Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 5

Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 5
Fimmtudagur 24. ágúst 1978 5 Nýr leikskóli tekinn í notkun í Ólafsvík Alcxander Stefánsson oddviti SJ —A laugardag var formlega tekinn i notkun nýr leikskóli i Ölafsvik á Snæfellsnesi. Ætlunin er aö leikskólinn verði starfrækt- ur alla virka daga kl. 8-12 og 13-17. 40 börn geta verið á heimilinu i senn. Þuriður Sigurðardóttir frá Reykjavik, sem veitt hefur for- stöðu dagvistunarstofnun um langt skeið, mun starfa meö starfsfólki leikskólans i ölafsvik i fyrstu og skipuleggja með þvi starfsemina. Gréta Jóhannes- dóttir veitir heimilinu forstöðu. Leikskólinn kostaöi tæpar 50 milljónir króna. Arkitektar eru Guðmundur Kr. Guðmundsson og Ólafur Sigurðsson. Auður Sveins- dóttir landslagsarkitekt teiknaði Leikskólinn i ólafsvik er meðal þeirra fyrstu, sem byggöur er eftir 4 samræmdum hugmyndum Menntamáiaráðuneytisins og samstarfs- nefndar um hvernig æskilegast sé aöslíkar byggingar skuli vera. Gestir skoöa húsiö aö innan lóðina, sem er 3000 fermetrar og eru þar möguleikar á ýmsum skemmtilegum nýjungum. Við vigslu leikskólans á laugar- dag fluttu ávörp Alexander Stefánsson oddviti Gréta Jóhannsdóttir forstöðukona, sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson sóknarprestur. Kvenfélag Ólafs- vfkur gaf leikskólanum kr. 100.000 til tækjakaupa og Verkalýös- félagið Jökull kr. 50.000. Enn- fremur gáfu átta ungar konur i bænum kassettutæki ásamt magnara og hátalara að verð- mæti kr. 270.000. 1 ávarpi sinu sagði Alexander Stefánsson oddviti: Nýi leikskólinn i Ólafsvik „Góðir gestir. Ég vil bjóöa ykkur öll velkomin — við erum hér samankomin til að fagna þvi sérstaklega að okkur hefur tekist aö byggja hér upp fullkomið leikheimili fyrir litlu börnin okkar hér i Ólafsvik, leikskóla sem á að fullnægja ströngustu kröfum nútimans um góöan og þroskavænlegan aðbún- að fyrir litlu börnin og jafnframt að auðvelda mæðrum að stunda útivinnu, sem er brýn nauðsyn fyrir atvinnulifið ekki sist i sjávarþorpi eins og okkar.” Og ennfremur: ,,Ég leyfi mér að óska þess af heilum huga, aö þetta nýja barnaheimili verði til heilla fyrir okkar byggðarlag og hafi bless- unarrik áhrif á okkar ungu uppvaxandi kynslóö i nútið og framtiö um leið og það er menningartákn fyrir byggðarlag- ið.” Glæsilegt ferða- happdrætti Frá Dubrovnik i Júgóslaviu. Framsóknarfélaganna í Reykjavík Frá Dublin, við ána Liffey , sem rennur i gegnum borg- <na. Háhýsið er mibstöö Irska alþýöusambandsins. SJ — Fulltrúaráð Framsóknar- félaganna efnir um þessar mund- ir til glæsilegs ferðahappdrættis til stuönings starfsemi flokksins i Reykjavik og til þess að standa straum af nýafstöðnum kosning- um, sem komið hafa þyngra niður á flokknum nú en endranær. Fimmtiu vinningar verða veittir, ferðir til Irlands, Costa Del Sol og Júgóslaviu að verðmæti 84.500 26.000 hver vinningur. Heildar- verðmæti vinninga er 5. 744.000 kr. Dregið verður i happdrættinu 29. september. Hver miði kostar kr. 500 Miðar hafa verið sendir stuðn- ingsmönnum Framsóknarflokks- ins, en þeir fást einnig á skrifstofu flokksins Rauöarárstig 18. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.