Ísafold - 15.12.1876, Blaðsíða 1

Ísafold - 15.12.1876, Blaðsíða 1
3 é a f o l fe. III 38* Frumefnin í vikrinni, er fjell á is- landi 29. rnarz 1875. Margir menn bafa ímyndað sjer, að í vikrinni, er fjell á íslandi 187 5, sje fólgin frjóvgunarefni, sökum þess, að það gras, er upp komst gegnum öskuskóflna, þótti bæði frjótt og kosta- gott. Fyrstu fregnir, er bárust frá Reykja- vík til Englands og Ilafnar í vor er leið með marz-póstskipinn, sögðn, að vikrin hefði orðið Austurlandi að fundnu fje, því aldrei hefði það staðið í meiri blóma, enda hefði gras þotið upp þar, sem aldrei hafði sjezt stingandi strá áður. |>að væri því auðsætt, að í vikr- inni væri mikið frjóvgunarmagn. Nú var það ljóst, að ef þetla skyldi reyn- ast satt, láu á Austurlandi miljónir vætta af þeirri vöru, er öllu landinu reið á að ná í: frjóvgandi áburðarefni. Eg ljet því leysa upp vikrina hjer i frumefni sin, til þess að vita vissu rnína á þessu efni, og fekk til þess G. D. Liveing, prófessor í efnafræði við há- skólann hjer, og eptir hans úrlausn eru þessi frumefni í vikrinni: Tinnuefni (silica) . . 63,2 afhundr. Alumina (brennisteinssúr leirjörð) . . . . 11,3 - Járnefni . . . . . 12,4 - Pottaska . . . . . 3,8 - Öskusalt (soda) . . 6,7 - Steinlím (fcalk) . . 2,7 - »Litlar drefjar flnnast af phosphorsýru, magnesium og mangan». Um pottöskuna, sem er hið eina frjóvgunarefni, er finnst í vikrinni, fer prófessor Liveing þessumorðum: «Það er með naumindum, að nóg sjeafpott- ösku í vikrinni til þess, að hún geti orðið að gagni sem áburðarefni, og til þess yrði vikrin að liggja mjög lengi í beru lopti. Potlaskan er hjer, eins og eg minntist á við yður um daginn, svo föst fyrir, að mörg ár hljóta að ganga til þess að leysa bana frá hin- um efnunum, sem í vikrinni eru». Munnlega gat prófessor Liveing þess, að tuttugu ár að minnsta kosti yrðu að ganga tii þess, að fá þetta litla frjóvgunarefni leyst úr vikrinni, Fað er þvf ráðgátulaust efni, að vikrin, sem fjell 29. marz 1875, heflr ekkert frjóvgunarefni í sjer, er nokk- urn tíma geti komið að notum, og öll fmyndan um frjóvgunarmagn hennar er alsendis ástæðulaus. Það eina, sem vikrin hefir gjört, er að skýla grasrót- inni við kali. Fað er allt og sumt. Menn skyldu því gjöra allt er gjört Föstudaginn 15. desembermánaðar. verður, að hafa vikrina brott af túnum sínum, því að þegar hún fer að verða vatni þrungin, sekkur hún í svörðinn, og verður þá bið mesta kuldaefni fyrir grasrótina. Cambridge, 9. okt. 1876. Eiríkr Magnússon. Austræna málið. Af almællum tíðindum er þess helzt að geta, að telja má að skriðið hafl svo til skarar milli Tyrkja og Serba, að hinir síðar nefndu fái engri vörn lengur við komið. Tyrkir hafa brotið víggarða þeirra og varnarvirki í Alorawadal, er Serbar höfðu verið að sperrast við að gjöra ótæk i marga mánuði. Her Serba er kominn á ringulreið og veitir Tchernaieff hið örðugasta að fá honum smalað saman. Serbar fá hið versla orð fyrir bleyði- skap í hinum síðustu bardögum. Rússar þeir, er gengið böfðu að sjálfs vilja í lið með Serbum «börðust eins og tígrar»; af þúsundi stóðu 300 heilir á velli eptir bardagaun, er skar úr leik í Moravadalnum. Sá bardagi stóð þar er Djunis heitir, lítið þorp í sunnanverðum dalnum, girt hæðum á alla vegu, sem voru rammlega vfg- festar. En rjett um það leyti sem Tyrkir unnu þenna sigur, neyddu stórveldin þá til, að gjöra vopnahlje við Serba. Eru nú sex vikna grið selt og búizt á allar hendur til að skapa frið með þeim fjendum þar eyslra. England hefir boðið stór- veldum Norðurálfunnar til samkomu í Constantinopel til þess að setja niður deilu Serba og Tyrkja, og meðfram til þess, að sjá borgið hag kristinna þegna Tyrkja um ókomnar tfðir. Til þessa stórveldafundar hefir drottning Breta kjörið sendiherra fyrir sína hönd mai-kgreifaun frá Salisburg, ein- arðan mann og lítt væginn, en vits- munamann mikinn og vel stilltan. Rússar þykja ekki hafa reynzt Serbnm sá bakjarl, sem látið var í öndverðri styrjöldinni að þeir mundu reynast. [>eir hafa látið sffellt í veðri vaka, að stigju Tyrkir þessu eða þessu feti framar á vígbraut sinni í Serbíu, mundu Rússar skerast í leikinn. En Tyrkir hafa stígið hvert fetið á fætur öðru, og hafa þá Rússar setið kyrrir sem áður; og nú hafa Tyrkir troðið Serba niður f leirinn svo þeir fá ekki risið, og enn silja Rússar hjá og láta málamiðlan koma lil friðarsamnings, í stað þess að hefja hið marglofaða sverð til befnda á íllþýði Tyrkja. En Rússland á ekki hægt um vik, sem stendur. Það á víða sökótt. Norðan frá Finnlandi og suður að Svartahafi býr það samtýnis við launfjendur að veslan, og þá verstu fjendur er sam- býli verður átt við: þjóðernisfjendur. Og hvar sem auga er rennt yfir ná- granna Rússlands getur hvergi nema fjandskap, þó undir friðarblæju gangi sem stendur. Enda sjest bezt, hversu raunbreyzkir beztu vinir þess eru í viðiögum, að keisarar Þýzkalands og 109 1890. Austurríkis, bandamenn þess , skuli ekki hafa sjeð sjer fært einusinni að leggja saman við Rússland liðsemd tíl bjarg- ar hinum svfvirtu kristnu trúarbræðr- um f löndum Tyrkja, og það þó að þegnar þeirra og þeir hati Tyrkjann sjálfir eins einarðlega eins og Rússar. Rússar eru því einstæðir og vinalausir og það vegna þess, að þeir eru ná- búnm sínum hinir ótrúustu til sam- býlis. J>eir senda æsinga-seggi á laun um Austurríki, Pólen og Slavalönd Tyrkja til að ala á óróa þessara Slava, er nú lifa allir f þeirri von að fá sett upp í Norðurálfunni eitt geysimikið Slavariki, er ráða skuli lögum og lof- um hins menntaða gamla heims. Iíeisarahirðin í Pjetursborg, einkum keisaradrottningin og ríkiserfinginn, er, svo að kalla, oddviti þessarar stefnu, og það fer ekki leynt, að rík- iserfinginn hefir með sjer öflugan flokk við hirðina, er stöðugt starfar að því, að gjöra Alexander keisara leiðan á stjórninni, og þannig að fá hann til að leggja af sjer stjórn í hendur syni sínum. Hvað eptir annað heyrast fregnir um það, að keisari ætli að segja af sjer, en jafnóðum deyja þær út aptur, og halda menn að Bis- marck eigi mestan þátt í því að af- stýra þessum ráðum; því það er kunn- ugt, að ríkiserfingi er Þjóðverjahati hinn mesti; enda draga þjóðverjar engar dnlar á það, að þaðan sje sjer úlfs von er þeir eyrum sjái, þar sem Cesare\vich(keisarason)sje. En jafnframt þessu fer illa fjárhagur ríkisins ; svo illa, að Rússland fær nú hvergi lán erlendis. Slðart i fyrra vor hefir það reynt að fá lán í Engiandi, Frakklandi og Hol- landi, en alstaðar hefir farið á eina leið, peningamennirnir hafa neitað að hætta fje sínu í vasa Rússa. Að- alástæðan er bæði það, að menn vita fyrir víst, að fjárhagur Rússa er í sjálfu sjer í fráleitu ólagi, og einkum það, að Slavaflokkurinn við hirðina mundi þegar nota lánið til að fá kom- ið af stað herhlaupi á Tyrki; því nú er svo að sjá, sem Rússum sje laus- ust hönd til vopna af öllum þjóðum Norðurálfunnar. Meðfram þessu öllu fer^ það, sem Rússlandi stendur mestur voði af, en það eru hin mörgu pólitisku launfjelög, sem eru dreifð um allt Rússland og ráða þar mörgu með meira afli en keisarinn sjálfur. þessi fjelög stefna öll að al- slavadæmi því, er áður var nefnt. En jafnframt því stefna sum að uppreist gegn keisara og keisaradæmi og að allsherjar slafnesku þjóðveldi. llið vold- ugasta þessara fjelaga er það, er Omla- dína heitir, og hefir miðnefndir um allt Rússland. þetta fjelag hefir lagt fram feikn fjár til styrktar fyrir Serba. Æfi þessara fjelaga er undarleg; þau eru vinir og fjendur stjórnarinnar undir eins. Þau slefna með sljórninni að því, að fá safnað öllum Slövum, er nú lifa undir ráðum þjóðverja, Austurríkis, og Tyrkja, í eina ríkisheild. En fara gegn stjórninni, er utn stjórnarskipun þeirrar ríkisheildar er að vjela. Þann- ig er Rússland sjálfu sjer sundurþykkt, er eðlilega í laun-fjandskap við nábú-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.