Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Page 1

Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Page 1
4* Blaéfyrir alla 18. árgangur Mánudagur 19. desember 1966 40. (ölublað Nöfnin á borðið strax Kaupmenn illir — Stéttin öll undir grun — Hátt- settur embættismaður í sambandi við „dansk-ís- lenzka svindlið" — Enginn græðir á þögninni — Mikill fjöldi kaupsýslumanna, aðalstoðir Sjálfstæðisflokks- ins, er bæði unlrandi og hryggur yfir þeim seinagangi^ dóms- málaráðuneytisms að ekki skuli birt nöfn þeirra aðila, sem rannsakaðir eru vegna svonefnds „dansk-íslenzka svindlsins.“ Almenningur er orðinn þreyttur á nafnabirtingu smáþjófa og eltingarleik lögreglunnar við smákrakka, sem stela bílum. Dönsku rannsóknarmennirnir voru ekki lengi hér en unnu fljótt og skjótt í þessu umsvifamikla máli. 1 dag eru nefndir manna á meðal tugir nafna og svimandi upphæðir í þessu dansk-ís- lenzka máli, en útilokað er í senn, að nefna nöfnin og svo hitt að fá þau uppgefin. Öll stétt kaupsýslumanna liggur undir grun, en annaðhvort eru allir áhrifamenn hennar sekir — eða þeim er sama þótt þetta orð liggi á þeim. „KJÓLL OG KALL“ Talað er mikið um háltsetlan embættismann, sem hefur veitt stóru fyrirtæki forstöðu og nú sé vafinn í þetta mál „upp fyrir haus“ svo nærri láti, að hann missi kjól og kall, eins og orðað er. Er svo gífurlega um- fangsmikið mál hans eins, að furðu sætir, að ek'ki skuli fyrir löngu uppvíst. HÖFUÐP AURIN N Um sjálfan höfuðpaurinn, sem hófst til fjár og vissrar tegundar m" mvirðingar heyrist lítið, en „dótturfyrirtæki" hans eru orðuð við allskyns óvenju- lega viðskiptahætti. Smærri heildsglar, sem hér hafa verið nafnkunnir fyrir margt fleira en sölumennsku eru líka orð- aðir, jafnvel sumir menn, sem alþýða veit að eru blásaklausir. Svo langt er gengið að jafnvel háttsettir menn í fjármálalífinu eru taldir vera meðsekir í þessu mikla „dansk-íslenzka svindl- máli“ eins og eitt stjórnarblað- ið hefur kallað það. Það er afar vafasamt, að halda nöfnum þeirra sem rétt- aðir hafa verið mikið lengur leyndum. 1 íslenzka þjóðfélag- inu, einkum þó í kaupsýslu- mannastéttinni er það enginn dauðadómur að vera grunaður um misferli og oft beinlínis upp reisn, að vera frikenndur eftir rannsókn. BJARNARGREIÐI Svo hátt sem menn vilja hreykja sér í heiðarleikastigan- um er ekki úr vegi, nú á þess- um miklu „svindl“-mála tím- um, að rifja upp, að ekki eru ýkjamörg ár síðan sum af þekktustu og virtust fyrirtækj um höfuðstaðarins voru, ekki aðeins grunuð, heldur dæfnd fyrir óhefðbundna viðskipta- hætti og ráku þau þá menn í æðstu stöðum þjóðarinnar. Fær enginn enn séð, að þessi fyrir- tæki hafi þá né síðan beðið nokkurn sjáanlegan skaða af slíku feilspori. VfÐTÆKARI SKOÐUN Það er því aðeins bjarna-r- greiði við stétt kaupsýslu- manna í heild og máske fyrir einstaklinga, sem til yfirheyrslu koma, að hylma of lengi yfir nöfn þeirra. Vitnaleiðslur og rannsókn er ekki annað en eðli legur gangur slikra mála og „munu margir kallaðir en fáir útn’aldir" svo sízt er minnkun að þvi að gera skyldu sina í að aðstoða rannsóknarmenn. ENGAR SILKIHÚFUR Nei, þær detta ekki af koll- um þeirra silkihúfurnar þótt nöfnin verði birt. Máske leiðir þetta til þess, að við fáum bráð lega betri greinargerðir um út gjöld og reisufé opinberra starfsmanna, og undirþjóna þeirra, sem fullir eru af lofti og rembingi, svo ekki sé talað um réttlætistilfinningu. Og vera má, að ekki verði langt þar til slík mál upplýsast til hins bezta. Hörkusamkeppni á bjórmarkaðinum Hve lengi ætla stjómarvöldin að þrjóskast við að leyfa „innfæddura“ að nj'ita þeirra lífsgæða í landi sínu sem útlendingum eru heimil? Það væri hægt að halda að stjórnarvöldin í þessu landi væru nú loks búin að átta sig á því að ekki verður til lengdar hægt að neita landsmönnum um þau lífsgæði, sem hvarvetna í heiminum eru jafn sjálfsögð og andrúmsloft og drykkjarvatn, að menn geti fengið sér glas af góðu öli, því að hér er nú að hef jast hörkusamkeppni um sölu á áfengum bjór. Pétur Ben. annar á fístanum? Blaðið hefur fengið mjög góðar, en óstaðfestar, heim- íldir fyrir því, að ákveðið hafi verið að Pétur Bene- diktsson, bankastjóri, verði 2. maður á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjör- dæmi í alþingiskosningum í vor. Matthías, sparisjóðs- stjóri, verður nr. 1 eftir harða baráttu, en í neðra sæti hafði hann cnga mögu- leika. Það veitir sannárlega ekki af fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að hafa sterkan Iista í þessu kjördæmi að ,vori. Hin mörgu mistök flokks- ins á síðasta kjörtímabili eru enn I fersku minni kjósenda, auk þess s«n Hsti Fram- sóknar er skipaður ágætum menn hans — erfingjar 01- afs Thors — farið með flokksfylgið í öruggasta vígi flokksins á landinu. og hörðum mönnum, sem verða íhaldinu skeinuhættir. Svo kann að vera að það verði of seint fyrir flokkinn að halda fylginu — svo fer- lega hafa núverándi þing- Nú um alllangt skeið hefur verið brúggaður áfengur bjór hér á landi hjá Agli Skalla- grímssyni og hefur „Polar Bear“ bjór notið mikilla vin- sælda hjá þeim útvöldu sem fengið hafa að neyta hans. Sendiráð og aðrir erlendir aðil- ar hafa getað keypt allt það magn af þessum bjór sem þá lysti og hafa notað sér það í ríkum mæli. Hins vegar eru þeir fáir Islendingamir sem fengið hafa að njóta þessarar ágætu íslenzku framleiðslu — nema þeiy sem ferðazt hafa með íslenzkum skipum til út- landa. Grunur leikur þó á að fleiri muni hafa átt þess kost að dreypa á þessari veig en eiginlega hefur vei-ið ætlazt til af stjórnarvöldum, og munu reyndar flestir þeirra valds- manna sem banna landsmönn- um að njóta þessara sjálfsögðu réttinda vera í þeim hópi. Nú eru að koma á markað- inn hér, handa þeim sem njóta þessara sérréttinda, tvær • nýj- ar tegundir af áfengum bjór. Rolf Johansen hefur hafið inn- flutning á belgískum bjór fyrir „íslenzkan“ markað, „Iceberg" bjór, gæðadrykk með 5 prósent .....—..............■■■■■....*"■! Fáir kvikmyndalcikarac njóta nú jafnmikilla vinsælda og Peter Sellers, sá óriðjafnanlegi enski skopleikari. Nýlega hefur verið gerð kvikmynd með honum, „Skot I myrkri“, sem hlotið hefur góða dóma, enda býður hún ekki aðeins upp á Hst hans heldur lika yndisþokka þýzku kynbombunnar Elke Sommer og sjást þau hér saman á myndknti. lO Krónur Vegna misskilnings hjá nokkrum útsölu- stöðum, skal þess getið að verð blaðsins í lausasölu er 10 kr. Mánudagsblaðið áfengismagni, „Scandinavia’s fastest growing name in beer.“ Fyrsta sendingin er komin til landsins og Rolf gerir sér mikl ar vonir um góð viðskipti, kveðst enda sannfærður um að ekki muni líða „mörg ár“ þar til leyfð verður sala á áfengum bjór hér á landi sem hjá öðr- um siðmennt.uðum þjóðum. Frá höfuðborg Norðurlands er á næst.unni væntanlegt mik- ið bjórflóð því að verksmiðjan Sana er nú tilbúin að hefja bruggun á þremur nýjum teg' undum af öli sem nefnist „Thule“. Innfæddir munu þó að eins fá að kanpa eina þeirra, hinar tvær eru ætlaðar sérrétt- indamönnum. Verksmiðjan hef- ur tilkynnt að hún sé reiðubú- in að framleiða 9 miljón flösk- ur á ári, það eru 50 flöskur á hvert mannsbarn. Það er annars villandi og „tátólógía" að tala um „áfeng- an bjór“, því að allur bjór, allt öl er áfengt — annars er drykk urinn einfaldlega ekki öl. Það sem allur 'styrrinn stendur um er prósentubrot. Þannig mælist áfengismagnið í þeirri tegund „Thule“ sem ætluð er á „inn- anlandsmarkað" 2,25 prósent, en þær tvær 'tegundir sem Al- þingi Islendinga telur lands- mönnum sfórliættulegar hafa 4 prósent áfengismagn. Hinir vísu landsfeður telja því að þessi 1,75 prósent mismunur geri allan gæfumuninn — og væri æskilegt að þeir væru jafn nákvæmir í útreikningum sín- um þegar þeir fjaTla um fjár- muni þjóðarkinar. i Hluupust frá kommum Frjáls Þjóð sér loksins að sér — Yfirlýsing I nýútkominm Frjálsri þjóð —• 44. tbl. — birtist yfir- lýsing frá stjórn Hugins, eigendum blaðsins, þar sem sagt er að frá og með þeim degi, sé allri shmvinnu við kommúnista hafnað og hætt. Lýsir blaðið sig með öllu óháð stjórnmálasamtökum og leitar samvimra við þá sem ljá vilja baráttumálum blaðsins lið. Eins og kunnugt er þá eru baráttumál blaðsins tvö — brottrekstur vamarliðsins og að knésetja Lárus Jó- hannesson og hafa bæði misteldzt. En það er engn að síðnr athyglísvert, að blaðið kveð- ur nú kommúnista, sem það hefnr haft náið samband \ið hálfan annan áratug. i Því ekki hlutlausa endurskoðun? Myndi þæta og lagíæra t.d. opinbera eyðslu — Opinber endurskoðun jafnan slæleg Óskandi væri, eftir öll þau svindl-mál, sem nú eru f rannsókn, að meira yrði gert að því, að láta fara fram „hlutlausa rannsókn“ á t.d. rekstri og eyðslu opinberra fyrirtækja. Til þessa yrðu fengnar vel metnar og á- byggilegar endurskoðunar- ' skrifstofur, sem rannsöknðu þessa _ útgjald^liði hlutlaust og heiðarlega. Svokölluð op- inber endurskoðun er oft gecð af pólitískum bitlinga- inönnum sem hvorki hafa þekkingu né áhuga á já- kvæðri gagnrýni á opinberri eyðslu og enn síður ef flokks maður eða kimningi á í hlnt. Þetta er í raun hið mesta óheilbrigði í' smáu þjóðfé- lagi.hvar hver þekkir annan, enda er opinber endurskoð- un eftir þvi. Hvernig væri, ef hlutlaus endnrskoðun færi fram t.d. á rekstri opinberra bifreiða, benzínkostnaði og öðru. Eða hvemig færi með dagpeninga „ferðamanna“ okkar, einkum í smærri emb ættnm. Heyrzt hefur að dag- peningar sumra séu allt að kr. 5000, eða voru, unz f jár- málaráðherra núverandi, lagði blátt bann við slíku. Allt þetta yrði anzi gám- an, ef hlautlanst yrði skoð- að. 4

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.