Tíminn - 07.10.1977, Blaðsíða 11

Tíminn - 07.10.1977, Blaðsíða 11
Föstudagur 7. október 1977 11 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Augiýsingastjóri: Stein- grímur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö ilausasölu kr. 80.00. Askriftargjald kr. 1.500 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Samningar Þvi verður ekki haldið fram að úrslit allsherjar- atkvæðagreiðslu opinberra starfsmanna hafi kom- ið á óvart i sjálfu sér, enda þótt þátttaka hafi orðið meiri en margir höfðu álitið fyrirfram og úrslitin séu miklu eindregnari og sýni meiri samstöðu en ýmsir höfðu gert ráð fyrir. En þessi allsherjaratkvæðagreiðsla markar hins vegar á ýmsa lund timamót i sögu kjaramála á ís- landi. Annars vegar reynir nú i fyrsta sinn á ný lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, en hins vegar felast i þessum lögum ýmis mjög at- hyglisverð nýmæli um vinnubrögð við gerð kjara- samninga og um aðdraganda vinnustöðvana. Meðal opinberra starfsmanna eru að sjálfsögðu skiptar skoðanir um það, hversu langt á að ganga i kröfum og um það hvort leggja skal áherzlu á að ná samkomulagi án verkfalls, ef horfur virðast á þvi við fjármálaráðuneytið. Sú krafa opinberra starfsmanna nýtur hins vegar eðlilega einhuga fylgis að þeir búi við sambærileg kjör á við það sem tiðkast á hinum almenna vinnumarkaði, enda hafa opinberir aðilar fulla þörf á þvi að vera öðr- um samkeppnisfærir um góða og hæfa starfs- menn. Sérstök réttindi opinberra starfsmanna fram yfir annað launafólk hafa minnkað og eiga að hverfa, þannig að þeir sitji við sama borð og aðrir launþegar. Á hinn bóginn er mikilvægt, að forystumenn op- inberra starfsmanna láti það ekki hafa áhrif á sig i samningum nú að þeir geta nú fyrsta sinni beitt skæðu vopni verkfalls. Ekki er það siður mikilvægt að þeir geri sér ljóst, að þess eru engin tök að ætla nú að hefna harma sinna vegna þess hvernig skyn- samlegum og ábyrgum kjarasamningum opin- berra starfsmanna reiddi af á þjóðhátiðarárinu. Þar er reyndar komið að mjög viðkvæmum þætti þessara mála, sem eru samskipti og gagn- kvæm afstaða samtaka opinberra starfsmanna og Alþýðusambands Islands. Á þvi sviði stendur margt til bóta. Það fer varla á milli mála, að miklar launa- hækkanir til opinberra starfsmanna munu fela i sér, að við gerð fjárlaga verður að taka margvis- legar erfiðar ákvarðanir. Miklar launahækkanir hljóta að leiða af sér samdrátt i framkvæmdum og vinnu, mannahaldi og ýmsum úrbótum varðandi vinnuaðstöðu og opinbera þjónustu. Það hlýtur öll- um að vera ljóst, að skattgreiðendurnir standa undir öllum opinberum útgjöldum, og efnahagsá- standið krefst mikils aðhalds við gerð fjárlaganna. Enda þótt sáttatillagan hafi verið felld með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða er ekki þar með sagt að til verkfalls þurfi að koma, og verður að vona að samkomulag náist án þess. Aftur á móti er aðstaða forystumanna opinberra starfsmanna mjög sterk eftir atkvæðagreiðsluna. Það er alveg vafalaust að verkalýðshreyfingin getur margt lært af þeim reglum, sem settar hafa verið um kjarasamninga og verkfallsrétt opinberra starfsmanna. Á það hefur margsinnis verið bent i Timanum að skilyrði um lýðræðislega ákvörðun i allsherjaratkvæða- greiðslu yrði um fram flest annað til þess fallið að styrkja innviðu verkalýðsfélaganna og félagslega samstöðu i samningum og þegar verkfallsvopni skal beitt. Hér er um að ræða eitt mikilvægasta atriðið i timabærri endurskoðun vinnulöggjafarinnar. ERLENT YFIRLIT Christina Onassis fer í fótspor föður síns Hún virðist ætla að verða jafningi hans ÞVl VAR yfir yfirleitt spáB, þegar Aristoteles Onassis féll frá, aB hiB mikla skipafyrir- tæki hans (Olympic Mari- time) myndi leysast upp á skömmum tima, þar sem aBalerfinginn var dóttir, sem litt hafBi sinnt atvinnurekstri og efnahagsmálum, en veriB þeim mun meira fréttaefni i blöBum, sem fylgjast meB ástalifi og lifnaBarháttum auBkýfinga og listafólks. I þessum blöBum hafBi Chris- tina Onassis oft komiB viB sögu, m.a. meB þvi aB giftast ung framagosa gegn vilja föB- ur sins, og reyna tvivegis aB fremja sjálfsmorB. Þá hafBi þaB orBiB mikiB áfall fyrir hana, þegar bróBir hennar fórst f flugslysi 1973, og þó enn meira, þegar móBir hennar lézt af ofnotkun svefnlyfja 1974. AriB 1975 lézt svo faBir hennar og hún var einkaerf- ingi hans. Nokkru siBar slitn- aBi upp úr siöara hjónabandi hennar. SambúB hennar og stjúpmóBur hennar, Jackie (Kennedy) hafBi veriB næsta kuldaleg, enda hefurChristina ekki fariB dult meB aB hún liti á Jackie sem tildurrófu og daBurdrós.Allt þetta gerBi þaB aB verkum, aB menn spáBu ekki vel fyrir skipafyrirtæki Onassis viB fráfall hans. Reynslan hefur hins vegar orBiB önnur. ÞaB virBist nú rúmum tveimur árum siBar standa traustari fótum en þaB gerBi, þegar hann lézt. Þetta er aB miklu leyti taliB verk Christinu, enda er nú svo kom- iB aB þaB eru ekki æsifrétta- blöB, heldur virBuíeg fjár- málarit, sem ræBa orBiB mest um hana og athafnir hennar. CHRISTINA hefur þótt sýna, siBan hún gerBist aBalstjórn- andi Onassis-skipafélagsins og d ó 11 u r f y r i r t æ k j a þess, aö hún er gædd f jármálalegum hyggind- um, einbeitni og áræöi engu siöur en faöir hennar. Annars getur hún alveg eins hafa erft þessa eiginleika Ur móBurættinni,þvi aömóöurafi hennar var einn hinna þriggja miklu grisku skipakónga, sem mestar sögur hafa fariö af, og var haröur keppinautur Onassis um skeiö. Hyggindi þau, sem Christina þykirhafa sýnt, hafa ekki sizt veriö fólgin i þvi, aö hún hefur sótzt eftir aö ráöa snjalla fjármálamenn i þjónustu sina og fela þeim mikil völd, en þó hefur komiö fyrir, aö hún hefur gripiö fram fyrir hendur þeirra og tekiö ákvaröanir, sem þeim voru ekki aB skapi. Þannig gerBi hún fyrir nokkru samning viö Rússa um aö leigja þeim oliu- flutningaskip til þriggja ára, þrátt fyrir mótmæli ráöunauta sinna, sem töldu þetta óráö- Christina Onassis legt. Nú þykir hins vegar kom- iö i ljós, aö þetta hafi veriö rétt ráöiö, þvi aö leiga á slikum skipum hefur lækkaö verulega siBan. önnur ákvöröun, sem hún tók nýlega gegn ráöum forstjóra sinna, er enn um- deild. Hún geröi samninga um smiöi tveggja stórra oliuflutn- ingaskipa, enda þótt oliuflutn- ingar þyki ekki arövænlegir um þessar mundir og ekki þykiliklegt,aö þeir veröi þaö I náinni framtiö. Alls ræBur skipafélag Onassis nú yfir 37 skipum og eru 18 þeirra stór oliuflutningaskip. Þá á þaö meira og minna i ýmsum fyrirtækjum, sem sinna öör- um rekstri. ÞÓTT meinlaust hafi veriö meö þeim Christinu og Jackie siöan Onassis lézt, hefur Christina lagt áherzlu á aö slita öll fjármálaleg tengsl milliþeirra.Onassisgeröi hlut Jackies allgóöan I erfBaskrá sinni, en hugsanlega gat hún þó gert tilkall til aö fá meira. Christina ákvaö aö koma þessum málum á hreint og hóf Eitt hinna stóru olluflutningaskipa Onassis þvi samningaumleitanir viö lögfræöinga Jackies um þetta efni. Fyrir skömmu hefur ven iö gengiö frá endanlegum samningi um þetta og fékk Jakcie 26 milljónir dollara fyriraö falla frá öllum frekari kröfum 1 dánarbú Onassis. Taliö er, aö meö þessum samningi sé nánum samskipt- um þeirra Christinu og Jackie endanlega lokiB. Siöan Christina tók viB stjórn á Onassis-skipafélaginu og dótturfyrirtækjum þess, hefur hún dregiö sig aö mestu leyti i hlé i skemmtanalifinu. Sagt er, aö hana skorti ekki aödáendur meöal glæsilegra og þekktra auökýfinga eöa listamanna, en hún gefi sig nú litt aö þeim málum, en leggi stund á Yoga-æfingar og hóf- sama lifnaöarhætti. Hún neyt- ir hvorki áfengis né tóbaks. Hún er sögö hafa skipulagt tima sinn þannig,- aö hún dvelji a.m.k. hálft áriö i aöal- stöövum Onassis-hringsins i Monte Carlo, en skipti hinum árshelmingnum milli New York og bústaöa sinna i Grikk- landi. Þá hefur hún i smlöum skemmtisnekkju, sem er áætl- aö aö kosti 3.5 milljónir doll- ara, og hyggst aö nota hana verulega, en hún hefur jafnan haftáhugaá sighngum. Þang- aö mun hún og ætla aB bjóöa ýmsum fjármálalegum viB- semjendum sinum, en I viö- skiptamálum kemur henni aö góöum notum, aB hún er tungumálagarpur eins og faB- ir hennar var, og talar reip- rennandi fimm ólik tungumál. Christina Onassis er ekki nema 26 ára gömul. Þess eru fá dæmi, aö konur á hennar aldri hafi hafizt tileins mikilla áhrifa á sviöi viöskiptamála og þvi mun ferli hennar á þvi sviBi veitt óvenjuleg athygli. Þ.Þ. JS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.