Tíminn - 15.07.1977, Page 7
Föstudagur 15.. júll 1977
7
Allt í
réttri
röð,
segir
Elke
Flestir þeir, sem eitthvað
hafa séð af svokölluðum
„djörfum kvikmyndum"
kannast við Elke Sommer
Hún er sögð góð leikkona,
en þó einkum og sér í lagi
fræg fyrir sinn mikla
kynþokka, — oq er
reyndar stolt af því
sjálf . Hún segir sjálf, að
af kvenlegum eigin-
leikum leggi hún mest
upp úr því að konan hafi
kynþokka, — það er
fyrsta skilyrði fyrir
hamingjusömu hjóna-
bandi, segir Elke. Konur
þurfa ekki endilega að
vera laglegar, en þær
geta flestar lært að vera
„sexy" eins og það er
kallað. Jæja, af öðrum
góðum eiginleikum, sem
konur eiga að prýða,
segir leikkonan að næst
komi það að vera góð
eiginkona, þar næst góð
móðir, og í f jórða lagi góð
húsmóðir. Þetta er rétt
röðun á kostum kvenna,
segir Elke Sommer, sem
við sjáum hér í bikini-
baðfötum, sem auðvitað
undirstrika hennar
„bezta eiginleika".
I þessu sambandi kemur
okkur í hug maðurinn,
sem sagði alltaf, þegar
hann hafði látið í Ijós sitt
álit á einhverjum hlut: —
Þetta er mín skoðun, og
hún er rétt! En það voru
nú ekki alltaf alíir á því,
að hann' hefði rétt fyrir
sér, þó honum þætti svo
sjálfum, og líklega eru
ekki allar konur sammála
þokkadísinni um í hvaða
röð þessu skuli raðað.
Mér sýnist þetta
vera varöbátur
landhelgisgæzl-
unnar skipstjóri!
Svalur, ■
ég ætla
ekkiaö bíða
eftir
þeim!
Tíma-
spurningin
Hver er afstaða þín til lífs-
ins og tilverunnar, ef þú
ætti að tjá það í einu orði
eða einni setningu?
Gu&mundur Ibsen, fyrrv. sjóm:
Ætli þetta sé nú ekki eins og hlut-
verk i stórum leik, og veldur hver
á heldur.
Ingi B. Halldórsson: Undursam-
legt.
Guörún Helgadóttir, gjaldkeri:
Ofbo&slega skemmtilegt.
Agústa Gisladóttir, innheimtustj:
Þaö er yndislegt aö lifa.
Guölaug Narfadóttir, skrifstofu-
stúlka: Þetta er ágætt, sæmilegt
lif, en þaö mætti vera betra.