Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Síða 2
2
Mánudagsblaðið
Mámidagur 7. marz 1966
Jónas Jónsson frá Hrífíu:
Aldamótamennt
Söngkennsla á villustigum
Söngmennt er nokkuð stund-
uð í skólum ríkisins, en þar
hefur kennslan komizt á hættu-
lega villustigu. Mest gætir
tvennskonar og þó allólíkra
meinsemda. Fyrri og enn til-
■ finnanlegri yfirsjónin er . mis-
notkun kórvinnubragða í söng-
M
æfingum almenningsskólanna.
Þar hafa söngkennararnir
gleymt því,.að þeir æfa venju-
lega ungmenni, sem eru undir
: þeirra umsjá eitt, tvö eða mest
þrjú missiri. Alla þessa stund
eru ungmennin æfð til að vera
einskonar sérfræðingar í söng-
mennt. Nemendur eru flokkaðir
eftir gáfum í sérgreinar kór-
söngsins, og æfingunum hagað
eftir því. Búast mætti við að
þessi kórkennsla í fjölmörgum
skólum leiddi til þess að fólkið
beitíi þessari söngmennt í kirkj-
unum. En það er öðra nær. Al-
mennur messusöngur er miklu
sjaldgæfarí í íslenzku þjóð-
Jkirkjunni heldur en við guðs-
\ þjónustur í Englandi. Hér á
: landi hefur meir og meir orðið
að gripa til launaðra söng-
flokka við messur og aðrar há-
tíðlegar samkomur í þjóðkirkj-
unni. Ástæðan er auðsæ. Þrátt
fyrir hinar tímafreku kóræf-
ingar í ríkisskólunum er þetta
unga og söngvana fólk of lít-
ið menntað í almennum söng til
að geta tekið eðlilegan þátt i
messugerðinni nema með því að
litlir æfðir flokkar einskonar
sérfræðinga á háu kaupi bjargi
hinni lútersku messugerð frá
því að verða þagnarmessa.
Hin villigatan í söngkennsl-
unni er allt annars eðlis. Sam-
hliða atómtækni í myndlist hef-
ur algerlega ný grein söng-
mennla reynt að reyðja sér nýj-
ar leiðir. Tónsmíðar af þessu
tagi eru svo vélrænar, að þegar
snjöllustu og lærðustu söng-
mennta menn eins og t.d. Páll
Isólfsson tónskáld og Björn
Ólafsson fiðlusnillingur hlusta
á þessa atómhljóma, þá hafa
þeir ekkert gagn af æfilangri
hljómlistannennt sinni til að
skilja þessi nýmæli. Þeir mæta
hér algerlega nýjum og fram-
andi heimi. Hér hefur verið
gerð uppreisn móti allri undir-
stöðu menntaðra þjóða í hljóm-
listarmálum. Þessi síðari villa
er fremur hættulítil tónmennt
líðandi stundar. Hún er of vél-
ræn, sálarlaus og köld til að
geta hrifið hugi æskumanna
sem eru gæddir heilbrigðu lífs-
fjöri og skapandi listrænum
gáfum.
Kórsöngurinn á ekki erindi
í baraa- og ungmennaskóla
landsins. Starfsemi kóranna er
hættuleg tízikuhreyfing í þeim
stofnunum, sem starfa fyrir
ungt fólk á vaxtarskeiði. Eitt
sinn voru nokkrir bekkir vel
æfðra skólanemenda sunnan-
lands að skilja með kveðjuhófi
í Hótel Borg. Söngstjórinn varð
skyndilega að hverfa úr saln-
um til að ráða fram úr erindi
annars eðlis. Söngurinn átti að
hefjast, en þá gat söngvélin
ekki byrjað að starfa, þó að
um algeng sönglög væri að
ræða. Nú skorti forystuna.
Verkstjórinn var ekki inni í
salnum. Þetta litla dæmi sýndi
að skólafólkið var að vísu vel
æft í vissum lögum en háð
skipulagi kennslustofunnar. Nú
voru þéssir nemendur að skilja
eftir vetrarlanga samveru og
sennilegt að fæstir þeirra
mundu síðar á ævinni vera í
einum sal og reiðubúnir til að
raða sér í kórsveitir skóladag-
anna.
Hér er um að ræða eina af
megin yfirsjónum kóræfinga i
skólum. Kórstarfsemin er þar
einskonar sníkjujurt. 1 stað
kóræfinga þurfa mæður, fóstr-
ur, systkyni, leikbræður og
skólafélagar að æfa eftir því
sem frekast má við koma ein-
raddaðan náttúrlegan söng og
leggja þar stund á fagran
framburð móðurmálsins. Ein-
raddaður söngur er undirstaða
allrar hljómlistar. Efst í frægð-
arstiga hinna miklu söngmanna
er ein mannsrödd hæsta stig
lisfarinnar ef nógu vel er til
vandað um meðfædda hæfileika
og þjálfun.
Meginundirstaða í söngþjálf-
un þjóðarinnar er að æfa vel
og með öruggri en mildri þjálf-
un söngrödd barna og ung-
menna. Þar er móðirin fyrsti
og áhrifamesti kénnarinn. Móð-
irin syngur við barn sitt. Ylur
móðurástarinnar lyftir hug og
síðar rödd barnsins. Því þykir
mannvænlegu fólki yndislegt að
syngja lítil en falleg lög.
Söngkennarar skólanna eiga
að koma til liðs við vandafólk
barnsins sem fetar hægum
skrefum inn á leiðir söngsins.
Siðan taka við skólar, félög, og
íþróttaleiðangrar.
Ef vel væri haldið á söng-
menntamálum æskunnar mundi
söngur almennings í langferða-
bílunum verða til gleði og
sæmdar þjóðinni fremur en ver-
ið hefur hingað til.
En þó að kórsöngvar eigi
ekki erindi inn í ungmennaskóla
landsins, er allt aðra sögu að
segja um hina mörgu kóra sem
starfa árum og jafnvel ára-
tugum saman í sömu sveit eða
kaupstað. Þar er öruggur
grundvöllur. Margir þvílíkir
kórar hafa átt mikinn þátt í
aukinni söngmennt í landinu og
jafnframt aukið frægð þjóðar-
innar í öðrum löndum; þar er
byggt á klöpp en ekki á sandi.
Ef þróun söngmála hér á
landi yrði með þeim hætti, sem
hér er mælt með, ættu kirkjur
landsins að fyllast með fögram
söngröddum, sem tækju þátt í
guðsþjónustunni af innri hrifn-
ingu en ekki fyrir áhuga á að
fá auknar skattskyldar tekjur.
Sölubörn
sem vilja
selja Mánu-
dagsblaðið i
áthverfum
geta fengið
það sent
heim
Auglýsið í Mánudagsblaðinu
PHILIPS sjónvarpstæki
Fyrst um sinn munum við halda áfram að selja hin heimsþekktu Philips sjónvarpstæki með b'áðum
kerfunum með aðeins kr. 3000,00 útborgun og eftirstöðvunum eftir samkomulagi. Erum að taka
heim tæki með 25" skermi í mjög fallegum teak-kassa. Einnig fyrirliggjandi borðloftnet fyrir ís-
lenzku sjónvarpsstöðina.
Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10 — Sími: 1 28 52.
INDESIT ísskápar
Fyrst um sinn munum við halda áfram að selja hina vinsælu INDESIT ísskápa með aðeins kr.
2000,00 útborgun og eftirstöðvar eftir samkomulagi.
Véla- og raftækjaverzlunin h.f. Bankastræti 10 — Sími: 1 28 52.
ÍBÚÐARHÚS
úr timbri útvegum við frá Póllandi
Stærðir 51 fermeter, 72 fermetrar og 115 fermetrar. Mjög hagstætt verð.
Húsum þessum fylgir parket-gólf rörlagnir og raflagnir.
Hppsetningu annast erlendir sérfræðingar og verður húsunum skilað tilbúnum
til að flytja í þau. Leitið upplýsinga.
Ásbjörn Ólafsson h.f.
Grettisgötu 2 — Sími 2 44 40.