Tíminn - 18.08.1979, Page 16
Heyvinnuvélar í
fjölbreyttu úrvali.
Til afgreiðslu strax.
1)hÁLt£ci/wéÁWv hf
*
MF
Massey Ferguson
Kynnið ykkur verð-
lækkunina á Massey-
Ferguson
hinsigilda dráttarvéi DfuMWlvéÁWv hf
FIDELITY
HLJÓMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
SJÓNVAL^rSlöö
Laugardagur 18. ágúst 1979 186. tbl. 63. árg.
Guðmundur
og Margeir
f toppbar-
áttunni
KEJ — Guðmundur Sigurjónsson
og Margeir Pétursson, sem um
þessar mundir tefla á mjög
sterku skákmdti i Gausdal I Nor-
egi, blönduðu sér báðir i' toppbar-
áttuna i gær og að sögn Margeirs
á Guðmundur góða möguleika á
að halda sér á toppnum.
Sjötta umferö var tefld á mót-
inu i gær og geröi Margeir þá
jafntefli við Raafte frá Finnlandi
og hefur þrjá og hálfan vinning
eftir umferðina. Guðmundur
gerði jafntefli við Karlsson frá
Sviþjóð og er nú með fjóra vinn-
inga.
Efstureftir sex umferðir á mót-
inu er Keen, enski stórmeistar-
inn, með 4 og hálfan vinning en
næstir koma Ravikumar frá Ind-
landi og Romanizhin frá Sovét-
rikjunum með fjóra vinninga og
biðskák innbyrðis.
Eins og fyrr segir er skákmót
þetta i Gausdal mjög sterkt, eitt
hið sterkasta sem haldið hefur
verið f Noregi. Þátttakendur eru
50 og tefldar verða 9 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Siðustu um-
ferðirnar verða tefldar i dag,
sunnudag og mánudag.
Karl Þorsteíns
á barnaárs-
skákmót I
Puerto Rico
KEJ — A morgun hefst i San Juan
i Puerto Rico sérstakt skákmót
fyrir 1B ára og yngri sem haldið er
I tilefni barnaárs. Einn tslend-
ingur teflir á mótinu og er það
Karl Þorsteins, 15 ára, skóla-
skákmeistari Reykjavikur.
Að sögn Einars S. Einarssonar
forseta Skáksambands tslands er
Karl styrktur til Puerto Rico
fararinnar af framkvæmdanefnd
alþjóðaárs barnsins hér á landi en
auk þess styrkja Skáksambandið
og TaflfélagJ Reykjavikur för
Karls.
Mótið stendur til loka mánaðar-
ins og er haldið samtimis 50. aðal-
þingi FIDE þar sem Friðrik
FIDE-forseti verður i forsæti.
Einar S. Einarsson mun og sækja
þingið á vegum Skáksambands
íslands og Danmerkur, en helsta
mál þingsins verður væntanlega
sá grunursem leikur á um að So-
vétmenn séu aö reyna að ein-
angra Kortsnoj frá skákmótum
með þvi aö mæta ekki þar sem
hann teflir.
Benedikt Gröndal utan-
rikisráðherra gefur stórgóða
yfirlýsingu i yfirheyrslu hjá
Heigarpóstinum þessa helg-
ina. Aðspurður um hvort
ungu þingmennirnir I Al-
þýðuflokknum fari I taug-
arnar á honum svarar hann:
„Nei, nei. Ég væri kominn á
Klepp, ef svo væri”. — Pá
vitum við það, aö aöeins full-
komið ónæmi fyrir ungu
mönnunum sinum bjargar
Benedikt frá þvi að lenda á
Kleppi.
Verða þeir nlu flugmenn, sem sagt var upp starfi, endurráðnir?
Fleirí áhafnir þarf til starfa,
þegar Twin Otterinn kemur
AM —„Ef Fliigleiðir ætla að selja
eina Fokkervélanna ogtaka Twin
Otter i staðinn, sjáum við ekki
annaö en félagið þurfi jafn
margar áhafnir og hingað til, eða
jafnvcl fleiri,” sagði Robin
Baueher, flugmaður, I viðtali við
Tímann I gær, en hann er einn nfu
flugmanna frá Ft, sem sagt hefur
veriö upp störfum.
Robin réðst til Flugleiða i
april i fyrra, eftir að hafa verið
flugmaöur á Twin Otter hjá
Vængjum i þrjú og hálft ár og
yfirflugmaður þar. Hann sagði að
vegna minni afkasta Otter
vélanna, þyrftimeirastarfslið, en
vélarnar taka aðeins 19 manns og
eru ætlaðar hlaðnar fyrir 45
minútna flugleið að meðaltali.
Hann lauk lofsorði á vélarnar,
en minnti á, eins og fram kom i
Timanum i gær, að þær eru hæg-
fleygari en Fokker og ekki með
jafnþrýstibúnaði, sem veldur þvi
að þær eru ófærar um að fljúga yf-
ir vond veður. Þetta eykur
isingarhættu þar sem vélin er þá
lengur að fljúga i gegn um is-
ingarsvæðið. Þá er augljóst að
ekki verðaflognar margar ferðir
á vélinni i skammdeginu, þar sem
ekki er hægt að lenda á mörgum
stöðum hériendis i myrkri, þar á
meðal f Vestmannaeyjum. Loks
gat hann þess að vélarnar væru
afar viðkvæmar hvað jafnvægi á
milli farþegafjölda og bensin-
hleðslu snerti, en fullhlaðnar af
bensini geta þær ekki tekiö nema
14-15 farþega með 10 kg. farang-
ur. Séu farþegar 19, er ekki gert
ráð fyrir neinni þjónustu I
Framhald á bls. 15
ÉHMMyiiÉMMÍMMMMMMiMMBI^^MHMBHMMMMHMMBHBEMnfflMMMHMHMÉBSMMl^
Greenpeacemenn eru nú aftur mættir en hafa ekkert aðhafst ennþá hvað sem síðar kann að veröa.
(Timamynd: Róbert).
Lögbanniö ekki gilt
Greenpeacemenn þó ekki
frjálsari en áður * ráöuneytisstjóri
GP — „Það má segja þaö að
þessar hugleiðingar Þrastar séu
réttar, en hins vegar er réttur
þeirra sem stunda lögmætan at-
vinnurekstur alveg jafn mikill
eftir sem áöur”, sagði Baldur
Möller ráðuneytisstjóri I dóms-
málaráðuneytinu þegar Timinn
bar undirhann ummæli Þrastar
Sigtryggssonar skipherra hjá
Landhelgisgæslunni i einu dag-
blaöanna I gær. Þar lætur
Þröstur að þvi liggja að I raun
sé lögbannið, sem sett var á
áhöfn Rainbow Warrior, skip
Greenpeacesamtakanna, fallið
úr gildi núna þar sem annar
skipstjóri og annar leiðangurs-
stjóri eru teknir við.
Baldur gat þess fyrst i sam-
talinu viö Timann að reyndar
væri það ekki landhelgisgæslu-
manna að gefa út svona yfirlýs-
ingar sem Þrastar en þegar
grannt væri skoðað væri hún
ekki fjarri sannleikanum eins
og áður sagði.
Baldur sagði að nú séu t.d. niu
áhafnarmeölimir þeir sömu og
hingað komu fyrr i sumar og
skipstjórinn nú sé sá er gegndi
embætti 1. stýrimanns þá. Sagði
Baldur að þó að lögbannið sé
ekki virkt sem slikt þá myndi
það sjálfsagt skoðað réttmætt ef
fyrir dómstóia kæmi. Baidur
bætti við að mennirnir heföu
engan rétt frekar en aðrir til
þess að trufla þá sem stunda
sina löglegu vinnu.
Skip Greenpeace-manna
hefur legið við mynni Hval-
fjarðar siðan það kom hingað til
lands fyrir nokkrum sóiarhring-
um. Samkvæmt upplýsingum
landhelgisgæslunnar var skipið
þar enn i gærkvöldi þegar blaðið
fór i prentun og var ekkert
fararsnið á þvi. Nokkur hval-
veiðiskip hafa farið framhjá
skipinu með afla en áhöfn Rain-
bow Warrior hefur engin merki
sýnt á aö trufla gerðir þeirra.