Tíminn - 20.09.1978, Síða 2
2
Miövikudagur 20. september 1978
Camp David samkomulagið:
Einn stórkostleg-
asti sigurinn i
sögu Egyptalands
Skipta Norðmenn á olíu og
tæknikunnáttu Svía?
Forsætisráöherra Noregs,
Odvar Nordli kom til Stokkhólms
i gær i tveggja daga opinbera
heimsókn. Ilann mun ræöa viö
sænska ráöamcnn um olfusöiu
Norömanna til Svla og um
norsk-sænska samkomulagiö um
Volvo-verksmiöjurnar.
samningum.
Samkvæmt samningunum, sem
stjórnin i Osló og stjórn
Volvo-verksmiöjanna munu taka
til athugunar I haust, er gert ráö
fyrir, aö Svi’ar fái leyfi til oliubor-
unar á oliuborunarsvasöi Norö-
manna I Noröursjó.
Aralat um samkomulagið:
Sadat
Egypsk stjórnvöld lýstu
í gær yfir fullum stuön-
ingi við Anwar Sadat for-
seta, vegna Camp David
samkomulagsins og lýstu
þvi yf ir að samkomulagið
við israelska stjórnvöld
væri stórkostlegasti
sigurinn i seinni tíma
sögu Egyptalands.
Camp David samkomulagið
er rammi að allsherjarsam-
komulagi hinna striðandi aðila i
Mið-Austurlöndum, sögðu
egypsk stjórnvöld i gær.
Mamdouh Salem forsætis-
ráðherra sagði að útkoma við-
ræðna Sadats, Begins og
Carters bæri með sér að Arabar
og Gyöingargætu i framtiðinni
unniö saman og lifað saman.
Sviar eru mjög áfjáðir i að
kaupa oliu af Norðmönnum i
skiptum fyrir tækniaöstoö. 70% af
þeirri orku, sem Sviar nota, er
framleidd með innfluttri oliu.
Tilboö Svia til Norömanna i
sumar um aö kaupa 40% af
Volvo-verksmiðjunum, olli mik-
illi óánægju iNoregi. Verkamenn,
iðnaðarmenn og forystumenn
stjórnarandstöðuflokka sáu
nefnilega ekki fram á, að Norð-
menn högnuöust neitt á þeim
40 manns á sjúkrahús
vegna eitrunar
— a.m.k. tveir létust i Genoa á Italíu
létust i slysinu i Genóa
en margir lágu þungt
haldnir á sjúkrahúsi er
siðast fréttist.
Samsæri
gegn Aröbum
Arafat
Það eru ekki allir leið-
togar Araba jafn ánægðir
með samkomulagið í
Camp David.
Yassir Arafat leiðtogi PLO,
sagði: Arabar munu aldrei
sætta sig við þetta svokallaða
samkomulag, sem er ekkert
nema samsæri gegn Aröbum.
betta sagði Arafat er hann
hafði frétt, að israelskar
orrustuþotur hefðu flogið yfir
Libanon stuttu eftir að sam-
komulagið var undirritað i
Camp David.
Arafat sagði ennfremur:
Berið Carter þau skilaboö aö
hann muni fá að kenna á þessu.
Hagsmunir hans og Bandarikj-
anna á þessu svæði fá að kenna
á þessu. begar hann slær okkur,
sláum við frá okkur, ekki einu
sinni heldur tvisvar.
Meira en 40 manns
voru fluttir á sjúkrahús
vegna eitrunar, í
leðurverksmiðju í
Genóa i gær.
Eiturgufur fylltu
verksmiðjuna, er vöru-
bilstjóri affermdi mikið
magn af króm-súlfati i
tank, fullan af
natrium-súlfiði.
Þe g a r þe s s i r
tiltölulega meinlausa
efni blandast saman
myndast hættulegar
eiturgufur. Þær fylltu
verksmiðjuna á örfáum
sekúndum.
Litið magn af þessu
eiturgasi lyktar ekki
óliklegt skemmdu eggi,
en sé magnið mikið geta
menn misst meðvitund
áður en nokkur lykt
finnst.
Slys þetta er mjög likt
slysi sem varð i leður-
verksmiðju i Chicago i
febrúar. Þá létust 7
manns.
A.m.k. 2 tveir menn
Nú er mikið um aökomubáta á Höfn, eins og sést á meðfylgjandi mynd
sem Aöalsteinn Aöalsteinsson tók fyrir okkur.
Sildveiðarnar glæðast
— rúmar 1600 tunnur til Hafnar i gær
Kás — í gær komu á land
um 1600 tunnur af sild til
Hafnar i Hornafirði og
virðist sildveiðarnar nú
heldur vera farnar að
glæðast, að sögn
Aðalsteins Aðalsteins-
son fréttaritara Timans
á Höfn.
1100 tunnur fóru til
söltunarstöðvar kaupfélagsins,
en um 460 tunnur til söltunar-
stöövarinnar Stemmu. Nú eru um
20-30 bátar á reknetaveiöum frá
Höfn, og fjölgar þeim frá segi til
dags. 1 gær var Lingey meö
mesta afla, um 210 tunnur, en
aörir bátar voru meö á milli 1-200
tunnur, allt niöur í ekki neitt.
Nú eru rúmir tuttugu dagar
liönir siöan fyrsti báturinn fór á
reknetaveiöar á þessari vertiö,
þótt fariö heföi veriö á leita fyrr.
Nú er heimilaö aö veiöa 35 þús.
lestir á vertiöinni.
Að sögn Aöalsteins hefur veriö
indælt veður á Höfn
siðustu dagana glampandi sól og
logn. Sagöi hann að sjómennirnir
væru vongóðir með veiöarnar þær
væri greinilega aö glæðast og
finna þeir miklar lóðningar, og
lofar það góöu.
Klerkur brenndi sig til bana við morgunmessu
Austur-þýskur mótmælanda-
prestur brenndi sig til bana fyrir
framan altarið i kirkju sinni viö
morgunmessu i gær.
Hinn 41 árs Rolf Guenther hellti
yfir sig miklu magni af bensini
fyrir framan altarið i Kirkju hins
heilaga kross i Falkenstein.
Presturinn teygði aöra höndina
að kerti og varö á skömmum tima
alelda, 300 kirkjugéstum til mik-
illar hrellingar.Ekki tókstkirkju-
gestum aö slökkva i presti sinum
og brann hann til bana.
Kirkjuvöld sögðu, að búið hefði
veriöaö kjósa nýjan klerk i þessa
kirkjusókn, en þar haföi Rolf
Guenther þjónaö i meira en tiu ár.
Haföi þaöfengiö mjög á klerkinn,
er annar maöurvar valinn i emb-
ættiö.
Jafnteflisleg
biðstaða
Lesendur eru beðnir
velvirðingar á þvi að
stöðumyndir birtast
ekki með skák-
skýringunum í dag.
Stafar þetta af
óviðráðanlegum or-
sökum en stendur til
bóta.
Karpovhóf 24. einvigisskák-
ina meðkóngspeði og mun þaö
hafa komið fáum á óvart. Ollu
fleiri uröu hissa þegar Korts-
noj svaraði með e7-e5og beitti
siðan opna afbrigðinu af
spánska leiknum. Framan af
haföi Karpov heldur þægilegri
stöðu en þegar kom fram á 5
timann og timi Kortsnoj var
tekinn að skerðast fann
heimsmeistarinn ekkert væn-
legt áframhald. begar skákin
fór i bið var staöa Kortsnojs
eilitið betri en ekki virðast
vinningsmöguleikarnir mikl-
ir.
Hvitt: A. Karpov
Svart: V. Kortsnoj
Spánski leikurinn
1. e4-e5
2. Rf3-Rc6
3. Bb5-a6
4. Ba4-Rf6
5. 0-0-Rxe4
i
(Opna afbrigðiö sem Korts-
noj beitti mikið i fyrri hluta
einvigisins en hefur látiö
liggja siöan i 14. skákinni).
6. d4-b5
7. Bb3-d5
8. dxe5-Be6
9. c3-Be7
10. Bc2-Rc5
11. h3
(Karpov hefur sennilega
óttast einhverjar endurbætur
af hendi Kortsnojs og vill þvi
verða fyrri til að bregða út af
troönum slóðum.)
11. - 0-0
12. Hel-Dd7
13. Rd4-Rxd4
14. cxd4-Rb7
(begar hér var komið skák-
inni hafði hvor keppandi notað
um það bil hálfa klukkustund
af umhugsunartima sinum).
15. Rd2-c5
(bótt undarlegt kunni að
virðast notaði Kortsnoj 25
minútum á þennan eölilega
leik).
16. dxc5-Rxc5
17. Rf3-Bf5
18. Be3
(Ekki 18. Bxf5-Dxf5 19.
Dxd5-Hfd8 20. Bc6-Hdc8 og
hvitur verður aö þráleika þar
sem 21. Db6 strandar á 21. -
Bd8!)
18. -Hac8
19. Hacl-Bxc2
20. Hxc2-Re6
21. Hd2-Hfd8
22. Db3
(Hvi'tur beinir öllum spjót-
um að veikleikanum á d5).
22. - Hc4
23. Hedl-Db7
24. a3-g6
(Kortsnoj hefur tekist að
þrælvalda peðiö á d5, en nú
átti hann aöeins 35 minútur
eftir en Karpov 70).
25. Da2-a5
26. b3-Hc3
27. a4-bxa4
28. bxa4-Hc4
(28.- Ha3 litur vel út en eftir
29. Dc2 stæði hrókurinn illa á
a3)
29. Hd3-Kg7
30. Dd2-Hxa4
31. Bh6 + -Kg8
32. Hxd5-Hxd5
33. Dxd5-Dxd5
34. Hxd5-Bf8
(Endatafliö er sennilega
jafntefli en fripeöiö gefur
svörtum eilitla von um
meira).
35. Bxf8-Kxf8
36. g3-Ke7
37. Hb5-Rc7
38. Hc5-Re6
39. Hb5-Rd8
40. Kg2-h6
41. Rd2-Hal og hér fór skákin
i bið. Karpov lék biðleik.
Skákin veröur tefld áfram i
dag.
Jón b. bór