Tíminn - 18.08.1979, Side 6
6
Laugardagur 18. ágúst 1979
r
v_
Wíwárnm
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
'arinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrfmur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15 sími
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verð I lausasölu kr. 180.00. Áskriftargjaid kr.
3.500 á mánuði. Blaöaprent.
J
Haraldur Ólafsson:
Grlent yfirlit
Vinstri menn snú-
Að minnsta kosti
sveitarfélögin
Fyrir nokkru var þvi haldið fram i forystugrein i
þessu blaði að nauðsynlegt væri að vinda að þvi
bráðan bug að koma á staðgreiðslukerfi skatta hér-
lendis. Á það var bent að búið er að vinna að þessu
máli um langt árabil, en framkvæmd hefur tafist af
ýmsum ástæðum.
Þegar unnið er að þvi að koma styrkri hagstjórn á
i svo sviptingasömu efnahagslifi sem hið islenska er
verður það enn brýnna en ella að skattkerfið geti
umsvifalitið lagað sig að þeim breytingum sem
verða i efnahagsstarfsemi og tekjum almennings.
Þetta er ekki aðeins hugsað með það i huga að
rikið eigi þess betri kost að fara i vasa skattborgar-
ans. Siður en svo. En staðgreiðslukerfi hefur þann
mikla kost að það slær á þensluna þegar vel árar og
hindrar þannig óðaverðbólgu, og á sama hátt hlifir
það þeim sem hlifa skyldi þegar menn verða fyrir
tekjumissi eða samdrætti.
Og það er reyndar ekki siður þetta siðar talda
sem máli skiptir, enda vita það allir að það eru
launþegarnir, og þá ekki sist láglaunafólk, vertiðar-
fólk og lausráðið auk byggingamanna, sem harðast
verða úti þegar samdráttur verður. Og þegar skipt-
ast á skin með ófatekjum samfara óheyrilegum
vinnudegi annað árið og skúrir með atvinnubresti
og lágmarkstekjum hitt árið sjá það allir menn að i
framkvæmd staðgreiðslukerfisins fara saman
hagsmunir einstaklingsins og rikisins, hins einstaka
skattgreiðanda og fjölskyldu hans annars vegar og
þjóðarheildarinnar hins vegar.
Alexander Stefánsson alþingismaður vikur að
þessum málum i grein i TÍMANUM fyrr i þessari
viku. í grein sinni drepur Alexander annars vegar á
þá erfiðleika sem orðið hafa i vegi þess að stað-
greiðslukerfinu yrði komið á. Hins vegar minnir
hann á þá brýnu nauðsyn sveitarfélaganna að skatt-
kerfinu verði breytt, en sveitarfélögin hafa ekki
óbeina skattheimtu sem geti þjónað þeim eins og
söluskattur og tollar styrkja fjárhag rikisins þótt
beinir skattar miðist við liðið ár.
Alexander Stefánsson bendir á það i grein sinni að
„Sveitarstjórnamenn hafa bent á þann möguleika
að setja upp sérstaklega staðgreiðslukerfi útsvara
sem áfanga i allsherjarstaðgreiðslukerfi.”
Og hann bætir við:
,,Ég held að það sé öllum fyrir bestu að þetta mál
fái afgreiðslu sem allra fyrst. Gera má ráð fyrir að
taka þurfi slikar ákvarðanir til endurskoðunar
miðað við reynslu t.d. tveggja ára. Ég treysti þvi að
rikisstjórnin taki þetta mál nú þegar til meðferð-
ar.”
Á þvi getur ekki leikið vafi að það væri réttmætt
að reyna þessa leið, ef mönnum vex það i augum af
einhverjum ástæðum að koma á staðgreiðslukerfi
allra opinberra skatta i einum og sama áfanga, eftir
þvi sem slikt verður yfirleitt gert. Um leið er þörf*
sveitarfélaganna orðin svo brýn að málið getur ekki
beðið lengur að þvi er fjárhag þeirra varðar.
Sú mótbára að staðgreiðslukerfi muni iþyngja
fólkinu á vitaskuld engan rétt á sér. Skattbyrðin
verður eftir sem áður háð ákvörðun sama aðila og
nú, þ.e.a.s. Alþingis, og verður við slikt kerfi miðuð
við liðandi ár hverju sinni en ekki liðið, með þeim
breytingum sem hljóta að fylgja.
ast gegn Kómení
Sífellt berast fregnir af
óeirðum og átökum i íran. A
mánudag heyrðist skothrið viða
I borginni. Stuöningsmenn
Kómenis hafa fariö I fjölmennar
hópgöngur til að lýsa stuðningi
viðhinnýju lög um blaöaútgáfu
i landinu, og vinstri sinnar virö-
ast búa sig undir mikil átök við
rétttrúaöa. 1 vikunni hafa
vinstri sinnar mótmælt hinum
nýju blaðalögum, sem ganga út
á það, aö öll gagnrýni á stjórn-
völd er ólögleg. Þúsundir vinstri
sinna fóru um götur Teheran til
aðmótmæla þessu, sumir áætla
aö allt að hundrað þúsund
manns hafi tekiö þátt i mótmæl-
unum.
Stuðningsmenn Kómenis
gerðu nýlega árás á höfuðstöðv-
ar vinstri hreyfingarinnar
Fedayeen ogsærðu marga með-
limi hennar.
Hreyfing þessi er marxisk og
studdi Kómeni við að koma
keisaranum frá völdum. Sfðan
hefur vináttan kólnað, enda
hefur Kómení i allri lagasetn-
ingu og tilskipunum horfið frá
nútímaskipulagi til siða horf-
innar tiðar.
Samkvæmt hinum nýju lögum
um starfsemi blaðamanna er
erlendum fréttamönnum gert
að endurnýja blaðamannaskirt-
einisin á þriggja mánaða fresti,
viðtöl við fulltrúa stjórnvalda
má ekki birta nema þau hafi
áður verið lesin yfir, og jafn-
framt eru fréttamenn gerðir
ábyrgir fyrir öllu, sem blöð
þeirra birta og fjandsamlegt er
islömsku byltingunni og stjórn
irönsku þjóðarinnar. Frétta-
menn mega einungis eiga viðtöl
við fulltrúa stjórnvalda ef viö-
staddur er fulltrúi frá ráöuneyti
hinnar þjóðlegu handleiöslu,
eins og það heitir svo fagurlega.
Eitt fyrsta verk stjórnar
Bazargans eftir aö lögin tóku
gildi var að banna eitt af stærri
blöðum landsins vegna
„siendurtekinnar gagnrýni á
stjórnvöld”.
Baktiar, fyrrum forsætisráð-
herra I Iran heldur áfram að
gagnrýna stjórnina I Teheran.
Hann dvelst nú i Frakkiandi. 1
viðtali við fréttamenn i fyrra-
dag sagði Baktiar, aö Kómenl
mundi ekki vera við völd nema
til áramóta, „og ég mun velta
honumúrsessi”. Hann sagði, að
þar væri ekki fyrst og fremst hin
vaxandi andstaða gegn Kómeni
og Bazargan, sem ylli straum-
hvörfum, heldur hitt hve illa
væri stjórnað I Iran, og hve
gripið hefði verið til ótrúlega
heimskulegra aðferða við stjórn
efnahagsmála. Þetta mundi
leiða tíl sprengingar fyrr eða
siðar. Baktiar kvaðst mundu
hverfa heim til tran til þess að
reyna að koma þar á lýðræöis-
skipulagi, ef það á annaö borð
væri mögulegt eftir það, sem á
undan er gengið. Þess má geta,
að Baktiar hefur verið dæmdur
til dauöa af irönskum byltingar-
dómstóli.
Varla stafar Kómeni nokkur
veruleghættaaf Baktiar. A hinn
bóginn eru vinstri hreyfingarn-
ar honum til mikils ama, og
fregnir um aðgerðir öfgafullra
rétttrúnaöarmanna grafa und-
an álití manna á stjórninni og
þvi, sem hún styðst við. Stöðugt
berastfregnirum, að ráðizt hafi
verið á konur og þær baröar
„vegna þess, að þær voru ekki
sómasamlega til fara”. A máli
islam þýðir það, að þær hafa
ekki verið I hinum hefðbundna
Kador-búningi, eða a.m.k. ekki
með klút um háriö.
Þróun mála I Iran sl. ár hefur
verið með fádæmum. A örfáum
mánuöum hefur verið horfið frá
nútlmalegum stjórnarháttum til
skipanar, sem byggist á fornum
trúarlegum grunni. Stjórnar-
farið undir Pahlevi-ættinni var
meingallað, og þeir vestrænu
hættir, sem keisarinn stuölaöi
að, voru aðeins á yfirborðinu.
Undir niðri ólgaði andstaða og
óánægja. Iönvæðing landsins
flutti erlendum aðilum stórfé og
verulegum hluta olfugróða
landsmanna var varið til aö
byggja öflugan her og fjárfest-
ingar I eignum erlendis. Mark-
mið keisarans var aö gera tran
að öflugasta herveldi I
Vestur-Asíu og áhrifamesta
aðilann I oliusölumálum heims-
ins. Lega landsins að Persaflóa
og Kaspiahafi gerir landið að
ákaflega mikilvægu svæði I
Asiu, og áhrif þess á allt, sem
gerist við Persaflóa eru gifur-
leg.
Eftir að trúarleiðtoginn
Kómeni varð hæstráðandi f tran
hefur i vetfangi verið snúið viö
blaðinu. Allt erlent er bannfært,
tækniþekking lítils metin, Kór-
aninn, lögbók og trúarbók
Islam, gerður æösti dómur I öll-
um málum.
Atburðirnir I tran virðast hafa
haft talsverð áhrif I nágranna-
löndunum. í Afghanistan hafa
trúaöir eflzt verulega og þar er
haldið uppi skæruhernaði gegn
hinni vinstri sinnuðu stjórn
landsins, og I Pakistan hafa
Islömsk lög verið tekin upp að
nýju á mörgum sviðum. A
Arabluskaganum þykir margt
benda til þess, að Islam hafi
eflzt en hafa verður i huga, að
t.d. I Saudi Arabiu er Kóraninn
raunveruleg lögbók og hefur
verið óldum saman.
Engu verður um það spáð
hvort núverandi valdhafar I
Iran sitja lengur eða skemur, en
öllum ætti að vera ljóst, að
vinstri hreyfingar I landinu
munu ekki lengi sætta sig við
miðaldaskipan I öllum félags-
málum, og marxisk samtök af
ýmsu tæi eru fjölmenn I Iran.
Þau munu láta til sín taka á
næstunni.
JS.
Hingaö nær byltingin.