Tíminn - 24.05.1977, Side 3
Þriðjudagur 24. maí 1977.
3
ur að iðn-
r mikil-
gðastefnu-
heving Thorsteinsson,
s islenskra iðnrekenda
iftnáðar, haldist i licndur, og að
iðnaðurinn sé i öllum tilvikum
með, þvi án hans verður aldrei
hægt að lullnægja atvinnuþörf-
inni, sagði Davið Scheving
Thorsteinsson, formaður félags
islenzkra iönrekenda, i viðtali
við Timann, á iðnsýningunni á
Sauðárkróki, sein stóð dagana
17. til 22. inai.
— Það er i minum huga stað-
reynd, sagði Davið ennfremur,
að fram til aldamóta verður iðn-
aðurinn að taka við átta af þeim
þrjátiu þúsundum sem inn á
vinnumarkaðinn koma og krefj-
ast atvinnutækifæra. Þvi er það
nauðsyn að stjórnvöld geri sér
grein fyrirþvi hve iðnaðurinn er
tengdur byggðamálum, ef við
ætlum ekki að þurfa að flytja
þessa átta þúsund vinnandi
aðila, þá þjónustu sem skapast
umhverfis þá,svo og fjölskyldur
þeirra, á þéttbýliskjarna þá
sem i dag eru stærstir.
Orkufrekur iðnaður getur
aldrei tekið við nema þrem þús-
undum til viðbótar á þessum
tima, eða ef til vill rétt rúmlega
það, þar sem við erum þegar
búnir að ráðstafa i tsal og
Grundartangaverksmiðjuna,
þriðjungi þeirrar raforku, sem
við getum séð af i slik fyrirtæki.
Af iðnkynningunni i Skaga-
firði er mér það einnig minnis-.
stætt, að þar koma fram stað-
reyndir, sem sanna áð við erum
á réttri leið. Að öllum öðrum ö-
löstuðum, færir Fjólmundur
Karlsson, Hofsósi, mér heim
sannin um að iðnaður er
byggðamál. Hann hefur sett upp
sina verksmiðju á
Hofsósi, framieiðir
þar meðal annars hljóðkúta,
og getur selt þaðan jafn góða
vöru og flutt er inn frá öðrum
löndum, á mun lægra verði. Úr
þvi hægt er á þennan hátt, norð-
ur á hjara veraldar, að keppa
með árangri við Ruhr og
Detroit, þá erum við á réttri
braut.
Iðnkynning á Sauðárkróki
stóð dagana 17. til 22. mai. Dag-
skrá hennar var, i stuttu máli
sú, að frá 17. mai voru islenskar
iðnaðarvörur sýndar i verslun-
um og auk þess var sýning á
vegum islenskrar iðnkynningar
i Búnaðarbankanum á Sauðár-
króki.
Iðnsýning var opnuð i Safna-
húsinu á Sauðárkróki þann 19.
mai' og sama dag var haldinn
fundur i félagsheimilinu Bifröst,
á vegum atvinnumálanefndar
Sauðárkróks, þar sem fjallað
var um nýtingu steinefna til iðn-
aðarframleiðslu með raf-
bræðslu. Akveðið hefur verið að
hefja grundvallarathuganir á
möguleikum til þess að sett
verði upp steinullarverksmiðja i
Skagafirði i sumar.
Sama dag var farið til Hofs-
óss, þar setið kvöldverðarboð
bæjarstjóra og siðan skoðað
fyrirtæki Fjólmundar Karlsáon-
ar.
Daginn eftir, þann 20. mai var
dagur iðnaðarins á Sauðár-
króki. Um morguninn voru
skoðuð nokkur iðnfyirtæki á
staðnum, siðan setið hádegis-
verðarboð bæjarstjórnar og i
eftirmiðdag var haldinn fundur
i Bifröst, þarsem f jallað var um
iðnaðarmál.
Klukkan 17 þann dag var svo
móttaka iðnaðarráðherra og
veiting viðurkenninga.
Iðnsýning sú, er stóð i Safna-
húsinu á Sauðárkróki, sýndi
greinilega, að i Skagafirði er
mikill og fjölbreyttur iðnaður.
Sýningin stóð i tveim sölum og
hafði Kaupfélag Skagfirðinga
annan þeirra fyrir sig, enda
rekur það mörg iðnfyrirtæki, i
flestum greinum iðnaðar.
t stærri sal hússins höfðu
mörg önnur fyrirtæki sýningar-
bása, þar sem sýnd var fram-
leiðsla af ýmsu tagi, allt frá
heimaiðnaði, tildæmis útskurði,
ýmis konar málmsmiði og
fleiru, til innréttingasmiði,
skinnaframleiðslu og annars.
Fyrir utan húsið var einnig
stillt iðnaðarframieiðslu til sýn-
is.
Af iðnaði i Skagafirði er bygg-
ingariðnaðurinn umsvifamest-
ur. Að minnsta kosti niu fyrir-
tæki eru starfandi i honum,
enda uppbygging viða mjög
mikil, svo sem á Sauðárkróki og
Hofsósi.
í iðnkynningarskrá eru niu
aðilar taldir upp og tóku flestir
þeirra þátt i sýningunni, en á
henni voru meðal annars eld-
húsinnréttingar frá tveim tré-
smiðjum. Þessir aðilar eru:
Aðalsteinn J. Mariusson, múr-
arameistari, Trésmiðjan Björk,
Trésmiðjan Borg hf., Fyllir sf.,
Byggingafélagið Hlynur hf.,
Trésmiðjan Ingólfur, Trésmiða-
verkstæði K.S., Raðhús hf. og
Rörasteypa Sauðárkróks.
Framíeiðsla þessara aðila er,
sem eðlilegt er, nokkuð stað-
bundin við Skagaf jörð, en i inn-
réttingaframleiðslu, til dæmis
þjóna þeir þó mun stærra svæði.
Framkvæmdastjóri Trésmiðj-
unnar Borg, Kári Valgarðsson,
skýrði fréttamönnum Timans tií
dæmis frá þvi að innréttingar og
hurðir frá þvi fyrirtæki væru
framleiddar fyrir aðila allt suð-
ur til Reykjavikur.
Starfsmenn i byggingaiðnaði
á Sauðárkróki eru skráðir sjötiu
og fimm, i fullu og föstu
starfi, þar af þrjátiu og niu iðn-
menntaðir og ellefu nemar.
1 járniðnaði eru i skránni tald-
ir ellefu aðilar. Þeir eru: Bif-
reiðaverkstæðið Áki, Bifreiða-
verkstæði Björns og Páls, Bif-
reiðaverkstæði K.S., Bifreiða-
og vélaverkstæði K.S., Bifreiða-
og vélaverkstæðið Sleitustöð-
um, Bragi Þ. Sigurðsson véla-
verkstæði-plastgerð, Málmiðja
Sauðárkróks, Stuðlaberg hf.,
Vélaverkstæði K.S., Vélaverk-
stæði Ræktunarsa m bands
Skagfirðinga og Vélsmiðjan
Logi sf.
Af þeim hefur Bifreiðaverk-
stæði K.S. viðast starfssvið, það
er Bifreiða- og landbúnaðar-
vélaviðgerðir, bifreiðarétting-
ar, bilamálun, mótorstillingar
og hjólastilíingar. Fram-
kvæmdastjóri þess er Brynjar
Pálsson, en hann er einnig
framkvæmdastjóri Vélaverk-
stæðis K.S.
Tvennt i.járniðnaði i Skaga-
firði vekur, að öðru ólöstuðu,
einna mest athygli aðkominna.
Þaðer i fysta lagi hluti af starf-
semi verkstæðisins að Sleitu-
Fjólniundur Karlsson, við eina af véluni þeim er liatin liefir sjálfur smiðað.
stöðum, en framkvæmdastjóri
þess, Þorvaldur Óskarsson,
byggir meðal annars hjólhýsi,
sem þótt hafa sterkari og betur
færtil að glima við islenska vegi
en innflutt. Aðspurður hvaðst
Þorvaldur ekki geta keppt við
innflutt hjólhýsi i verði, enda
efnisval engan veginn sambæri-
legt og þvi verðsamanburður
ekki raunhæfur.
1 öðru lagi er það svo fyrir-
tækið Stuðlaberg hf., sem rekið
er af Fjólmundi Karlssyni, á
Hofsósi. Stuðlaberg framleiðir
hljóðkúta i bifreiðar og vélar og
hefur tekist að hafa verð lægra á
sinni framleiðslu en gerist með
innflutta.
Aðspurður kvaðst Fjólmund-
urnú framleiða tæplega hundr-
að tegundir hljóðkúta, en langt
væri i land með að framleiða
allar gerðir, sem munu vera um
niu hundruð talsins.
Fjólmundur hefur smiðað
sjálfur mikið af vélum þeim
sem notaðar eru til framleiðsl-
unnar og þegar fyrirtæki hans
var skoðað gagnrýndi hann
harðlega lánastofnanir fyrir
tregðu til þess að veita fyrir-
tækjum fyrirgreiðslu til fram-
leiðsluþróunar og aukningar.
Starfsmenn i málmiðnaði eru
skráðir 73, þar af 34 iðnlærðir og
1Ý nemar.
1 rafiðnaði eru talin i skránni
fimm fyrirtæki. Þau eru: Alur
sf. rafverktakar, Radió- og
sjónvarpsþjónustan, Rafafl sf.,
Framhald á bls. 18.
Mimikabúiö Loðfeldur sýndi þarna liluta frainleiðslu sinnar.
Safnaliúsiö á Sauöárkrók