Ísafold


Ísafold - 22.02.1876, Qupperneq 4

Ísafold - 22.02.1876, Qupperneq 4
12 blöð sín og blaðamenn með því, að senda þeim frjettabrjef og annað blaða- mál, og sje mikill munur á því fyrir norðan. Þessa umkvörtun getum vjer og tekið undir, eptirvorri stutlu reynsiu. ímyndum vjer oss að vísu, að það sje fremur að kenna hugsunarleysi en vilja- leysi, að svo fáum verði að vegi að senda blöðunum línu um það, sem við ber f kringum þá, og neyðast þau svo opt til að fara eptir óáreiðanlegum flugufregnum. Eins er um annað blaða- mál, t. a. m. hugvekjur og bendingar handa almenningi, um sitt hvað, er betur mætti fara eða til bóta horfir, eptir því sem menn hafa orðið áskynja, t. a. m. af eigin reynslu. Slíkt ættu menn að lála sjer annt nm, að sem flestum gæti orðið að liði, og beinasti og fyrirhafnarminnsti vegurinn er þá að biðja blöðin að gjöra það almenn- ingi kunnugt. Á þann hátt eiga menn að vilja nota blöðin, heidur en til að kita og jagast út úr einhverjum hje- gómanum, sem engum kemur við eða nein not ern afy. — Nparisjóður er nýstofnaður í Hafnarlirði, af nokkrum kaupmönnurn þar og efuabændum á Alptanesinu, þar j á meðal prófastinum í Görðum. Fyr- ; irkomulag sjóðsins og lög kvað vera að j mestu eins og sparisjóðsins í Reykja- vík, sem þessi nýi sjóður virðist ætla að fara undir eins að keppa við, þvi hann býður töluvert hærri rentu af "innlátnum" peningum en Reykjavíknr- sjóðurinn, eða 3.63 0/0 eður 1 eyrir á dag af 100 kr., þar sem vextir af pen- j ingum í Reykjavíkursjóðnum eru ekki j nema 3.36°/0, og það ekki nema síðan : í sumar er leið; fyr treystust forstöðu- menn hans sjer ekki til að hafa þá j einu sinni svo mikla, og voru vext- irnir þaráundan að eins3.25%. Stofn- | endurnir ábyrgjast, að sjóðurinn standi í skilum, og lofa að svara allt að 200 1 kr. hver (þeir ern 9 alls), ef sjóðurinn verður gjaldþrota. r i — Ýlormónar 2 frá Vestmanna- eyum, er heita þórður og Samúel, hafa j dvalið hjer ( höfuðstaðnum í vetur til j að boða trú sina, gjörðir út til þess af stjórnendum safnaðarins í Utah, riki ðlormóna i Vesturheimi. Hafa þeir báðir verið þar í mörg ár, og á annar að vera orðinn biskup (Sainúel), en binn prestnr. Þeir ætluðu einu sinni að nota «sjómannaklúbbinn» fyrir kirkju j eða prjedikunarsal, en það var forstöðu- j mönnum hans eigi um. Hafa þeirekki i getað komið við að flytja boðskapinn í ' heyranda hljóði, nema einu sinni undir j berum himni á túnbletti einum hjer við bæinn. Höfðu þeir þá fjölda á- heyranda, sjálfsagt inest fyrir forvitnis- sakir. fað vöruðust þeir, að fara með nokkuð, er hneyxlun mætti valda, enda munn þeir jafnan vanir að gæta þeirr- ar varúðar fyrst í slað, meðan menn eru að hænast að þeim. Hvað þeim kann að hafa ánnnizt í leyni eða ávinnst eptirleiðis, vitna«t að likindum ekki fyr en vorar og veðrið hlýnar, svo þeir geti farið að skíra (í sjónum), þótt skírnin muni raunar líka eiga að fara fram í leyni, eptirþví sem heyrzt hefir af hátt- um Mormóna á Vestmannaeyjum, að- alstöðvum þeirra hjer á landi. þar kváðu þeir og hafabyrjað trúarboð sitt með prjedikunum úti á víðavangi. iVý veitinjyalliis í Reykjctvík. í öndverðum þessum mánuði hefir amt- maðurinn sunnan og vestan gefiö út tvö leyfisbrjef til að halda veitingahús hjer í bænum, annað handa Pali Ey- ólfssyni gullsmið, ábyrgðarmanni «ís- lendings», en hitthanda Nikulási verzl- unarmanni Jafetssyni. Veitingaleyfi þessi eru bundin því skilyrði, að veit- ingunum fylgi góð næturgisting handa svo og svo mörgum mönnum, og tekst herra Páll á hendur að hafa jafuan til góð rúm handa 20 mönnum, en hinn handa 10. Þá mun mega seeja, að loks sjeu komnir upp gistingaskálar í höfuðstaðn- j um. «Betra seint en aldrei». Veit- iugahús herra Páis er nýbyggt múrhús, allveglegt, andspænis þinghúsi bæjarins (tuktkúsinu); en liitt á Hliðarhúsastígnum .Tlannalát Hinn 6. (ekki 9.) þ. m. andaðist í lutínuskólanum úr lang- vinnu hjartameini skólapillur G í s I i Bjarnnrson, prests sál. þorvalds- sonar að Uolti undir Eyjatjöllum, 22 ára að aldri, fæddur n,/s. 53. «Hann var allvel greindur, iðinn vel og vel látinn af skólabræðrum sinum*. (Aðsent). Hinn 17. júní f. á. and- aðist að Snorrastöðum í Hnappadals- sýslu húsfreyjan þar Margrjet Einars- dúttir, eptir tæpra tveggja daga þunga taklegu. Hún var fædd í Ólafsvík vestra 18í0. Foreldrar hennar voru merkis- j hjónin Einar Bjarnason og Elín Elias- i dóttir, er lengi bjuggu á Brimilsvöllum. Hún álti að fyrra manni formann Magn- ús Jónsson á Brimilsvöllum, en missti ; hann þar í sjóinn ásamt bróður sínum eptir 2 ára sambúð, árið 1866. Árið j eptir giptist hún Jóhann Geir Snorra- syni, nú bónda á Snorrastöðum, og eignaðist með honum 6 börn. Hún j var vel metin hæglætis- og stillingar- j kona, nett í framgöngu, ástúðleg manni : sínum og uhyggjusöm móðir. — Veðrátta. Tvo síðustu dag- j ana af vikunni sem leið, 18. og 19. þ. m., var bjer allsnarpur norðangarður, með 10—11° frosti á C., og er það mesta Irost, sem komið hefir hjer sunn- anlands á þessum vetri. Dagana þar á undan var hreinviðri á norðan, með litlu frosti. Nú er aptur stilltara veður og frostminna, en sama átt. — Allabrii^ð. í Ilöfnum hefir nýlega orðið litið eitt fiskvart, af ný- gengnum fiski, og á Akranesi Ijekk 1 skip 14 í blut af þorski og ísu einn daginn í vikunni sem leið, vestarlega á Sviði; aðrir, sem þaðan reru saina dag, urðu að eins varir. Síðan hefir eigi gefið að róa, fyr en í gær, að al- mennt var róið hjer í bænum og fram um nesið, vestur á Svið. Urðu allir varir, og fjekk 1 skip jafnvel 25 í hlut af þorski og ísu; aðrir allir langtum minna. Pilskip þeirra Geirs Zoega og hans fjelaga, Reykjavík og Fanny, lögðu út á hákarlaveiðar fyrri part þessa mán- j aðar, og kom Reykjavík inn aptur fyrir j 2 dögum með 30 tunnur lifrar. Fanny ókomin. — Póstarnir. í 2. póstferðina petta ár leggur ísafjarðarpósturinn (vest- ! anp.) af stað suður í leið frá ísaf. 3. marz, : frá Bæ 5., frá Hjarðarholti Dölum 8., og frá 1 Hjarðarholti í Stafholtstungum 10. s. m., en t norður (vestur) i leið fráReykjavík 27.marz, frá Hjarðarholti í Stafholtst. 30. s. m., frá Hjarðarh. í Dölum 1. apríl, og frá Bæ 3. s. m. — í sömu póstferð(2.) leggur Akur- eyrarpósturinn (norðanp.) af stað suður í leið frá Akureyri 3. marz, frá Víði- mýri 6., frá Steinsstöðum 8., frá Melum 10. og frá Hjarðarholti í Stafholtstungum 12. s. m., en norður í leið frá Beykjavík 25. marz, frá Hjarðarholti í St. 28., frá Melnm 30. s. ru.j frá Sveinsstöðum 1. apríl og frá Víðimýri 3. j s. m. — Prestsbakkapósturinn (austanp.) leggur af stað í sömu póstferð i austur í leið frá Reykjavík 28. marz, frá Hraun- I gerði 29., frá Breiðabólstað í Fljótshlíð 30. s. m., en vestur í leið frá Prestsbakka ll.apríl, i frá Breiðabólst. 15. og frá Hraung. 16. s. m. — Djúpavogspósturinn frá Prests- bakka leggur af stað frá Djúpavog 8. marz, og frá Bjarnanesi 10. s. m., en frá Prests- bakka aptur austur í leið 10. apríl og frá Bjarnanesi 15. s. m. — D j ú p a v o g s p ó s t- urinn frá Akureyr i leggur afstað fiú Djúpavog 17. marz, frá Egilsstöðum 20. og frá Ilelgastöðum 24. s. m., en frá Akureyri apt- ur 10. apr., frá Helgastöðum 12., og frá Eg- iisstöðum 17. s. m. Fararilagar póstanna frá aðalpóststöðv- unum (Rvík, ísaf., Akureyri, Djúpav. og Prestsb.) eru fastákveðnir, ogskal samkvæmt auglýsingu landshöfðingja 30. vóv. f. á. taka við böggul- og peningasendingum á þessurn pósthúsum þ a n g a ð t i 1 kl. 8 kveldinu á ð u r. Við millistöðvarnar er nefndur sá dagur, erþeirgeta komist afstað paðan í fyrsta lagi. Aukapóstar leggja jafnan af stað frá af- greiðslustaðnum dagínn eptir komu aðalpósts- in8 pangað, og koma pangað aptur á undan honum i apturleiðinni. — Póatskipið leggur af stað 1. ferðina frá Kaupmannahöfn 1. marz 9 f. m., frá Leirvík 4 e. m. (í fyrsta lagi), og frá pórs- höfh 6. f. m. (í fyrsta 1.), en 15. s. m. er gjört ráð fyrir {iví til Reykjavíkur. Frá Reykjavík leggur það aptur af stað 23. marz kl. 6 f. m., frá pórshöfn 26. f. m, og frá Leirvík 28. s. m. f. m., en til Khafnar á það að vera komið 6. apríl. Misprentað í síðasta bl. í fyrstu grein- inni: nefndummönnum f. nefndarmönn- u m, og í greininni „Lestrarbókardeilan": i- hlutun í málið væri sprottin af hlutsemi f. í- hlutnn p e i r r a í málið væri o. s. frv, Á 8. bls. 32. 1.: Reykjahlfðarheiði f. R e y k j a - h e i ð i. AUGLÝSINGAR. — Miðvikudaginn þann 8. næstkom- andi marzmánaðar, einni stundu eptir hádegi, verður ftindur haldinn í verzl- unarhlutafjelaginu hjer ( Reykjavík í húsum þess, og þá gjörð grein fyrir fjárhagsástæðum fjelagsins eins og-þær voru við síðustu ársiok og ræða frekar um fyrirkomulag þess framvegis. Reykjavík, 19. febrúar 1876. Fyrir hönd fjelagsstjórnarinnar //. Kr. Friðriksson. — Inn- og útborgun sparisjóðsins verður fyrst um sinn á skrifstofu land- fógetans á hverjum laugardegi frá kl. 4—5 e. m. Cí2r’ Kaupendur ísafoldar úr nærsveit- unum hjer við Reykjavík geta vitjað hennar í apótekinuhjá herra Brynjúlfi Jóhann- essyni, aðstoðarmanni apótekara. ísafold kemur út 2-r.líar A mánuhi, 32 bl. um Arib. Kostar 3 kr. árgangurinn (er- lendis 4 kr ), stók nr. 20 a. Sólnlaun: 7. hvert expl. Ársverbið greilist k kauptíð, eba þá halft k snmarmálum, hálft á haustlestom Auglýsinj;ar eiu teknar í blahih fyrir 6 a. smáleturs- línan eða jafnmikib rúm, en 7 a meh venjulegu megihmálsletri. — Skrifstofa ísafoldar er í Doktorshúsinu (í Hlibarhúsom). Uitstjóri: Björn Jónsson, cand Laudspretitsmihjan í Keykjavík. Einar pórðarson.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.