Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Síða 2

Mánudagsblaðið - 19.12.1966, Síða 2
Mánudagsblaðið Mánudaguir 19. desember 1D6G JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: loingar um i og mannbætur Af og til berast fréttir frá etórþjóðunum um að frægir glæpamenn komist þar brott úr dyflissum þrátt fyrir hinn vand aðasta varnarútbúnað bæði um hús og gæzlu. Islendingar hafa líka nokkra erfiðleika í þeim efnum. Fyrir nokkru tókst ung um,, dæmdum Norðlendingi hvað eftir annað að komast út úr fangelsinu við Skólavörðu- stíg með ótrúlegum hætti jafn- vel upp um loftið á sinni eigin stofu og þaðan út í bæjarsoll- inn. Stundum komst hann inn á dansleiki um stundarsakir og síðan sömu Ieið inn í klefa sinn. Ekki gekk betur að geyma þennan fjöruga brotamann í Litlahrauni, sem varla var von. Nú hafa tveir fangar í þessari austurbyggð sýnt að gæzla þar er heldur ótrygg. Þeir byrjuðu með þvi að sverfa sundur málm teina í gluggum sínum um nótt og ganga til Eyrarba'kka. Þar stálu þeir flutningabíl, óku upp í Hveragerði, brutust þar inn í kaupfélagsbúðina og höfðu með sér peningaskáp með 200 þús- und krónum í peningum og öðrum verðmætum. Síðan hurfu þeir félagar heimleiðis að Litla- Hrauni, en á afskekktum stað ekki fjahri hælinu brutu þeir skápinn, sennilega með nokkr- um hávaða. Þá tóku þeir með sér verðmætin, óku þá að Eyr arba'kka. Þar komu þeir bílnum fyrir með svo mikilli verklægni að eigandinn varð. ekki þess var um morguninn að ókunn- ugir menn hefðu verið þar að verki. Ekki er sýnilegt að þjóf amir hafi sýnt þá framsýni að koma þýfinu undan til persónu legra þarfa. Menn lesa um brotthlaup er- lendra misgerðarmanna en gleyma brátt að þar er oft brot izt út úr hinum vönduðu fang- elsum stórþjóðanna. Þjófnaður og innbrot eru leifar af erfða- syndinni og við því verður ekki gert nema að nokkru leyti. En þetta er vafasamur hugsunar- háttur. Stelsýki er mannfélags- mein sem er að verulegu leyti viðgeranlegt í tiltölulega fá- mennu mannfélagi eins og á Is- landi. Saga þessara mála hér á landi er ekki viðburðarík. Eftir stjórnarbyltinguna miklu og Napóleonsstyrjaldirnar barst frá útlöndum glæpaólga til Islands. Þá var Natan veg- inn og morðingjar hans háls- höggnir undir hinum fögru Vatnsdalshólum. Um sama leyti gekk innbrots- og þjófnaðar- alda yfir Suðurland. Þá var Kambsránið framið og fangarn ir látnir lifa en fluttir í and- styggilegt fangelsi í Danmörku. Þar bar einn fanginn, að nafni Sigurður/ af öðrum mönnum að afli og hreysti. Hann strauk um nótt úr heimagæzlu frá sýslumanni Ámesinga en náðist brátt, því að hvergi átti slíkur fangi griðastað í mannheimum. Að líkindum hefur Sigurður ekki þolað hinn harða aga enda var hann tekinn af lífi í fangelsinu. Faðir Sigurðar var lista þjófur og mundi hafa kom izt langt í landi með stærri þjóð. Snjöll orðtök hans lifa í munnmælum. Kambsránsmálin sýna mikla ókyrrð í þróttmi'kiu fólki í héruðum eins og Suður- landi, en þá var þar ágætur sýslumaður vitur, röggsamur og mannúðlegur. Með því líku réttarfari mundi hafa verið auðvelt að koma á heilbrigðri skipan á réttarfarið í landinu. Ástand löggæzlunnar hér á landi er á þróunarvegi. Kringum 1930 var byrjað á umbátum: Fangelsishúsið við Skólavörðu- stíg var gert íbúðarhæft en jafn óörugg geymsla eins og áður. Þá var Litla-Hraun stofn sett, sem vinnuhæli og byrjað á mannsæmandi umbótum. Stór bújörð fylgdi hælinu. Þar mátti stunda kartöflurækt ogmjólkur framleiðslu við góð skilyrði. Stóru verkstæði vár komið á fót hjá hælinu. Þar var vel gert við bifreiðar og vinnuvél- ar bænda. Þar var hafin stein- steypa sem söluvara. Sandurinn á Eyrarbakkaf jörum var hreinn og hæfur í smábyggingar. Þeg- ar mest var þar unnið að steina gerð seldi Litla-Hraun efni í 30—40 sveitahús. Síðan lagðist þessi iðja að mestu niður sem verr fór. Hinsvegar hefur kúa- búið verið stækkað og stundum vel rekið. 1 fyrstu voru feður, sem svikust um að greiða með- lag með óskilgelnum börnum sínum, látnir vinna af sér skuld ina á Litla-Hrauni. Síðan var og komið á fót heimili fyrir þessa menn, Kvíabryggju. Þelta var tilefnislaus framkvæmd, þáttur í siðleysi kunningsskap- arins. Samt gerir þessi stofnun eitthvert gagn. Af umbótum sem fylgdu Litla-Ilrauni mun- aði mestu um nýskipun lög- reglu í Reykjavík. Áður voru fáir gæzlumenn, lítt vanir, lítt klæddir og haldnir á þröngum kosti í bakhýsi og timburhjalli í Lækjargötu. 1 þess stað kom sveit ungra hraustra manna, vel búin og æfð við réttarþjón- ustu og friðargæzlu. Nú fær þessi sveit undir forystu Sig- urjóns lögreglustjóra af Laxa- mýrarætt mikilfengleg og hag- nýt húsakynni. Mjög er þakkarvert að land- ið hefur eignast allrúmgóða og prýðilega geymslu fyrir ölvaða menn sem ráfa um götuna og eiga engan hvíldarstað meðan þeir eru ósjálfbjarga. Þetta er hinn góðfrægi Síðumúli. Hið nýja Island vantar talsvert af hliðstæðum húsum. Mikil gnægð er í höfuðstaðn- um og stærri kaupstöðum af unglingum á fermingáraldri og fram undir tvítugt, sem leika sér að innbrotum og hafa all- mikla færni í þeim efnum. Koma stundum á disk löggæzl- unnar ungir menn sem riðnir hafa verið við allt að 20 inn- brot. Ríkið, kirkjan, skólamir og sjálfir foreldrarnir standa varnarlausir gagnvart þessu ó- láni. Hér er ekki um slæma menn að ræða heldur vanrækt börn og ungmenni, sem þurfa að fá uppeldi og fjölbreytt nám við iðju og andleg viðfangs- efni. Hér verður að taka vanrækt mál s'kapandi tökum. Magnús Kjartansson ritstjóri hefur í ný legri ferðabók um Kína vikið að fordæmum sem vel mega verða Islendingum til fyrir- myndar. Þar er slíkri æskij bú- in margþættur farvegur: frelsi, aðhald, vinna, skóli og ræktun í samræmdum hlutföllum. Við íslendingar höífum í meir en tíu aldir stundað heimilis- ræktun, þar sem bátur og orf hafa verið hjálpartæki við hlið bókar, fjöðurstafs og penna. Nú breytir véltæknin og þétt- býlið mörgu i uppeldisháttum þjóðarinnar: Gamlar venjur munu endurfæðast í nýju um- Framhald á 5. síðu. V/WAA/VWWWWVWVWWWWWWWAAAAAáA/VWWWWAA/WVWV'WWWVWWWWW'WA/WW Jólavörur í m \ Vefnaðarvörudeíld ? Undirkjólar ; Náttkjólar IMunstraðir sokkar ^ Millipils 5 Magabelti • % Brjóstahöld I ' síð og stutt Nátttreyjur Vatteraðir sloppar Frotte-sloppar Silki-sloppar / » (kínverskir) Nylonsokkar Blússur, Peysur, Pils Buxur Buxnadragtir Sokkabuxur Snyrfivörudeild Ilmvötn, dömU og herra Ilmvatnssprautur Ilmkrem Baðsalt Púður Varalitur Handsnyrtisett Snyrtivörutöskur Gjafakassar fyrir dömur og herra aldrei meira úrval Sápukassar Reauty-Boxes Austurstræti 7 — Sími 17201 AAAAA/WVWWVWWAA/VWVWWVWVWWVWWWWWVWWWWWVWWVWVWAA/VWAAA/WW RYMINGARSALA Tjl þess að rýma fyrir nýrri framleiðslu, seljum við í dag og næstu daga í verksmiðju og skinna- sölu okkar ódýrar gærur og kálfskinn. Á boðstólum verða allir verðflokkar: Gœrur Ólitaðar og litaðar frá kr. 315,00 og kr. 330,00 Gærur, klipptar, ólitaðar og litað- ar, heil skinn og bútar í miklu úr- vali. — Tilvalið efni í margan skemmtilegan heimilisiðnað og föndur. Kalfsskinn Frá kr. 220,00 Sútunarverksmiðja Sláturfélags Suðurlands Skinnasalan, Laugavegi 45, sími 13061 — Verksmiðjan, Grensásvegi 14. BERNIN Til að gera möimum kleift áð gefa konum sínum og dætrum í jólagjöf hina heims- frægu BERNINA saumavél, sem að dómi allra þeirra, sem notað hafa, er talin bezta saumavélin á heimsmarkaðnum í dag, seljum vér BERNINA til jóla með aðeins kr. 1.000,00 útborgunum og eftirstöðvamár eftir samkomulagi. Einnig höf- um vér mikið úrval af glæsilegum saumavélaborðum af ýmsum gerðum og stærð- um og úr ýmsum viðtartégundum, sem fást með sömu afborgunarskilmálum. BERNINA-búðin, Austurstrœti, Ásbjörn. Ólafsson, Grettisgötu 2 Sími 24440.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.