Tíminn - 11.11.1977, Qupperneq 8
8
Mlilíil't'í'1!
Föstudagur 11. nóvember 1977
Farsæl félagsstarfsemi.
Um áratugaskeiö hafa ung-
mennafélögin og kvenfélögin ver-
iö þeir aöilar sem fyrst og fremst
hafa staöiö fyrir almennu
skemmtanahaldi i sveitum lands-
ins, og raunaf einnig víöa i þétt-
býli.
Sömu aöilar ásamt sveitar-
félögunum hafa einnig átt frum-
kvæðiö aö og byggt flest hinna
glæsilegu félagsheimila ilandinu,
og áöur en þau komu til sögunnar
höföu áöurnefnd félög, og þó eink-
um ungmennafélögin, byggt mik-
inn fjölda samkomuhúsa viöa um
land.
Gjörbreytt viðhorf til
búsetu.
Með tilkomu gömlu samkomu-
húsanna, og þó sér I lagi nýju
félagsheimilanna, fékk fólk hinna
dreiföu byggöa fyrst aöstööu til
þess aö koma saman til mann-
funda, listiðkana og skemmtana-
halds viö sæmilegar aöstæöur.
Þessigjörbreyttu viöhorf I menn-
ingarlifi heilla sveita og héraöa
fylltu íbúana bjartsýni á fram-
tlöarbúsetu á viökomandi
byggöasvæöum, og geröi mann-
lifiö fegurra og fólkiö ánægöara
meö sinn hlut. Nú gátu þessi
byggöasvæöi einnig boðiö tU sin
listafólki úr fjarlægö, t.d. frá
menningarmiöstöövum höfuö-
borgarinnar, auk þess sem aö-
staöan örvaöi mjög öirfél'agsleg
samskipti viö nágrannabyggöir
og jafnvel fjarlæg héruö.
Kostnaðarsöm upp-
bygging litil fjárráð.
NU er þaö staöreynd, aö þrátt
fyrir 40% þátttöku Félagsheim-
ilasjóös i byggingarkostnaöi
þessara húsa (sem sjaldan hefur
þó getaö greitt sinn hlut fyrr en
löngu eftir á), hefur oft verið ráö-
izt I byggingu þeirra meira af
kappi en forsjá, en vafalitið I öll-
um tilfellum af brýnni þörf. Þátt-
tökuhluti ungmennafélaganna og
kvenfélaganna i byggingu þess-
ara mannvirkja hefur ekki verið
greiddur úr digrum sjóöum viö
upphaf verks. Félögin hafa hins
vegar lagt fram mikla sjálfboöa-
vinnu viö byggingu húsanna, en
þó hefur fyrst og fremst verið
horft til liösinnis þeirra þegar aö
þvi kom aö rekstur i þeim gæti
Hafsteinn Porvaldsson:
Skattheimta
á villigötum
hafizt. Þannig hafa kvenfélögin
t.d. á lokasprettinum æöi ofttekiö
aö sér aö kaupa allan borðbúnaö
og áhöld til veitingareksturs og
komið eldhúsum heimilanna i
rekstrarhæft ástand. Forráöa-
menn ungmennafélaganna hafa
svo I ófáum tilfellum tekiö aö sér
aö sjá um reksturinn, fyrst I staö
aö minnsta kosti, svo og fram-
kvæmd samkomuhalds til fjáröfl-
unar fyrir hiösameiginlega fyrir-
tæki, þ.e. rekstrarnefnd viökom-
andi félagsheimilis.
Fjölþættur rekstur —
Félagslegt starf.
Þaö er meö ólikindum hversu
fjölþættur rekstur á sér staö i
félagsheimilunum viös vegar um
land, og aödáunarvert hiö mikla
félagsstarf sem er innt af höndum
1 sambandi viö starfrækslu
þeirra.
Um þennan rekstur vitna árs-
skýrslur félagsheimilanna, sem
þvi miöur of sjaldan koma fram
fyrir almenningssjónir.
Af gefnu tilefni vil ég I þessu
sambandi vitna til þeirra, og upp-
lýsa þá, sem halda aö almennt
dansleikjahald sé uppistaðan i
starfrækslu flestra félagsheimil-
anna úti á landi, aö samkvæmt
áðurnefndum skýrslum félags-
heimilanna, er dansleikjahald að-
eins um 10% af hinni fjölþættu
starfsemi sem þar fer fram.
Eigin fjáröflun forsenda
uppbyggingar og starfs.
Þrátt fyrir sivaxandi stuöning
opinberraaöila viö allt æskulýös-
starf í landinu, er þaö skoðun
min, aö slik aðstoö og fyrir-
Hafsteinn Þorvaldsson
greiðsla megi aldrei orka letjandi
á frumkvæöi einstaklinga og fél-
aga, heldur beri aö líta á hann
sem hvatningu til enn frekari at-
hafna og aukins starfs. Með til-
komu félagsheimilanna og þeirr-
ar aöstööu sem þau bjóöa upp á
viöast hvar, hafa skapazt fjöl-
margir möguleikar til félags-
starfs, sem hugkvæmir og dug-
miklir félagar og forustumenn
hafa lagt sig fram um aö nýta,
sjálfum sér og öðrum til ánægju,
fróöleiks og skemmtunar. Allt
þetta starf er unniö í sjálfboða-
vinnu, oft aö loknum löngum
vinnudegi viö önnur störf, og um
helgar. Til þess aö fjármagna
félagsstarfiö, svo og kostnaöar-
sama uppbyggingu félagsheim-
ilisins, hafa félagarnir lagt Ut I
margháttaða félagsstarfsemi til
fjáröflunar, oftast I formi sam-
komuhalds.
Þetta samkomuhald til fjáröfl-
unar, svo og ýmiskonar sala i
félagsheimilunum, hefur gert
eigendum þeirra mögulegt aö
standa viö sinn hlut I byggingar-
kostnaöihúsanna.og sömuleiöis á
stundum, aö standa I skilum viö
fjölda aöila varöandi sjálfa bygg-
inguna meöal annars vegna van-
goldins lögboöins hluta Félags-
heimilasjóös. Þá er ástæöulaust
annaö en viöurkenna, aö ung-
mennafélögin, og ég hygg kven-
félögin lika, hafa oröið aö byggja
verulegan hluta af annarri starf-
semi sinni á fjármagni sem feng-
izt hefur meö þessum hætti, aö ég
tali nú ekki um sjálf félagsheimil-
insem vlðast hvar eru rekin fyrir
slikt fé.
Aðför skattheimtunar
sorgleg mistök.
A s.l. ári og þvi sem nú er aö
liöa hefur skattheimtan I þessu
landi gert mjög alvarlega aöför
aö þessu starfi áhugamanna-
félaganna, og nær sú aðför raunar
til fjölmargra fleiri áhugamanna-
félaga en ungmennafélaganna og
kvenfélaganna.
Afrakstur skattheimtumann-
anna fyrir hönd rikissjóös, er sá
einn, að fjöldi félagsforustu-
manna hefur nú hótaö þvi aö
hætta störfum fyrir félögin, og
horfir þá ekki annaö viöen starf-
semi þeirra leggist niöur meö
ófyrirsjáanlegum afleiöingum
fyrir fjölda byggöarlaga, og
raunar landiö i heild.
Eg trúi þvi ekki aö skattheimtu-
mennirnirséu meö slikrihörku aö
framfylgja einhverri stjórnar-
stefnu, heldur sé hér um að ræöa
mistök eöa öllu heldur hvatvisi
einstakra embættismanna.
Ég mótmæli þvi aö ríkið yfir-
taki allan rekstur æskulýösstarfs
i landinu, eins og tiNiast meö
sumum öðrum þjóöum, og meðan
svo er ekki komiö fyrir okkur,
hlýtur þaö að vera hagkvæmt fyr-
ir alla aöila aö frjálsu æskulýðs-
félögin I landinu standi sem mest
á eigin fótum fjárhagslega og fái
beinan og óbeinan stiAning til
þess.
Ég hefi samúö með þeim valds-
mannslegu embættismönnum
skattheimtunnar, sem undan-
farna mánuði hafa gert hrið aö
bókhaldi og skýrslum félaga
sinna, menn sem sumir hverjir
hafa jafnvel gegnt trúnaðarstörf-
um i hreyfingunni, en viröast nú
aö skipan yfirmanna sinna gera
afar kunnáttusamlega aöför aö
félögunum og fátæklegum eign-
um þeirra. Hvilik reisn.
Ég tel aö söluskattsinnheimta
af öllum brúttótekjum félaganna
af samkomuhaldi og sölu fái ekki
staðizt án verulegra frávika. Til
viöbótar viö söluskattinn þarf svo
einnig aö greiöa skemmtanaskatt
og stefgjald, og þegar þessi skatt-
heimta öll hefur veriö greidd er I
fæstum tilf ellum nokkuð eftir sem
laun erfiöisins.
Hér er mikil hætta á ferðum á
timum þverrandi áhugamennsku
I öllu félagsstarfi. Þaö er ekki ein-
ungis aö frjálsu félögin hætti aö
starfa undir slikri „ráöstjórn”
heldur er rekstrargrundvöllur
félagsheimilanna lika I verulegri
hættu.
Þaö er skoöun min eftir ára-
tuga erindrekstur og útþreiðslu-
starf um land allt á vegum ung-
mennafélaganna, meö sýnilegum
árangri viöast hvar, aö hér hafi
verið svikizt aftan aö okkur inrí
um bakdyrnar. Þaö er engu lik-
ara en aö auknum opinberum
fjárveitingum til heildarsamtak-
anna eigi aö ná til baka með
óréttlátri skattheimtu hjá
aðildarfélögunum. Hér hafa orðiö
hryggileg mistök sem með sömu
framvindu mála mun kosta okkur
fjölda fórnfúsra sjálfboöaliöa og
félagsforustumanna, nema þess-
ari skattheimtuherferö linni. Ef
ekki, þá lýsi ég fullri ábyrgö á þá
aöila sem standa aö slikri aðför
aö frjálsu félagsstarfi I landinu.
Hafsteinn Þorvaldsson,
form. UMFÍ.
Borgfirðingar —
Mýramenn
Almennt hlutafjárútboð i Mýra og Borgar-
fjarðarsýslu, vegna stofnunar Presta-
hnúka h.f.
Upphæð hlutabréfs er, 5 þús. 10 þús. 50
þús. og 100 þús. kr.
Ahugaaðilar hafi samband við undirritaða
fyrir 25. nóvember n.k.
Konráö Andrésson, slmi (93) 7113 og (93) 7155.
Halldór Brynjólfsson, simi, (93) 7370 og (93) 7355.
Jón Þórisson, simi um Reykholt.
Sveinbjörn Blöndal, slmi um Varmalæk.
Erling Gissurarson, slmi (93) 1094.
Byggingartækni-
fræðingur
Ólafsvikurhreppur óskar eftir byggingar-
tæknifræðingi til starfa hjá Ólafsvikur-
hreppi.
Umsóknarfrestur er til 30. nóv.
Nánari upplýsingar veitir oddviti i sima
93-6153.
Fræðsluskrifstofa
Hafnarfjarðar
er flutt að Strandgötu 4,
efstu hæð
Landbúnaðarvörur
og tæki til sölu
Ford 4000 dráttarvél árg. 1968
Vicon-drifknúið tindaherfi.
2ja raða Haukmo-hnifaherfi.
Underhaug-kartöfluupptökuvél.
PX-sláttuvél.
Bamford múgavél
Ferguson 35, smíðaár 1961, með ámoksturstækjum.
Graskögglaverksmiðjan
Brautarholti, Kjalarnesi, simi 6-61-11.
Framleiðum eftirtaldar
gerðir
HRINGSTIGA:
Teppastiga, tréþrep,
rifflað járn og úr áli.
PALLSTIGA
Margar gerðir af inni- og
útihandriðum.
Vélsmiðjan Járnverk
Ármúla 32 — Sími 8-46-06
„TITRANDI MED TÓMA HÖND...“
BIBLlAN, hið ritaða orð, hefur sama markmið
og hin upphaflega, munnlega boðun fagnaðar-
erindisins.
BIBLIAN er rituð og fram borin til þess að
vekja trú á Jesúm sem frelsara.
BIBLÍAN vill leiða menn til lifandi trúar (Jóh.
20,30-31).
Þess vegna krefst hún þess að vera lesin, og
tekin alvarlega, meðtekin, og borin áfram frá
manni til manns. „Gleðifréttir þola enga bið“.
BIBLIAN fæst nú í tveim útgáfum (stærðum)
og í fjölbreyttu bandi og á verði við allra hæfi.
Útsölustaðir: Bókaverzlanir um land allt, kristi-
legu félögin og
HIÐ ISL BIBLlUFÉLAG
(ðubbranbggtofu
Hallgrfmskirkju Reykjavfk
sfmi 17805 opifi 3—5 e.h.
BSBLÍAN
Persónuleg málefni
Munaðarlaus 18 ára stúlka utan af landi,
óskar eftir að kynnast góðu fólki, sem gæti
leigt henni herbergi og veitt nokkurn per-
sónulegan stuðning.
Tilboð óskast merkt nr. 1267.
Bændur
Collí-Lassý hvolpar fil
sölu.
Góðir f járhundar
Upplýsingará Hrauni í
ölfusi, sími gegnum
Hveragerði.