Tíminn - 08.10.1977, Side 2
2
Laugardagur 8. október 1977
Nýtt skip til
Sauðárkróks
Hegranes SK 2
áþ-GÓ/Reykjavik. Fyrir nokkru
bættist Útgeröarfélagi Skagfirö-
inga skuttogari i skipastól sinn,
en þaö er Hegranes SK2. Skipiö er
46 metrar á lengd, 10,5 metrar á
breidd og mældist um 460 brúttó-
smáiestir. t þvi er Crepell aöal-
vél, 1500 hp og Bouduen hjálpar-
vél, 125 hp., til rafmagnsfram-
ieiöslu. Heildarverð skipsins með
áorðnum breytingum mun vera
um 260 milljónir.
Togarinn erkeyptur frá Lorient
I Frakklandi, og var smiöaöur i
Póllandi 1975. Nýja Hegranesið
kom frá Newcastle i Englandi,
þar sem það hefur verið til breyt-
inga og lagfæringa i rúman mán-
uð. Lest skipsíns hefur verið
breytt svo að hún henti notkun á
kössum, og einnig þurfti að
breyta ibúðum I samræmi við is-
lenzkar venjur, og mun skipið
geta farið til veiða mjög fljótlega.
Skipstjóri er Sverrir Eövalds-
son og fyrsti stýrimaður Július
Skúlason. Fyrsti vélstjóri er
Hannes Árnason. Framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Skagfirð-
inga er Stefán Guðmundsson.
Nýja Hegranesið kemur i stað
togara, með sama nafni, sem
seldur var s.l. vor Meitlinum h.f. i
Þorlákshöfn.
Ný bók á 85 ára afmælinu:
Bernsku- og æsku-
minningar Gunnars
Benediktssonar
JH-Reykjavik. — Gunnar Bene-
diktsson rithöfundur verður 85
ára gamail á sunnudaginn og
samtimis kemur út ný bók eftir
liann, t flaumi lifsins fijóta, og er
þaö þriöja bókin þar sem Gunnar
rekur Þætti úr lifi sfnu t tveimur
fyrri bókum af þessu tagi lýsti
hann erfiöri Ufsbaráttu og stríöi
sínu i þágu þcirra hugsjóna, sem
hann haföi tileinkaö sér og brutu
mjög i bága viö drottnandi sjón-
armið i mannfélaginu. t þessari
nýju bók hverfur hann til bernsku
sinnar og æskuára I þvi byggöar-
lagi, sem var hvaö fjærst straum-
um nýrra vorboöa I samfélaginu
um siöustu aidamót, umflotiö og
sundurskorið af stórfljótum. Lýs-
irhann mannlifi i þessu umhverfi
eins og það var á timum sem aö-
einsörfáir muna ogekki erlengur
til né á sér neina hliöstæðu.
í hinum umflotnu og sundur-
skornu hornfirzku bernskustöðv-
um fékk Gunnar fyrstu æfingu i
að kljást við straumþunga lifsins,
bæði beintog óbeint og bjarga sér
ósködduðum á likama og sál, með
dirfsku og gætni. En bók séra
Gunnars er ekki aöeins lýsing á
byggöarlagi. Hún er innlifun i lif
ellefu barna fjölskyldu og lifs-
reynslu unglinga, sem verða á
eigin ábyrgð að taka ákvörðun
um, hvar leggja skuli i ólgandi
vatnsflauma, þar sem um lifeða
dauða gat verið að tefla i hverju
fótmáli. Gliman við jökulvötn og
óbliða náttúru stældi unglingana
Gunnar Benediktsson.
og gerði þá hæfari i lifsbaráttunni
sem beið þeirra handan næsta
leitis — i flaumi lifsins fljóta — en
fjarri fer þvi að yfir frásögninni
hvili blær ógna og erfiðleika. Yfir
henni allri er bjarmi bernsku-
gletið og æskufagnaður i leik og
starfi.
Það er bókaútgáfan örn og
örlygur, sem gefur bókina út.
41 myndlistarmaður sýnir
á haustsýningu FÍM 1977
Haustsýning Félags ís-
lenzkra myndlistamanna
1977 verður opnuð á Kjar-
valsstöðum í dag kl. 15.00.
Á þessari sýningu verða
alls 123 myndlistarverk
eftir fjörutíu og einn höf-
und. Af þessum mynd-
listarmönnum eru tuttugu
og tveir félagar í FIM en 19
utan félagsins. Nokkrir
hinna síðarnefndu sýna nú
myndir i fyrsta sinn á
haustsýningu.
Myndlistaverkin á haustsýn-
ingu 1977 eru mjög fjölbreytt að
stærð og gerö. A sýningunni eru
batikverk, myndvefnaður, kera-
mikverk, glermyndir, grafik af
ymsu tagi, kritarmyndir, oliu-
málverk, vatnslitamyndir,
myndverk gerð meö blandaðri
tækni og höggmyndir.
Fyrir tveim árum var Louisa
Matthiasdóttir listmálari sér-
stakur gestur haustsýningar
FIM, en i þetta sinn hefur sýn-
ingarnefnd félagsins valiö verk
Guðmundar Benediktssonar til
kynningar.
Guðmundur Benediktsson
myndhöggvari fæddist i Reykja-
vik árið 1920. Um þritugt geröist
hánn nemandi Asmundar Sveins-
sonar i Myndlistarskólanum, sem
nú er til húsa við Freyjugötu.
Guðmundur hefur tekið þátt i
fjölda myndlistarsýninga bæði
hér heima og erlendis t.d. á
Norðurlöndum, i Þýzkalandi og i
Bandaríkjunum.
Haustsýning FIM 1977 stendur
frá 8.-23. október og er opin virka
daga kl. 16.00-22.00, en laugar-
daga og sunnudaga kl. 14.00-22.00.
Húsið er lokað á mánudögum.
A0 þessu sinni eru verk Guðmundar Bendiktsson-
ar kynnt sérstaklega.
Málflutningi i Geirfinns- og Guð
Dómurunun
Hversu mikinn hlut á uppeldi þeirra á
SJ-SSt Reykjavik. Við geðrann-
sóknir i Geirfinns og Guð-
mundarmálunum kom i ljós að
fjögur ákærðu a.m.k. áttu ekki
við of gott atlæti að búa I æsku.
Þau eru frá heimilum i upp-
lausn, áttu við agaleysi að búa,
og á þeim bitnuðu afleiðingar
hjónaskiinaða, drykkjuskapar
og ýmissa vandræða. Hversu
stóran hlut á uppeldið I afbrot-
um ungmennanna, sem nú eru
ákærð fyrir sakadómi? —
Fjórðungi bregöur til fósturs,
sagði verjandi Erlu Boiladóttur,
Guðmundur Ingvi Sigurðsson
fyrir réttinum í gær. — Þau
ákærðu geta ekki borið ábyrgð á
eigin uppeldi. Og máltækið segir
að lengi búi að fyrstu gerð.
Þetta vill Guömundur Ingvi
Sigurösson að dómarar hafi i
huga þegar þeir taka ákvörðun
um örlög þessa ógæfusama
æskufólks, sem þegar hefur
hlotið þá refsingu að sitja I
fangelsi i algerri einangrun
mánuðum og árum saman.
Jón Oddsson lauk i gærmorg-
un vörn Sævars Ciesielski og
krafðist algerrar sýknu honum
til handa af morðinu á Geirfinni
Einarssyni. Sævar hefði fjar-
verusönnun kvöldið, sem morð-
ið á að hafa verið framið. Hann
hefði farið á Kjarvalsstaöi, ekið
meö móður sina upp i Breiðholt
og verið kominn þangað um kl.
10, hann myndi efni úr kvik-
mynd, sem hefði verið i sjdn-
varpinu upp úr kl. 10.30.
Það hefði tálmað rannsókn
Geirfinnsmálsins hvernig staðið
var að frumrannsókninni I
Keflavik. Henni hafi verið beint
i ákveönar áttir. Fimm ára
gömul mynd af Geirfinni hafi
veriö birt þegar lýst var eftir
honum. Hagir Geirfinns sjálfs
hafi ekki verið nægilega
kannaöir, það hafi ekki verið
gert fyrr en siðar. Rannsóknin
hafi beinzt i furðulegar áttir,
m.a. til sjáenda i tveim f jarlæg-
um löndum, og nú væri annar
rannsóknarmannanna ákærður
fyrir meint brot i störfum (ekki i
Geirfinnsmáli).
Jón Oddsson gat þess aö siga-
rettustubbar þeir sem fundust I
húsi þvi, sem Erla Bolladóttir
dvaldist i næturlangt i Keflavik,
hafi verið af Winston gerð, en
þau Sævar hefðu keypt Viceroy
sigarettur.
Byggt á smáatriðum
í rökstuöningi ákæruvaldsins
telur verjandinn mikiö lagt upp
úr þvi að ýmis smáatriði gangi
upp og bendir á að smáatriði
hafi lika gengið upp i öllum
þeim sögum, sem ákærðu hafa
sagt og ekki hafa reynzt sann-
leikur.
Ver jandi gagnrýndi hve mikil
áherzla hefur verið lögð á frum-
kvæði Sævars, hann eigi t.d. að
hafa stappað stálinu i félaga
sina á heimleiðinni til Reykja-
vikur og siðar, en hinir eiga að
hafa veriö meira og minna með-
vitundarlausir. Finnst Jóni
Oddssyni það ekki trúverðugt.
Eftir að Karl Schiitz tók við
rannsókninni hafi málið mjög
verið einfaldað og fjármála-
tengsl ekki veriö tekin með i
reikninginn.
Ótrúlegtsé að Geirfinnur hafi
talið að Sævar, Kristján Viðar
og Guöión v?eru Maenús Leó-
poldsson veitingahúseigandi og
aðrir eigendur eða aðstandend-
ur Klúbbsins. Sævar sé litill fyr-
ir mann að sjá og hafi verið til
þess tekið hve illa hann hafi ver-
ið til fara á þessu timabili.
Jón Oddsson gagnrýndi að
skýrslur um fjarvistir Sævars
hafi ekki fengið hljómgrunn hjá
dómendum i málinu. Þegar hér
var komið greip Sævar fram i
réttarhöldin og kvaðst hafa
skrifað dómsforseta bréf I mal-
mánuði og það hafi ekki verið
bókað.
Verjandi kvað það ekki sannað
að Sævar hafi verið á varð-
bergi að afmá sönnunargögn, að
hann hafi látið mánuðum saman
hjá lfða að ná I kápu Erlu, sem
getið er i málsskjölum.
Annar bilstjórinn sem ók Erlu
frá Keflavik, tók ekki eftir þvi
að Erlu liði illa á nokkurn hátt,
að sögn Jóns Oddssonar, og
finnst honum það ekki stuðning-
ur við að hún hafi dvalizt kápu-
laus i' geymsluskúr, heldur hafi
alveg eins getað verið um aðra
ferð Erlu til Keflavikur að ræða.
Ofskynjanir og draum-
ar
Að sögn Sævars sjái Erla sýn-
ir, hafi ofskynjanir og dreymi
illa. Samstarfsstúlka hennar
hafi tekið undir þetta og sagt að
hún hafi frjótt imyndunarafl, og
erfitt sé að átta sig á hvenær
hún sé að tala um eitthvað raun-
verulegt og hvenær ekki. Visaði
verjandi i bréf sem Erla skrif-
aði Sævari, þegar þau voru bæði
i Siðumúlafangelsinu, og liggja
fyrir I málinu.
Verjandi gat þess að rann-
sóknardómarar heföu um skeið
talið að ákærðu I Geirfinnsmáli
væru róttæk i skoðunum og væri
það ástæðan fyrir gerðum
þeirra. Þetta telur hann stafa af
þvi, að Karl Schiitz hafi um
skeið starfað að svonefndu
Baader Meinhof máli i Þýzka-
landi.
Verjandi lagði áherzlu á, að
æska Sævars hefði verið erfið,
og hann hefði lága greindarvísi-
tölu.
Ævilangri fangelsisvist hefði
ekki verið beitthér á landi sem
refsingu á þessari öld a.m.k.
Rannsóknarmenn i málum
þessum hafi sætt harðri gagn-
rýni. Vitanlega hafi margt farið
úrskeiðis við þær aöstæður sem
þeir starfa og þeir séu ekki van-
ir að fást viö svo umfangsmikið
mál sem þetta. Hafa beri það
hugfast, hver sem sannleikur-
innkunniað vera um framkomu
þeirra, að Sævari hafi fundizt að
hann væri beittur harðræði og
sér ekki trúaö, og við þær
kringumstæður hafi hann sam-
sinnt ýmsu sem upp á hann sé
borið.
Jón Oddsson gat þess að fjöl-
skylda Sævars hefði orðið fyrir
aðkastj.vegna málsins og hefðu
Orn Clausen ver skjóistæbing sinn Albert Klahn.