Tíminn - 18.10.1978, Síða 5
Miðvikudagur 18. oktdber 1978
MHilUHHUHií
, * a « tt''ttf ií tt tl itf .tf tl "sl :t|
'r. \ ^''''—'vá'íjSriíMitm\Wmy
['»!• •■iliB "!l !iíi!l IBTST
,m>m w»m«i »■ ■■
friciiií"r
•m »
Flataskóli 20 ára
Flataskdli i Garöabæ (áöur
Barnaskóli Garðahrepps) er 20
ára i dag, en kennsla i honum
hófst haustið 1958. Börn I Garöa-
hreppi sóttu áður skóla til
Hafnarfjarðar, Reykjavfkur og
víðar, eftir að gamli skólinn á
Garðaholti (hluti af núverandi
samkomuhúsi) var lagöur niður.
Byggingaframkvæmdir við
hinn nýja skóla I Silfurtiini hófust
17. ágúst 1956,Umsjón með bygg-
ingu skólans hafði Guðmann
Magntisson hreppstjóri, Dysjum.
Nemendaf jöldi i skólanum
fyrsta árið var 137. Þá voru
hreppsbtiar tæp fjórtán hundruð.
Siðan hefur fólki i Garöabæ fjölg-
að mikið og nemendum i barna-
skólanum aö sama skapi. Ibtiar
eru nti á 5. þtisund og nemendur
737. Fjölmennasti árgangurinn
er 12 ára og eru nti i 6. bekk 144
nemendur f 6 bekkjadeildum. Ár-
ið 1977 var stofnaö titibti i
safnaðarheimili kirkjunnar.
Sækja, þann skóla (Hofstaða-
skóla) börná aldrinum 6-9 ára tir
hinum hraövaxandi nýju byggöa-
hverfum, austan Vifilsstaöavegar
og noröan Reykjanesbrautar
(Silfurttini).
Fyrsta árið störfuðu aðeins
fjórir fastir kennarar, en nti
starfa alls 65 manns við skólana
báða.
Skólinn hefur yfir að ráða full-
nægjandi htisnæði miðað við nti-
verandi nemendaf jölda og er all-
vel btiinn tækjum og húsbúnaöi.
Kenndar eru allar námsgreinar
nýju gunnnskólalaganna. I slrtl-
anum er skólasafn með um 18
þtis. bindi bóka. Nemendur njóta
hjálparkennslu og sálfræöiþjón-
ustu. Við skólann starfa tveir
barnakórar.
Skólastjóri frá upphafi hefur
veriöVilbergur Jtiliussonog yfir-
kennarar eru: Hallgrimur
Sæmundsson og Guðrún Guðjóns-
dóttir.
Aukaálagningarseðlar á leiðinni:
Skattskrár lagðar
fram á föstudag
Kás — I dag fá hinir fyrstu
senda til sin álagningarseöla
vegna þeirrar aukaálagn-
ingar, sem kveöiö er á um i
bráðarbirgðalögum rikis-
stjórnarinnar, frá 8. septem-
ber sl. til að standa undir
kostnaði af niöurgreiöslu
vöruverös.
A mánudag voru sendir I
póst allir álagningarseðlar til
skattgreiðenda, sem ekkierui
Reykjavikur og Reykjanes-
skattumdæmum. I gær voru
sendir út álagningarseðlar i
Reykjavik, og I dag verða vel-
flestir álagningarseðlar send-
ir tit I Reykjanesumdæmi.
Þvi má fastiega búast viö,
aðlangflestir veröi búnirað fá
tilkynningu um sina aukaá-
lagningu á föstudag, en þá
verða lagðar fram skattskrár,
vegna aukaálagningarinnar, i
öllum skattumdæmum lands-
ins.
Vilj a friða Breiðaf j örð
Melrakkaey, Hrisey og Flatey að hluta þegar veriö friðlýstar og svæðið allt sett á
náttúruminjaskrá og norræna votlendisskrá
SJ — Náttúruverndarsamtök
Vesturlands og vestfirsku
náttúruverndarsamtökinefndu til
almenns fundar f Dalabúð Búðar-
dal sl. laugardag um nátttiru-
vernd og friðun Breiðafjarðar og
var þar samþykkt tillaga um
nauðsyn þess að kannaðir verði
möguleikar á friðlýsingu Breiða-
fjarðarsvæðisins með sérstakri
löggjöf eða með öðrum hætti. —
Gróöur fugla- og sjávarlif er fjöl-
breytt og auðugt við Breiöafjörö
Skýrsla um starf-
semi Viðlagasjóðs
— heildarveltan rúmir sjö milljarðar
Kás — Nýlega hefur verið gefin
tit skýrsla um starfsemi Við-
iagasjóðs sem framkvæmda-
stjóri sjóðsins, Bragi Björnsson
hefur tekið saman. Að
uppsetningu og formi er skýrsl-
an skýringar við þá reikninga
sem reikningslok sjóðsins eru
miðuð við. Tekur skýrslan bæði
til Vestmannaeyjagossins svo
og til snjóflóösins i Neskaup-
stað.
Heildarniðurstöður rekstrar
reiknings eru rúmir sjö mill-
jarðar. Þar af renna aðeins um
sjötiu milljónir til Noröfjaröar-
deildarinnar. Helstu tekjur
sjóðsins voru af söluskatti eöa
tæpur þrir og hálfur milljaröur.
Framlög frá Noröurlöndum
námu um einum og hálfum mill-
jarði.
1 bætur þ.e. tekjubætur,
eignabætur o.fl., greiddi sjóöur-
inn rúman þrjá og hálfan mili-
jarö. Vaxtagjöld sjóðsins urðu
rúmar átta hundruð milijónir.
Tekjur umfram gjöld uröu um
átta hundruðog sextán milljón-
og þar er mikiö af land- og titsel,
að þvf er segir i greinargerö frá
Náttúruverndarráöi um þetta
mál. t Breiöafjaröareyjum hefur
um aldir tfðkast sérstæður
hlunnindabúskapur og þar þróast
sérstakir siðir og venjur, sem
hafa mikiö menningarsögulegt
gildi. Nokkur ásókn
kaupstaðarbtia hefur veriö i að
kaupa jaröir eða jarðarparta 1
eyjunum, þótt flestir jaröeig-
endurhafi boriö gæfu til að stand-
ast þá ásókn. Þetta fyrirbrigöi er
þekkt tir „skerjagöröum”
Skandinaviu, sem eru samsvar-
andi Breiöáfjaröareyjum. Viöast
hefur þar veriö gripiö til sér-
stakra verndarráöstafana gagn-
vart þvi, enda eru þessir eyja-
klasar taldir hafa mikið nátttiru-
fræðilegt og menningarsögulegt
gildi.
Viröist því einsætt, segja
nátttiruverndarmenn að stefnt
verði aö þvi á næstu árum, að sett
verði sérstök lög til verndar
Breiðafjaröareyjum, svipað og
áður hefur veriö gert i Mývatns-
sveit og hefur þar reynst hin þarf-
asta ráðstöfun án þess þó aö
hindra á nokkurn hátt hina hefð-
bundnu atvinnuvegi og þróun
nýrra atvinnugreina.
Þess má geta að Breiðafjörður
hefur veriö settur á nátttiru-
minjaskrá og norræna votlendis-
skrá þar sem hann er talinn eitt af
mikilvægustu strandsvæðum
landsins sem einnig hefur al-
þjóðlega þýðingu fyrir viðhald
Flatey
fuglastofna. Þá hafa tvær eyjar
verið friðlýstar sérstaklega og
hluti af þeirri þriðju. (Melrakka-
ey, Hrisey, Flatey aö hluta).
Fundinn i Dalabúð setti Lára
G. Oddsdóttir formaöur Vest-
firskra nátttiruverndarsamtaka
en þvi næst ávarpaði Eyþór
Einarsson formaður Náttúru-
verndarráðs fundarmenn.
Á fundinum voru flutt fjögur er-
indi:
Arnþór Garðarsson prófessor
ræddi um lifriki Breiðafjarðar og
nefndi ýmsar tölur um stofn-
stærðirhinna ýmsu dýrategunda
sem eiga heimkynni sin eöa við-
komustaði viö Breiðafjörð svo og
fjölbreytni i fjörugróöri og dýra-
lifi sem þar er að finna. Næstur
talaði Eysteinn Gíslason bóndi i
Skáleyjum um áhrif búsetu á
vistkerfið og nefndi ýmis atriði
varðandi þá hættu sem af mann-
inum gæti stafað. Þá tók til máls
Guðmundur P. Ólafsson lif-
fræðingur tir Flatey og ræddi um
manninn og umhverfið. Guð-
mundur sýndi myndiraf mannlif-
inu i Flatey og kvikmynd um
selaveiöar. Siðastur framsögu-
manna var Arni Reynisson fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráös en hann talaöi um friöunar-
löggjöf og framkvæmd hennar,
þar á meöal lög þau sem nú eru i
gildi um verndun Mývatns og
Laxár.
Að loknum framsöguerindum
hófust almennar umræður og
tóku fjölmargir til máls. Þaö kom
fram hjá ræðumönnum fundarins
að besta verndun svæðisins væri
Framhald á bls. 8
Nú getur ekkert nema kraítaverk
bjargaö Kortsnoj
Þegar 32. einvigisskákin fór I bið
eftir 42 leiki siðdegis I gær var
ekki annað sýnna en aösigurinn
blasti við heimsmeistaranum.
Hann hefur tvö samstæð fripeðá
drottningarvæng, auk þess sem
kóngsstaða áskorandans er við-
sjárverö.
Skákin hófst á svokallaðri Pirc
vörn, sem snemma tefldist yfir i
Benóní byrjun. Karpov hafði
frumkvæðið allan timann og þeg-
ar Kortsnoj lenti i alvarlegu
timahraki náði heimsmeistarinn
afgerandi yfirburðum.
32. einvigisskákin
Hvftt: A. Karpov
Svart: V. Kortsnoj
Pirc vörn
1. e4-d6
(Það er næsta undarlegt að
Kortsnoj skuli velja þessa byrjun
ú þessari mikilvægu skifk. Hún
gefur hvitum yfirleitt þægilegt
frumkvæði og i 18. skákinni, þar
sem Kortsnoj beitti þessari vörn
reið hann ekki feitum hesti frá
byrjuninni, þótt hann slyppi með
skrekkinn að lokum).
2. d4-Rf6
3. Rc3-g6
4. Rf3-Bg7
5. Be2-0-0
6. 0-0-C5
(Óvenjulegur leikur i þessari
stöðu. I 18. skákinni lék Kortsnoj
hér 6. -Bg4, sem er vafalitið
betra).
7. d5! -
(Beinir skákinni inn I hagstætt af-
brigði af Benóni byrjun).
7. - Ra6
8. Bf4-Rc7
9. a4-b6
10. Hel-Bb7
(Til greina kom einnig 10.-Ba6).
11. Bc4-Rh5
12. Bg5-Rf6
(Skrýtið!)
13. Dd3-a6
14. Hadl-Hb8
(Linurnar hafa skýrst. Hvltur
teflir til sóknar á miðboröi og
kóngsvæng, en svartur leitar
mótspils á drottningarvæng).
15. h3-Rd7
16. De3-Ba8
17. Bh6
(Karpov hefur eðlilega meiri á-
huga á að losna við svarta kóngs-
biskupinn en að hindra b5).
17. -b5
18. Bxg7-Kxg7
19. Bf 1-Rf6
20. axb5-axb5
21. Re2-Bb7
22. Rg3-Ha8
23. C3-Ha4
24. Bd3-Da8
(Þegar hér var komið sögu var
timi Kortsnojs oröinn naumur.
Hann átti aðeins 18 mintitur eftir
á 16 leiki, en Karpov átti 61
minútu eftir).
25. e5!
(Nti opnast staöan hvltum i hag).
25. -- dxe5
26. Dxe5-Rcxd5
27. Bxb5-Ha7
28. Rh4-Bc8
29. Bd2
(Hvitur gat auðvitað unniö peö
með 29. c4, en Karpov liggur ekk-
ert á, svartur getur hvort eð er
ekki valdað peðiö á c5).
29. - Be6
30. c4-Rb4
31. Dxc5-Db8
32. Bfl-Hc8
33. Dg5-Kh8
34. Hd2-Rc6
(Nú átti Kortsnoj aðeins tvær
mintitureftir og tefldi þvi hreina
hraðskák).
35. Dh6-Hg8
36. Rf3-Df8
37. De3-Kg7
38. Rg5-Bd7
39. b4-Da8
40. b5-Ra5
41. b6
(Biöstaöan. Kortsnoj lék hér biö-
leik, en þaö viröist nokkuö sama
hverju hann leikur, staðan er
gjörtöpuð. Flestir munu þeirrar
skoðunar, að Kortsnoj gefist upp
án þess að tefla, en hver veit,
Karpov hefúr verið ansi drjtigur
viö að glutra vinningsstöðunum I
þessu einvígi. Þessari stöðu er þó
varla hægt að leika niður.
Jón Þ. Þór.