Tíminn - 24.08.1978, Side 11
Fimmtudagur 24. ágúst 1978
ilJfóiÍ'ÍÍÍi
l
u
BÆRINN
VAR EKKI ÞAR SEM BORGIN ER NÚ
1 Landnámabók stendur þessi
saga: „Þá var Þórir gamall og
blindur, er hann kom út sið um
kveld og sá, at maður röri utan I
Kaldárós á járnnökkva, mikill
og iltilegur, og gekk þar upp til
bæjar þess er i Hripi hét, og gróf
þar í stööulshliði, en um nóttina
kom þar upp jarðeldur og brann
þá Borgarhraun. Þar var bær-
inn, sem nú er borgin”.
* Þessi saga hefur verið talin
geyma forna sögu um eldgos er
varð er Eldborg I Hnappadal
myndaðist. Flestir þeir, er um
þetta efni hafa ritað, eru sam-
mála um, að sá, sem skráði
þessafrásögn (hanaerað finna
i Sturlubók Landnámu), eigi viö
Eldborgarhraun er hann nefnir
Borgarhraun. Hins vegar kem-
ur það ekki heim og saman við
aldur hraunsins. Þorvaldur
Thoroddsen taldi það runnið all-
löngu fyrir landnámstið.
Jóhannes Áskelsson hélt þvi
hins vegar fram, að um tvö
hraun væri að ræða, annað
eldra, og hefði bærinn Hrip þá
staöið i þvi, einhvers staðar, og
annað yngra, sem gæti hafa
runnið á landnámstið, eða
skömmu siðar. 1 siðasta hefti
Náttúrufræðingsins (47.ár., 3.-4.
hefti) kemst Haukur Jóhannes-
son, jarðfræðingur, að þeirri
niðurstöðu eftir að hafa kannað
Eldborgarhraun, að hraunið
hafi runniðfyrir 5000-9000 árum,
og er þá útilokað, að sögnin um
Sel-Þóri eigi við það,- ef menn
vilja á annað borð eigna henni
einhvern sannleikskjarna.
A hinn bóginn bendir Haukur
á, að Rauðhálsahraun, nokkru
ofar i Hnappadalnum, hafi
runnið um eða skömmu eftir
landnám.
TILBOÐ ARSINS
Eigum kost á að fá
í næsta mánuði nokkrar bifreiðar af tegrmdinni
DATSUN 260 CUSTOM DELUXE
ÁRGERÐ 1977
Þessi bíll er eitt mesta stolt japanska bilaflotans.— Hann er 4ra dyra 6 cil. beinskiptur eða
sjálfskiptur 145 ha. með power stýri og bremsum, rafmagnsvindum á öllum
hliðarrúðum, glussa opnun innan frá á skottloki og bensinloki, lúxus innrétting o. fl. o. fl.
Þrir litir: Grœnn, rauðbrúnn, dökkbrúnn. Allir sanseraðir.
VEBÐ CA. KB. 3.800,000
miðað við gengi í dag
(verð á árgerð 1978 ca. kr. 5.700.000).
Ha£ið strax samband við sölumenn okkar og
tryggið ykkur lúxusbil á ótrúlegu verði - þvi aðeins er um
nokkra bila
INGVAR HELGASON ^ ^
Vonarlandi v/Sogaveg —• Simar 8-45-10 & 8-45-11
SPARIÐ BENZÍN OG KAUPIÐ
\VJ
DATSUN