Tíminn - 30.09.1978, Qupperneq 11

Tíminn - 30.09.1978, Qupperneq 11
timvm Laugardagur 30. september 1978 Margir hinna útvöldu fá V aldrei Nóbels- verðlaun... \W ^ v‘>,2 • Nú líður að því að Nóbelsverðlaunum í ýmsum greinum verði úthlutað. I Stokkhólmi koma saman þeir sem ákveða hverjir skuli hljóta lárviðarkransa í þetta sinn fyrir afrek i læknisfræði, eðlisfræði, efna- f ræði.hagfræði og bókmenntum. I Osló verður ákveðið hverjir hafi unnið fyrir verðlaununum fyrir að stuðla að friði. ræða aö þeir, sem hljóta þessi eftirsóttu verðlaun hafi unnið merk og þörf störf. Hins vegar eru Nóbelsverðlaunin einungis veitt fyrir afrek á þröngu sviði visinda. Þau eru veitt fyrir læknisfræði (lífeölisfræði), efna- fræði, eðlisfræði, bókmenntir og nú i nokkur ár fyrir hagfræöi. Friðarverölaunin eru sér á parti. Stærðfræðingar, stjörnu- fræðingar, jaröfræðingar, geimvísindamenn og fjölmargir Úthlutun Nóbelsverðlaunanna er ár hvert mikill viöburður, enda verið að benda á þá sem fram úr skara. Þeir hljóta með réttu eöa röngu mikla aug- lýsingu og verk þeirra eru a.m.k. i fyrstu metin meira en verk annarra. En fá allir þeir verðugustu Nóbelsverðlaunin? Og er vist aö allir, sem þau hljóta séu óum- deilanlega fremstir á sinu sviði? Varla þarf um það að X aðrir geta ekki fengiö Nóbels- verðlaun nema unnt sé aö tosa þeim einhvern veginn i einhvern hinna ákveðnu dilka. Sem dæmi um það má nefna að fyrir fimm árum fengu þrir menn Nóbels- verölaunini læknisfræðifyrir at- huganir sinar á atferli dýra. All- ir eru þeir frábærir visinda- menn sem opnað hafa ný svið i náttúrufræöi og mannfræði, en ákvæðin um úthlutunina útiloka reyndar flesta náttúrufræðinga, nema verk þeirra séu talin snerta læknisfræöina,eins og er um rannsóknir Lorens, von Frisch og Tinbergen, sem verö- launaöir voru fyrir atferlisrann- sóknir sinar. Vikuritið Time skýrir frá þvi ^ \ Harriet Zuckerman að bandariskur félagsfræöingur Harriet Zuckerman að nafni hafi athugað hverjir hafi ekki fengið Nóbelsverðlaunin á þess- ari öld. Niðurstööur hennar eru i októberhefti American Scientist. Þar kemur margt fróðlegt fram. Arið 1905 var fellt aö veitarússneska efnafræðingn um Mendeleev verðlaunin.enda þótt hann hafi flestum lagt meira að mörkum til efna- fræðinnar með þvi að raða frumefnunum. En helsta verk hans birtist 1869, og taldi út- hlutunarnefndin að i reglunum væri talað um „nýlegar uppgötvanir” og þvi kæmi þessi snjalli Rússi ekki til greina. 1944 sýndi bandariski visinda- maðurinn O.T. Avery fram á að DNA bæri erfðagenin milli kyn- slóða. (Jthlutunarnefndin dró niðurstöður hans i efa og hann fékk ekki verðlaunin. Siðar var viðurkennt að þetta hefðu verið mikil mistök. Zuckerman telur að einungis fáir af þeim,sem verðlaun eigi skilið fái þau. Ein af ástæðunum er hinn sivaxandi fjöldi fyrsta flokks visinda- manna og bætt aðstaða til rann- sókna viða um heim. Þá hefur þess gætt.að verð- launin eru veitt fyrir hagnýtar rannsóknir fremur en nýstár- legar kenningar. Vafasamt er hvort Darwin hefði þótt hæfur til verölauna fyrir rit sitt um Upp- runa tegundanna og þegar Al- bert Einstein fékk verðlaunin 1921 var það fyrir tæknilegan árangur verka hans á sviði raf- tæknifræði t.d. tengd sjónvarps- myndavélum og hljóðupptöku- tækja. En það var eins og Lamarck sagði: „Vandinn er ekki að gera uppgötvanir, heldur að fá menn til að skilja að merkileg upp- götvun hafi verið gerð.” H.ól berklavamadagurinn, sunnudag toklóber Merkja- og blaðasala til ágóða fyrir starf sem styður sjúka til sjálfs bjargar, starfsemina að Reykjalundi og Múlalundi. Sölubörn óskast kl. 10 árdegis, sunnudag. Góð sölulaun. Foreldrar hvetjið börnin til að leggja góðu málefni lið. Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði. Vinningur er litsjónvarpstæki. Merkin kosta 200 kr. og blaðið Reykjalundur 300 kr. Afgreiðslustaðir í Reykjavík og nágrenni: S.Í.B.S., Suðurgötu 10, s. 22150 Mýrarhúsaskóli, Seltjarnarnesi Melaskóli Grettisgata 26, sími 13665 Hlíðaskóli Hrísateigur 43, sími 32777 Austurbrún 25, sími 32570 Gnoðarvogur 78, sími 32015 Sólheimar 32, sími 34620 Álftamýrarskóli Hvassaleitisskóli Breiðagerðisskóli Langagerði 94, sími 32568 Skriðustekkur 11, sími 74384 Árbæjarskóli Fellaskóli Kópavogur: Langabrekka 10, sími 41034 Hrauntunga 11, sími 40958 Vallargerði 29, sími 41095 Garðabær: Flataskóli Hafnarfjörður: Lækjarkinn 14 Reykjavíkurvegur 34 Þúfubarð 11 I.augardagur 30. september 1978 11 Kristínn Ágúst Friðfinnsson skrifar frá London: Eitt af þvi, sem sett hefur s vip sinn á sögu Bretlandseyja siö- ustu 2000 árin, er innflutningur fólks frá hinum ýmsu svæðum heimsins. Of langt mál væri að rekja þá sögu hér, en minna má á dæmi úr sögu þessarar aldar, innflutning Gyðinga og Pólverja á timum Hitlers og eftir siðari heimsstyrjöld. Það sem £ó er öllu markverð- ara i samtiðarsögunni er stöö- ugur innflutningur ibúa landa breska heimsveldisins. Astæð- urnar fyrir þeim innflutningi eru m.a. hærri lifsgæöakröfur, betri laun en viðkomandi höföu átt að venjast heima fyrir, svo eitthvaðsé nefnt. A hinn bóginn hafa þeir einnig tekið við störf- um, sem Bretar hafa ekki verið svo spenntir fyrir, m.a. vegna launa. Það vandamál, sem blasir við i dag, er að innflutningur ibúa landa breska heimsveldisins hefur vaxið mjög siðustu fjögur árin, eða frá 1974. A sama tima hefur atvinnulausu fólki fjölgað úr 599.200 i 1.609.000, fjölda fyrirtækja hefur verið lokað, gildi pundsins fallið um 45% og svo mætti lengi telja. Þaö er þvi ekki að undra, þó að margir spyrji sjálfa sig hvort eðlilegt geti talist að heimilaður sé svo aukinn innflutningur fólks á sama tima og lifskjörum hefur hrakaö, svó og atvinnuleysi aukist gifurlega. Til eru raunar þeir, sem vilja kenna svo aukn- um innflutningi fólks um öll vandamál Bretaveldis. Rök þeir ra ná þó vart langt þvi stað- reyndin er sú, að fleiri hafa yfir- gefið landið en nemur fjölda innflytjenda. En hver er þá fjöldi innflytj- enda? Um heildarfjölda er erfitt að ákvarða vegna þess m.a. að ekki eru allir á eitt sáttir um hvar setja skuli mörkin. Um fjölda innflytjenda siðustu ára leikur þó enginn vafi. Arið 1961 var fjöldi innflytjenda um 136.000. Arið 1962 voru sett lög til að stemma stigu við innflutningi fólks. Lög þessi gerðu ráð fýrir þvi að leyfa innflutning fólks i landið i samræmi við fjölda lausra starfa með nokkrum undantekningum þó. Arið 1971 voru sett enn ný lög sem gengu nokkuð lengra en lögin frá ’62, og árið 1973 var innflutningur kominn niður i 32.000 i staö 136.000 áriö 1961. Akvörðun tek- in af rikisstjórninni 1974 olli nýrri öldu innflytjenda. Meðal- fjöldi innflytjenda árin 1974-’77 hefur þvi verið 49.000 á ári á móti 32.000 árið 1973. Vandamál innflytjenda Vandamál innflytjenda eru margs konar. Atvinnumögu- leikar eru litlir og stéttaskipting fyrir hendi, sem skipar innflytj- endum i flestum tilvikum neðarlega i þeim tröppugangi. Barnafjöldi innflytjendafjöl- skyldna er yfirleitt meiri en gengur og gerist i Bretlandi, auk þess sem menningarbak- grunnur og siðir eru aðrir. Skólaganga barna innflytjenda reynist oft þrándur i götu, og svo mætti lengir telja. Ég átti tal við barnakennara, Nigel Paine M.A., um vandamál inn- flytjendabarna i skólum. Paine hafði m.a. þetta að segja: Vandamál innflytjendabarna eru margs konar. Þó eru tungu- málavandamál vitaskuld mest áberandi. Ég kenndi bekk þar sem 80% barnanna voru inn- flytjendur. Börnin voru komin viðs vegar að og gátu vart gert sig skiljanleg hvert viö annað i kefrislustofunni, hvaðþá annars staðar. Oft er virðing kennara ekki nægilega mikil fyrir inn- flytjendabörnum. Þeim, eins og raunar fleirum Vandamál innfiytjendabarna eru margs konar. Þó eru tungumálavandamál vitaskuld mest áberandi. Ég kenndi bekk þar sem 80% barnanna voru innflytjendur. Börnin vorukom- in viðs vegar að og gátu vart gert sig skiljanleg hvert viö Kristinn Agúst annað i kennslustofunni, hvaö þá annars staöar. Oft er virðing kennara ekki nægilega mikil fyrir innflytjendabörnum. Þeim, eins ograunar fleirum, er gjarnt að skipa þessum börnum ásérstakan bás. Þessa tilhneig- ingu þekkjum viö frá fleiri svið- um, konur i einum bás, gamaU fólk i öðrum o.s.frv. En hvað tekur viö þegar þessi börn hverfa úr skóla? Paine haföi m.a. þetta að segja: Oftá tiðum geta þau ekki séð hvaö þjóöfélagiö vill fyrir þau gera. Þá er þeim og oft vandi á hönd- um að finna sér störf. Þegar þannig er ástatt verða þau oft andfélagsleg. Varðandi önnur vandamál sem snerta innflytjendur hafði Paine þetta að segja: Innflytj- endafjölskyldureru oftast barn- fleiri en fjölskyldur innfæddra. Þá eru stórir hlutar sumra hverfa i London byggðir inn- flytjendum svo til eingöngu. Ekki má heldur gleyma þvi aö margir biða eftir þvi aö flytjast inn i iandið. Ef hjón fá leyfi til að flytjast inn i landiö, fá einnig foreldrar þeirra sjálfkrafa leyfi til að flytjast meö þeim. Þetta geturþýttað t.d. hjónmeð fimm börn geta fjölgaö ibúum Bretlands um ellefu á einum degi. Menningar- og trúarbak- grunnur þessa fólks er gjörólik- ur. Allt þetta veldur þvi að sam- lögun er haldið við af báðum aö- ilum, innflytjendum og þeim sem fyrir eru ilandinu. Einu má þó ekki gleyma, þvi að jafnvel þó að tölur sýni hærri meðal- fjölda innflytjenda siðustu fjög- ur ár en árin á undan, fer nú innflytjenda siðustu fjögur ár en árin á undan, fer nú innflytjend- um aftur fækkandi. Svo mörg voru orö barna- kennarans. En senn dregur til kosninga i Bretlandi og um vandamál innflytjenda verður vafalaust deilt. Skoöanamunur tveggja stærstu stjórnmála- flokkanna, Verkamannaflokks- Framhald á bls. 19. Emmess ístertur Nú getur þú valið um 6 tegundir: EMMESS ÍSTEKTUR, 6,9 og 12 manna. EMMESS KAFFITERrUR með kmnsaköku- botnum, 6 og 12 manna. EMMESS RÚUJJTEKTU, 6 manna. ®Emm m ess LbJ 3.52

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.