Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 7

Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 7
Fimmtudagur 24. ágúst 1978 7 Jón frá Pálmholti, formaður Leigj endasamtakanna: Hafa leigjendur lífsrétt? Fyrri grein um málefni leigjenda og samtðk þeirra Þaö eru sjálfsögð mannrétt- indi i samfélagi eins og okkar, aö hver fjölskylda geti búiö i viðrniándi húsnæöi og við nokk- urt öryggi þar. Þetta er jafn mikilsveröur réttur og það, aö hafa mat til hnifs og skeiöar, föt aö klæöa sig i eöa frelsi til aö tjá hugsanir slnar og bera fram skoðanir sinar. Allt er þetta skilyröi fyrir heilbrigöu og ánægjulegu lifi, forsenda þess aö fólk geti notiö þeirrar einu ævi sem þvi er meö vissu gefin. Stundum hvarflar aö manni, aö þeir sem ráöiö hafa málum okkar þjóöar um alllangt skeið hafi taliö húsnæðismálum alþýöu hérlendis betur borgið en gerist I öörum löndum sem kennd eru viö menningu. Aö minnsta kosti hafa þeir ekki talið aö neitt þyrfti aö gera hér til úrbóta i likingu viö þaö, sem tiökast hefur annars staöar á Norðurlöndum og viöar. A þetta jafnt viö um marga þá sem ver- ið hafa i fyrirsvari fyrir alþýðu, eins og þá sem ráöiö hafa málum þjóðarinnar i heild. Annaö hvort er, aö þessir menn hafa meira um annað hugsaö en hag alþýöu, eöa samband þeirra við almenning hefur ekki veriö betra en svo að þeir hafa talið alla þjóðina búa við sömu kjör og þeir hafa sjálfir gert. Ekki má þó gleyma bygg- ingum verkamannabústaöa, bæöi fýrr á árum og i seinni tlö i Breiðholtshverfum. Þær hafa vissulega leyst vanda margra. Einnig lét Reykjavikurborg reisa fyrr á árum ibúöir fyrir fátækt fólk, en sú starfsemi er löngu aflögð og borgin hefur nú sleppt hendinni af stórum hluta þessaraibúöa og sett þær á hinn frjálsa markað. Mikið vantar á Þrátt fyrir þetta veröur ekki framhjá þvi gengiö aö mikiö vantar á aö húsnæöisvandi alþýöu hafi veriö leystur svo viöunandi sé. Til dæmis er út- borgun sú sem krafist er hjá framkvæmdanefnd verka- mannabústaða (20%) ofhá fyrir þá sem hafa lágar tekjur og greiða háa húsaleigu. Þá eru óeðlilega margar af þessum ibúöum of litlar og af þeim sök- um ekki fullnægjandi fyrir fjöl- skyldur meö börn. Þeim sem enn velkjast i vafa um þetta ástand, má benda á ritgerö eftir Jón Rúnar Sveinsson félags- fræðing um þessi mál, en hann rannsakaöi ástand húsnæöis- mála i Reykjavik fyrir nokkrum árum. Samkvæmt þeirrikönnun bjó þá tæpur fimmtungur Reykvikinga i leiguhúsnæði á eigin vegum. Kemur þaö heim við þær upplýsingar Hagstofu aö um 20% Islendinga búi i leiguhúsnæöi. Þar sem flestir leigjendur eru láglaunafólk, sem ekki hefur haft ástæður til aö eignast ibúö, er vlst aö hjá félögum i Alþýöu- sambandi Islands er þessi hlut- fallstala mun hærri. Þetta sfyður m.a. athugun sem Auöur Styrkársdóttir þjóöfélags- fræðingur geröi á vegum starfs- stúlknafélagsins Sóknar áriö 1976. Samkvæmt þeirri könnun bjuggu þá um 27% Sóknar- kvenna I leiguhúsnæði á eigin vegum, en þá höföu veriö teknir út úr könnuninni unglingar sem bjuggu I foreldrahúsum. Áhugaieysi ríkir Þaö er til marks um áhuga- leysi ráöandi manna á þessum Jón frá Pálmholti. málum, aö áriö 1965 samþykkti alþingi aö tillögu þáverandi félagsmálaráöherra, aö fella úr gildi húsaleigulögin, sem gilt höföu frá þvi fyrir 1920, eöa þaö sem eftir var af þeim, þvi nokkrum sinnum haföi alþingi gert á þeim breytingar, sem allar miðuðu aö þvi aö rýra gildi þeirra fyrir leigjendur. Var þá löngu hætt að sjá til þessaö eftir þeim væri fariö. Ekki minnist ég þess að hósti væri rekinn upp eða stuna, þegar húsaleigulögin voru afnumin. Þeir sem til þekkja á Noröurlöndum geta hugleitt hvort slikt gæti átt sér stað þar. Hér á landi er enginn aöili sem úrskurðað getur i deilum sem upp koma milli leigjenda og leigusala, nema þá hiö al- menna dómskerfi. Hér gilda ekki sérstök lög um þessi mikilsverðu viöskipti, hér eru engar húsaleigunefndir og hús- eigendum frjálst að bjóöa hús- næöi til leigu á þvi veröi sem þeim sýnist og i hvaöa ástandi sem er. Svo á aö heita aö frjáls samningsréttur riki, en I reynd er þaö oftast réttur neyöarinn- ar. Má þvi segja aö timabært hafi veriö fyrir leigjendur aö skipuleggja sig i formlegum samtökum, sem þeir geröu þann 18 mai s.l. Leigjendasam- tökin fóru af staö i góöum meðbyr. Ýmsir frammámenn i verkalýöshreyfingu lögðu mál- inu liö, ekki sist úr verka- kvennafélögunum. en einnig fólk úr öðrum verkalýösfé- lögum. Frá þvi samtökin voru stofnuö hefur stjórn þeirra haldið vikulega fundi i húsnæöi Sóknar, þar til nú fyrir skömmu aö Leigjendasamtökin tóku á leigu húsnæöi aö Bók- hlööustig 7 og er ætlunin aö hafa þar opiö einhverja tima á dag, eftir þvi sem hægt er. Þaö er fyrirhugaö aö koma á fót leigu- miölun er veröi ókeypis fyrir félagsmenn og reka kvörtunar- þjónustu, en þaö hefur sýnt sig aö full þörf er fyrir hana. Frá þvi Leigjendasamtökin voru stofnuð hefur ekki liöiö svo vika að ekki hafi borist kvörtun eöa kvartanir til stjórnarmanna vegna viðskipta leigjenda viö leigusala. Geríst félagar Leigjendasamtökin eru févana félagsskapur, sem vinnur fyrir þaö fólk sem verst ersett i þjóöfélaginu og að sjálf- sögöu eru öll störf á þeirra vegum unnin i sjálfboöavinnu. Stjórnarmenn þurfa því aö reka erindi félagsmanna i fritima sinum, eöa stelast til þess i vinnutimanum. Þetta gerir okk- ur erfiöarafyrir en annars væri, aö koma fram þeim málum sem viö stefnum aö til frambúöar og aö hjálpa þeim sem meö þurfa oft fyrirvaralitiö. Ég vil þó ein- dregið hvetja fólk til að hafa samband viö okkur ef vandræði koma upp vegna leigumála. Til þess erum við að koma Leigj- endasamtökunum á fót. Þá vil ég eindregiö hvetja leigjendur til að gerast félagar i samtökun- um, en það er hægt með þvi aö hafa samband viö stjórnina aö Bókhlööustig 7, þar sem haldnir eru opnir fundir hvert mánu- dagskvöld. Félagsgjöld má greiða inn á reikning nr. 63746 i Alþýðubankanum með þvi aö kaupa giróseöil i næsta banka eða pósthúsi. Þaö er yfirlýst stefna Leigjendasamtakanna aö vinna aö þvi áö koma hér á húsaleigu- lögum sambærilegum við þaö sem tíökast annars staöar á Norðurlöndum, og því kerfi húsaleigunefnda og dómstóla, sem þarerualls staðar úrskurö- araöilar i þessum málum. Þá tel ég að hér ættí aö koma til húsa- leigustyrkur i svipuðu formi og tiökast t.d. I Noregi og Danmörku. Ég hallast siður að sænska kerfinu, sem greiöir öllum svonefndan húsnæöis- styrk upp aö vissu tekjumarki, án tillits til þess hvort viðkom- andi býr í leiguhúsnæði eöa ekki. Ég tel niöurgreiöslu á húsaleigu margfalt ódýrari og komi um leiðþeim fátækustu aö mun meira gagni en niöur- greiðsla á matvörum til allra án tíllits til aöstæöna. Kristhm Snæland: Að vinna, Bjðm 1 greip minni ,,AÖ skemmta skrattanum” frá 11/8 skýröi ég frá heillavænlegu verkalýðs- og samvinnustarfi sem unniö var af ,,hægri” öflum Framsóknar- flokksins á timum Möðruvalla - hreyfingar. Sú grein var skrifuö til þess aö sem flestumFramsóknarmönn- um mætti veröa ljóst, aö þaö eitt að kalla sig vinstri mann er litil- vægt en hitt hvaö gert er hefur þýöingu. Eins er það vitanlega rétt, sama hver buxnasidd manna er, aðalatriðiö er aö vinna til heilla fyrir þjóöina meö jákvæöu starfi innan flokks og utan. Hinir óánægðu Hinir óánægöu hafa nú fengið ýms heiti svo sem afturgöngur frá Möðruvöllum, stuttbuxnaliö og jafnvel fleira. Nafngift skiptir ekki máli I þessu sam- bandi en hitt skiptir máli aö þessi hópur er óhress meö sitt- hvaö I sambandi viö flokks- starfiö og málgagn flokksins. Efla þarf flokksstarfið segir Björn Lindal og vonar aö for- maður fulltrúaráösins hafi þar forgöngu um. Hvers vegna gerir Björn Lin- dal ekki hlutina sjálfur, sem formaður .FUF. I Reykjavlk getur hann gengið I að halda fundi fyrir ungt fólk um hin margvislegustu málefni, hann getur haldið skemmtanir fyrir ungt fólk,hann getur komiö á kvöldvökum, hann getur komiö upp umræðuhópum um marg- vislegustu málefni,hann getur komið á skemmtiferöum. Allt þetta og miklu meira getur Björn Lindal gert i nafni FUF. Hvers vegna þá að vera aö tala um að aðrir geri eitthvaö? Tíminn batnar Hinir óánægðu með Björn Lindal I broddi fylkingar segjast vilja efla Timann, markmiöiö skipti höfuðmálLleiðirnar kunni að vera margvislegar,ein sé aö ráöa nýjan framkvæmdastjóra að Timanum. Kristinn Finnbogason, núver- andi framkvæmdastjóri á aö hafa ritstýrt Timanum I krafti fjármálastjórnar sinnar á blaðinu. Nánari útskýring á rit- stýringu Kristins hefur ekki komiö fram, rökstuöning vant- ar. Hefur Kristinn stjórnaö Þórarni og Jóni Helgasyni meö Kristinn Snæland. hótunum um launalækkun eöa hafa þeir lagt skrif sin inn til rit- skoðunar hjá Kristni áöur en þau voru birt i blaðinu? Hafa Þórarinn og Jón Helga- son látið Kristin segja sér fyrir verkum um hvaö birta ætti i blaðinu? Ekkert af þessu stenst,en hitt er staðreynd aö Timinn er aö batna. Þaö eru breytingar á blaðinu sem allir hafa tekið eft- ir. Aö bæta Timann meö efni og efnismeöferð er leiöin.sem fara þarf til aö efla Timann.þaö er nú gert af ritstjórunum i krafti fjármálastjórnar Kristins Finn- bogasonar. Það er lika hægt með þvi aö fá skeleggar greinar frá FUF um áhugamál ungs fólks og skammagreinar um and- stæöinga Framsóknarílokksins, þegar tilefni gefst til. Ósk um ábendingar Gylfi Kristinsson óskaöi eftir þvi á fundi Framsóknarfélags Reykjavikur nýveriö, aö hinir eldri flokksmenn kæmu meö til- lögur eöa ábendingar til hinna yngri um starfsemi FUF. Benda má á þaö sem ég hef sagt hér aö framan um félags- starísemina, kvöldvökur, um- ræðuhópa.skemmtanir, feröalög og fundi.allt má hafa þetta meö margvislegum hætti, en jafn- framt þarf FUF aö hafa i gangi útgáfustarfsemi og skipu- leggja skrif i Timann um áhugamál ungs fólks. Sem dæmi má nefna námslánin, skattlagn- ingu tekna á meöan verið er aö koma sér upp fyrsta húsnæöi, kosningaaldur og húsaleigumál. Fundi n,ætti halda um þessi mál og rita um þau greinar. Ég vil svo benda hinum óhressu á aö ef FUF kemur upp öflugu félags- starfi i Reykjavik, útgáfustarf - semi og greinaflokkum i Timan- um, þá mega þeir vita þaö aö hinir ánægöu fara líka i gang og þá þarf ekki að skammast um eflingu flokksstarfsins eöa Tim- ans. Þá er það aðeins aö athuga aö Timinn er þegar meö forskot — undir „ritstjórn” Kristins Finn- bogasonar. Að lokum Ég mun ekki einn um aö harma þær persónulegu deilur, sem sprottnar eru af uppsögn Alvars Óskarssonar, en jafn- framt hafa þær oröiö til þess aö ég hef hugleitt hve mikið lesefni það yrði ef deiluaöilar tækju upp á þvi að skrifa hver um annan og tiunda alltþaögóöa sem þeir hafa gert i flokks- og félags- starfinu. Mikiö gæti t.d. Alvar skrifað um Þóru Þorleifsdóttur — og öfugt. Þaö yröi ánægjulegt lesefni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.