Tíminn - 27.05.1979, Side 12
12
Sunnudagur 27. mai 1979
FJÖLBRAUTASKÓLINN, BREIÐHOLTI
INNRITUN
Innritun i Fjölbrautaskólann i Breiðholti
fer að þessu sinni fram á tveim stöðum:
Þriðjudaginn 5. júni og miðvikudaginn 6.
júni fer innritun fram i Miðbæjarskólan-
um i Reykjavik ásamt innritun annarra
framhaldsskóla höfuðborgarinnar, hvorn
dag kl. 9.00-18.00. Fimmtudaginn 7. júni og
föstudaginn 8. júni fer innritun fram I
húsakynnum skólans við Austurberg kl.
9.00-18.00.
Nýnemar geta valið milli sjö mismunandi
námssviða og nokkurra námsbrauta á
hverju sviði eins og hér segir:
1. Almennt bóknámssvið (menntaskóla-
svið), þrjár huggreinabrautir (félags-
fræðibraut, tónlistarbraut, tungumála-
braut) og þrjár raungreinabrautir (eðlis-
fræðibraut, náttúrufræðibraut og tækni-
braut). Námið stefnir beint að stúdents-
prófi.
2. Heilbrigðissvið, tveggja ára heilsu-
gæslubraut til sjúkraliðanáms og fram-
haldsbraut að stúdentsprófi.
3. Hússtjórnarsvið, matvælatæknibraut
er skiptist i eins árs grunnnám til undir-
búnings Hótel- og veitingaskóla íslands og
tveggja ára grunnnám til undirbúnings
störfum við mötuneyti sjúkrastofnana og
stórra mötuneyta. Einnig framhaldsbraut
að stúdentsprófi.
4. Listasvið, tveggja ára grunnnám
myndlistar og handiða og framhaldsbraut
að stúdentsprófi með sérhæfingu i auglýs-
ingateiknun.
5. Tæknisvið (iðnfræðslusvið), eins árs
grunnnámsbrautir (verknámsskólar) i
málmiðnum, rafiðnum og tréiðnum, siðan
tveggja ára framhaldsbrautir i fjórum
iðngreinum, húsasmiði, rafvirkjun, renni-
smiði og vélvirkjun er tryggir sveinspróf
eftir verkþjálfun úti i atvinnulifinu.
Námssviðið veitir einnig framhald að
stúdentsprófi.
6. Uppeldissvið, þrjár brautir — tvær
tveggja ára grunnnámsbrautir, fóstur og
þroskaþjálfabraut og félags og iþrótta-
braut og fjögurra ára menntabraut að
stúdentsprófi.
Af grunnnámsbrautunum er nemendum
einnig tryggð framhaldsmenntun að
stúdentsprófi.
7. Viðskiptasvið, þrjár tveggja ára braut-
ir að almennu verslunarprófi, samskipta-
og málabraut, skrifstofu- og stjórnunar-
braut, verslunar- og sölufræðabraut. Þá
eru á viðskiptasviði þrjár þriggja ára
brautir að sérhæfðu verslunarprófi, tölvu-
fræðabraut, stjórnunar- og skipulags-
braut, markaðs- og sölufræðabraut. Þá
verður nú i fyrsta sinn boðin fram fjög-
urra ára læknaritarabraut er lýkur með
stúdentsprófi ásamt sérhæfingu á við-
skipta- og heilbrigðissviðum skólans. Aðr-
ar brautir viðskiptasviðs stefna einnig að
stúdentsprófi.
Skrifstofa Fjölbrautaskólans i Breiðholti
að Austurbergi veitir allar nánari upplýs-
ingar og geta þeir sem þess óska fengið
þar kynningarrit um skólann. Afgreiðslu-
timi skrifstofunnar er frá kl. 9.00-12.00 og
13.00-15.00 frá mánudegi til föstudags.
Simar skólans eru 75600 — 75740 — 75761.
Skólameistari.
Ég þakka börnum mínum, tengdabörnum, ættingjum og
vinum fyrir heimsóknir, gjafir og skeyti á 80 ára afmæli
minu.
Elias Bjarnason,
Drangsnesi.
Ný bók um seinni
heimstyrlöldina
Heiferman, R. og Þorsteinn
Thorarensen: Seinni heim-
styrjöldin Fjölvi, Rvik. 1979.
256 bls.
Þaö má teljast til tiöinda, aö
út er komin ný og vönduö saga
seinni heimstyrjaldarinnar.
Skömmu eftir lok styrjaldarinn-
ar komu út hér á landi tvö verk
um sögu hennar. Annaö þeirra
var eftir Ólaf Hansson prófess-
or, hitteftirívar Guömundsson.
Siöan hefur engin heildarsaga
styrjaldarinnar veriö gefin út á
islensku og má öllum ljóst vera
að þörfin var oröin brýn. Rit
ólafe Hanssonar hefur aö vísu
staöiö vel fyrir sinu, en þaö var
samiö um þaö bil erstyrjöldinni
lauk og byggöist þvi nær ein-
göngu á yfirlitsgreinum og
fréttum, skjallegar heimildir
voru höfundi ekki tiltækar.
Nýjar rannsóknir.
Allt frá styrjaldarlokum heiúr
saga striösins veriö I stööugri
rannsókn. Nýjar heimildir hafa
einlægt veriö aö koma I ljós og
viðhorf fræöimanna til ein-
stakra þátta þessa mikla hildar-
leiks hafa tekiö sífelldum breyt-
ingum.
Og enn mun nýrra rannsókna
aö vænta, enn eru skjöl aö koma
fram i dagsljósiö, sem vafalitið
eiga eftir að breyta viðhorfum
manna.
Viðamikið yfirlitsverk.
Hin nýja bók Fjölvaútgáfunn-
ar er mikiðverk, 256 bls. i stóru
broti og mjög myndskreytt.
Aðalhöfundur er bandariski
prófessorinn R. Heiferman, en
ritstjóri verksins var L.S.
Mayer, prófessor I sögu við
Marylandháskóla. Þorsteinn
Thorarensen hefur þýtt ritið,
skrifað inngang og kafla um sjó
— og lofthernað.
Einstakir þættir.
Hyggjum nú um stund að ein-
stökum þáttum verksins. Eins
og áöur sagöi ritar Þorsteinn
Thorarensen inngangskafla.
Hann er skýr og skilmerkilegur
og allgóð grein gerö fyrir póli-
tlskri stefnumörkun Hitlers,
hvað hann hafði i hyggju,
hvernig hann hugöist skipta
heiminum og hvert hlutskipti
hann ætlaði einstökum þjóöum.
Gyöinga vildi Hitler t.d. flytja
til Madagaskar, og Noröurlönd-
in áttu að verða eitt allsherjar
kynbótabú hins ariska kyn-
stofns! 1 kaflanum, sem mér
viröist byggjast aö allmiklu
leyti á bókinni Mein Kampf, er
einnig fjallaö nokkuð um
afskipti Hitlers af þýsku her-
stjórninni og samskipti hans viö
herforingjana.
Næsti kafli, og sá fyrsti sem
bandariski prófesorinn skrifar,
er um millistriösárin og valda-
töku nasista i Þýskalandi.
Margt kemur þar athyglisvert
fram, en nokkrum veigamík'i-
um atriðum eru hvergi nærri
nógu góö skil gerð.
Þar er þá fyrst að nefna, aö
mérvirðist höfundur ekki leggja
nógu mikla áherslu á áhrif
heimskreppunnar á þróun mála
á 4. áratugnum. Efnahagsöng-
þveitið I Þýskalandi er frægt og
vafasaml veröur aö telja hvort
nasistar hefðu nokkurn tima
orðið annað en áhrifalítill smá-
flokkur hefði þess ekki notuð
viö.
Annað atriöi er, að vegna
kreppunnar vorubæði Bretar og
Frakkar vanbúnir að verjast
yfirgangi Hitlers. Innanlands á-
standið i Frakklandi var t.a.m.
þannig, aö Frakkar gátu engan
veginn haldiö Versalasamning-
unum til streitu, og enn siöur
samið við Þjóöverja. Og vegna
kreppunnar voru rikin I
Miö-Evrópu mun verr í stakk
búin til þess að verjast ásókn
Þjóöverja en ella.
Þá þykir mér höfundur gera
lltiö úr þýðingu Spánarstriösins.
Wrvif- ccw»* -r*
9® mty
CAQ<a.€SS TALK
COSTS uves
Oft er i holti heyrandi nær
Borgarastyrjöldin á Spáni var
uppgjör fasista og lýðræðisafl-
anna. Hitler og Mussóli'ni
studdu Franco til valda á meðan
Vesturveldin höfðu á lýðræöis-
flokkana biöa ósigur, án þess að
hreyfa legg eða lið. Og allt haföi
þetta mikil áhrif. I fyrsta lagi
fengu Þjóðverjar ágætt tækifæri
til þess aö þjálfa hermenn og
reyna ný hertæki á Spáni, i öðru
lagi uröu úrslit borgarastyrj-
aldarinnar til þess aö styrkja
stöðu fasistískra afla i Evrópu.
Franco hélt sér að visu utan
striðsins aö mestu þegar þar aö
kom, en vígstaöa Þjóöverja —
og þóeinkum Itala — heföi oröiö
miklum mun erfiöari, ef vinstri-
sinnuölýöræðisstjórn hefði setiö
að völdum á Spáni.
Borgarastyrjöldin á Spáni
haföi mikla þýöingu fyrir fram-
vindu mála i Evrópu og þvi
veröur aö gera þeim málum góð
skil i riti sem þessu.
Gangur striðsins
Meginefci bókarinnar er lýs-
ing á gangi styrjaldarinnar.
Honum er lýst nákvæmlega og
kemur þar margt fram, sem
ekki hefur verið fjallað um á is-
lensku áöur. A þaö einkum viö
um sögu styrjaldarinnar á
austurvigstöövunum, og þó enn
frekar um Kyrrahafs- og Asiu-
styrjöldina.
R. Heiferman er sagður í hópi
fremstu sérfræðinga i sögu
Kyrrahafsstriösins. Mikil þekk-
ing hans á þeim málum kemur
viöa glöggt fram, en stundum
liggur nærri aö hann tiundi ein-
stakar orrustur um of. Kaflinn
um aödraganda styrjaldarinnar
á milli Bandarikjamanna og
Japana er mjög góður og aö
minu mati besti hluti bókarinn-
ar. Höfundur hafnar þar algjör-
lega þeirri útbreiddu skoðun, að
Japanir hafi einir átt sök á
styrjöldinni og sýnir ljóslega
fram á, aö með efnahagslegu
kverkataki ýttu Bandarikja-
menn þeim fram á brún hengi-
flugsins.
Gangur styrjaldarinnar I
Evrópu og Afriku er einnig
rækilega rakinn, en óneitanlega
sakna ég ýmislegs. Andspyrnu-
hreyfingum hernumdu land-
anna eru t.d. litil skil gerð og
var þátturþeirraþó mikill. 1 þvi
viöfangi má geta þess, aö Titó
er hvergi nefndur á nafn I bók-
inni og reyndar er frásögnin af
frelsun A-Evrópu og Balkan-
skaga öll mjög brotakennd.
Sama gildir um ósigur Þjóð-
verja á Norðurlöndum. Fyrir Is-
lenska lesendur skipta þeir
þættir þó meira máli en bardag-
ar um einstök virki eða brýr i
Þýskalandi. Siðari hluti bókar-
innar, einkum sá er fjallar um
fall Þriöja rikisins, virðist mér
allur lakari en fyrri hlutinn, frá-
sögnin gloppóttari og of mikið
rætt um einstök smáatriði.
Ánægjulegar undantekningar
eru þó frá þessu, t.d. kaflinn um
Ardennasóknina.
Gott myndefni
Ekki er hægt að skiljast svo
við bókina, að ekki sé getið þess
mikla fjölda mynda, sem hana
prýöa. I bókinni eru myndir af
öllum mögulegum — og ómögu-
legum — atburðum og þáttum
styrjaldarinnar: hertækjum,
orrustum, leiðtogum, rústum
o.s.frv. Nokkuð er af teikning-
um, t.d. af flugvéla- og skipa-
tegundum. Þá eru og nokkur
kort i' bókinni. Að öllu þessu er
mikill fengur, einkum myndun-
um, en hálfleiöinlegt er aö sjá
kort, þar sem aðeins sum staö-
arheiti og örnefni eru islenskuð.
Niðurstaða:
Hér hefur nú verið tint til eitt
og annað, sem betur hefði mátt
fara. Engu aö siður er mikill
fengur að þessari bók. Hún er
fróðleg og skemmtileg og bætir
úr brýnni þörf á riti byggöu á
nýjustu upplýsingum um
heimsstyrjöldina 1939-45.
Ein og áður sagði hefur Þor-
steinn Thorarensen þýtt bókina.
Þýðing hans er lipurleg og mál-
far yfirleitt gott þótt ekki sé það
með öllu hnökralaust. Allur frá-
gangur bókarinnar er með á-
gætum. Að lokum skal þess get-
ið, að senn mun von á annarri
bókfrá Fjölgaútgáfunni. Húner
samstæð þessari og fjallar um
heimsstyrjöldina 1914-18.
Jón Þ. Þór.
Þýski herinn og rússneski veturinn.