Tíminn - 24.08.1977, Page 9
Miövikudagur 24. ágúst 1977
9
Wvmmm
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Verð i lausasölu kr.
70.00. Áskriftargjald kr. 1.300 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Valddreifing en samráð
Verðbólgan á íslandi hefur verið svo langvar-
andi og aðsópsmikil i þjóðfélaginu að hún er fyrir
löngu orðin meira en efnahagslegt vandamál i
þröngri merkingu orðanna. Hún er miklu fremur
almennt þjóðlifsfyrirbæri, fastur liður i lifi
þjóðarinnar. Það er þvi ekki að undra hve erfitt
það hefur reynzt að ná tökum á henni, og það er
þannig rangt, sem sumir hafa haldið fram, að
helztu rætur hennar sé að finna i óskynsamlegum
kjarasamningum einum saman.
Að þvi leyti sem verðbólgan á rætur i kjara-
ákvörðunum, er þar fyrst og fremst um það að
ræða að kjarasamningar byggjast á tortryggni
um framtiðina og vantrú á þvi að varanlegar
lausnir finnist. Þess vegna hefur verið samið um
miklar og hraðar hækkanir sem stæðust að ein-
hverju leyti verðlagsþróunina um skeið.
Það hefur verið margitrekað hér i blaðinu, að
taka verður upp miklu.skipulegri aðferðir en tið-
kazt hafa við undirbúning og gerð kjara-
samninga. Þessi staðreynd liggur i augurh uppi,
og hún skar i augu almennings nú á siðastliðnu
vori.
Það er full þörf á sérstakri stofnun sem starfar
allt árið að kjararannsóknum og samningamál-
um undir forstöðu rikissáttasemjara. Skýrari
ákvæði þarf um það hvernig boðað verður til
vinnustöðvunar. Kjarasamningar eiga að falla að
rammasamningi sem spannar allan vinnu-
markaðinn og kveður á um launamismuninn i
þjóðfélaginu eftir þvi sem aðilarnir koma sér
saman um. Sérstök fastanefnd launþega, vinnu-
veitenda og rikisvalds á stöðugt að vinna að þess-
um málum i tengslum við sáttasemjara. Með
þessum hætti er unnt að tryggja rækilegan undir-
búning og stöðug samráð til þess að eyða mis-
skilningi og koma i veg fyrir óþarfa deilur og
átök.
Nú hefur það komið fram, að i svo nefndri verð-
bólgunefnd rikisstjórnarinnar hafa verið ræddar
tillögur sem ganga i þessa átt. Samkvæmt þeim
hugmyndum er gert ráð fyrir þvi að fastanefndin
hafi mjög viðtæk afskipti af kjaramálum, efna-
hagsmálum og jafnvel skattamálum.
Þessum hugmyndum ber að veita fulla athygli.
Hins vegar er það varhugavert ef gert er ráð fyrir
þvi að slik nefnd geti tekið sér eitthvað viðtækt
vald. Fastanefnd um samskipti á vinnu-
markaðinum getur ekki tekið sér nein þau völd
sem að réttu lagi tilheyra stjórnvöldum. Stjórn-
völd hljóta eftir sem áður að bera þá ábyrgð sem
þeim er á herðar lögð samkvæmt stjórnskipan
lýðveldisins.
Á sama hátt getur slik nefnd ekki komið i stað
verkalýðshreyfingar og samtaka vinnuveitenda.
Áform um að bæta aðferðir við gerð kjara-
samninga eiga ekki að fela það i sér að valdinu sé
safnað saman i eina greip. Slik samþjöppun valds
til nefndar undir forsæti embættismanns
stenzt ekki þær lýðræðiskröfur sem þjóðin gerir.
Og slikt nefndarforræði samrýmist ekki þvi
félaga- og samtakafrelsi sem fyrir er i landinu.
Nýskipan samningamála á að miðast við skyn-
samleg og hyggileg vinnubrögð innan ramma
lýðræðis og félagafrelsis. Það er rangt að vald-
dreifing og samningafrelsi launþega og vinnu-
veitenda sé i eðli sinu óskynsamlegt. Það veldur
alltaf hver á heldur að visu, en skynsamlegar
lagfæringar ásamt nægilegri starfsaðstöðu við
samningagerð ættu að færa þjóðina nær mark-
miðunum en einhver „velferðarnefnd” sam-
ábyrgðar og samþjöppunar valdsins yfir kjörum
fólksins. JS
ERLENT YFIRLIT
Nýr yfirmaður banda
rískrar leynilögreglu
Carter þykir hafa heppnazt valið vel
Frank Johnson
ÞAÐ TÓK Carter forseta
meira en hálft ár að ráða nýj-
an yfirmann bandarisku
leynilögreglunnar, Federal
Bureau of Investigations, sem
venjulega gengur undir
skammstöfuninni FBI. Það er
hlutverk FBI að njósna um
hvers konar glæpastarfsemi
innanlands. Engin bein tengsli
eru milli FBI og CIA, sem
annast njósnastarfsemina ut-
an Bandarikjanna. Val á nýj-
um yfirmanni FBI þótti nú
sérlega vandasamt sökum
þess, að mikil gagnrýni hefur
beinzt gegn stofnuninni sið-
ustu árin, þar sem hún er talin
hafa farið út fyrir verkahring
sinn með þvi að stunda póli-
tiskar njósnir. FBI tók til
starfa 1924. Edgar Hoover
stjórnaði henni frá upphafi og
þangað til hann lézt 1972 eða i
48 ár. Hann hlaut mikla frægð
fyrirstjórn sina framan af, en
eftir að siðari heimsstyrjöld-
ina greip hann mikill ótti við
kommúnista og þóttu störf
stofnunarinnar bera mikinn
keim af þvi, að hann gerði oft
litinn mun á frjálslyndi og
kommúnisma og hafði þvi
ýmsa menn undir óréttmætum
grun um byltingarfyrirætlan-
ir. Þetta hefur verið að
upplýsastmeira ogmeira eftir
fráfall hans. Nixon gekk illa
að finna eftirmann Hoovers,
fyrst setti hann William C.
Ruckelshaus til bráðabirgða,
en hann þótti ekki duga, og
sama gilti um Patrick Gray,
sem einnig var settur til
bráðabirgða. Að lokum skip-
aði Nixon þekktan lögreglu-
stjóra, Clarence M. Kelley,
sem yfirmann stofnunarinnar,
en hann hefur ekki þótt dug-
andi stjórnandi. I forseta-
kosningunum i fyrra deildi
Carter á Kelley og lýsti yfir
þvi, að hann myndi ekki láta
hann stjórna FBI áfram, ef
hann yrði kjörinn forseti.
Kelley sá þvi' þann kost vænst-
an að segja af sér og hættir
hann um áramótin.
ÞAÐ ER fyrst i vik
unni sem leið, að Carter til
kynnti valið á hinum
væntanléga yfirmanni FBI.
Fyrir valinu varð Frank John-
sor. yfirdómari i Alabama.
Sagt er, að Carter hafi boðið
honum þetta embætti á
siðastl. vetri, en Johnson þá
hafnað. Carter skipaði þa
nefnd til að annast val á yfir-
manni FBI. Nefndin kynnti
sér feril ekki færri en 235
manna, sem allir þóttu koma
til greina, og valdi svo að lok-
um 'úr hópnum fimm menn,
sem hdni taldi alla vel hæfa.
Enginn þeirra fann samt náð
fyrir augum Carters eða Bell
dómsmálaráöherra og varð
þvi niðurstaðan sú, að Carter
sneri sér til Johnsons aftur og
lét hann þá loks tilleiðast.
Oldungadeildin verður að
staðfesta skipun Johnsons i
embættið og þykir liklegt að
húnmunigera það. Helzt þyk-
ir liklegt, að Suðurrikjamenn
muni beita sér gegn til-
nefningunni, enda þótt John-
son sé Suðurrikjamaður.
Astasðan er sú, að Johnson
hefur fellt ýmsa úrskurði, sem
hafa bætt hlut blökkumanna i
Alabama, og varð hann fræg-
ur fyrir þessa úrskurði um öll
Bandarikin á sinum tima. A
þessum árum reis m.a. hörð
deila milli hans og George
Wallace, sem nú er rikisstjóri
i Alabama en þeir Johnson og
Wallace voru skólafélagar.
Þegar þetta gerðist var
Wallace undirdómari i Ala-
bama, en Johnson hafði ný-
lega verið skipaður yfirdóm-
ari. Wallace ætlaði þá að nota
dómaravald sitt til að leggja
ekki fram kjörgögn, sem þóttu
mikilvæg vegna deiiu, sem
reis vegna kosningaréttar
blökkumanna. Johnson hótaði
honum þá hörðu og lét Wallace
að lokum undan. Þeim Jenti
oftar saman eftir að Wallace
var orðinn rikisstjóri og hélt
Johnson jafnan hlut sinum.
Þrátt fyrir þessar deilur
þeirra, hefur Wallace látið i
ljós ánægju með útnefning-
una.
Jafnhliða þvi, sem Johnson
hefur orðið þekktur fyrir
frjálslyndi sitt i málum
blökkumanna, hefur hann þótt
strangur dómari, sem gengi
fast fram i þvi að halda uppi
lögum og rétti. Einum þekkt-
um lögfræðingi varð að orði,
þegar hann frétti af tilnefn-
ingu Johnsons í embættið:
Guð hjálpi Mafiunni.
Meðal þeirra mála, sem
Johnson hefur látið sig miklu
varða, er meðferð fanga i Ala-
bama. Hann hefur hvað eftir
annað fellt dóma, þar sem að-
búnaður fanga hefur verið
vittur og úrskurðaður ósam-
rýmanlegur þeim rétti, sem
þeir eiga i stjórnarskránni.
FRANK Johnson er 58 ára að
aldri, fæddur 29. október 1918.
Faðir hans hafði talsverð af-
skipti af opinberum málum og
var um skeið eini repubiikan-
inn, sem átti sæti i fulltrúa-
deild þingsins i Alabama.
Frank Johnson hefur alltaf
fylgt repúblikönum aö málum
og réðu þvi ekki flokkslegar
ástæður tilnefningu hans.
Hann var alinn upp i héraði,
þarsem bændur voru yfirleitt
svo efnalitlir, að þeir höfðu
ekki einu sinni efni á að hafa
blökkumenn i þjónustu sinni.
Johnson var strax á unga aldri
hliðhollur blökkumönnum.
Hann var i hernum öll
styrjaldarárin og tók m.a. þátt
i innrásinni i Normandi. Eftir
heimkomuna las hann lög, og
lét jafnframt talsvert til ein
taka i hinum frjálslyndari
armi repúblikana, sem studdi
framboð Eisenhowers 1952.
Eisenhower galt honum vel
stuðninginn, þvi að hann skip-
aði hann yfirdómara i Ala-
bama 1955 og var Johnson þá
yngsti maður, sem gegndi svo
mikilvægri dómarastöðu i
Bandarikjunum. Hann hefur
nú gegnt þessari stöðu i meira
en 20 ár við góöan orðstir.
Johnson er sagður lifa ein-
földu ogóbrotnu lifi. Hann hef-
ur undanfarið búið i borgar-
hverfi, þar sem búa bæði
svartir menn og hvitir. Kona
hans er kennari að menntun
og kenndi hún um skeiö við
skóla, þar sem eingöngu voru
þeldökkir nemendur. Þau
urðu fyrir þvi áfalli fyrir
tveimur árum, að einkasonur
þeirra, sem var orðinn 27 ára,
fyrirfór sér.
Það gefur nokkra hugmynd
um þá stofnun, sem Johnson
fær til yfirráða um áramótin,
að starfslið hennar er talið
vera um tuttugu þúsund
manns. Sá maður,.sem stjórn-
ar svo stórfelldu njósnakerfi,
þarf bæði að vera dugandi og
réttlátur. Af ummælum blaða
má ráða að Carter þykir hafa
tekizt vel, þegar hann valdi
Johnson til þessa ábyrgðar-
mikla starfs. Þ.Þ.