Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 2

Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 24. ágúst 1978 Tilkynnt um forsætis- ráðherratign Da Costa? Reuter/Lissabon — Antonio Ramalho EaneS/ forseti Portúgals, boðaði í gær til blaðamannafundar, sem hald- inn verður í dag, og er búist við að hann muni á fundi þessum formlega staðfesta aðAifredo Nobre Da Costa verði næsti forsætisráðherra landsins. Forsetinn hefur átt mjög undir högg að sækja hjá stærsta stjórnmála- flokki landsins, sósíalistum, fyrir að fela Da Costa stórnarmyndun og leysa upp ráðuneyti Soaresar, for- manns sósialistaflokksins. Fjórtán félluí Nicaragua Washington 23. ágúst, Reuter— Fjórtán manns féllu og 15 særðust er vinstri sinnaðir skæruliðar réðust inn í þjóðarhöllina (þinghúsið) í Managua f Nicaragua í gær. Mörg hundruð manns, þar á meðal tveir ráðherrar og 40 þingmenn voru í þinghúsinu, þegar skæruliðarnir réðust inn i það. Reiknaö er með að forsetinn muni á blaðamannafundinum i dag leggja áherslu á að hann hafi miöað allar athafnir sinar við ákvæði stjórnaskrár og það sé eftir sem áður i valdi þingsins að ráða þvi hvort stjórn Da Costa sitji allt til ársins 1980 eða hvort nýjar kosningar fari fram fyrir þann tima. Hið liklega og umdeilda for- sætisráðherraefni, Da Costa, lýsti þvi yfir i stjónvarpsviðtali i fyrradag, að hann hefði fulla samúð með málstað sósialista og stefna hans i forsæti ráðunevtis mundi ekki vikja langt frá þvi sem verið hefði i tveggja ára stjórnartið sósialista. Sósialistar hafa tekið þessum ummælum fá- lega og segja að utanþingsfor- sætisráðherra sé undantekning i lýðræðisrikjum. Átök herja Suður- Afríku og Zambíu Pretoría, 23. ágúst, Reuter. Níu hermenn Suður- Afríku féllu í dag í átökum við herlið Zambíu og skæruliða SWAPO-hreyfingarinnar við landamæri Namibíu (Suðvestur-Afriku). Herstjórn Suður-Afriku tiikynnti þetta og jafn- framt að þetta hefði gerst í árás á borgina Katima Mulo á Caprivi-tungunni (landræma, sem skerst á milli Angóla og Botswana að landamærum Zambíu við Zambesi-fIjótið). Tíu hermenn særðust og voru fluttir á sjúkrahús. Varnarmálaráðherra Suður- Afriku, Pieter Botha, sagði, að stjórnarflokkurinn hefði gert viðeigandi ráðstafanir en út- skýrði ekki nánar við hvað hann ætti. Talsmaður hersins sagði, að ekkert herlið hefði verið sent inn i Zambiu. Hins vegar væri ekki útilokað, að lið yrði sent inn i Angóla til að gera árásir á búð- ir skæruliða SWAPO þar. Miklar skemmdir urðu er sprengjum var varpað á Katima Mulilo, og segja Suður- Afrikumenn, að þeim hafi verið skotið frá stöðvum innan landa- mæra Zambiu. Segja þeir, aö skæruliðar hafi byrjað árásina, en siðan hafi herlið frá Zambiu komið þeim til aðstoðar. Atök þessi urðu aðeins nokkrum klukkutimum eftir að fulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Martti Ahtisaari fðr frá Namibiu eftir að hafa verið i landinu i 16 daga og undirbúið sjálfstæði Namibiu i samræmi við tillögur Sameinuðu þjóð- anna þar að lútandi. Stjórn Zambiu hefur visað á bug fullyrðingum Suður-Afriku- manna um, aö her frá Zambiu hafi átt hlut að árásinni. Sovétmenn gagnrýna Japani fyrir vináttu- sáttmála við Kína Tveir látnir af völdum eitraðs lax Tókió, 23. ágúst, Reuter. — Sovét- stjórnin hefur afhent japönsku stjórninni harðorð mótmæli vegna friðar- og vináttusáttmál- ans, sem nýlega var undirritaður milli Japana og Kinverja. t orð- sendingunni segir, að Sovétmenn geti ekki annaö en látið sáttmál- ann til sln taka. Þar hafi Japan tekið afstööu með Kina og hljóti þvi að bera ábyrgð á versnandi sambúð Japana og Sovétmanna. 1 sáttmálunum segir svo i 10. grein, að aðilar séu andvigir „for- ráðum einnar þjóöar yfir heims- hlutum”. Segja Japanir að þetta eigi einungis við um ríkin tvö, Kina og Japan, en Kinverjar hafa túlkað þetta sem gagnrýni á stefnu Sovétrikjanna. Reuter/Birmingham — Með skömmu millibili hafa bresk hjón látist af völdum matareitrunar, sem þau fengu af þvi að eta niður- soðinn lax frá Kanada. Tveir aðr- ir sem deildu máltið með þeim iiggja enn þungt haldnir á sjúkra- húsi. Að sögn breskra heilbrigðis- yfirvalda hefur niðursoðni laxinn skemmst vegna iitils ryðgats á dósinni og hefur ekki þótt ástæða til að banna sölu á þessari kanadisku vöru. i Englandi er hins vegar enn i gildi sölubann á bandariskum niðursuðulaxi. Þrælahald er enn við lýði: Börn vinna víða mikið JYPJp lítí ð ~ stúlkubörn þurfa að gefa vinnu v sína • • • og líkama Reuter/Genf — Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um „þrælahald" kom í gær saman til funda um skýrslu um barnavinnu í fjölmörgum löndum, m.a. Bandaríkjunum, S-Ameríku og Thai- landi. I skýrslu þessari kemur m.a. um. Samkvæmt könnun frá ár- fram, að þess finnist dæmi i ' inu 1971 unnu u.þ.b. 300 þús. Bandarikjunum að fjögurra ára börn frá morgni til kvölds alla gömul börn séu útivinnandi og sjö daga vikunnar. tólf ára börn vinni öllum stund- Um Thailand kemur fram i skýrslunni, að lögreglan þar i landi bjargaði á þessu ári 60 börnum úr verksmiðju, þar sem þau höfðu veriö látin vinna i 18 klst. á dag alla vikuna fyrir innan við dollar á viku. 1 Boliviu og nokkrum öðrum S-Amerikurikjum eru fjölmörg börn gerð að einskonar þrælum á heimilum betur stæðra og meðferðin á þeim er upp og ofan. Sums staðar eru stúlk- urnar kornungar hafðar heimilismönnum til gamans (kynferðislega ). Börnum þessum er haldið inni á heimil- unum við vinnu eftir að þau eldast, oftast kauplaust og nánast sem þrælum. Þau fá ekki að giftast og hendi þau að eignast börn verður hlutskipti þeirra afkvæma að feta i fótspor móðurinnar. Eins og fram hefur komið er árið 1979 ,,Ár barnsins” hjá Sameinuðu þjóðunum og eins og segir I skýrslunni: „Þetta gefur okkur sérstakt tækifæri til að gera öllum ljóst hvert bilið er á milli laganna og veruleikans, milli siðgæðislögmála sem við boðum og aðstæðna sem við lið- um.”.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.