Tíminn - 30.11.1979, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.11.1979, Blaðsíða 4
4 Föstudagur 30. nóvember 1979 Glenn Ford kyssti , ,túristann’ ’ Cynthia, kona leikarans Glenn Ford, hafði oft horft á þegar stórir langferðabílar fullir af túristum voru á ferð með leiðsögumönnum frá ferðaskrifstofum að skoða hverfið Beverly Hills, þar sem aðallega búa frægir leikarar. Hún fór að gerast forvitin um hvað leiðsögumennirnir segðu ferðafólkinu um íbúa hús- anna, sem numið var staðar við og því afréð hún að fara í eina slika ferð um hverf ið. Hún fór eins og hver annar ferðamaður á ferðaskrifstof u,greiddi sitt far- gjald og fór svo í næsta bíl af stað í leikarahverfið. Ekki fara sögur af því hvernig Cynthiu líkaði leið- sögnin, en þegar kom að heimili hennar sagði leið- sögumaðurinn: —,,... og þarna býr Glenn Ford ásamt konu sinni Cynthiu og er hjónaband þeirra talið all- gott"... Þá gat hún ekki stillt sig um að hringja dyra- bjöllunni. Leiðsögumaðurinn kom öskuvondur til hennar og sagði að slíkt væri harðbannað. í þvi kom Glenn sjálf ur til dyra og voru túristarnir ekki lengi að taka upp myndavélar sínar og taka myndir af stjörn- unni, en enn meiri æsingur varð þó og myndavélarnar voru óspart látnar skjóta og klikka þegar Glenn gekk til konunnar, sem hafði hringt dyrabjöllunni og kyssti hana og tók ,,túristann" síðan inn með sér og lokaði hurðinni. Það hafa alltaf verið áberandi fallegar stúlk- ur, sem hafa leikið kven- hlutverkin i James Bond- myndunum, en þegar farið er að hugsa til baka hafa nöfn þeirra margra hverra ekki orðið svo fræg og við var búist í fyrstu. Muna lesendur eftir þessum Bond-stúlk- um: Honeychile Rider, Pussy Galore, Kissy Suzuki o.s.frv.? Hér sjá- um við mynd af nýjustu Bond-skvísunni henni Lois Chiles, en hún leikur aðalkvenhlutverkið í myndinni ,,Moonraker" á móti Roger Moore sem auðvitað er hinn eini sanni 007-Bond. Lois seg- ist vera ákveðin í því að þessi frægð sem henni hef ur hlotnast þarna sem Bond-stúlku skuli endast henni töluvert, og þar sem hún þykir skemmti- leg leikkona verður henni kannski að þeirri ósk sinni. I' myndinni ,,Moon- raker" fáum við að sjá marga gamla kunningja úr fyrri Bond-myndum, t.d. risann ógnvekjandi, Richard Kiel, sem við síð- ast sáum á sundi á hafi úti í átt til sólarlagsins í myndinni Njósnarinn sem elskaði mig. Nú kemur hann enn og er James Bond hættulegur með stáltennur sínar og risakrafta. Myndin „Moonraker" gerist víða um heim og utan hans. Við fáum m.a. aðsjá Feneyjar, landslag frá Mið-Ameríku og Brasilíu og utan úr geimnum, svo myndin ætti að vera fræðandi ekki síður en spennandi. Lois Chiles Bond-skvísa í spegli tímans Nýjasta Bond- kvísan bridge í spili dagsins missti vestur af vörn, sem viröist augljós þegar bent hefur veriö á hana, en hún er að sama skapi erfið við spilaborðiö. Norður S G103 H 65 A/Allir. Vestur S K97652 T 5432 L G983 Austur S D8 H 83 H 42 T - - Suður S A4 T ADG10976 L AD1062 L 74 H AKDG1097 T K8 L K5 Austur opnaði á 3 tiglum og suður sagði 4hjörtu, sem varð lokasögn. 3 grönd hefði ef til vill verið betri melding en gegn 4 hjörtum spilaði vestur út hjartaþrist. Suð- ur tók útspilið heima og tók annað hjarta. Þar sem vestur spilaði ekki út tigli, var hann merktur með eyðu og suður ákvaö að reyna að ná endaspilingu i vestur. Hann spilaði laufakóng og vestur drap á ásinn og tók drottninguna. En nú var hann kominn i vandræöi. Ef hann spilaði laufi, þá ®tti suður þann slag á gosann i blind- um og gæti siðan spilaö uppá tigulkóng- mn. Svo vestur varð að spila spaða. Suður stakk upp tiunni i blindum, austur lagði drottninguna á og suður drap á ásinn. Og nú spilaði suður seinni spaðanum og vest- ur varð, eftir að hafa tekið á kónginn, aö spila blindum inn. Auðvitaö var suður heppinn meö leguna en vestur gat hnekkt spilinu ef hann, eftir að hafa tekiö á laufaás og drottningu, spilar ekki litlum spaða, heldur spaða- kóng. Ef suður tekur slaginn, þá fær aust- ur næsta spaðaslag og getur tekið á tígul- ásinn en ef suður gefur slaginn, þá spilar vestur litlum spaða og suður verður að gefa austri tvo slagi á tígul. skák Mistök eru mjög algeng I skák eins og gefur að skilja og hér er eitt dæmi sem sýnir ein slik sem áttusér stað í skák milli tveggja áhugasérfræðinga. Þaö er svartur sem á leik. Kd5 Kxe5??? NN. ...Df2 skák De3 Dc5 mát krossgáta 3167. Lárétt 1) tJtlit.- 6) Sjúkrahús.-10) Belju,-11) Ar- mynni.- 12) llát,- 15) Likt.- Lóðrétt 2) Leyfi.- 3) Rugga.- 4) Býsn.- 5) Rogast,- 7) Strit.- 8) Efni,- 9) Vatn.- 13) Auö.- 14) Egg.- Ráöning á gátu No. 3166 Lárétt 1) Svara.-6) Vitamin.-10) Iö.-11) An,-12) Tilberi,- 15) Stund,- Lóðrétt 2) Vit,- 3) Róm,- 4) Sviti,- 5) Annir.- 7) löi.- 8) AAB.-9) lar.-13) Lit.- 14)Ern.- með morgunkaffinu — Ég er viss um að ég fell á reikningsprófinu eins viss og tvisvar tveir eru fimm... — Þessi er ekki alveg eins nákvæmur og dýrari gerðirnar okkar. En hann er ansi duglegur að giska

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.