eru heimsjrœg Póstsendum Brúðuhús Skólar Benzinstóðvar Sumarhús Flugstöðvar Bilar c fyrirgóóan mai ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS á svipstundu oflug reyksprenging olli þvi, aö rúöur brotnuðu og eldurinn fór upp i risiö, sem varö alelda á svip Stundu. Tímamymt: G.E. Bruninn í Aðalstræti á nvársnótt: Öflug reyksprenging - og risið varð alelda Gsal-Reykjavík — Stór- bruni varð i Reykjavik á nýársnött, er eldur kom upp í Aðalstræti 12 í Reykjavík. Þrír menn voru i húsinu er eldurinn kom upp, allir í risi hússins, og bjargaði lögreglan þeim, eftir að þeir höfðu farið niður á þak verzlunar Silla og Valda. Slökkvilið Reykjavíkur kom strax á vettvang og tókst að ráða niðurlögum eldsins á hálf- um öðrum tíma. Miklar skemmdir urðu á húsinu, en í því eru bæði íbúðir, verzlanir og skrifstofur. Að sögn Gunnars Sigurðssonar varaslökkviliðs- stjóra barst tiikynning um eldinn klukkan tiu minútur yfir fjögur og skömmu siðar kom tilkynning um að kviknað væri i Fjala- kettinum — en það reyndist rangt — en strax var ákveðið að kalla út aukalið, enda mikið um timbur- hús i Grjótaþorpi og veður ekki sem bezt. Auk þess sem varalið slökkvi- liðsins var kallað út, var beðið um aðstoð slökkviliðsins á Reykja- vikurflugvelli, sem sendi bil á staðinn, ásamt tveimur mönnum. Ekki var farið að loga út úr liúsinu, þegar slökkviliðið kom á staðinn, og voru reykkafarar sendir inn i húsið enda talið að fólk væri i húsinu. Ekki fundu þeir neitt fólk, en geysimikill hiti var á efri hæð hússins. Þegar þeir höfðu gengið úr skugga um það, að engir ibúar væru i liúsinu, voru sóttar há- þrýstidælur, og farið upp á efri liæðina. Þar var opnuð hurð og byrjað aö dæla á eldinn, sem þar var — en isama mund, varð mikil reyksprenging i húsinu, og var hún það öflug, að rúður i húsinu brotnuöu. Viö sprenginguna fór eldurinn upp i ris hússins og varð það alelda á svipstundu. Var nú strax farið aö huga aö þvi að fá vatn og var farið I 6 brunahana i nágrenninu og fengust á milli 5 og 6000 litrar á minútu. — Þaö gckk vel að ná eldinum niöur, sagði Gunnar. Talið er að eldurinn hafi komið upp i eldhúsi á efri hæð hússins. 14 ára piltur varð úti Gsal-Reykjavik. — Ungur piltur, Guðjón Sigurður Hermannsson, fjórtán ára að aldri, til heimilis að Goðatúni 5 i Garðabæ varð úti á nýársdags- morgun. Lik lians fannsi skömmu fyrir klukkan eitt á nýársdag i skafli i garðinum hjá Sveinatungu, þar sem bæjar- skrifstofurnar i Garðabæ eru til húsa.Er talið liklígt, að Guöjón heitinn hafi verió á leið heim til sin á nýársdagsmorgun,er hann varð úti, en Sveinatunga er skammt frá heimili hans. Siðast er vitað með vissu um ferðir Guðjóns, er hann kom heim til sin um klukkan tvö á nýársnótt þeirra erinda að á nýársdags- morgun skipta um buxur. Bróðir hans, 9 ára, sá hann þá, en enginn ann- ar á heimilinu. Að sögn rannsóknarlögreglunnar i Hafnarfirði eru ekki fram komnar staðíestar upplýsingar um ferðirhanssiðar um nóttina. Maður, sem var á leið til þess að huga að bil sinum, er hann hafði orðið aö skilja eftir um nóttina, fann lik Guðjóns o.fan á skafli við Sveinatungu — og hafði ekki fennt ofan á llkið. Mikil snjókoma var fram eftir nóttu á nýársnótt, allt til kl. 4.30, og er þvi talið, að pilturinn hafi orðið úti eftir þann tima. Niðurstöðu réttarkrufningar mun mega vænta siðdegis i dag. Jón Árnason lótinn Jón Arnason fyrrverandi framkvæmdastjóri útflutnings- deildar S.Í.S. og bankastjóri Landsbankans, andaðist á ný- ársdag, niutiu og eins árs að aldri. Jón Arnason fæddist að Syðra-Vallholti i Skagafirði 17. nóvember 1885. Um tvitugsald- ur lauk hann gagnfræöaprófi á Akureyri, en stundaði siðan I mörg ár sveitastörf, sjóróðra og farkennslu norðan lands, unz hann sigldi til Danmerkur, þar sem hann dvaldist veturinn 1916—1917 og kynnti sér starf- semi danskra kaupfélaga. Sum- arið eftir hóf hann störf hjá S.l.S. þar sem hann varð siðar framkvæmdastjóri útflutnings- deildar til ársloka 1945, er hann varð bankastjóri Landsbank- ans. Þvi starfi gegndi hann til hausts 1954, en var siöan banka- stjóri i alþjóðabankanum i Washington i umboði Norðurlanda i tvö ár. A Jóni Arnasyni mæddi um langt skeið sala allra búnaðar- afurða, er fluttar voru úr landi, og við hans forystu voru teknar upp margs konar nýjungar um meðferð þeirra. Hann átti sæti i miklum fjölda nefnda, sem önn- uðust samninga um utanrikis- viðskipti allt frá árinu 1924, og lántökur erlendis allt frá árinu 1930. Hann átti sæti i bankaráði Landsbankans frá árinu 1927, Framhald á bls. 5 PALLI OG PESI — Jónas Kristjáns- son vill rvist taka við Alþýöublaöinu. — Nú? — Já, en það cr synd aö þeir skuli hafa tekið af hon- um ómakið að C segja dr. Braga “ upp. f

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.