Tíminn - 18.08.1979, Síða 5
!Hlll!l!l« !l'l
Laugardagur 18. ágúst 1979
5
mikilli framsýni og dugnaöi látiö
útbúa lóðirnar á fjölbreytilegan
og þroskandi hátt fyrir börnin i
hverfinu. Lóðin er ætluð til leikjar
og útivistar allan ársins hring.
Þess sjást og greinileg merki, að
lóðin er mikið notuð. Efnisval er
að mati nefndarinnar heppilegt,
jarðvegur hefur verið mótaður og
mishæðir nýttar til fjölbreyttra
leikja jafnt á vetrum og sumrum.
Gras er á allri lóðinni nema þar
sem meira slit er svo sem á bolta-
velli, sem er malbikaður, og á
stigum. Trjágróður er einnig á
lóðinni. Leiktækjum er i hóf stillt
en form landsins þeim mun betur
nýtt en þau búa yfir margvisleg-
um leikkostum. Lóðin er snyrtileg
og viðhald gott. Skipulag lóðar
var unnið af Reyni Vilhjálmssyni
iandslagsarkitekt 1970 en fram-
kvæmdir annaðist Þór Snorrason
skrúðgarðyrkjumeistari. tbúar
annast viðhald lóðarinnar sjálfir.
Hið nýja frystihús tsbjarnarins
i Orfirisey varö fyrir valinu sem
það fyrirtæki sem býður starfs-
mönnum sinum bestan aðbúnað á
vinnustað. Að tilnefningu unnu
Guðjón Jónsson, formaður nefnd-
ar um aðbúnað á vinnustöðum,
Magnús L. Sveinsson, borgarfull-
trúi, varaformaður VR og Gisli
Kristjá nsson, starfsmaður
borgarverkfræðings. ’ I greinar-
gerösegir aö hjá fiskverkunar- og
útgerðarfyrirtækinu tsbirninum
sé allt til slikrar fyrirmyndar
Framhald á bls. 15
Fegrunarnefnd og aðrir tilkvaddir töldu frystihús
tsbjarnarins besta vinnustaöinn 1979.
Börn að leik við Hraunbæ 62—100, þar sem talið er hvað heppilegast umhverfi fyrir ungu kynslóðina.
Sæviðarsund er snyrtileg gata og var valin sú fegursta i borginni á þessu sumri.
Viðurkenning fyrir fegursta
umhverfi í borginni
SJ — Gmhverfismálaráð ákvaö á
fundi á miðvikudag að útnefna
Sæviðarsund fegurstu götu
Reykjavikur 1979. Hið nýja frysti-
hús ísbjarnarins var valið besti
vinnustaðurinn og hepilegasta
umhverfið fyrir börn taldist vera
við f jölbýlishúsin Hraunbæ
62—100. t umhverfismálaráöi eru
Álfheiður Ingadóttir, Sigurður
Tómasson, Haukur Morthens,
örnólfur Tómasson, Elln Pálma-
dóttir, Sverrir Scheving Thor-
steinsson og Magnús L. Sveins-
son. Viðurkenningar verða
afhentar á afmæli Reykjavfkur á
laugardag 18. ágúst að Kjarvals-
stöðum kl. 15.
Að þessu sinni var ákveðið að
breyta nokkuö út af vananum
varðandi þessar viðurkenningar
og I stað þess að veita viðurkenn-
ingu fyrir snyrtilegt umhverfi
stofnunar og fagurt hús, var nú
leitað að ibúðarhúsalóð i borginni
þar sem segja mætti með réttu að
væri bestur aðbúnaður barna og
ennfremur að fyrirtæki sem
býður starfsmönnum sinum hvað
bestan aðbúnað á vinnustað.
Einnig var valin fegursta gata
Reykjavikur, svo sem verið hef-
ur.
Að tilnefningum þessum unnu
sérstakar þriggja manna nefndir
á vegum ráðsins og kembdu þær
borgina. Féllst umhverfismála-
ráð á tillögur þeirra s.l. miðviku-
dag.
Bestan aöbúnað barna á
ibúðarhúsalóð tilnefndu Einar E.
Sæmundsen (frá barnaársnefnd
Arkitektafélags tslands), Kristin
G. Jónsdóttir (frá Fóstrufélag-
inu) og Anna Kristbjörnsdóttir
(frá leikvallanefnd Reykjavikur-
borgar). t greinargerð segir aö
lóðin sé dregin fram sem fulltrúi
flestra lóöanna við Hraunbæ og
Rofabæ, en þar hafa ibúarnir af
Kbúnaðarb&nki
ÍSLANDS
ÚTIBÚIÐ í HVERAGERÐI hefurflutt
í nýtt húsnæöi aö BREIÐUMÖRK 20
SÍMAR: 4215-4245-4285
Jafnframt býöur útibúiðföstum viðskiptavinum
sínum til afnota ný GEYMSLUHÓLF
ÉI|búnaðarbankinn
HVERAGERÐI