Tíminn - 31.01.1978, Page 7

Tíminn - 31.01.1978, Page 7
Þriðjudagur 31. janúar 1978. 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. F'ramkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifsfofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á mánuði. , , Blaðaprent h.f. Ráðstafanir gegn atvinnuleysi og kj arasker ðingu Það mun sammæli allra, sem fást við kaup- mennsku, að jólaverzlunin svonefnda hafi aldrei verið meiri en að þessu sinni. Það er augljós vitnis- burður um, að kaupgeta almennings hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Margt fleira er merki um þetta, eins og mikil ferðalög til útlanda. Það er að- eins litið dæmi um þau, að mörg hundruð íslending- ar urðu sjónarvottar að þvi óhappi islenzka hand- knattsliðsins að tapa fyrir Spánverjum eftir að hafa næstum staðizt rússnesku meisturunum snúning. Hundruð íslendinga dvelja nú stöðugt á suðlægum sólarströndum. Bilainnflutningur til landsins mun aldrei hafa orðið meiri en á siðastl. ári. Þannig mætti rekja þetta áfram. Fáar þjóðir búa við jafn- góð kjör og íslendingar um þessar mundir, þótt finna megi ýmis dæmi um misjöfn kjör, sem rekja rætur til sérstakra ástæðna, og þjóðfélagið hefur enn ekki bætt sem skyldi. Það er áreiðanlega gild ástæða til þess fyrir Is- lendinga að fagna þvi, hve góð lifskjör þeirra eru miðað við flestar þjóðir aðrar. Það er ótviræður dómur um, að stjórn landsins hafi ekki mistekizt einsstórlega og öfgafyllstu andstæðingar hennarvilja vera láta. Hin góðu lifskjör íslendinga rekja rætur til þess, að hér hefur fyrir atbeina stjórnarvalda verið haldið uppi mikilli atvinnu, svo að atvinnu- leysi má heita óþekkt. Jafnframt hefur verið reynt með ýmsum hætti að dreifa þjóðartekjunum, þótt enn fái ýmsir stóran hlut. En hins verður að gæta og gæta vel, að hvorugt þessa, þ.e. næg atvinna og sæmileg lifskjör, hvila á sterkum grunni. Þetta hvort tveggja hefur fengizt með þvi að ganga svo nálægt afkomu útflutningsatvinnuveganna, að framtiðarrekstur þeirra hvilir á veikum grunni. Hjá sumum greinum þeirra er þegar um halla- rekstur að ræða, en hjá öðrum vofir hallarekstur yf- ir. Þá hefur hinn mikli verðbólguvöxtur á siðasta ári þrengt að ýmsum iðngreinum og má þar ekki sizt nefna byggingariðnaðinn, þar sem fyrirsjáan- legur virðist mikill samdráttur að óbreyttum að- stæðum. Komi til stöðvunar vissra greina útflutn- ingsins og dragist byggingariðnaður saman, blasir við atvinnuleysi, sem fljótlega gæti orðið tilfinnan- legt og haft samdráttaráhrif út frá sér á alla vegu. Þá er úr sögunni sá grundvöllur, sem velmegun þjóðarinnar byggist á um þessar mundir. Þess vegna er það nú meginverkefni rikisstjórnar og Alþingis að gera ráðstafanir, sem nægi til að af- stýra samdrætti umræddra atvinnugreina, tryggja með þvi næga atvinnu og óbreytta kaupgetu. Sum- um kann að finnast i fyrstu, að slikar ráðstafanir kunni að vera liklegar til að valda kjaraskerðingu, og þvi verði reynt að koma af stað æsingum gegn þeim með ýmsum hætti. En allt væri það byggt á fölskum forsendum. Tilgangurslikraráðstafana er einmitt fyrst og fremst að tryggja næga atvinnu og að koma i veg fyrir kjaraskerðingu.Án slikra ráð- stafana myndi koma til atvinnuleysis og i kjölfar þess kjaraskerðing með margvislegum hættum. Nú er um það að ræða, hvort stjórnvöld hafa áræði til að gera raunhæfar ráðstafanir til að afstýra at- vinnuleysi og kjaraskerðingunni, sem þvi myndi fylgja. Þ.Þ. Stórkostlegt hneyksli i Michigan: Eitur í fóðurbæti sýkti fólk og fénað Jafnað til stórhneykslanna i Minimata i Japan og Sevesó á Ítalíu t Michigan i Bandarikjunum búa niu milljónir manna. Mik- ill fjöldi þessa fólks er með meira eða minna af eitri i lík- ama sínum. Það er afleiðing dæmalausrar mengunar. Vegna hirðuleysis og stjórn- leysis var efni, sem firnin öll voru framleitt af, án þess að eiturmagn i þvi væri prófað á viðhlitandi hátt, notað til ábætis i skepnufóður, og það dró þann dilk á eftir sér, að iskyggilegt magn eiturs hlóðst upp i vefjum gripa og siðan manna. Þetta efni er náskylt hinu iUræmda eitri PCB. Það kall- ast PBB, og er það stytting fyrir pólýbróm-fenýl. Það er upphaflega brunavarnarefni, sem notað var til þess að eld- herða harðplast, til dæmis plast, sem notað er i sjón- varpstæki. Ekki er kunnugt, að PBB sé framleitt nema i einum stað i heiminum, og er það hjá stór- fyrirtæki i Michigan. Fyrir- tækið kallar þessa framleiðslu sina eldstjórann (Firemast- er), og seldi það framan af i tuttugu og fimm kilógramma pokum með rauðu vörumerki. Einhvern tima á árum 1972 eða 1973 var þó hætt að nota þessa sérstöku poka. Þá var farið að setja það i brúna poka, án rauðu áletrunarinn- ar, og voru sams konar pokar notaðir utan um aðra fram- leiðsluvöru fyrirtækisins, efni sem notað var i skepnufóður (Nutrimaster). Þá tókst ekki betur til en svo, að brunavarn- arefninu var blandað i korn til skepnufóðurs, og var þessum eitraða fóðurbæti dreift tíl mikils fjölda gripabænda i Michigan. Langur timi leið, áður en upp komst, hvað i efninu var. Þegar sumarið 1973 tók að bera á dularfullum sjúkdóm- um i gripum á hverjum bóndabænum af öðrum, en menn áttuðu sig ekki á þvi, hvað þessu olli. Nytin i kúnum minnkaði, og varð sums stað- ar ekki nema helft þess sem áður hafði verið, og mikið fæddist af dauðum kálfum, en þeir, sem lifðu, voru minni en eðlilegt var. Svo hittist á, að einn bænd- anna, sem fyrir þessu varð, var efnafræðingur. Hann hét Harbart. Hann grunaöi, að ekki væri allt með felldu með fóðurbætinn, og tók að rann- saka hann, og svo og mjólk og kjöt gripa, sem sýkzt ‘HöTðu En hann lenti á villigöt- um aö leita einvörðungu að DDT og PCB, og þess vegna fann hann ekki neitt grunsam- legt. Loks sneri hann sér til rannsóknarstofnunar land- búnaðar með þetta vandamál.. En þeim komustekki heldur á sporið — fyrr en seint og um siðir og þá af tilviljun eða vegna gleymsku starfsmanns. Við rannsóknirnar var notað sjálfritandi tæki, sem mældi efni þau, er rannsóknin beind- ist að, þegar þau skiljast frá öðrum efnum sýnishornanna, hvert og eitt eftir ákveðinn tima. Lokst var það, að mönn- um gleymdist að slökkva á tækinu, er burt var farið. Þeg- ar að var komið og farið að huga að þvi, kom á daginn, að sjálfritinn hafði risið mjög, langt upp fyrir það, sem áður hafði gerzt. Skýring á þessu fýrirbæri lá samt ekki á lausu. Harbart varð að snúa sér til 'annarrar rannsóknarstofu, og þar var hann svo heppinn að hitta fyrir einn þeirra örfáu efnafræð- inga, sem kunnu skil á PBB. Hann komst að raun um, hverskyns var,og þegarhann sagði Harbart, i hvaða efna- smiðju það var framleitt fór menn að gruna margt. Nú vöknuðu lika stjórnvöldin við vondan draum, og þegar fullur poki af brunavarnarefninu fannst i fóðurblöndunarstöð i Michigan voriö 1974 komst allt upp. Efnasmiðjurnar höfðu selt fóðurblöndunarstööinni þetta efni, sem raunar var ekki ósvipað útlits efni, sem ætlað var til iblöndunar i fóð- urbætinn. Nú reið á að finna þau býli, þar sem eitrið hafði veriö gef- ið gripum. Það tók langan tima, og i árslok 1975 höfðu fimm hundruð slik býli fund- izt. 1 þeirri hrotu var slátrað fjörutiu þúsund nautgripum, fimm þúsund svinum, þrettán hundruðum sauðfjár og um hálfri miiljón hænsna. Auk þess hafði hald verið lagt á fjörutiu milljónir eggja. Allt var þetta grafið i afarmikilli gröf, er tók yfir marga hekt- ara lands — með þeim afleið- ingum, að eitrið komst i jarð- vatnið. Þetta var ekki nema fyrsti þáttur þessa harmleiks. Fólk, sem keypt hafði kjöt, mjólk og egg frá þeim býlum, þar sem notaður var eitraöur fóður- bætir, hafði fengið eitur i lik- amsvefina, og upp komst, að sumir bændanna höfðu haldið áfram aðselja vöru sina beint i kjötvinnslustöðvar, og meira að segja i verksmiðjur, sem framleiddu barnamat, eftir að upp komst um eitrunina. Mjólkurbú i einkaeign höfðu einnig orðið sér úti um ódýra mjólk af þessum sömu býlum, en forráðamenn þeirra hafa varið sig meö þvi að hún hafi blandazt svo mjög óskaðlegri mjólk, að hætta hafi verið litil — helzt engin, segja þeir. Fyrst i stað var ekki gert ráð fýrir þvi, að eitrið hefði skaðað fólk neitt að ráði. En það var ályktun, sem ekki stóðst. Þrjátiu og fimm manna hópur visindamanna frá heilbrigðismiðstöð i New York (Mount Sinai Midecal Center) hefur rannsakað þetta graumgæfilega, og niðurstað- an var birt á ráðstefnu i Lundúnum i desembermánuði siðast liðnum. Eftir þá ráð- stefnu sagði fréttaritari frá þekktu visindariti, New Scien- tist, að atburðirnir i Michigan væristórhneyksli af sama tagi og kvikasilfurseitrunin i Mini- mata i Japan og Seveso-hneyksliö á Italiu. Rannsókn hefur verið gerð á mörgum þúsundum manna i Michigan, bæði fólki sem átti heima á býlum þeim, þar sem eitrunar gætti, ogannars stað- ar, þar sem vörur þaðan voru seldar. Hjá þriðjungi þessa fólks fundust einkenni, sem tengdust PBB. Þetta fólk þjáðist af minnisbresti, vöðvarýrnun, höfuðverkjum og svefnleysi. hjá fimmta hverjum manni bar á húðsjúk- dómum og viðlika margir kvörtuðu um magaverki og niðurgang. Fjórði hver maður var með bólgu og verki i liða- mótum. Börn þessa fólks virt- ust kvefsæknari en önnur. Einn bóndinn, sem hafði fengið þennan eitraða fóður- bæti, var hættur að muna, hvar hann hafði látið verkfæri sin —jafnvel hvar hann haföi skilið við dráttarvélina sina. Maður á fertugsaldri hafði neyðzttil þess að hætta vinnu sinni vegna þess, að hann mundi ekki lengur, hvar hann átti að aka út af þjóðveginum til vinnustaðarins. Fyrirhugað er, að vísinda- mennirnir frá New York hefji nýja rannsókn i vor. Þá mun athyglin meðal annarsbeinast að þvi, hvort börn i móður- kviði biða tjón af eitrinu, og hversu mikið er af þvi i mjólk kvenna. Bandariska umhverfisráðiö EPA hefur gefið til kynna, að PBB verði bannað sem bruna- varnarefni, og framleiðslu þess er þegar hætt i Michigan. Meöal fólks, sem vann i verksmiðjunni eða bjó I grennd við hana, hefur efnið meðal annars fundizt i hárinu. Þaö virðist haldast mjög lengi, og menn vita nú þegar, að það er að minnsta kosti þrjú ár i sumum likamshlut- um manna. Sem brunavarn- arefni hafði efniö verið notað ákaflega viöa áður en ósköpin dunduýfir haföi verksmiðjan selt tvær milljónir kiló- gramma af eitrinu. Það byrjaði sumarið 1973. Gripir veiktust á hverju býlinu af ööru. Nytin minnkaði, kálfarnir urðu óeðlilega litlir og oft fæddust þeir dauðir... Seint og um siöir komst upp, að eiturefnum hafði sökum hiröuleysis veriö blandað i fóöurbætinn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.