Ísafold - 30.04.1878, Side 2

Ísafold - 30.04.1878, Side 2
34 ÍSAFOLD til í landinu; því reynslan hefir sýnt, að kaupmenn hugsa meira um það, hve mikið af korni og öðrum vörum þeir muni fá borgað, heldur en um hitt, hve byrgir menn eru í hjeruðunum af vetr- arforða. Lögin, sem alþingi setti fyrir stofn- un kornforðabúranna, ímynda jeg mjer að mundu mega vera eitthvað þessu lík: LAGAFRUMVARP um stofnun kornforðabúra. 1. gr. í hverjum hrepp á landinu skal stofna kornforðabúr, svo fljótt sem því verður við komið. pegar kornforða- búr þessi eru fullstofnuð, sje í þeim að minnsta kosti ein tunna af korni fyrir hverja 20 menn í hreppnum. 2. g r. Hreppsnefndimar hafi alla umsjón kornforðabúra þessara, og láni út kom úr þeim handa mönnum og skepnum í bjargarskorti, sem borgist aptur með sama í næstu sumarkauptíð svo ávallt sje þá kornforðabúrið fullt, eptir að það er fullstofnað. 3. gr. Sýslunefndirnar skulu ept- ir uppástungum frá hreppsnefndunum semja reglugjörð, sem amtsráðið sam- þykki, er nákvæmar ákveði, á hve löng- um tíma að stofnun kornforðabúranna í sýslunni skuli fram fara og allt ann- að um tilhögun þeirra, sem þurfa þykir. 4. gr. Fje það, sem þarf tilstofn- unar og viðhalds kornforðabúrsins í hverjum hreppi borgist af hreppssjóðn- um. — Álíti menn mál þetta þess vert, að það ætti að fá framgang og kornforða- búr að stofnast í öllum hreppum lands- ins, ættu menn að senda um það bæn- arskrár úr sem flestum hjeruðum til næsta alþingis, og er þá óliklegt að al- þingi sinni því ekki, eða að það nái eigi fram að ganga á þinginu. En hins veg- ar er hverjum hreppi innanhandar að stofna hjá sjer kornforðabúr og haga því til eins og honum þykir bezt við eiga, eins og líka hver hreppur, sem vill, getur stofnað stærra kornforðabúr en hjer er ákveðið. Jón Guttormsson. Um áfenga drykki. „Varðar mest til allra orða að undirstaðan rjett sje fundin“. I. (Aðs.) Hvers vegna tala menn um bindindi og bindindisfjelög ? Er ekki skynsamlegast að neyta áfengra drykkja i hófi, og gleðja sig á þeim? Mundi Guð hafa skapað áfenga drykki og gef- ið okkur þá, ef hann ætlaðist ekki til að við notuðum þá eins og aðrar gjafir hans? — fannig hafa menn spurt og spyrja enn, og fæstir vita, hverju þeir eiga að svara. Margir álíta bindindið heimsku, eða að minnsta kosti sjervizku, því þeir álíta skynsamlegast að brúka áfenga drykki, þar eð þeir halda að Guð hafi skapað þá; — skapað þá til nautnar fyrir manninn. þeir kannast við að áfengir drykkir eigi að brúkast í hófi, svo eigi líka allt að brúkast, og ekkert sje svo gott að eigi megi mis- brúka það; en það verði að vera ætl- unarverk skynseminnar, að rata hófið í þessu sem öðru. feir taka það til dæm- is, að maturinn sje þarflegur, já ómiss- andi, þó geti maður jetið um of og þurfi að gæta þar hófs. Eggjárn og skotfæri eru manni þarfleg, enda ómiss- andi, segja þeir, þó þarf að hafa að- gæzlu og varúð í meðferð þeirra, svo maður skaði sig ekki á þeim. það er svo sem auðvitað, segja þeir, að ölföng geta skaðað mann, ef maður drekkur þau óhóflega, en maður á að stjórnast af skynseminni eins í þessu sem öðru. þannig tala margir, og þetta mun vera almennasta skoðunin á íslandi í tilliti til áfengra drykkja, og þessi skoð- un hefir ríkt og ríkir jafnvel enn i mörg- um öðrum löndum. En er þá þessi skoðun áreiðanleg, og rjett ? þ>essa spurningu verður hver og einn að leggja fyrir sjálfansig, sem nokkuð hugsar út í þetta mál; einkum allir þeir, sem hugsa um bindindi eða bindindisfjelög, því eins og það er nauð- synlegt, að maður sje sannfærður um, að bindindis-kenningin sje skynsamleg, áður en maður gengur í bindindi, eins ætti bindindi ekki að eiga sjer stað ef framangreind hófsemdar-kenning væri rjett. Til þess að geta tekið einhverja fasta stefnu í málinu, skulum vjer þá rannsaka kenningu hófsemdarmannanna, og byrja á að skoða, hvað hyrningar- steinninn undir henni er traustur. Vjer spyrjum þá fyrst: Hefir Guð skapað áfenga drykki, skapað pá til nautnar fyrir manninn? — Tilþess að svara þessu með gildum rökum þurfum vjer fyrst að rannsaka eðli áfengra drykkja. Allir áfengir drykkir eru gjörðir af vínanda (alkohol) og vatni. Vínand- inn er efni það, sem veldur hinum ölv- andi áhrifum allra þeirra, því vatninu er blandað saman við hann einungis til að deyfa áhrif hans.—Vínandinn mynd- ast við ólgu eða gang, sem hleypt er i efni þau, sem hinir áfengu drykkir eru tilbúnir úr. Eptir rannsóknum ýmsra efnafræð- inga er í hverjum 100 pottum af öl- föngumþeim, sem nú skulu talin, svo margir pottar af vinanda, sem hjer greinir: I venjulegu kornbrennivíni . . 53,39 pt. — Rommi ............53.68 — — skozku „Whisky“ 51,60 — — írsku „Whisky“ . 53,90 — — Genever...........55,44 — — Portvíni..........23,00 — — Madeiravíni .... 22,00 — — Sherry............19,00 — — Champagni .... 12,50 — — Ale (almennt öl) . 6,50 — — hvítu öli........ 1,25 — 37u8 Áhrif hins ölvanda efnis (vínandans) íflestum, ef ekki öllum þessum ölíöng- um, eru mjög mögnuð með ýmsum vit- firrandi efnum, sem auk hans eru blönd- uð saman við þau. Nú skulum vjer þá skoða nákvæm- ar, hvernig vínandinn er til búinn, eða hvernig hann verður til. Ef maður upp leysir hreint sikur í hreinu vatni, þá gptur maður geymt þann lög lengi óskemmdan; en láti mað- ur nokkuð saman við af holdgjafa-kynj- uðum efnum (t. d. kjöti, blóði, eggja- hvítu, osti, brauðdeigi o. s. frv.), sem farin eru að rotna, þá verður fljótt sú breyting á, að sikrið hverfur, og kola- sýra myndast af þvi; lögurinn missir sinn sæta smekk, fær annað bragð og nú er komið fram í honum eða mynd- að nýtt efni; og það er vínandi.—þessi breyting kemur af ólgu, sem hin ho'd- gjafa-kynjuðu efni, nefnil. kjötið, eggja- hvítan eða súrdeigið, kveiktu í leginum. — Af því að þessi ólga kemur fyrir í vínberjunum, og menn hafa máske fyrst veitt henni eptirtekt í þeim, þá er hún kölluð vínólga. Olga þessi getur ekki myndast nema með vissum hita, nefnil. frá 12 V2 til 21 x/8 mælistigs á Reaumur. þar sem hitinn er minni, getur ekki vínólgan kviknað. Sje hitinn meiri, kem- ur að vísu fram ólga, en hún myndar þá ekki vínanda úr sikrinu, heldur „gummí“ og slik efni. í öllum jurta- vökvum og öðrum lagartegundum, sem hafa í sjer sikur, getur vínólgan mynd- ast, ef þeir standa við mátulegan hita, og ef þeir, eins og venjulegt er, hafa í sjer nóg af holdgjafa efnum til að mynda ólguna og viðhalda henni. þ>ann- ig getur vinólgan myndast í safanum úr eplum, perum, rúsinum, vínberjum, sikurrófum, gulrófum, sikurreyr, sikur- trje, birki, pálmatrje og fjölda mörgum öðrum ávöxtum, rótum og trjám; einn- ig getur hún myndast í mjólk og mörg- um tilbúnum sætum lagartegundum. Allar þessar lagartegundir má því hafa og eru hafðar til að gjöra úr þeim vín- anda. Vínandinn er samt einkum bú- inn til úr korntegundunum og úr jarð- eplum. þó að korntegundir ogjarðepli hafi lítið í sjer af sikri, þá hafa þær mjölefni, og mjölefnið getur við vissar kringumstæður breytzt í sikur. þessi breyting kemur ætíð fram í öllum korn- tegundum, þegar kornið springur út (þegar fræin skjóta frjóvöngum), eptir að þeim er sáð. — Á þeim tíma kemur fram nýtt efni í fræjunum, er kallað er „diastas“, og um leið breytist mjölefni þeirra í sikur* — Undirbúningurinn til *) Áður en fræin fara að springa út, er mjölefni þeirra samansett af 2 aðalefnum, sem ætluð eru hinni ungu jurt til næringar, þar til hún getur fóðrast af jörð og lopti. |>essi efni eru jurta- lím og línsterkja, og er jurtalímið líks eðlis og eggjahvíta eða ostefni, eða það hefir í sjer holdgjafa; en linsterkjan hefirísjer sömu frum- efni og sikur eða feiti, nfl. hefir engan hold- gjafa. í>egar fræið fer að springa út, breytast bæði þessi efni: jurtalimið verður að efni því,

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.