Tíminn - 18.01.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 18.01.1978, Blaðsíða 5
Mi&vikudagur 18. Janúar 1978 5 Sverrir Bergmann, læknir: í TILEFNI PRÓFKJÖRS Prófkjör í Reykjavík Sverrir Bergmann. k. Alþingi Kosningaár er hafið. Stjórn- málaflokkarnir keppast við að manna framboðslista sina. Við skipan þeirra verður ekki undan þvi komizt að velja og hafna. Prófkjör eru ein leiðin til þess. Frammi fyrir einu sliku stendur nú framsóknarfólk i Reykjavik. 1 tilefni þess eru þessar linur skrifaðar. Sá, sem þær ritar, er einn þeirra sem gefur kost á sér til framboðs við alþingiskosn- ingarnar i sumar. Eðlilegt er að menn spyrji: hvað ætlar þessi maður sér á Alþingi.fái hann til þess stuðn- ing. Þvi er auðsvarað. I fyrsta lagi eiga flestir frambjóðendur sér einhver sérstök áhugamál, yfirleitt góð málefni og þörf, en hvort heldur i eðli sinu stór eða smá, skipta þau sjaldnast sköp- un, þótt gagnleg séu,fleiri eða færri. Um þau þarf ekki að ræða frekar. í öðru lagi láta flestir frambjóðendur sig ein- staka málaflokka meiru skipta en aðra og hvað mér viðkemur eru það heilbrigðis- og trygg- ingamál og menntamál eins og kemur nokkuð eðlilega af sjálfu sér. 1 þriðja lagi er svo að standa vörð um stefnu Fram- sóknarflokksins. Hana ætti að vera óþarfi að kynna lesendum þessa blaðs. Hún er stefna sam- vinnu og félagshyggju, frjáls- lynd og þjóðleg umbóta- og framfarastefna. Við, sem skip- um okkur undir hennar merki, hljótum að treysta þvi, að hún geti skapað gott og réttlátt þjóð- félag og þvi hljótum við einnig að vinna að lausn allra vanda- mála á grundvelli þessarar stefnu og þeirra samþykkta, sem gerðar eru hverju sinni eftir þvi sem mál koma upp og taka mið af grundvallarsjónar- miðum hennar. Islendingar búa betur i landi sinu nú en nokkru sinni fyrr. Hér rikir almenn velmegun. Lifskjörin jafnast i flestu á við það sem bezt er i öðrum lönd- um. Kynslóðirnar hafa af elju og samvizkusemi skilað æ betri arfi i okkar hendur. Mikilvæg staðreynd, sem aldrei skyldi gleymast. Allt væri þó hið ytra skart litils virði ef ekkert byggi inni fyrir. En þvi fer viðs fjarri. Við höfum hlotið góðan aðbúnað i hvivetna og ágæta menntun og eigum auk þess möguleika fleiri en áður hefur gerzt. Þjóðin er dugmikil og sjálfri sér sönn og sameinuð, ef á reynir. Mér veit- ist ávallt erfitt að lita framhjá þessu og þvi sé ég litla ástæðu til þess að æðrast þótt stundum sé einhverjum erfiðleikum að mæta. Vist er efnahagsvandinn mikill. Verðbólgan er litt beizl- uð, skuldir eru miklar við út- lönd og vandamál undirstöðuat- vinnuveganna margvisleg. En það er þekkt frá upphafi vega, að enginn vandi er svo mikill, að hann verði ekki leystur, ef fyrir þvi er vilji og einhugur að baki. Auðvitað þarf forystu og ákveðna stefnumótun og ég trúi þvi, að á grundvelli stefnu Framsóknarflokksins náum við beztum árangri. Efalaust þarf að hyggja að margvislegri endurskipan i uppbyggingu at- vinnuveganna, hið s.n. bákn þarf að reka af sem mestri hag- kvæmni, skipuleggja þarf og raða framkvæmdum og hyggja vel að arðsemi þeirra hluta, sem lán eru til tekin og raunar ráðizt i yfirleitt. Og auðvitað er það vandaverk i senn að draga umtalsvert úr verðbólgu en tryggja um leið fulla atvinnu og hægja ekki um of á nauðsynlegri uppbyggingu i landinu öllu. A erfiðum timum bera töfra- menn blóm. Leiti menn slikra til þess að ieysa allan vanda þá þýðir litið að kjósa mig. Ég trúi litt á töfralækningar. Sagan hefur sýnt, að takmarkaðar ein- faldar lausnir hafa sjaldnast verið farsælastar og sjálfur er ég svo gamaldags að halda, að samvinna, þolgæði og þraut- seigja skili beztum árangri um siðir, enda séu sett ákveðin stefnumörk og raunar hefur sagan sannað það einnig. Breytingar hafa verið örar undangengin ár. Þjóðfélagið hefur breytzt á skömmum tima og þjóðlifið er allt margbreyti- legra en áður og einangrun landsins er löngu rofin. Það getur margt farið úrskeiðis i umhleypingasamri tið. Maður- inn hefur verið breyzkur frá upphafi og fullkominn verður hann seint. Þeir siðferðisbrest- ir, sem hér sjást nú alltof viöa, eiga auðvitað nokkra skýringu i mannlegum veikleika, breyttri þjóðfélagsmynd og nýjum manngildishugmyndum. Kyndi- afl verðbólgunnar er jafnt stó- arinnar þar neðra. En það er með þetta eins og aðra sjúk- dóma. Þá verður að reyna að lækna. Skera meinin i burtu miskunnarlaust, þau skemma ella frá sér. En heilsugæzlan er mikilvægari, uppeldið sjálft og sönn takmörk i lifinu, ábyrgðar- tilfinning og skilningur á þvi, sem mönnum er til trúað. Og vist gætu þeir, sem með forráð okkar fara, stuðlað að betra sið- gæði með ýmsum athöfnum. Þar skiptir oft hið smáa jafnvel meira máli en hið stóra. Vel rekið bákn, réttlátt skattakerfi, að ógleymdri krónu, er skapaði mönnum verðskyn, væru hér dæmi. Þrátt fyrir þessi orð þýð- ir ekki að kjósa mig sem væri ég siðapostuli. Ég er jafn breyzkur og nágranni minn og gæti rétt eins runnið i hálkunni eins og hann. Þetta má kallast kosninga- spjall. Ég held þó að ég hafi ekki fallið i þá freistni að fara að lofa einhverju. Allt hefur sinn dag. Meira er þetta að gera grein fyrir hugrenningum min- um um það, sem nú ber hæst. Ég hvet framsóknarfólk til virkrar þáttöku i þeirri baráttu, sem framundan er á árinu. Ég vil einnig hvetja allt fram- sóknarfólk i Reykjavik til þess sérstaklega að taka þátt i próf- kjörinu 21. og 22. janúar n.k. Það er sanngjarnt og eðlilegt, að það fólk, sem heldur uppi starfsemi flokksins hér af dugn- aði og trúmennsku, hafi um það úrslitavald, hverjir veljast til framboðs. Þess vilji á að ráða og ég hef engan áhuga á þvi, né heldur tel það rétt, að taka sæti á framboðslista gegn þeim vilja. Björk Jónsdóttir: Hvert erum við að fara? Hér áður fyrr var það talið konu sérstök dyggö og kapps- málaö eiga fallegt heimili hrein og hraust börn og heilsu til að geta þjónaö þeim. En ástandið i þessu þjóðfélagi er orðið svo- leiðis I dag, að það eru rekin upp stór augu ef kona er heima hjá börnum sinum. Þá er talað um, að hún vinni ekkert, meira aö segja börnin tala um þaö sln á milli, að mamma þessara og hinna séekkertaö gera og segja alveg steinhissa: ,,Er hún heima?” Enda ekki nema eðli- legt þvi nú tiðkast ekki að hafa fyrirvinnu. Hiö mikla bákn sem við dag- lega nefnum kerfi, býður ekki upp á annað en að vera annað hvort einstætt foreldri eöa námsmaður. Hjónhafa sáralitla möguleika til að fá inni fyrir börn sin á dagvistunarheimilum eða leikskólum. Skýrslur Sum- argjafar sýna það, að langflest börn, sem þar eru eru annaö hvort börn námsmanna eða ein- stæðra foreldra. Þó er undan- tekning frá þeirri reglu.ef um er aðræða erfiðar heimiiisástæður og annað það er veldur brýnni þörf fyrir hvert einstakt tilfelli. Þá mun vera möguleiki á aö hýsa viökomandi hjá þessum stofnunum, annars eru eins og áður hefur verið sagt, börn ein- stæðra eða námsmanna látin hafa algeran forgang um vistun á heimilum. Aðsóknin er það mikil, að hundruð barna eru á biðlista um inngöngu á þessar stofnanir. Astandið i þessum málum versnar og versnar. Tölur sýndu, að bara I Breiðholts- hverfunum voru um áramótin 1976-1977 yfir þrjú hundruö börn á biölista, og þá eingöngu til þess að komast 1/2 daginn á leikskóla. Að visu voru þá ekki komnir tveir nýir leikskólar sem reistir hafa verið f Hóla- hverfi og Seljahverfi, en ljóst er að þessir tveir leikskólar hafa bætt vel úr ástandinu i þessum málum, þótt þeir séu hvergi nærri þvl að leysa vanda þann sem I þessum málum rlkir, þar sem ibúaaukningin I Breiðholti er ör og alltaf bætist viö börnin, sem eðlilegt er þar sem barna- fjölskyldur eru I miklum meiri hluta þeirra, sem flytjast i Breiöholtshverfin. Ef fariö er I gegnum skýrsiur Sumargjafar. þá segir þar sam- kvæmt yfirliti yfir biölista að hlutfall barna sem búa i Breið- holtshverfunum sé langhæst. 1 ljós kemur að 41.3% barna á biðlista eru i Breiðholti. Til nán- ari glöggvunar hefur biðlisti veriö athugaður með tilliti til barnafjölda og leikskólarýmis I hverjum borgarhluta. Eins og oft áður eru það tölur úr Breiðholtshverfunum, sem mesta eftirtekt vekja. Einnig kemur i ljós, að hlutfall leik- skólarýmis er afar lágt miöaö við f jölda barna I þessum hverf- um. Hvernig á að bregöast við þessum vanda? A aöfjölga dag- heimilunum og leikskólunum? Ef svo væri gert, er þá næsta skref fyrir gift fólk aö slita sam- búð til aö eiga möguleika á að vista börn sin á þessum stofnun- um, þar sem börn einstæöra for- eldra ganga fyrir og meö slíkum rétti aö börn giftra foreldra eru rekin frá þessum stofnunum, séu þau þar fyrir, og sé um hörgul á plássi að ræða? Er ekki orðinn annarlegur keimur af slíkum málum sem þessum að þegar fullorðnir ein- staklingar kjósa sér það llfs- form, að eiga maka þá er þeim hegnt fyrir. Það borgar lang- stærstan hluta þeirra peninga sem til samneyzlu fara, langt umfram námsmenn og ein- stæða foreldra. Samt er þvi út- skúfaö úr kerfinu I þessum mál- um. Þar sem þessi stefna hefur verið tekin i dagvistunarmál- um. væri hægt að ráöa ofurlitla bót á hlutskipti þeirra, er valið hafa sér maka og heimili til að hugsa um. Mætti ekki koma á fót heimili fyrir börn, er þyrftu timabundna pössun 1-3 klukku- stundir á dag? Það er nú einu sinni svo,að kona, sem valið hef- ur þann kost að vera heima og sinna manni slnum og börnum, þarf oft aö taka að sér ýmsa snúninga fyrir heimilið annað hvort vegna fjarveru eigin- manns við vinnu, hún getur lika orðið lasin og þurft að leita læknis, og er þá ekki alltaf gott að gripa barnfóstru alveg i hasti. Nú, svo getur eitthvert barnið orðið fyrir meiðslum, hún þarf aö hlaupa hvernig sem aðstæður eru, en hvað á hún aö gera við þau börn sem hún þarf að fara frá? Taka þau með sér? Það er ekki alltaf rétt lausn. Þá kæmi sér vel, ef til væru I borginni á 1-3 stööum heimili, heimili sem gætu tekið börnin I Björk Jónsdóttir gæzlu ca. 1-3 tima gegn ákveð- inni staðgreiðslu. Viö, sem erum heima, mynd- um fagna þess konar stofnun mikiö, þar sem við gætum haft börn okkar á öruggum stað en þyrftum ekki að flækjast með þau i bllum og strætisvögnum á meðan við sinnum utanaökom- andi heimilishaldi. Ég teldi svona stofnun ekki siður nauö- synlega en bHastæði og vildi gjarnan vinna að því aö koma sfiku heimili á fót. Einnig hefur mikiö veriö rætt um aö húsmóðirin einangrist of mikið frá umheiminum og þurfi að bæta úr þvi og hefur veriö boðið upp á alls konar námskeið bæði I handavinnu og leirvinnu alls konar, eins lík- amsrækt. En hvernig á húsmóö- ir aö notfæra sér þetta, þar sem annað hvort er slikt námskeið um miöjan dag.eða þegar komið er kvöld,en kvöldin eru aðal- hvlldartimi húsmæðra þegar börnin eru komin i ró og hún getur fariö að hugsa um sjálfa sig og maðurinn kominn heim úr vinnu? Þá á hún aö fara út og hressasjálfa sig og auöga til að hleypa nýju blóði inn I fjölskyld- una. Það hefur einfaldlega gleymzt, að ekki er vlst, aö hún eigi uppkomin börn til að líta eftir þeim yngri á daginn, svo hún geti sótt þessi námskeiö. Ekki er vist að allir yrðu ánægð- Prófkjör í Reykjavík stj órn ir, ef hún mætti meö börnin með sér. Þá erum viö á sama punkt- inum og áöan. Lausnin er sú, að hún verður aö vera heima. Hér eru nokkrar tölur til glöggvunar á ástandinu. Um áramót 1976-77 var fjöldi barna ádagheimilum 786börn, þar af börn einstæðra foreldra 518 eða 65.9% háskólastúdenta 139 eða 17.7% annarra námsmanna 103 eða 13.1% giftrafóstra 16eða 2.0% vegna erfiðra heimilisástæöna lOeöa 1.3% En á biölista fyrir dagheimili voru: Einstæðirforeldrarmeð214börn háskólastúdentar með 142börn giftar fóstrurmeð 1 barn vegna erfiðra heimilisástæðna 6börn Ástand þaö,er ég hef reynt aö lýsa hér aö framan og sem töl- urnar I skýrslu Sumargjafar sanna, er ef til vill orsök þess, að svokallaðar dagmömmur hafa skotið upp kollinum um alla Reykjavík. Mömmur þess- areru að visumesta þarfaþing. Félagsmálastofnun Reykjavlk- ur hefur eftirlit meö þeim og veitir þeim atvinnuleyfi eða gef- Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.