Tíminn - 24.08.1978, Blaðsíða 10

Tíminn - 24.08.1978, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 24. ágúst 1978 Bréf Lúðvlks tíl flokksstjórnar Alþýðuflokksins: Svarið ótvírætt í dag, því engum degi má tapa í þras um form 23. ágúst 1978. Til flokksstjórnarfundar Alþýöuflokksins. Vegna þess aö ég hefi, sem forstööumaöur þeirra stjórnar- myndunarviöræöna, sem nil standa yfir, óskaö eftir skýrum svörum flokkanna um þaö hvort þeir gætufallistá aö minn flokkur heföi á hendi stjórnarforystu i þeirri rikisstjórn, sem mynduö yröi, — þá tel ég eölilegt aö skýra sjónarmiö min i þessum efnum i stuttu máli. Ég tel aö mikiö hafi áunnist i samningaviöræöum flokkanna til þessa. Samkomulag hefir tekist i aöal- atriöum um þetta: 1. Um nauösynlegar aögeröir i efnahagsmálum til áramóta og I ýmsum greinum til lengri tima. Þar er um aö ræöa 15% gengislækkun, 12% niöurfærslu verölags, lækkun vaxtakostn- aöar og annars reksturskostn- aöar Utflutningsatvinnuvega sem næmi 10% i kaupgjaldi og hækkun fiskverðs til samræmis vegna kaups sjómanna. 1 þessum aögeröum felst, aö visitöluhækkun um 8% sem heföi átt aö ganga út i verölag og kaupgjald 1. september, yröi greidd niöur aö fullu, og enn- fremur aö aörar hækkanir visi- tölu til áramóta yröu minni en ella. Lækkunverðlagsyrðim.a. iþvi formi að 20% söluskattur yröi felldur niöur af allri matvöru. Sú niöurfærsla verölags, sem gerter ráö fyrir kostar skiljan- lega mikla fjármuni. Sam- komulag er um þá fjár- muna-tilfærslu. 2. Þá er samkomulag um svo til algjöra veröstöövun til ára- móta og stórlega hert vertlags- eftirlit. 3. Samkomulag er um sérstaka fjárfestingarstjórn, um fækkun banka, endurskoöun rikis- kerfisins o.fl., o.fl. 4. Samkomulag er um aö leysa þann fjárhagsvanda sem fyrir liggur I landbúnaði. Og þaö sem ekki sist ber aö telja, er að góöur grundvöllur hefir veriö lagður, aö samkomu- lagi viö stærstu samtök launa- fólks um skipan launamála fram til 1. des. 1979 og þar með um vinnufriö. Grundvöllurinn er sá aö launasamningar séu virtir en á þessum tíma veröi ekki um kaup- hækkanir að ræöa, nema I formi verðbóta. Þessberþó aðgetaaðfrá þessu samkomulagi er ekki gengið aö fullu. Mörg önnur atriöi væntanlegs stjórnarsáttmála eru vel á veg komin. Það er því skoðun min að telja verði sterkar likur á þvi, aö sam- komulag um stjórnarmyndun flokkanna þriggja geti tekist. Við þessar aðsta^iur tel ég eöli- legt og sanngjarnt og blátt áfram nauðsynlegt gagnvart launþega- hreyfingunni, að sá aöilisem á aö veita rikisstjórninni forystu, stýri samkomulagsviöræöunum siö- asta spölinn og móti endanlegan stjórnarsáttmála. Hann yröi lika sérstaklega ábyrgur gagnvart launþegahreyfingunni varöandi þaö samkomulag sem þar yröi gert. Geti samstarfsflokkarnir ekki fallist á stjórnarforystu mlns flokks.er eölUegtaö égviki, enda tel ég aö undir minni forystu haf i þeir þættir málsins veriö leystir, sem mestu máli skiptir. Ég vil taka þaö skýrt fram, aö hér er ekki um aö ræöa, aö minn flokkur setjiskilyröium aö hafa á hendi stjórnarforystu, heldur um hitt aö stjórnarforystan veröi ákveöin. Ég mun i framhaldi af svari Alþýðuflokksins, halda áfram starfi minu, eða ganga á fund forseta og skila af mér minu um- boði, eftir þvi á hvora leiðina svar Alþýöuflokksins veröur. Formaður Framsóknarflokks- ins hefir tjáömér, aöhans flokkur samþykki st jórna rforystu Alþýöubandalagsins. Skili ég umboöi minu til forseta tel ég sjálfsagt, að hann feli nýj- um aðila umboö til stjórnar- myndunar. Viö Alþýöubandalagsmenn munum þá taka afstööu til fram- haldsviöræðna. Það er ósk min aö svar Alþýðu- flokksins liggi fyrir skýrt og ótvi- rætt i dag, þvl timinn er tæpur og engum degi má tapa i þras um form. Meöviröingu, Lúövik Jósepsson. Ályktun Alþýðuflokksins frá í gærkvöldi: Lagður verði fram málefna- samningur flokkana þriggja HEI — Eftir langan og strangan fund flokksstjórnar Alþýöu- flokksins þar sem úrslita var beöiö meö mikilli eftirvæntingu lét Alþýöuflokkurinn frá sér fara eftirfarandi ályktun: „Flokksstjórn Alþýðuflokksins lýsir yfir ánægju sinni meö fram- gang stjórnarviöræöna Alþýðu- flokks, Alþýöubandalags og Framsóknarflokks. Flokksstjórn- in bendir þó á, aö einungis hefur náöst samstaöa allra flokka um efnahagsráöstafanir næstu 4 mánuöi. Málefnasamningur Gylfi Þ. Gislason metti á fund flokksstjórnarinnar i gærdag til að miðla yngri mönnunum i Al- þýðuflokknum af áratuga rcynslu sinni. Árangurinn var það sem Ragnar Arnaids kallaði „klókindalega neitun”. meirihlutarikisstjórnar á hins- vegar aö ná yfir öll sviö þjóö- mála. Þrátt fyrir málefnasam- stööu flokkanna um efnahagsaö- gerðir næstu mánuöi eru enn veigamikil atriöi óútkljáö svo sem efnahagsstefnan til fram- búðar, utanrikismálin og ekki sist ýmis umbótamál á sviöi löggjafar og efnahagsmála. Flokksstjórnin felur þing- flokknum aö knýja á um aö sem allra fyrst verði lagður fram slik- ur málefnasamningur þessara þriggja flokka. Fyrr en sá samningur liggur fyrir telur Al- þýöuflokkurinn ekki timabært.aö ræöa um stjórnarforystu eöa skipta ráöuneytum milli flokka enda væri þaö I fullu ósamr mi viö þær heföir sem ríkt hata i sambandi viö myndun rlkis- stjórnar til þessa. Flokksstjórnin leggur höfuöáherslu á aö mál- efnaleg samstaöa náist milli flokkanna svo og lausn á forystu- vandamálunum. Flokksstjórnin minnir ennfremur á að efnahags- vandinn eykst meö hverjum degi og ekki má dragast öllu lengur að mynda rlkisstjórn þessara flokka er nú ræöast viö”. Bjarni Guðnason, fram- bjóðandi Alþýðuflokksins í Austurlandskjördæmi/ telur saman aura sina í þúngum þönkum. Nú hann kominn úr Astralíu- dvölinni og farinn að leggja hönd á plóg. Aðalf undur SDNN haldinn 1.-3. september nk. Aðeins einn sæklr um Fríkirkjuna Aöalfundur Samtaka um náttúruvernd á Noröurlandi (SUNN) veröur haldinn I Hafra- ladijarskóla lAöaldal dagana 1.-3. september næstkomandi. Dagskrá fundarins er f jölbreytt aö vanda enda hefur sú venja skapast aö aöalfundirnir (sem eru haldnir annaöhvort ár) séu jafnframt fræöslu- og kynningar- fundir, þar sem umhverfi fundar- staöarins er kynnt sérstaklega. Fundurinn hefst aö kvöldi föstudagsins 1. sept. með kynn- ingu á náttúrufari og sögu Aöal- dals og nágrennis. Þar flytja er- indi þeir Bjartmar Guömundsson á Sandi, og Þorgeir Jakobsson frá Brúum. Sýndar veröa litskugga- myndir úr Aöaldal og kvikmynd um jurtalitun sem tekin var fyrir nokkrum áratugum á bænum Garði. Ardegisá laugardaginn 2. sept., veröa aöalfundarstörf en siödegis veröur fariö i kynnisferö um Aöaldal meö viökomu á ýmsum stööum. Aö kvöldi sama dags flytur Sigurður Blöndal skóg- ræktarstjóri erindi um þátt skóg- anna i' búskapnum fyrr og nú, og Sigurður Þórarinsson jarö- fræöingur segir frá rannsóknum sinum á fornbýlum (eyöibýlum) i Þingeyjarþingi. Ardegis á sunnudag (3. sept.) veröa svoaöalfundarstörf aö nýju en siödegis veröur efnt til feröar I Þingey i Skjálfandafljóti og forni þingstaöurinn skoöaöur. Sérstök náttúruverndarsýning veröur I Hafralækjarskóla alla fundardagana og þar veröur lagöur fram bæklingur um náttúruvernd i Aöaldal. Ókeypis gisting er i skólanum fyrir fundarmenn og matur verður þar á boöstólum. Einnig eru næg tjaldstæöi viö skólann. Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á viðfangsefnum hans. Hinn 31. júli s.l. rann út um- sóknarfrestur um starf safnaöar- prests viö Frikirkjuna I Reykja- vlk. Umsækjandi var einn séra Kristján Róbertsson sóknarprest- ur I Þykkvabæ Rangárvallasýslu og mun hann annast messugjörö I kirkjunni sunnudaginn 3. septem- ber n.k. ki. 14.00. Samkvæmt lög- um Fríkirkjusafnaðarins skal kosning fara fram þótt umsækj- andi sé einn og veröur boðaö til kjörfundar i september n.k. Hafa allir safnaöarmeölimir atkvæöis- rétt sem náö hafa 16 ára aldri, enda séu þeir ekki skráöir meö- limir i öörum söfnuöum. Kjörskrá mun liggja frammi i kirkjunni mánudaga til föstudaga kl. 16-18 og er allt safnaöarfólk hvatt til þess aö ganga úr skugga um, hvort þaö sé ekki á kjörskrá og taka þátt i kosningunni. Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla ;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.