Tíminn - 11.11.1977, Page 9
Föstudagur IX. növember 1977
9
F // A T
Ócfýr og rúmgóður
1?5p
Aldnir hafa orðið,
6. bindi er komið út
Bókaiitgáfan Skjaldborg á
Akureyri hefur sent frá sér nýtt
bindi i bókaflokknum Aldnir hafa
orðið, sem Erlingur Daviðsson
hefur skráð. Þau sem segja frá,
eru Guðlaug Narfadóttir, Guöni
Þórðarson.Hólmsteinn Helgason,
Snæbjörg Aðalmundardóttir,
Stefán Jasonarson, Þorleifur
Agústsson og Þorkell Björnsson.
1 formálsorðum stendur meðal
annars: „Það er ekki ofmælt að
segja, að Aldnir hafa orðiðhafi
hlotið frábærar viötökur hjá al-
menningi. Hefur Erlingur
Daviösson með þessum rit-
störfum sínumbjargaö fráglötun
dýrmætum fróðleik, og það kunna
bæði ungir sem aldnir lesendur að
meta”.
Þetta sjötta bindi bókaflokksins
er 271 blaðsiða að stærð. Setn-
ingu, prentun og bókband annaöist
Prentsmiðja Björns Jónssonar
Akureyri.
Erlingur Davlðsson.
Finnur Guðlaugsson, fulltrúi frá tsafjarðarskólaum, I ræðustóli.
Menntaskólanemar
ræða málefni sín
11. landsþing Landssambands
islenzkra menntaskólanema var
haldið I Flensborgarskóla i Hafn-
arfirði helgina 29.-30. október.
Þingið sóttu fulltrúar frá öiium
menntaskólum svo og fjölbraut-
arskólunum I Breiðholti og Flens-
borg. Kristján Bersi ólafsson
skólameistari Flensborgar á-
varpaði þingið í upphafi þess,
óskaði fulltrúunum velfarnaðar i
starfi og lét í ljós ánægju sina yfir
þvi að þingið skyldi að þessu sinni
haldið i Flensborgarskóla.
L.t.M. er hagsmunasamtök Is-
lenzkra framhaldsskólanema.
Arlegt landsþing sambandsins er
æðsta valdið I málefnum þess.
Þar eiga sæti fimm fulltrúar frá
hverjum aðildarskóla. Milli þinga
er æðsta framkvæmdavaldið I
höndum stjórnar sambandsins,
þar sem sitja tveir fulltrúar frá
hverjum aðildarskóla, formaður
nemendafélags og annar fulltrúi
nemenda I skólastjórn. Fram-
kvæmdastjórn L.Í.M. sér um
daglegan rekstur sambandsins. I
henni eru þrir menn, allir úr
sama skóla. Siðasta starfsár var
framkvæmdastjórnin úr Mennta-
skólanum i Kópavogi og nú sam-
þykkti þingið að hún skyldi næsta
starfsár vera úr Menntaskólan-
um við Hamrahlíð.
Meginstarf þingsins fólst i þvi
að tryggja virkni og þátttöku að-
ildarfélaganna i starfi L.Í.M. í
þvi augnamiði var m.a. sam-
þykkt reglugerð fyrir Menningar-
tengslasjóð L.t.M. en hann á
samkvæmt henni að styrkja sam-
skiptin milli skólanna, s.s. ferðir
Jeikhópa, kóra, hljómsveita og
listsýninga. Þá skipti þingið verk-
efnum á milli starfshópa I skólun-
um. Má þar nefna umfjöllun um
menntaskóla/fjölbrautarskóla
frumvarp um framhaldsskóla og
spurninguna um hvort jafnrétti sé
til náms á Islandi.
Ýmis hagsmunamál komu til
umræðu á þinginu. Þingið benti
t.d. á leiðir sem miða að þvi að
lækka bókakostnað nemenda á
framhaldsskólastiginu, en hann
er nú þegar orðinn þungur baggi á
mörgum heimilum. Sem dæmi
má taka að nemandi i inngangsá-
fanga að Islenzkum bókmenntum
i M.H. verður að útvega sér bæk-
ur sem kosta hátt á ellefta þúsund
út úr búð. Væntir þingið þess að
gott samstarf takist á milli þeirra
aðilja sem hlut eiga að máli og að
sýndur verði fullur skilningur á
þessu hagsmunamáli nemenda og
foreldra þeirra. Þingið bendir á
að eðlilegt verði að teljast að rikið
greiði öll varanleg tæki til félags-
starfs i skólum og leggi til heimil-
istæki ýmiss konar sem nauðsyn-
leg eru i hverjum skóla þar sem
heimavist er rekin. Það ér einnig
skýlaus krafa að iþróttaaðstöðu
verði komið upp við alla skóla og
fyrri aðstaða bætt.
Úrvalsbíll sem hentar sérlega vel íslenzkum
aðstæðum, veðri og vegum. Ný sending að koma.
Nokkrum bílum
óráðstafað
FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI
Davíð Sigurðsson h.f,
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 85-8-55
reyfarakaup
VINNUFATABUÐIN
Iðnaðarmannahúsinu
UTSÖLU-
MARKAÐUR
í Iðnaðarmannahúsinu
Mikið úrval af:
Gallabuxum
Flauelsbuxum
Kuldaúlpum
Blússum
Vinnuskyrtum
Peysum
ósamt miklu úrvali af
öðrum fatnaði
Stórlœkkað verð — Aðeins í nokkra daga
VINNUFATABÚÐIN
í Iðnaðarmannahúsinu *