Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.07.1970, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 20.07.1970, Blaðsíða 2
2 Mánudagsblaðið Mánudagur 20. júlí 1970 ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS Barnið vilta undir Eyjafjöllum Undir Eyjafjölum bar svo við, að barn hvarf einu sinni. Var þess þá víða leitað og fanst um síðir í gjótu einni uppi í fjalli; urðu menn þó að víkka gjótuna, áður en barninu var náð. svo var hún þröng. En er menn höfðu náð barninu, sagði það frá því, að sér hefði sýnzt hún móðri sín fara allt- af á undan sér og hefði það elt hana þangað. Kirkjusmiðurinn á Reyni Einu sinni bjó maður nokkur á Reyni í Mýrdal; átti hann að byggja kirkju, en varð naumt fyrir með timburaðdrætti til hennar; var kom- ið að slætti, en engir smiðir fengn- ir, svo hann tók að ugga að sér, að kirkjunni yrði komið upp fyrir vet- urinn. Einn dag var hann að reika út um tún í þungu skapi. Þá kom maður til hans og bauð honum að byggja kirkjuna fyrir hann. Skyldi bóndi segja honum nafn hans, áður en smíðinni væri Iokið, en að öðr- um kosti skyldi bóndi láta af hendi við hann einka son sinn á sjötta ári. Þessu keyptu þeir; tók aðkomu- maðurinn til verka; skipti hann sér af engu nema smíðum sínum og var fáorður mjög, enda vannst srmð in undarlega fljótt, og sá bóndi, að henni mundi IofeiS nálægt sláttu- Iokum. Tók bóndi þá að ógleðjast mjög, en gat ekki að gjört. Um haustið, þegar kirkjan var nærri fulsmíðuð, ráfaði bóndi út fyrir tún; lagðist hann þar fyrir útan hól nokkurn. Heyrði hann þá kveðið í hólnum, sem móðir fevæði við barn sitt, og var það þetta: „Senn kemur hann Finnur faðir þinn frá Reyn með þinn litla leiksvein". Var þetta kveðið upp aftur og aftur. Bóndi hresstist nú mjög og gekk heim til kirkju. Var sthiður- inn þá búinn aÖ telgja hina séin- ustu fjöl yfir altarinu og ætlaði að fara að festa hana. Bóndi mælti: „Senn eru búinn, Finnur rriinn." Við þessi orð varð smiðnum svo bilt, að hann feldi fjölina niður og hvarf; hefur hann ekki sézt síðan. Kötludraumur Már hét maður; hann var höfð- ingi mikill og bjó á Reykhólum vestra. Hann áti konu þá, er Katla hét; hún var af góðum ættum. Ein- hverju sinni reið Már sem oftar til alþingis, en Katla var eftir heima. Meðan Már er burtu, gengur Katla einn morgun til dyngju sinnar og sofnar þegar. Þangað komu og aðr- ar konur síðar, og sefur hún sem áður. Þegar Ieið að miðdegi, vilja þær vekja Kötlu, en þess var ekki kostur; hugðu þær Kötlu þá dauða og sögðu fóstra hennar til. Þegar hann kom þar, sem Katla Iá, sagði hann, að hún væri ekki dauð, því önd bærðist fyrir brjósti hennar, en hann gæti ekki vakið hana; sat hann svo yfir henni fjögur dægur föst og fuli. Á fimmta dægri vakn- aði Katla og var þá harmfull mjög, en enginn þorði að fregna hana, hvað því olli. Eftir það kemur Már heim af þingi; þá hafði Katla brugðið hátt- um sínum, því hvorki gekk hún í móti honum né hneigði honum, er hann kom. Hann leitar þá eftir hjá salkonum hennar, hvað þessu valdi, en þær kváðust ekki vita neitt um það annað en að Katla hefði sofið fjögur dægur, en ekki sagt neinum, hvað fyrir sig hefði borið. Már gekk þá á konu sína um þetta í tómi.og spurði, hvað orðið hefði um hana í svefnhöfga þessum, og kvað henni ekki mundi verða mein að mælgi sinni. Katla sagði honum þá upp alla sögu. „Mér þótti," segir hún, „kona koma til mín í dyngjuna, húsfreyju leg og orðfögur. Hún kvaðst eiga heima á Þverá skammt héðan og bað mig að fylgja sér á götu. Eg gjörði svo, en hún lagði glófa sína þar, sem ég sat, og sagði, að þeir skyldu verja sætið. Við gengum svo út og komum að vatni einu; þar flaut bátur fagur. Þakkaði hún mér þá fylgdina, en ég bað hana vel fara. Varð ég þess þá vísari, að hún hét Alvör; bað hún mig taka í hönd sér, og gjörði ég svo. Vatt hún mér þá í bátinn og reri með mig að hólma einum; fann ég þá, að hún réði ein öllu, en ég engu. Hún gjörði sig þó blíða við mig og kvað sig nauðsyn hafa knúið til þessa, — „og skal ég," segir hún „fylgja þér heim aftur." Við kom- um þá til híbýla hennar í hólm- anum; voru þau svo fögur, að ég hef aldrei bjartari bústað litið. Fylgdi hún mér í herbergi eitt, þar sem konur nokkrar voru fyrir, og var þar kerlaug búin og rekkja vel tjölduð. Eftir það var mér borinn víndrykkur, og Iagðist ég svo til svefns. Eg vaknaði við það aftur, að skikkja lá hjá mér, búin skíni gulli, og húsfreyja bar til mín önn- ur föt gull-saumuð; síðan kastaði hún yfir mig kápu sinni; var hún af guðvef og grátt skinn undir, búin brenndu gulli. Bað hún mig þá eiga þessar gersemar, ef ég vildi; þar með var hringur af rauða gulli, höfuðgull og men, fjögur fing urgull og lindi fagur. Síðan bað hún mig ganga inn í skála sinn, og varð hún því öllu ein að ráða. Gengum vér þar inn átta konur saman; var þar glæsilega fyrirbúið; skálaveggirnir voru (skreyttir) gull- ofnum tjöldum, silfurker á borðurn og gullbúin drykjarhorn og skraut- mannalið mikið fyrir í skálanum. í öndvegi hinu æðsta sá ég hvílu eina; þar lá maður í silkiklæðum; Alvör tók á honum, vakti hann og nefndi Kára. Hann vaknaði og spurði, hví hún hefði vakið sig eða hvort nún bæri sér nokkur ný tíðindi, — „eða er Katla komin hér í skálann?" Sá hann þá, að svo var. Vorum við Kári sett síðan bæði á einn bekk, og bað Alvör menn kalla Kára brúðguma; var svo gjört; tóku menn nú til drykkju, og var drukkið fast um daginn. En er kvöld var komið, sagði Alvör, að ég skyldi hvíla hjá Kára, en ég kvað þess enga von; miklu elskaði ég Már heitara en svo, að ég mætti yndis njóta með öðrum manni. AI- vör sagði ég mundi þess aldrei bæt- ur bíða, ef ég yrði ekki við vilja Kára. Mér varð ráðafátt við þessi orð, því ég þóttist sem einmana í vargaflokki. Þegar ég var gengin til hvílu, kom þar maður til mín og bað mig eiga allt gull sitt og gersemar, en ég gaf honum enga von blíðu minnar. Kári lét mig þá drekka af hoimi, er hann hafði áður drukkið af, og kvaðst fyrr vildi bíða helstríð en sjá mig hrygga. Bað hann mig þá huggast láta og hét, að mér skyldi verða bráðum fylgt heim aftur. Var ég svo þar tvær nætur, hrygg í huga; enginn vildi þar angra mig, heldur gleðja mig. Segir þá Kári við mig, að við munum eiga son í vændum. Bað hann mig kalla hann Kára. Hann tók þá belti ágætt og hníf og fékk mér; bað hann mig fá það syni okkar, að það fylgdi nafni. Hann bað mig leggja skrúðklæði rnín og gersemar allar í skjóðu, og kvaðst hann unna mér þeirra bezt að njóta. „Skaltu sýna það allt," segir hann, „Már manni þínum og inna honum satt frá öllu, þó þér þyki það sárt og sviðamikið. Þið skuluð byggja ykkur nýjan bústað yfir á Þverá; muntu finna þar fuglþúfur tvær við endann á skála mínum, c.g verða það féþúfur ykkar Þar mun lifna af ykkur mikill ættbogi, er frægur mun þykja. Nú mun ég verða að skiljast við þig og aldrei lít: þig augum framar, enda veit ég eigi, hvað langra lífdaga mér verður auðið héðan af." Síðan leiddi Alvör mig harmfull í huga út; heyrði ég þá brest mikinn í skál- anu, er Kári sprakk af harmi mín vegna." — Segja sumar sagnir, að hún flytti Kötlu á bátnum sama yfir vatnið og fylgdi henni svo heim að hlaðgarði og tæki aftur glófa sína úr sætinu. Sagði hún þá við Kötlu að skilnaði: „Farðu heil, Katla, þó ekki hafi ég af syni mín- um nema sorgir einar, og njóttu vel gersema þinna." „Er nú. draúmur minn á enda," segir Katla, „og vænti ég, Már, þess af drengskap þínum, að þú finnir mér vorfeunn, er ég var alls ósjálfráð.” Már bað hana sýna sér gersemarnar, og gjörði hún svo. Litlu fyrir sumar veturinn eftir fæddi Katla svein- barn, einkar frítt, og þótti Már sveinninn giftusamlegur. Var hann kallaður Kári, sem faðir hans hafði fyrir mælt, og Iét Már kalla sig föð- ur sveinsins; og reyndist hann hon- um í öllu betur en móðir hans, er jafnan var fá við hann. Var nú flutt ur bústaður þeirra Márs þangað, sem Katla sagði fyrir, og bjuggu þau hjón þar saman og unnu hvort öðru mikið og áttu mikið auðnulag saman. Auglýsið í Mánudagsblaðinu Höfum fyrirliggjandi frá hinu þekhta norska fyr- Hinar vinsælu þiljur íást nú í eftirfarandi irtæki ELGESÆTER appelsínu- og jarðaberjasafa tegundum: á I-V2 liters plastbrusum. Mjög hentugt til ferða- Wenge Oretron Pine laga. Palisander Alm Eik Furu Einnig spónlagt hilluefni og skilrúms- ÁSBJÖRN ÓLAFSSON H.F. veggir. Borgariúni 33, áSBJÖRN ÓLAFSSON H.F. Sími: 24440. Vöruafgreiðsla Skeifunni 8.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.