Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 12.01.1970, Blaðsíða 5

Mánudagsblaðið - 12.01.1970, Blaðsíða 5
Mánudagur 12. janúar 1970 Mánudagsblaðið 5 Dagbók Cianos Framhald af 2. síðu. og það án okkar vitundar. Ribben- trop neitaði því hvað eftir annað við sendiherra okkar, að Þýzka- land ætlaði að fylgja kröfum sín- um fram til hins ýtrasta, en ég var tortrygginn og mig langaði til að vera viss, svo að ég fór þann 11. ágúst til Salzburg. Meðan við vorum að bíða eftir að setjast að miðdegisverði, sagði Ribbentrop mér frá ákvörðun Þjóðverja um að kveikja í púður- tunnunni. Hann sagði það sama tón eins og hann mundi hafa talað í, ef hann hefði verið að minnast á eitthvert smáatriði í skrifstofu- starfi sínu. Við vorum á gangi í garðinum. „Jæja, Ribbentrop", sagði ég, .,hvað viljið þið? Danzig eða pólska beltið?" „Meira en það", sagði hann og leit á mig með augum, sem voru köld eins og stál. „Við viljum stríð". Mér var Ijóst, að þetta var ó- hagganleg ákvörðun, og ég sá í anda þann harmleik, sem mann- kynsins beið. Samtöl mín við þenn- an þýzka stéttarbróður minn voru ekki ávallt hjartanleg og þennan dag stóðu þau 10 klukkutíma. Sím- töl mín við Hitler stóðu líka margar klukkustundir næstu daga. Rök mín höfðu alls engin áhrif. Nú gat ekkert komið í veg fyr- ir það, að þessi glæpsamlega áætl- un kæmist í framkvæmd. Hún hafði Iengi verið á prjónunum, og Hitler og nánustu samstarfsmenn har^ höfðu.,.skemmt sér við að ræða hana fram og afmr. Brjálæði foringja þeirra hafði orðið að trú fylgismattttá'hans. Allar mótbárur voru ofurliði bornar, og hlegið að sumum. Áætlanir þeirra voru reistar á röngum grunni Þeir voru vissir um, að England og Frakkland mundu verða hlutlaus, meðan gert væri út af við Pólland. Ribben- trop vildi veðja við mig, meðan á einni af þessum drungalegu mál- tíðum stóð í Österreichhof í Salz- burg. Ég átti að láta af hendi ítalskt málverk, ef Englendingar og Frakkar yrðu hlutlausir. Ef Ribbentrop tapaði, átti hann áð gefa mér safn fornra vopna. Mörg vitni vom viðstödd, en Ribben- trop hefur kosið að gleyma veð- málinu. Hitler komst Ioks á það stig að segja mér, að sem Suðurlandabúi gæti ég ekki skilið, hve mjög hann, Þjóðverjinn, þyrfti að halda á skógunum í Póllandi. Allt frá þessum fundi í Salz- burg var stefna Berlínar gagnvart ftalíu ein samhangandi flækja lyga, undirróðurs og svika. Það hefur aldrei verið farið með okkur sem bandamenn, heldur ávallt sem þræla. Við vorum aldrei að neinu spurðir. Hinar allra mikilvægustu ákvarðanir vora teknar án þess að við okkur væri talað og fram- kvæmdar, áður en við vissum um þær. Ekkert nema skammarleg rag- mennska Mussolinis gat þolað slíka meðferð möglunarlaust. Ég frétti um árásina á Rússland, hálftíma eftir að þýzkt herlið var komið yfir landamæri Rússlands. Þó var þetta mál, sem meiru skipti en nokkuð annað í átökunum í Evrópu. Sunnudaginn næsta á undan, þann 16. júní, var ég með Ribben- trop í Venezía. þar sem við rædd- um um þátttöku Króatíu í þrí- veldasáttmálanum. Lausafregnir gengu um alla veröld út af árás á Sovétríkin, og það þótt blekið væri naumast þurrt á vináttusáttmálan- um. Ég spurði Ribbentrop um þetta, meðan við vorum í gondól á Ieiðinni frá Danielihótelinu til Volpi greifa í höll hans. Ribbentrop íhugaði sýnilega hvert orð, þegar hann svaraði: „Kæri Ciano, ég get ekki sagt yður neitt, því að allar ákvarðanir eru læstar inni í órannsakanlegu brjósti foringjans. En eitt er víst: Ef við ráðumst á þá, verður Rúss- land Stalíns þurrkað út á átta vik- um". Auk vantrúarinnar á Ítalíu, var nægilegt skilningsleysi hjá Þjóð- verjum til að kosta þá úrslit stríðs- ins. Mér er ljóst, að í þessum inn- gangi hef ég sagt frá ýmsum stað- reyndum, sem era ekki mikilvæg- ar. Innan nokkurra daga mun málamyndadómstóll birta dóm, sem þegar hefur verið ákveðinn af Mussolini fyrir áhrif þeirrar klíku af skækjum og millimönnum, sem hafa verið plága í stjórnmálalífi ftalíu árum saman og komið land- inu út á barm glötunarinnar. Ég tek örlögum mínum með ró. Ég finn dálitla huggun í því, að ég get talizt einskonar hermaður, sem féll í baráttunni fyrir þeim málstað, sem hann trúði á. Með- ferðin á mér þennan tíma, sem ég hef verið í haldi, hefur verið skammarleg. Mér er ekki leyft að hafa samband við nokkurn mann. Allt samband við ástvini mína er mér bannað. Samt finn ég, áð allir þeir, sem mér hefur þótt vænt um, eru hjá mér í þessum dimma fangaklefa í Veróna, sem geymir mig síðustu daga ævi minnar. Hvorki veggir né menn geta hindr- að það. Mér finnst miskunnarlaust, að ég skuli ekki aftur fá að líta í augu barnanna minna þirggja eða þrýsta móður minni að hjarta mínu, eða konu minni, sem hefur reynzt tryggur og öruggur föranautur í raunum mínum og andstreymi. En ég verð að beygja mig fyrir vilja Guðs. Mikil rósemi kemur yfir sál mína. Ég er að búa mig undir hinn hinzta dóm. f þessu hugarástandi, sem úti- lokar alla ósannsögli, lýsi ég því yfir, að ekki eitt orð af því, sem ég hef skrifað, er rangt, ýkt eða skrifað af eigingjarnri óbeit. Það er rétt eins og það kom mér fyrir sjónir. Ef ég hugsa um möguleik- ann á útgáfu þesara athugasemda, þegar ég er að búast til þessarar miklu brottfarar, þá er það ekki vegna þess, að ég geri ráð fyrir við- urkenningu að mér látnum, heldur af því að ég trúi því, að heiðarleg- ur vitnisburður í þessum dapra heimi geti orðið til þess að veita saklausum lið og leiða rétdáta hegningu yfir þá, sem sekir era. Veróna-fangelsi, klefi 27, 23. des. 1943, Galeazzo Ciano. Vinningur í sjónmáli íengu öðru happdrætti hérlendis eru eins mikiar likur á því að þér hljótið vinning á miðann yðar Fjöldi fólks hlýtur fjölda vinninga. Og aldrei hafa möguleikarnír verið jafnmiklir og í ár. Vinningar eru nú mun fleiri en í fyrra, en tala útgefinna miða er óbreytt — og það eru aðeins heilmiðarog aðeins ein miðaröð. Meira en fjórði hver miði hlýtur vinning. Jafnframt þessu hækka vinningsupphæöir um samtals nær 10 milljónir króna,T. d. hækka 10 250 þúsund króna vinningar í 300 þúsund, 5 þúsund króna vinningúm fjölgar um 400. Lægsti vinningur er nú kr. 2000.00 ístað kr. 1.500.00 áður. Jagúar XJ6 kom fyrst á markaðinn 1968. Hann var kjörinn bíll ársins 1969 í alþjóðlegri samkeppni á vegum hins þekkta tímarits Car Magazine. Yfir 70 bílar kepptu um titilinn. Þessi nýja Jagúar-bifreið tekur fram öllum fyrri gerðum að þægindum og aksturshæfni. Jagúar XJ6 er aukavinningúr í happdrætti SÍBS 1970, sá fyrsti sinnar tegundar á íslandi. BÍLL ÁRSINS ’70 Á ÍSLANDI. Fjöldi fólks hlýtur fjölda vinninga Vinningum fjölgar — vinningar hækka.Draumur og veruleiki.Og miðinn kostar aðeins 100 krónur. Merkið sem táknar aðstoð við sjúka og bágstadda. Öllum ágóða af happdrætti SÍBS er varið til að endurhæfa hvers konar öryrkja. Markmiðið er að sem flestir verði þáíttakendur í þjóð- nýtum störfum. Það er þeirra ayzy hagur og þjóðar B U I I} IJ^ innar um leið ] yðar hagur. Styðjum sjúka til sjálfsbjargar.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.