Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 13

Tíminn - 24.08.1978, Qupperneq 13
Fimmtudagur 24. ágúst 1978 13 Guðmundur H. Garðarsson um stjórnarmyndun: Ólaíur Jóhannesson forsætts- og dómsmálaráðherra — ber af mannavali þessara þrlggja flokka HEl— „Það er nú litið hægt að segja um hvernig mér litist á þessa stjórn ef af verður, fyrr en ég veit i hverju stjórnarsátt- málinn er fólginn. Ég legg ekki dóm á menn fyrr en ég sé hvað þeir ætla sér að gera og hvað siðan verður úr framkvæmd- um,” sagði Guðmundur H. Garðarsson i gær, er Timinn spurði hann álits á þeim tillög- um sem til umræðu hafa verið varðandi vinstri stjórn. Guðmundur var spurður hvað honum fyndist um það að Lúö- vik Jósepsson yrði forsætis- ráðherra. Hann svaraði að hann hefði alltaf gert ráð fyrir þvi að Guðmundur H. Garðarsson. ef þessir flokkar mynduðu stjórn, þá yrði Ólafur Jóhannes- son bæði forsætis- og dóms- málaráðherra. Þvi hann teldi að Ólafur ætti að fá það traust hvort sem væri i þessari rikis- stjórn eða annarri að vera áfram dómsmálaráðherra is- lensku þjóðarinnar. Guðmundur sagðist vitanlega best treysta sinum flokksmönnum til að skipa forsætisráðuneytið, en stæði hann frammi fyrir vinstri stjórn, þá væri sin skoðun að af þvi mannvali sem i þessum þrem flokkum væri hlyti Ólafur að koma helst til greina sem forsætisráðherra. • -4 Landsliðið: Guðmundur Sveinn Hermannsson, Sævar Þorbjörnsson, Sverrir Armannsson, fyrirliði, Sigurður Sverrisson, Skúli Einarsson. Landslið ungra manna til keppni i bridge í Skotlandi Evrópumót i bridge fyrir spil- ara 25 ára og yngri veröur haldið i Skotlandi dagana 26. ágúst til 2. september næstkomandi. Spilaö verður i háskólabænum Stirling sem er skammt frá Glasgow. Alls munu 19 þjóðir taka þátt i keppn- inni og verður lið frá íslandi þar á meðal. Evrópumót yngri spilara var fyrst haldið 1968 i Prag i Tékkóslóvakiu og var þá aldurs- takmarkið 30 ár. Mótið hefur siöan verið haldið annað hvert ár og hefur aldurstakmarkið verið lækkað og þátttökuþjóðum fjölgað jafnt og þétt sökum stór- aukinnar ungmennastarfsemi innan iþróttarinnar. ísland sendi fyrst lið til keppni á þessi mót 1974. Núverandi Evrópumeist- arar i yngri flokki eru Austur- rikismenn. Liðið sem Island sendir núer skipað eftirtöldum mönnum: Sverri Armannssyni fyrirliða, Sigurði Sverrissyni, Skúla Einarssyni, Guðmundi Sv. Her- mannssyni og Sævari Þorbjörns- syni. Spilararnir hafa náð ágætum árangri hér innanlands i vetur og urðu meðal annars i öðru sæti á íslandsmótinu i sveitakeppni. Einnig eru Sigurður og Skúli nú- verandi íslandsmeistarar i tvi- menning. Olympfuliðið I skák valið: Allir okkar sterkustu skákmenn munu tefla — kvennasveit send I fyrsta skipti MóL— Allir sterkustu skákmenn íslands munu skipa karlasveit þjóðarinnar á ólympiuskákmót- inu sem fer fram I Buenos Aires i Argentinu dagana 25. okt.-12. nóv. n.k. A fundi stjórnar Skáksambands Islands s.l. þriðjudagskvöld voru keppnissveitir Islands til þátttöku i mótinu valdar. Þær skipa eftir- taldir skákmenn: Karlasveit: 1. borð Friörik Ólafsson, stór- meistari 2. borö Guðmundur Sigurjónsson stórmeistari. 3. borðHelgi Ólafsson alþjóðlegur meistari. 4. borð Ingi R. Jóhannsson alþjóð- legur meistari. 5. borð Margeir Pétursson (2/3 alþjóðl. meistari) 6. borð Jón L. Arnason (1/2 al- þjóðl. meistari) Kvennasveit 1. borð Guðlaug Þorsteinsdóttir, Nor öurl anda m eista ri. 2. borð ólöf Þráinsdóttir, íslands- meistari. 3. borö Birna Norðdahl. 4. borð Svana Samúelsdóttir. í karlaflokki verða tefldar 14 umferðir eftir svissneska kerfinu en f kvennaflokki verður um riðlakeppni að ræða, með 7 um- ferða forkeppni og 7 umferða lokakeppni i hverjum flokki. Islendingar hafa að jafnaöi sent lið til keppni siðan 1952, en frá 1950 hefur slikt alheimsmót verið haldið annað hvert ár. Alls hafa íslendingar teflt á 18 Olympiu- mótum en hingað til aöeins i karlaflokki. Olympiumót i kvennaflokki hefur farið fram 7 sinnum og verður þetta fyrsta mótið sem is- lenskar skákkonur taka þátt i þvi. Hafa konurnar undir forystu Birnu Norðdahl sýnt lofsvert framtak með þvi að safna að miklu leyti sjálfar fyrir sinum ferðakostnaði en segja má að enn þá sé óbrúaöur kostnaður vegna Olympiumótsins um 3 milljónir. Mun stjórn Skáksambandsins þvi nú á næstunni beita sér fyrir f jár- öflun i þessu sambandi og heitir á fyrirtæki og almenning málinu til stuðnings. Giróreikningur SI er nr. 625000. Lendingaleyfl fengið í Baltimore Hinn 17. ágúst s.l. var formlega gengið frá breytingu á viðbæti við loftflutningasamninginn milli Is- lands og Bandarikjanna en Einar Agústsson utanrikisráðherra hóf viðræður um máliö I ferö sinni til Washington i júli mánuði 1977. Fóru fram erindaskipti milli sendiráðs íslands i Washington og utanrikisráðuneytis Bandarikj- anna þess efnis að flugvöllurinn i Baltimore bætist nú við þá lendingarstaði i Bandarikjunum sem Loftleiðum h/f er heimilað að fljúga til. Góð fjárjörð til sölu Jörðin Hólar i öxnadal er til sölu. Allar nánari upplýsingar veitir Einar Helgason, Hólum i öxnadal simi um Bægisá. Heilsuverndarstöð s m iVf'. \ >WJ i.-'t Síi Reykjavíkur auglýsir lausar til umsóknar eftirtaldar stöður: Hjúkrunarfræðinga við ungbarnaeftirlit, heilsugæslu i skólum og heimahjúkrun. Aðstoðarmanns við skólatannlækningar. Umsóknum sé skilað fyrir 4. september n.k. til hjúkrunarforstjóra sem jafnframt gefur nánari upplýsingar. Heilsuverndarstöð Reykjavikur ¥■ i I ■ttí i .r.'L y-' V>J V 4, 1» V, 'A Skrifstofumaður Óskast til starfa hjá rikisendurskoðun i tolladeild. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar rikisendurskoðuninni, Laugaveg 105. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið i Húsavik óskar að ráða hjúkrunarfræðinga nú þegar. Allar uppl. veita hjúkrunarforstjóri i sima 96-4-13-33 og framkvæmdastjóri i sima 96-4-14-33 Sjúkrahúsið i Húsavik s.f. Kennarar Vegna forfalla vantar enskukennara að gagnfræðaskóla Húsavikur. Húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar veita skólastjóri og formaður skólanefndar i simum (96)4-11- 66 Og (96 ) 4-14-40. Skólanefnd Húsavikur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.