Tíminn - 08.10.1977, Page 1
GISTING
MORGUNVERÐUR
hM
AUDARARSTtG 18
SIMI 288 66
222. tölublað — Laugardagur 8. október 1977 —61. árgangur
Fyrir
vörubila<^
Sturtu- “
grindur
Sturtu
dælur /i
Sturtu—
drifsköft
Ölafur Jóhannesson dómsmálaráðherra um kjaradeiluna:
vongóður um
lausn án verkfalla”
beri ekki meira á milli en þau atriði þrjú, sem einkum hafa verið tilgreind
KEJ-Reykjavik. — Ef ekki ber
meira á milli en þessi þrjú atriði,
sem mér skilst, að formaður
BSRB leggi á megináherzlu, tel
ég, að hægt ætti að vera að leysa
kjaradeiluna við starfsfólkið i
BSRB, án þess að til verkfalla
þurfi að koma, sagði Óiafur Jó-
hannesson dóms- og kirkjumála-
ráðherra i samtali við Tfmann I
gær um stöðuna i kjaradeilu rikis-
og bæjarstarfsmanna. Þessi þrjú
atriði, sem Ólafur minnist á, eru
eins og oft hefur komið fram i
fréttum, að leiðrétt verði neðstu
þrep launastigans, hækkuð laun
um miðbik hans og loks, að
endurskoðunarréttur fáist, ef
rikisstjórnin skerðir á einhvern
hátt kjör rikis- og bæjarstarfs-
manna með lagasetningu.
Sagði Ólafur Jóhannesson, að
formaður BSRB hefði á sínum
tima lýst þvi yfir, að þessi atriði
hefðu ráðið úrslitum um, aö
sáttatillagan var felld. Sáttatil-
lagan, sagöi Ólafur, var að sjálf-
sögðu samin af sáttasemjara og
sáttanefnd og sett fram á þeirra
ábyrgð. Það er eindreginn vilji
rlkisstjórnarinnar, að þannig
verði á málum haldið, að ekki
þurfi að koma til verkfalla, sem
óhjákvæmilega myndu skaða
bæði riki og rikis- og bæjarstarfs-
menn sjálfa.
Þá sagði Ólafur, að rikisstjórn-
in hefði undirstrikað afstöðu sína
með því, að tveir ráöherrar henn-
ar taka nil beinan þátt i
samningaviöræðunum, og eru
þeir Halldór E. Sigurðsson land-
búnaöar- og samgöngumálaráð-
herra og Matthias A. Mathiesen
fjármálaráöherra. Þeir hafa þeg-
ar tekið þátt i slikum viðræðum,
og nú hefur veriö skipuð nefnd
fjögurra manna frá hvorum aðila
til að reyna að finna lausn á þess-
um deiluatriðum, sagði Ólafur.
I nefndinni eiga áöurnefndir
ráðherrar sæti, og er hún nú
að störfum og heldur vonandi
áfram sleitulaust, unz málið leys-
ist, sagði Ólafur Jóhannesson.
Verksmið nefndarinnar er sér-
staklega að athuga, hvað I þess-
um þremur áðurnefndum atriö-
um felst og hvað þar ber á milli.
Sagði Ólafur að ýmislegt væri
hér, sem þarfnaðist nánari skil-
greiningar, t.d. nákvæmlega
hvað fælist I hækkun launa um
miöbik launastigans.
Að sjálfsögðu, sagði Ólafur,
kostar lausn þessarar deilu ein-
hver aukin útgjöld rikissjóðs, og
þeir peningar falla ekki af himn-
um ofan. Vafalaust þarf að afla
tekna til að standa undir þeim
eins og öllum öðrum útgjöldum
rikissjóðs.
Ólafur Jóhannesson Itrekaði að
lokum, að það væri von sin, að
þessi deíla leystist án verkfalla.
Kvaðsthann vongóður um, að svo
færi, ef báðir samningsaöilar
sýndu raunhæfan samningsvilja.
Hiti í
Sakadómi
SJ-Reykjavik — Réttarhöld-
um i Geirfinns og Guð-
mundarmálunum lauk um
klukkan hálf niu i gærkvöld og
hafa þau staðið i 5 daga. Eru
það lengstu réttarhöld hér á
landi. Að loknu máli verjenda
flutti Bragi Steinarsson vara-
saksóknari harðskeytta svar-
ræðu. Frammiköll og snörp
orðaskipti urðu undir ræðu
sækjanda. Var þá orðið svo
heitt i kolunum að gert var
réttarhlé. Siðan töluðu verj-
endur aftur, að undanskildum
Finni Torfa Stefánssyni verj-
anda Asgeirs Ebenezers
Þórðarsonar. Þá gerðist þaö
að ákærður Sævar Ciesielski
tók til máls. Lýsti hann búnaði
i Siðumúlafangelsinu. Enn-
fremur sagði hann að verið
væri að sanna á ákærðu sök,
sem aðrir hlytu að eiga.
Sjá nánar bls. 2 og 3
Verjendur I Geirfinns- og Guömundarmálunum: Jón Oddsson fyrir
Sævar Ciesielski, Páll A. Pálsson fyrir Kristján Viðar Viðarsson, Bene-
dikt Blöndal fyrir Guðjón Skarphéðinsson, og Hilmar Ingimundarson
verjandi Tryggva Rúnars Leifssonar.
Sala á ölkeldu-
vatni stöðvuð
áþ-Rvik. Fyrir nokkru var
hafin sala á ölkelduvatni frá
Lýsuhóli á Snæfellsnesi. Nú
hefur Heilbrigðiseftirlit rikis-
ins stöðvað söluna, þar sem
innihaidslýsing ölkelduvatns-
ins sýnir meira magn flúors
heldur en talið er hæft til
neyzlu.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem blaðið hefur aflað sér,
þá inniheldur ölkelduvatniö
3,96 mg af fluor i hverjum
litra, en staðall Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar er 1 mg
i hverjum litra.
Buðu óverulegar
launahækkanir
KEJ-Reykjavik — Það er óhætt
að segja að þetta var mjög lltið
sem komið var til móts við okkur
um launahækkanir i þvi tilboði
sem sáttanefnd rikisins lagði fyr-
ir okkur á sjötta timanum, sagði
Kristján Thorlacius formaður
BSRB i samtali við Timann i gær.
Þá sagði Kristján að BSRB ætti
eftir að ræða um andsvör við
þessu tilboði i gærkvöld en fundur
samninganefnda með sáttasemj-
ara átti að hefjast að nýju kl. 22 I
gærkvöldi.
Fundir samninganefnda rlkis
og BSRB með sáttasemjara stdöu
meira og minna allan gærdaginn i
hátiðarsal Háskóla Islands. Hóf-
ust fundir kl. 10 i gærmorgun og
stóðu til kl. hálf sjö utan matar-
hlés frá hádegi til kl. tvö. Þá var
verkfallsnefnd BSRB á fundi frá
kl. 5 og eins og fyrr segir hófust
sáttafundir aftur kl. 22 I gær-
kvöld.
1 gær voru skipaðar nefndir til
viðræðu við sáttanefnd og eru af
hálfu rikisins Matthias A.Mathie-
sen f jármálaráðherra, Halldór E.
Sigurðsson samgöngumálaráð-
herra, Höskuidur Jónsson ráðu-
neytisstjóri og Þorsteinn Geirs-
son í nefnd. Fulltrúar BSRB eru
Kristján Thorlacius formaöur,
Haraldur Steinþórsson varafor-
maður og Einar ólafsson og Þór-
hallur Halldórsson formenn
tveggja stærstu bandalagsfélag-
anna.
Kristján Thorlacius formaöur
BSRB sagði i samtali við Timann
i gær aö á fundi með sáttasemj-
ara og samningamönnum rikisins
hafi fulltrúar BSRB lagt áherslu á
höfuðatriðin þrjú sem taka þurfi
inn Isamninga en auk þessbent á
mörg fleiri atriöi sem BSRB legg-
ur áherzlu á að fá inn I samninga
sina.
sig svipta nýfengn-
um verkfallsrétti
Frá fundi sáttanefndar og fulltrúa samninganefnda rikis og BSRB. A þessum fundi á sjötta timanum I
gær lögðu fulltrúar rikisins fram tiMögur sinar um frekari launahækkanir. Timamynd: Gunnar.
A fundi stjórnar Landssam-
bands lögreglumanna i gær, var
eftirfarandi ályktun samþykkt:
Stjórn Landssambands lög-
reglumanna lýsir megnri
óánægju sinni með úrskurð
Kjaradeilunefndar og telur aö
nefndin hafi með honum i raun og
veru svipt lögreglumenn ný-
fengnum verkfallsrétti.
Þá telur stjórn L.L. aö túlkun
Kjaradeilunefndar á orðunum
„nauðsynleg öryggisvarzla”, sé
of rúm og feli i sér ýmsa starfs-
þætti, sem þar eigi ekki heima.
Stjórn L.L. álitur skilgreiningu
Kjaradeilunefndar á þeim störf-
um, sem lögreglumenn eigi ekki
að sinna i verkfalli, vera mjög
óljósa og áskilur stjórnin sér all-
an rétt til túlkunar á henni.