Ísafold - 29.08.1878, Qupperneq 4
84
ÍSAFOLD.
geta ekki ætíð verið skuldlausir, en
opt er það, að menn eru skuldlausir,
þegar þeir eru búnir að leggja inn,
en það er ekki 31. des. En þessar
skuldir sýnast oss ekki sjerlega voða-
legar fyrir kaupmenn, heldur trygging
fyrir áframhaldandi verzlun; en að lána
á lán ofan sýnist oss öllu ísjárverðara
og jafnvel óþarfi fyrir kaupmenn, án
þess að innheimta á því geþ þó veru-
lega staðið vöruvönduninni fyrir þrifum;
er það meining vor, að þeirri lánsverzl-
un geti þeir hætt, en ekki hinni: að
eiga ekkert útistandandi á Nýári.
Annað atriði væri líka efalaust
vöruvöndun vorri til framfara, það er
að sýning væri höfð á vöru og öðru
fieiru og verðlaunum heitið, ekki ein-
ungis fyrir eitt einasta afbragð af
hverri tegund, heldur einnig haft tillit
til fjölda og mikilleiks hlutarins; og
þetta atriði virðist oss liggja í verka-
hring Búnaðarfjelagsins í Suðuramtinu.
X.
I
— Með enska gufuskipinu „Cumbrae“,
er kom hing'að 26. þ. m., fijettist að
Gullbringu- og Kjósarsýsla væri veitt
cand. jur. Kristjáni Jónssyni.
Frá flestum pörtum landsins frjett-
ist, að bæði grasvöxtur og heyskapur
hafi gefizt betur en áhorfðist í vor. Má
víst fullyrða, að hvorttveggja hefir við-
ast verið í betra meðallagi, og sum-
staðar, sjer í lagi norðanlands, með
bezta móti.
Reykjanessvitinn. — Oss er
sagt, að vitabyggingin muni ekki verða
búin fyr en i nóvembermánuði.
í alþýðuskólanum í Flensborg voru
á síðastliðnum vetri í fyrsta bekk skól-
ans undir 20 börn, sem nutu tilsagnar
um 5 mánuði í þeim greinum, sem nú
skulu taldar: bóklestri, kristindómi,
skript og rjettritun, reikningi, dönsku.
Mörg börn í þessum bekk nutu fri-
kennslu. þar að auki veitti kennari
skólans, cand. þ>. Egilsson, nokkrum
unglingum tilsögn í dönsku, ensku, sögu
og landafræði, latínu og fleiru.
Eiríkur formaöur.
í Grindavik, í Selvog’ undir Dröngum
Og annars staðar víða hef jeg róið
þó á söltu hafi löðri löngum
Legið, skröltir enn þá gamla hróið.
Við mig hefir alda grá og glettin
Gnauðað haust og vor með ýmsu móti,
Svo ef kann að þykja karlinn grettinn,
Kemur það af ygldu sjáarróti.
Dymmraddaður, stúlkur, er eg orðinn
Af, að kalla gegnum rokið hvassa;
þegar skellur brim á þóptuborðin,
þá má kannske læra’ að fara’ í bassa.
Nú er hvergi jeg með nýtum talinn
Nísta verkir þrekað hold og lúið.
Fyrrum drengur einn, þó væri valinn,
Varla myndi á karlinn hafa snúið.
Sagt er, að mjer þyki sopinn góður,
Satt er það, og skal ei brestinn verja;
þyrstir hvern, sem þungan sækir róður,
Og þungt er gömlum landssynninga’
að beija.
Burtfararpróf af prestaskólanum tóku
dagana 17.—24. þ. m.:
1. Jóhann Lúther Sveinbjarnarson hlaut
1. aðaleinkunn 43 stig.
2. Grímur Jónsson hlaut 2. aðaleinkunn
39 stig.
3. Olafur Ólafsson hlaut 2. aðaleinkunn
37 stig.
4. þorsteinn Benediktsson hlaut 2. aðal-
einkunn 35 stig.
5. þorleifur Jónsson hlaut 2. aðalein-
kunn 33 stig.
Spurningar í skriflega prófinu voru:
TrúarfræSi. Hvaða gildi hafa krapta-
verkin, sem sönnun fyrir guðdómleg-
leika kristindómsins og í hverju sam-
bandi standa þau við kristilega opin-
berun ?
SiSafrœði. 1 hveiju er sannarlegt frelsi
fólgið samkvæmt kristindóm. og hvers
þarf einkum að gæta til að geta öðl-
ast það og haldið því?
Bibliuþýðing: Ephes. 4, 11.—16. incl.
Rœðutexti: Fil. 2, 1.—5.
Hitt og þetta.
Hreinskilni. Sagnaskrifarinn sænski Geijer
segir svo frá, að Karl XIV. Jóhann Svíakonungur
hafi sagt sjer, að hann fleirum sinnum hafi látið
Napóleon I. Frakkakeisara vita, að frá þeim degi
hann væri orðinn konungsefni Svia, væri hann ekki
lengur frakkneskur herforingi. Segist Geijer þá
hafa látið konung á sjer heyra, að sig furðaði á,
hve bermæltur hann hefði verið. — „Haldið þjer“,
svaraði konungur, „að maður komizt nokkra leið í
stjórnarmálefnum án hreinskilni ? “
— pað er eitthvert hið mesta mein vorra tíma,
að svo fáir geta haldið þeim kjarki og því sálar-
þreki, sem þarf til að hugsa frjálslega og breyta
eins og menn hugsa. Andlegt og siðferðislegt frelsi
hins einstaka er hneppt f fjötur af því, sem þeir
ætla, að sje vilji almennings. pegar svo er komið
og ófrelsið er orðið almennt, þá er allt lagt að jöfnu,
þá er enginn munur gjörður á rjettum og röngum
hugsunum, enginn munur á framsýnum og flasfengn-
um, á yfirboðnum og undirgefnum. Allt sligast
þá niður af hinum sama þunga og blaktar og hring-
snýst fyrir hinum sama vindi. J>á er ekki lengur
nokkur mannamunur; hinir seinustu leiða þá hina
fyrstu; því að hinir seinustu þrýsta á hina og reka
á eptir þeim, en eru sjálfir keyrðir áfram af hinni
ytri harðstjórn, sem þeir þjóna með ákafa og í
blindni. G u i z o t.
— þegar Xenokles kom til Abdera, þótti honum
stinga í stúf, hve lítil menntun þar var og litlar
framfarir bæði í andlegum og líkamlegum efnum í
samanburði við aðrar borgir, sem hann hafði heim-
sótt. Hann gat þessa við einn Abderu-búa. pessi
svaraði; ,.þú veröur þó að játa, að hjer eru meiri
V
málaferli en i nokkurri annari borgávorum dögum.“
— „Satt er það, kvað hinn við;“ en sama segir
Anacharsis um Scýtha, þá ómenntuðustu þjóð í beimi-
Póstskipið Phönix hafnaði sig' hjer
i dag kl. 4. Með því komu assessor
L. Sveinbjörnson, myndasmiður Sigfús
Eymundsson, fröken R. Sivertsen frá
Utskálum o. fl. — Bæjarfógetaembættið
í Reykjavík veitt Theódór Jónassen
sýslumanni i Mýra- og Borgarfjarðars.
Jón Sveinsson settur adjunct við hinn
lærða skóla. — Friðurinn er ekki trygg-
ur; því að Austurríkismenn mæta hinni
mestu mótspyrnu af Bosníumönnum.
Konungur vor, drottning hans og J>yri
dóttir þeirra eru á Englandi. Uppskera
ágæt í Danmörku, svo að liklegt er að
korn lækki í verði. Við kosningar til
parlamentsins á Englandi leit 21. þ. m.
helzt út fyrir að yngisstúlka ein Elin
Taylor yrði þingmaður í Southwark í
London, og er það áður óheyrt í sögu
mannkynsins.
Auglýsingar.
í alþýðu skólanum í Flensborg
verður á næst komandi vetri veitt til-
sögn í því, sem almennt er kennt í
barnaskólum. þar að auki verður, ef
nógu margir óska, veitt tilsögn í ís-
lenzku og rjettritun, reikningi, dönsku,
ensku, sögu og landafræði, allt fyrir
sanngjarna borgun. Húsnæði og kost-
ur verður útvegað þeim sem ganga á
skólann. f>eir, sem vilja láta börn eða
unglinga í skóíann, geta snúið sjer til
undirskrifaðs.
Görðum, 23. ágúst 1878.
pórarinn Böðvarsson,
oddviti slcólanefndarinnar.
Á skrifstofu biskupsins fæst ís-
lenzka biblían í sterku skinnbandi fyrir
4 kr. Fátæklingar geta fengið fáeinar
fyrir helming verðs.
Hinn 21. þ. m. árdegis, fundust
nokkrar krónur í peningum innvafðar
í pappir í verzlunarbúð Knudtzons stór-
kaupmanns hjer í Reykjavík. Sá sem
getur sannað upphæð þessara peninga
og að þeir hafi þar glatazt, má vitja
þeirra hjá undirskrifuðum faktor mót
fundarlaunum og borgun fyrir þessa
auglýsingu. Reykjavík, 22. ágúst 1878.
. N. Zímsen.
Tvenn vatnsstígvjel nýleg
með viðfestri leðurpjötlu, er á var ritað
„Jón Sveinsson Passagere til Seyðis-
fjord“ hurfu mjer undirskrifuðum í
júnímán. í sumar á ferð með „Díönu“
frá Reykjavík til Seyðisfjarðar. Sá,
eða þeir af farþegjum, sem kynnu að
hafa orðið varir við nefnd stígvjel í
plöggum sínum, eru beðnir sem allra
fyrst, að gjöra mjer vísbendingu um það.
fón Sveinss. á Seyðisfirði í Norðurmúlas.
Tapazt hefir af skötulóð korkdufl
með nálægt 30 faðma laungu tófæri
merkt ÁRNI M., og er finnandi beð-
inn að halda því til skila mót sann-
gjörnum fundarlaunum.
Sjóbúð á Akranesi, 23. ágúst 1878.
Arni Magnússon.
Ritstjóri: Grimur ThomserL, doctor phil.
Prentsmiðja „ísaíoldar“. — Sigm. Gnðmundason.