Tíminn - 09.11.1979, Page 9

Tíminn - 09.11.1979, Page 9
Föstudagur 9. nóvember 1979 9 BOKAFREGNIR: Hetjudáðir Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú frá sér tvær nýjar bækur í flokknum Hetjudáðir. Bækurnar eru báöar i 2. útgáfu og heita: „Hákarlar og horn- sili” eftir Wolfgang Ott og „Til siðasta manns”. Á siðasta ári komu út i þessum flokki bæk- urnar „Eftirlýstur af Gestapo” og „A meöan fæturnir bera mig”. Hákarlar og hornsíli er hetjufrásögn úr kafbátastrið- inu. Sagan segir frá mönnum i kafbátahernaöi og greinir á sannan hátt frá þeim ógnum og þeirri spennu sem þeir upplifa á meðan dauðinn bfður þeirra i ærandi djúpsprengjum, sem falla allt i kringum kafbátinn. A kápusiðu segir m.a.: „Þeir hlustuðu eftir tundurspillinum, sem sigldi stööugt yfir kafbátn- um. Skyndilega heyrðu þeir hvininn i djúpsprengjunum, sem skullu i sjóinn. Þeir voru aflvana af ótta. Allt i einu heyrðist brothljóö og neyðar- ljósið kviknaði......Sjórinn streymdi inn i kafbátinn.... Þarna lá vélstjórinn. Vinstri hendi hans hafði klippst i sundur og lá við hlið hans...” Hver ein- asta blaðslða þessarar bókar er þrungin spennandi frásögnum af hetjudáöum, mannraunum og karlmennsku, sem gerðu hana að metsölubók. Andrés Kristjánsson þýddi bókina, sem er 256 bls. Til síðasta manns eru valdar sannar frásagnir skráðar af mönnum sem upp- lifðu grimmd og miskunnarleysi striðsins og háöu hetjulega bar- áttu fyrir lifinu. 1 bókinni segir m.a. frá: Bardögunum ógurlegu við Anzio á ltaliu Flugslysinu mikla viö Sand- spit Þegar beitiskipinu Indiana- polis var sökkt Tuttugu sekúndna martröð flugmanns Frækilegri björgun i Kóreu- striðinu. Skúli Jensson þýddi bókina, sem er 168 bls. Báðar bækurnar eru prentað- ar I Prentverki Akraness hf. og bundnar i Helluprenti. Hilmar Þ. Helgason geröi káputeikn- ingar. Rómantík //Eldur"/ ný saga eftir Phyllis A. Whitney IÐUNN hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Phyllis A. Whitney sem i þýðingu hefur veriö nefnd Eldur (á frummáli The Glass Flame). Höfundur er bandarisk kona, sem hefur á- unniö sér vinsældir fyrir róman- tiskar skemmtisögur. Aöur hafa komiö út eftir hana I islenskum þýðingum sex skáldsögur. Á kápubaki er efni þessarar nýju sögu kynnt á þessa leið: ,,..Ef eitthvað kemur fyrir mig hérna niöur frá, þá littu ekki á þaö sem slys”.Þannig skrifaði Davið i siðasta bréfinu til konu sinnar. Tiu dögum siðar var hann látinn með sviplegum Bækur frá Almenna Út er komin hjá Almenna bókafélaginu siðara bindið af SÖGU SVEITASTJÓRNAR eftir Lýð Björnsson sagnfræðing. Fyrra bindi verksins kom út 1972 og var þar fjallað um tima- bilið fyrir 1872. t þessu nýja bindier gerð grein fyrir sveitar- félögum i landinu og starfi þeirra siðustu hundrað árin. Bókin er prýdd fjöida mynda. Þá hefur AB sent frá sér barnabókina Mads og Milalik eftir danska teiknarann og barnabókahöfundinn Sven Otto S. Er hann viökunnur fyrir barnabækur sinar og má geta þess að hann hefur teiknað kápumyndir á flestar bækur Halldórs Laxness, sem út hafa komið á dönsku. Mards og Milalik er mynda- bók, sem gerist á Grænlandi. Hún segir frá grænlenskum börnum og hundinum þeirra, sem lenda i ævintýrum á snjó- breiðum Grænlands. Loks hefur bókaklúbbur AB nýlega gefiö út bókina M-samtöl III eftir Matthias Johannessen. Er með þessari bóklokið útgáfu AB á samtölum Matthiasar. Fyrsta bindið kom út 1977 með samtölum viö 17 menn — konur og karla og ann- að bindið kom út á siðasta ári. Hafði það að geyma samtöl við 19 manns. í þessu nýja bindi eru samtöl við 26 manns og er þvi samtals i þessum þrem bindum rætt við 62 menn, — 56 íslend- inga og 6 útlendinga. Viðtölin i bókunum eru valin af Eiriki Hreini Finr.bogasyni, en hann hefur séð að öllu leyti um útgáf- una. hætti. Bréfið var ofsafengið, eins konar framhald af siöasta samtali þeirra hjónanna þegar Karen hafði sagt Davið að hún væri ákveöin i þvi að skilja við hann. — Könnun Karenar á öll- um atvikum i sambandi viö dauða Daviös leiddi hana á nýj- ar framandlegar slóðir. — Hún stóð aftur augliti til auglitis viö hálfbróður Daviðs — manninn sem hún hafði raunverulega alltaf elskað”. Eldur er 259 bls. skiptist i fimmtán kafla. Alfheiður Kjart- ansdóttir þýddi. Prentrún sf. prentaði. „Ein af þessum gömlu og góðu” Höfundur þessarar ástarsögu er bekktur hér á landi fyrir bækur eins oj „Stella”, „Tvifarinn”, „Cymbiíina hin fagra” og „Hann unni henni”. „Úrskurður hjartans” er þvi ein af gömlu, góöu skáldsögun- um, sem enn eru ungar og ferskar. Tvær nýjar eftir Alistair MacLean Tvær nýjar bækur eftir Alistair MacLean Bókaútgáfan IÐUNN hefur sent frá sér tvær nýjar bækur eftir hinn kunna breska spennu- sagnahöfund, Alistair Mac- Lean. Hin fyrri er skáldsaga sem á islensku er kölluð Ég sprengi klukkan lO.oger það tuttugasta saga MacLeans sem út kemur hérlendis. Anna Valdimarsdótt- ir þýddi söguna. A kápubaki segir svo um efni hennar: „Hver var þessi dularfulli Morro sem bersýnilega hafði það i hendi sér að koma af stað ógnvænlegum jaröskjálfta er leggja mundi I rúst Los Angeles og nálægar byggðir? Lif mill- jóna manna var i veði auk eyði- leggingar verðmæta sem áttu sér enga hliðstæöu i veraldar- sögunni... Hann réð yfir kjarn- orkusprengjum sem gátu komið þessum náttúruhamförum af stað ef sprengdaryrðu á réttum stöðum neðanjaröar. En hvernig átti aö finna þennan mann og era hann óskaölegan? ” — Ég sprengi klukkan 10 er 275 bls. O'ldi prentaöi. Seinni bókin eftir MacLean er annars eðlis. Hún nefnist Kaf- teinn Cook og er byggð á dag- bókum þessa fræga landkönn- uöar og leiðabókum hans um feröir sinar. Cook sigldi þrisvar sinnum umhverfis jörðina á ár- unum 1768-1779. Hann kannaði Kyrrahafiö, kortlagöi strönd Nýja-Sjálands og sigldi nær Suðurheimskautinu en nokkur annar maöur fyrir hans daga. Bók MacLeans skiptist i sex kafla: Hásetinn, Hverfandi meginland, Nýja-Sjáland kort- lagt, Astralia og Stóru-Rifgirð- ingar, Suöurskautslandiö og Plólýnasia og Norðvesturleiöin. Bókin er prýdd fjölda mynda og eru allmargar I litum. Rögn- valdur Finnbogason þýddi Kaf- tein Cook, sem er 192 bls. auk myndasiöna, prentuð i Bret- landi. Þýdd ljóð Setberg hefur sent frá sér ljóöa- bókina „Þakrennan syngur” eftir Norðmanninn Jul Haga- næs. Þýöinguna gerði Guð- mundur Danielsson rithöfund- ur. Jul Haganæs er fæddur á On- stadsmerken i Aurdal I Valdres- héraði 22. ágúst 1932. Hann geröist ungur að aldri blaöa- maöur viö fylkisblaöið Valdres. og þar hirtust fyrstu ljóö hans. Núna er hann orðinn blaöamað- ur við miklu stærra blaö: Sam- hold-Velgeren, sem hefur aðal- skrifstofur I borginni Gjövik i Guöbrandsdal. Fyrsta ljóöabók Haganæs kom út hjá Norges Boklag i Osló 1965. Arið eftir fékk hann lista- mannalaun, og notaöi þau til Is- landsferðar. Nú eru æjóðabæk- ur hans orönar 8, flestar gefnar út hjá Norges Boklag. Tvær þeirra hefur Fonnaforlag gefiö út. . . Jul Haganæs Þakrennan syngur Guömundur Danielsson þýddi Ijóöin Nýjar bækur frá Fjölva Meðal þeirra verka sem bókaútgáfan Fjöivi gefur út á þessu ári er NÚTIMA-LISTA- SAGA. Bókin er rúmar 500 bls. að stærð, skreytt um 400 lit- myndum. Eru hér raktar allar hinar einkennilegu hreyfingar I listum á siðustu árum, svo sem i poppi, skreytilist, gerningalist o.m.fl. Kápumynd veröur hið fræga Matlandslag eftir Erró. Veraldarsaga 6. bindi segir frá hruni rómverska lýðveldis- ins. Þar er rakin hin félagslega barátta Grakkusarbræðra, deil- ur Mariusar og Súllu, átök Pompeiusar ogSesars, morðið á Sesari og deilur Antóniusar og Oktavianusar. Er gert ráð fyrir aö tvær ofangreindar bækur komist á markaðinn fyrir jól. Týndir snillingar nefnist siö- asta bindi minninga Jóns Ósk- ars. Verður þetta stærsta bindi æviminninganna, um 300 bls. að stærð. Þarna segir höfundur á skemmtilegan og einlægan hátt frá villuferö sinni um völundar- hús stjórnmálanna Bílabullur nefnist ný skáld- saga sem kemur á markaðinn innan skamms, eftir Þorstein Antonsson. Sagan er byggð upp af ólikum hlutum, en viss undir- straumur er undir þeim öllum, sem vitnar um ferö Islensku þjóðarinnar frá fornum sveita- lifsháttum til nútima-borgarlifs. Þá hefur Aöalsteinn Asberg Sigurðsson sent frá sér skáld- sögu sem nefnist Ferð undir fjögur augu. Aðalsteinn hefur áður gefið út tvær ljóðabækur, ennú birtist i þessari skáldsögu hans nýr seiðmagnaður still. Segir hún frá leit ungs manns aö staöreyndum tilverunnar i henni nýtima-Reykjavik. Fjölvi gefur nú út nýja skáld- sögu eftir Þórunni Elfu og nefn- ist hún Voriö hlær-Dætur Reykjavikur. Sagan segir frá lifi og ástum ungs fólks á Alþingishátiðinni 1930 og er hiln gefin út vegna þess aö á næsta ári verða liöin 50 ár frá Alþingishátiðinni. Bókin veröur gefin aftur út siöar i sérstakri skrautútgáfu og verður hún skreytt af Sigrúnu Eldjárn. Tvær ljóðabækur koma út hjá Fjölva iár. önnurþeirraer eftir Gylfa Gröndal og nefnist Dögg- slóð. Myndskreytingu hefur Arni Elvar annast. Hin ljóöa- bókin nefnist Vökunætur og er hún eftir séra Jakob Jónsson, myndskreytt af Andrinu Jóns- dóttur. Mun þessi bók vafalaust þykja nokkuð óvenjuleg, þvi þar er um að ræða einskonar Bibliu- ljóö, þar sem sameinast I ljóða- forminu óbundinn nútima skáldskapur og bragarháttur hinna fornu Daviðssálma. Þá er komin út Stóra heim- styrjaldarsaga Fjölva, annað bindið sem segir frá seinni heimstyrjöldinni. önnur sam- stæö bók um Fyrri heimstyrj- öldina er á leiöinni, en óvist aö hún nái timanlega á jólamark- að. 1 ár má vænta á markaðinn óvenju umf angsmikils og glæsi- legs safns um komu mannsins. Nú eru 3 bækur um það bil að koma út: Frumlifssagan, tvær bækur um Neanderdalsmann- inn og Krómagnonmanninn og einnig er væntanleg bók um Týnda hlekkinn sem fjallar um nýjustu rannsóknir á Sunnep- ingum Afriku.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.