Tíminn - 24.09.1977, Page 19
Laugardagur 24. september 1977
19
flokksstarfið
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður verður til viðtals kl.
10.00-12.00 laugardaginn 24. sept. að Rauðárstig 18.
Akureyri
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna á
Akureyri heldur fund sunnudaginn
25. sept. á Hótel KEA kl. 14.00.
Gestur fundarins verður Steingrimur Hermannsson, ritari
Framsóknarf lokksins.
Fulltrúaráðsmenn, bæði aðal- og varamenn eru hvattir til að
mæta stundvislega.
Stjórnin.
„Opið hús" Flateyri
Framsóknarfélag Onundarfjarðar verður með opið hús i sam-
komuhúsinu Flateyri á þriðjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikið
verður af plötum, spilað, teflt, myndasýningar.
Allir velkomnir.
LONDON
Fyrirhuguð er 5 daga ferð til Lundúna á vegum SUF i siðari
hluta nóvember ef næg þátttaka fæst.
Nánar auglýst siðar.
SUF
Kópavogur
Fulltrúaráðsfundur framsóknarfélaganna f Kópavogi verður
haldinn að Neðstutröð 4 þriðjudaginn 27. sept. næstk. kl. 20.30.
Fundarefni: 1. Framboðsmáir Kosning framboðsnefndar. 2.
Vetrarstarfið. 3. önnur mál.
Stjórnin
Keflavík
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Keflavik heldur fund i
Framsóknarhúsinu fimmtudaginn 29. sept. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Vetrarstarfið.
2. Umræður um prófkjör vegna bæjarstjórnarkosninga á kom-
andi vori.
Stjórnin.
Játar
að hann hefur ekki kveikt i húsinu
i auðgunarskyni, heldur hafa ein-
hverjar aðrar hvatir ráðið gjörð-
um hans. Maðurinn var úr-
skurðaður i gæzluvarðhald
snemma i morgun, en rannsókn
málsins er enn ekki full lokið.
Rannsóknin er i' höndum Rann-
sóknarlögreglu rikisins.
O Byggðastefna
Reykjavik sem stjórnsýslu- og
viðskiptakjarna.er væri nægilega
öflugur til þess að þjóðin væri
sjálfstæð út á við, á sem flestum
sviðum. En i öðru lagi þvi sjónar-
miði, sem hlaut þjóðarstuðning á
sjöunda áratugnum, að höfuð-
borgin væri búin að ná þessu
marki i þjóðfélagsþróuninni. Nú
þjónaði það hagsmunum þjóöar-
innar bezt að kappkosta að landið
væri sem jafnast i byggð og
minnsturmunur á kjörum manna
eftir búsetu. Stærsta verkefnið í
byggðamálumer að skapa varan-
legt jafnvægi á milli landshluta
um atvinnuskiptingu. Ef forráða-
menn Reykjavikur gera kröfu um
að haldið verði fullkomlega á hlut
borgarinnar i úrvinnslu og fram-
leiðslu, verða þeir um leið að
viðurkenna það, að þetta er þvi
aðeins réttlætanlegt, að hlutur
landsbyggðarinnar i þjónustu-
starfsemi og úrvinnslu veröi i
eðlilegu mótvægi við Reykjavik.
Það verður að treysta þvi að
menn skorti ekki kjark til að
skilja, að byggðastefnan er mál
allrar þjóðarinnar, en ekki bit-
bein á milli landshluta, með nýj-
um byggðarig og þjóðfélagslegu
ósætti, sem leiðir til kreppu og
ófarnaðar fyrir alla.
o Aðalfundur
valdandi að f jármögnun sjúkra-
flutningatækja er erfið.
Rekstur söfnunarkassa RKÍ
hefur gengið betur en á fyrra
ári. 10 króna mynt fellur þó i
verði, en kostnaður eykst. Tekj-
ur af kössunum námu alls um 63
millj. kr.
Sjúklingaroglæknar hafa lýst
yfir ánægju með rekstur sjúkra-
hótels RKl. Rekstrarhalli
veldur þó siauknum áhyggjum
og enn sést ekki fyrir endann á
málinu.
RKÍ gengst fyrir fjölbreyttu
útgáfustarfi, lokið er útgáfu
skyndihjálparbókar, leið-
beiningabæklings um stofnun
Rauða krossdeilda og heftisum
neyðarvamir.
Samstarfvið alþjóðastofnanir
heldur áfram með venjulegum
hætti,en á ár'inu voru sendar 3,5
millj. til hjálparstarfs erlendis.
O Verkefni
menn til starfa. Nú starfa um 270
manns hjá Slippstöðinni hf. en
þeim mun að öllum likindum
fækka á næstunni, þar sem ýmsir
starfsmenn munu sækja skóla i
vetur.
Auglýsið í
Tímanum
Sýningar á norrænni
kvikmyndaviku hafnar
Knut Husebö og Ellen Horn fara með aðalhlutverk í kvikmynd-
inni Við.
GV-Reykjavik. Nú eru hafnar i
Nýja biói sýningar á norrænum
kvikmyndum á vegum norrænu
vinafélaganna og gefst islenzk-
um kvikmyndaunnendum tæki-
færi til að sjá þar næstu viku úr-
val norrænnar kvikmyndalistar
frá siðasta ári.
1 dag verður frumsýnd á Is-
landi sænska teiknimyndin
Agaton Sax.en hún fjallar um
sænskan leynilögreglumann
sem lendir i ýmsum ævintýrum.
Leynilögreglumaðurinn Agaton
hefur umráð yfir geysimerki-
legri töivu sem hann hefur
matað á upplýsingum um' al-
þjóðlega glæpastarfsemi.
Verstu bófar heims, þeir Július
Mosca og Octopus Scott, strjúka
úr fangelsi i London og halda til
heimkynna Agatons i Byköping,
þar sem þeir hyggjast stela
tölvunni. „Agaton Sax er fyrsta
sænska teiknimyndin i fullri
lengd og verður ekki annað sagt
en vel hafi tekist”, segir Ingi-
björg Haraldsdóttir i sýninga-
skrá.
Sólarferð er finnsk mynd sem
leikstýrð er af Risto Jarva, en
hann er einn af þekktustu kvik-
myndastjórum Finna. Skrif-
stofumaðurinn Aimo hefur mik-
inn áhuga á skiðafþróttinni og
ætlar að verja vetrarfriinu sinu
á vetrarólympiuleikunum i
Innsbruck. Hann hefur undirbú-
ið ferðina i smáatriðum og engu
gleymt, þvi Aimo er fyrir-
hyggjumaður. En svo taka
óhöppin að gerast eitt af öðru og
fyrr en varir er Aimo kominn til
grisku eyjarinnar Rhodos I
fjörugum hópi finnskra ferða-
manna. Hann ákveður að láta
ekki á neinu bera er of stoltur til
að viðurkenna mistök sin. Hann
reynir heldur að losa sig við
skiðin sin svo að litið beri á, en
það er hægara sagt en gert. Áf
þessu spinnast siðan hin ótrú-
legustu atvik og sannast þar hið
fornkveðna að margt getur
skemmtilegt skeð.
Viðer þriðja myndin sem frum-
sýnd verður i dag og er hún
norsk undir stjórn Lailu Mikkel-
sen. I þessari kvikmynd fjallar
Laila um vandamál sem hlýtur
að snerta okkur öll. Hún leggur
fram spurninguna: Hvað gerist
i iandi eins og Noregi ef lönd
hins svokallaða „þriðja heims”
hætta að sjá þvi fyrir hráefn-
um? Oliukreppan 1973 ýtti
óþyrmilega við mörgum „vel-
ferðarþegnum”. En getum við
svarað spurningunni? Laila
Mikkelsen bendir á einn mögu-
leika og hann er alls ekki
ósennilegur.
Sýningarskrá næstu viku
Sunnudagur 25. sept.
kl. 3 og 5: Agaton Sax (Sviþjóð)
kl. 7: Sólarferð (Finnland)
kl. 9: Við (Noregur)
Mánudagur 26. sept.
kl. 5: Nær og fjær (Sviþjóð)
kl. 7: Drengir (Danmörk)
kl. 9: Sumarið sem ég varð 15
ára (Noregur)
Þriðjudagur 27. sept.
kl. 5: Blindur félagi
Tjón
fyrstu hæð reiknistofnunarinn^
ar.
— Timburhúsið er mikið
skemmt og eins minni háttar
tölvuútbúnaður en aðal-
búnaðurinn er i' aðalbygging-
unni og slapp hann alveg, sagði
Halldór Guðjónsson kennslu-
stjóri háskólans. — Þetta er tvi-
mælalaust milljóna tjón en
matsmenn frá hinu opinbera
eiga eftiraðkanna það til hlitar.
Eldinn bar inn i aðalbygginguna
frá timburhúsinu en mér er sagt
að slökkviliðsmennirnir hafi
hreinlega rekið hann út aftur.
Halldór sagði að meginhluti
þeirrar starfsemi sem var i
timburhúsinu yrði kominn i þvi
sem næst eðlilegan gang á
mánudaginn. Augljóst er að
endurnýja þarf mikið af vélum
og skrifstofubúnaði, en Halldór
taldi að meginvandamálið yrði
ef til vill að koma starfsfólkinu
fyrir á öðrum stööum.
kl. 7: Jörðin er syndugur söngur
kl. 9: Sólarferð
Miðvikudagur 28. sept.
kl. 5: Sólarferð
kl. 7: Nær og fjær
kl. 9: Blindur félagi
Fimmtudagur 29. sept.
kl. 5: Jörðin er syndugur söngur
kl. 7: Sven Klang Kvintettinn
kl. 9: Drengir
Föstudagur 30. sept.
kl. 5: Við
kl. 7: Sumarið sem ég varð 15
ára
kl. 9: Nær og fjær
Laugardagur 1. okt.
kl. 5: Agaton Sax
kl. 7: Við
kl. 9: Sumarið sem ég varð 15
ára
Sunnudagur 2. okt.
kl. 3 og 5: Agaton Sax
kl. 7: Drengir
kl. 9: Sven Klang Kvintettinn
j ,fttltUrK*uL
NORSKA
til prófs verður kennd i Miðbæjarskólan-
um i stofu 11:
mánud. kl. 17.00 9. bekkur grunnskóla,
kl. 19.00 framhaldsnám.
þriðjudaga
kl. 17.00 5. og 6. bekkur grunnskóla,
kl. 19.00 stúdentspróf
miðvikud.
kl. 17.00 7. bekkur grunnskóla,
fimmtud.
kl. 17.00 8. bekkur grunnskóla.
föstud.
kl. 17.00 4. bekkur grunnskóla
Allar upplýsingar um námið veitir Björg
Juhlin Simi 26726, frá kl. 12.00-14.00
Námsflokkar Reykjavíkur
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
TJALDANESHEIMILIÐ
STARFSMAÐUR óskast til starfa
við umönnun vistmanna, vakta-
vinna. Upplýsingar gefur forstöðu-
maður, simi 66266.
LANDSPITALINN
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
óskast nú þegar eða eftir samkomu-
lagi á Barnaspitala Hringsins. Upp-
lýsingar hjá hjúkrunarforstjóra,
simi 29000.
FÓSTRUR. Tvær fóstrur óskast til
starfa á Barnaspitala Hringsins nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar veitir hjúkrunarstjóri
deildarinnar, simi 29000.
Reykjavik, 23. september 1977
SKRIFSTOFA
RÍKlSSPÍTALANNA
Eiriksgötu 5 — Sími 29000