Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 12.01.1970, Side 1

Mánudagsblaðið - 12.01.1970, Side 1
010 J \atb Blciéfyrir alla %Uié 22. árgangur Mánudagur 12. janúar 1970 1. tölublað í BLAÐINU: KAKALI — skrifar um „Brúðkaupið“, sjá 4. síðu. MAFIAN — kaupir dag- blöðin, sjá 8. síðu. Seldi Emil Dönunum atkvæðið fyrir úrgangsfisk? Kólumbusarævintýri í utanríkisþjónustunni — Keyptu Daniratkvæíi fslands?— Þörfá endurskoðun utanríkismálaþjónustunnar. Ef nokkuð er sameiginlegt með hinni frægu ferð Kolum- busar til Vesturheims og stefnu fslands i utanrikismálum, þá er það, að þegar Kolumbus lagði af stað vissi hann ekki hvað hann var að fara, þegar hann kom þangað vissi hann heldur ekki hvar hann var kominn og þegar hann kom til baka vissi hann ekki hvar hann hafði verið. Eitthvað þessu likt er með hringlandann, stefnuleysið, óþörf afskipti og heimskulega af- stöðu utanríkisstefnu okkar. Utanríkismálaráðherrann veit ekki hvert á að stefna, en þiggur ráð frá dönskum og sænsk- um kollegum eða er keyptur til að hygla atkvæði Islands í sömu alþjóðakrúsina, sem skandinavísku löndin eru að verða fræg fyrir að endemum. Atkvæði fyrir fisk Vikublaðið NEWSWEEK, eitt kunnasta og víðlesnasta vikublað heims upplýsir 22. des: s.l., að það sé opinbert leyndarmál, að Danir hafi lofað að kaupa íslenzkan úr- gangsfisk, ef Grikkir hættu verzl- unarviðskiptum við okkur, ef við greiddum atkvæði gegn veru Grikkja í Evrópuráðinu. Danir hafa reyndar opinberlega mótmælt þessu, en engu að síður er hér um mjög líklega staðreynd að ræða. Upplýsingar þessar má lesa á bls. 17 í Newsweek, en þar segir: „Though they publicly denied it, the Danes were privately reported to have persuaded Iceland to cast a nay vote by offering to buy any Icelandic fish that the Greeks might refuse". í stuttu máli: Emil Jónsson, yfirmaður utanríkismála okkar, seldi atkvæði þjóðarinnar fyrir úrgangsfisk, sem enginn vill kaupa af okkur nema Grikkir, gegn loforðum Dana um að kaupa hann. Lotning Nú er bað vitað mál, að Emil Jónsson horfir lotningaraugum til alsælu skandinaviskra Krata, og flestir muna heimskulegt frum- hlaup Kraghs hins danska þegar gríska herforingjaklíkan greip völd in til að koma í veg fyrir algert yfirvald grískra komma þar í landi. Lenti hann í deilum vegna frum- hlaups síns og missti embættið skömmu síðar. Starf krata á Norð- urlöndum hefur byggzt á því í af- SeSlabankinn í hótelrekstur? Óhæf samkeppni bankans við einka- rekstur - Hættulegt fordæmi Nú er Seðlabankinn h.f. að hefja hótelrekstur, þótt ekki getum vér með góðu móti ímyndað okkur hann dr. Jóhannes Nordal í hlutverki snurfusaðs þjónakapteins. Ferðamannatekjur er vaxandi liður í þjóðarbúinu og sam- kvæmt upplýsingum Seðlabankastjórans þá hafa lengi staðið yfir rannsóknir á möguleikum á hótelbyggingum, bæði hér og nyrðra, til að anna eftispurn ferðamanna. Skæður keppinautur Þetta er sjálfsögð þróun, en ein- hvern veginn finnst mönnum að — Er það satt, að slitnað sé upp úr kaupum Kaup- mannasamtakanna á Vá- tryggingafélaginu — vegna vandræða þess? hart sé gengið að einkarekstri í hótelmálum, þegar Seðlabanka- valdið, er að verða ein skæðasti keppinautur einkaframtaks á ís- landi, en þau eru nú á fleiru en einu sviði. Taprekstur? Þótt þetta sé gert undir lána- yfirskyni þá er vitað, að hótél- rekstur, eins og sá sem fyrirhug- aður er, myndi ekki standa undir sér um áratugi, þótt fylla mætti herbergi og matsali yfir sumartím- ann. Yrði því hér um lán til langframa að ræða, lán sem einka- aðilar fá ekki til nauðsynlegs við- halds eigin rekstri. Vafasamt hlutverk En það er fyrst og fremst hlut- verk Seðlabankans, sem menn ótt- ast. Ef sú regla kemst á, að bank- inn hleypur undir bagga með skiptum sínum við aðrar þjóðir að^ leika einskonar bjargvætti eða jóla- sveina á alþjóðavettvangi og eru þeir nú að öllu jöfnu álitnir bros- legir umvöndunarsinnar og hnýsn- ar förukerlingar í alþjóðamálum. ökuskírteini og au pair-stúlkur Nú er það á allra vitorði að til þessa hafa aðalstörf Evrópuráðsins verið einkum þau, að samræma gildi alþjóðaökuskírteina og hjálpa til við öryggisgæzlu au pair- stúlkna, sem ferðast milli landa í vinnuleit. Onnur störf ráðsins hafa verið veigalítil, þar til Norður- löndin hugðust reka Grikki úr ráð- inu þegar opinbert varð, að póli- tískir fangar hlutu harða kosti í heimalandi sínu og voru að sögn pyndaðir. Þetta þoldu ekki hin heilögu norrænu lönd og auðvitað téymdu bau Breta, Hollánd og' Ítalíu með sér, þ'ótt ékki fylgdi þar hugur máli. Fulltrúi Grikkja sagði sig þá úr ráðinu, öllum að óvörum, en gríska stjórnin lýsti Ðönum og Framhald á 3. síðu Blaðamenn í skærnhernað Miklar líkur benda til þess, að Blaðamannafélag íslands hefji skæruhernað á hendur dagblöðunum, ef ekki takast samningar á næstunni. B.í. gerir talsvert. miklar kaup- og fríðinda- kröfur, én útgefehdur dauf- ir, einkum Mbl.-menn. Mbl.-maður tjáði blaðinu, að sú hugmynd hefði skotið upp kollinum, að fara í 1 — 2 daga „skyndiverkföll“ til áherzlu kröfum sínum og stöðvar þannig útkomu blaðanna. Almennt talað búa blaðamenn við léleg kjör, og er full ástæða til að leiðrétta mál þeirra hið fyrsta. Betur má ef duga ska/ hverju fyrirtækinu á fætur öðru, sem lendir í fjárhagsvandræðum, þá er vant að sjá til hvers leiðir. Nú þegar styður bankin af ráð- um og dáð fyrirtæki, sem eru á beinni samkeppni við einkafyrir- tæki og hefur þessi afstaða hans mjög þrengt að kostum þeirra og rekstri. Innheimtubragð Það hljóta að finnast aðrar og eðlilegri leiðir til að hjálpa þessum fyrittækjum fyrst að þau fylgja ekki þeirri viðteknu reglu við- skiptalífsins að „fara yfrum" þeg- ar vandræði verða þeim ofvaxin. Að grípa til þess ráðs að láta rík- isbanka taka við rekstrinum til þess að þeir fái „inn" skuldir sínar, er háskaleg stefna og beint tilræði við heilbrigð viðskipti. Líkkistunaglar Undarlegt er að forsætisráðherra, leiðtogi hins frjálsa framtaks, skuli láta þennan hættulega skrípaleik fara fram án þess að grípa í taum- ana. Ef svo heldur áfram, þá eru sæti flokksins í ríkisstjórn of dýru verði keypt, og vera má, að brátt sannist, að sífelldur undansláttur forustunnar sé ekki annað en nýr nagli í líkkistu flokksins. Laugardagitm 3. jan. var gamanleikur Peter Ustinovs, sýndur í 20. sinn í Þjóðleikhúsimt. Aðsókn að leiknmn hefur verið mjög góð. Greimlegt er að þessi hippía leikur Ustinovs fellur vel í smekk íslenzkra leikhús- gesta, enda hafa undirtektir verið. með afbrigðum góðar á öllum sýn- ingmn. Ævar Kvaran leikur • aðalhlutverkið, en Guðbjörn Þorbjarnar- dóttir, Rúrik Haraldsson og Sigurður Skúlason fara líka með stór blut ■verk. Myndm er af Ævari og Rúrik í hlutverkum sínum. LANQSBOKASAFN 302743 ÍSLANOS

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.