Ísafold - 04.09.1879, Qupperneq 3
r
og lýð, og vjer fulltreystum því, að samvinna
vor þennan stutta tíma með Yður, Herra,
muni þegar vera farin að bera heillaríkan á-
vöxt fyrir alda og óborna. En hitt dylst oss
eigi, að til þess vjer hefðum hin fullu not
frelsisgjafar Yðvarrar Hátignar, svo semþjer
hafið til ætlazt,þáer verksvið landshöfðingja
helzt of þröngt, og þó einkum forræði hans
yfir fjárhag vorum, þar oss er öll nauðsyn á
að verja öllu landsfjenu landinu til viðreisn-
ar og framfara, svo og of þröngt til þess að
landshöfðinginn geti fyllilega samið við þing-
ið, einkum í öllum fjármálum vorum. Yjer
horfum hughraustir og vonglaðir fram á hinn
ókomna tímann, og svo sem vjer nó að skiln-
aði finnum glöggt í huga vorum, að frelsis-
gjöfin, er vjer þegið höfum úr hinni rnildu
föðurhendi Yðvarrar Hátignar, samtengir oss
svo fast og innilega Yður sjálfum, ástsæli
Herra, og allri Yðvarri Konunglegu ætt, svo
væntum vjer þess og æskjum, að vináttu-
böndin og viðskipti vor við sambræður vora
og samþegna í Danmörku festist æ meir og
fari vaxandi með tíðari og hagfelldari sam-
göngum milli landanna.
Allramildasti Konungur! Neðri deild al-
þingis leiðir eigi hjá sjer við þetta tækifæri,
að minnastmeð hugljúfum samfagnaði þeirra
gleðiríku viðburða, er hin algóða forsjón hef-
ir á þessum samvinnutlma vorum látið Yður
í skaut falla og Yðvarri konunglegu ætt.
Allramildasti Konungur! Algóður Guð
blessi og varðveiti YðvarnKonungdóm, niðja
Yðra og alla Konunglega ætt, lönd Yðvars
veldis og þegna.
— Ávörpin bæði, er konungi voru send, eru rit-
uð með hendi Benedicts Gröndals, með mikilli list
og prýði.
Samþykktir um veiðar á opnum
skipum. Amtmaðurinn í Vesturamtinu
hefir 16. ágúst staðfest tvær samþykkt-
ir, sem gjörðar hafa verið fyrir ísafjarð-
arsýslu og ísafjarðarkaupstað samkvæmt
lögum 14. des. 1877 um ýmisleg atriði
er snerta fiskiveiðar á opnum skipum.
/. Um hákarlaveiðar á opnum skipum.
Enginn má á nokkru fiski- eða há-
karlamiði í ísafjarðarsýslu á tímabilinu
frá i.október til 15. febrúar skera nið-
ur eða sleppaísjóinn nokkru af hákarli.
II. Um fiskiveiðar á opnum skipum.
1. Enginn, sem stundar fiskiveiðar á opn-
um skipum, má á nokkru fiskimiði í
ísafjarðarsýslu á tímabilinu frávetur-
nóttum til sumarmála láta lóðir liggja
í sjó næturlangt.
2. Enginn má á nokkru fiskimiði í ísa-
fjarðarsýslu slægja eða afhöfða nokkra
fiskitegund á sjó úti, á tímabilinu frá
1. október til 1. apríl.
3. a. Á sama svæði má enginn á tíma-
bilinu frá i.desember til i.maí ár-
ið eptir brúka krækling til beitu.
b. Enginn má á tímabilinu frá 1. apríl
til 15. mai sama ár brúka síld í beitu
á framanskrifuðu svæði á lóðir.
c. Sexmannaförum sje leyfilegt að hafa
að eins 200 faðma af innsettum
hrognkelsanetum, en þriggja og
fjögramannaförum að eins 150
faðma.
«7
■ - ......... ■ 1 --1 . ■ 1" ■ ■ v —
í hverjum hrappi i ísafjarðarsýslu og
í ísafjarðarkaupstað skal skipa þriggja
manna nefnd á þann hátt, sem nákvæm-
ar "er ákveðið í samþykktunum, til að
gæta þess að samþykktunum sje hlýtt.
Brot móti samþykktunum varða sekt-
um frá 1 kr. til 100 kr. og til fellur
helmingur þar af gæzlunefnd, einn fjórði
hluti uppljóstrarmanni og einn fjórði
hluti sveitarsjóði.
Samþykktirnar öðlast gildi 1. októ-
berm. 1879.
Alþingiskosning í ísafjarðarsýslu.
Eptir brjefi frá ísafirði 15. f. m.: „por-
steini bakara porsteinssyni veittist sá
heiður, að verða eptirmaður Forseta,
sem þingmaður ísfirðinga; en hvorki
mun hann suður fara í þetta sinn nje
heldur mundi þingið hafa tekið gilda
kosninguna 8. þ. m. Kjörskrár vant-
aði úr 6 hreppum; kjörstjórnin tók við
atkvæðum handa utansýslumönnum, sem
eigi höfðu boðið sig fram, og einn henn-
ar kaus slíkan; og þegar allir höfðu
kosið, sleit kjörstjóri fundi, eptir að
hafa bókað og lýst yfir, að Gunnar
Halldórsson í Skálavik væri rjett kjör-
inn með 7 atkv. af 27. þ>etta var um
kl. 2, og fóru þá margir kjósendur burtu
úr bænum. En kl. 5—6 um kvöldið var
lýst yfir, að þ>orsteinn væri kosinn með
12 atkv. af 18. Hafði kjörstjórnin átt-
að sig, smalað saman nokkrum, og með
því sjálf að kjósa síðast o. fl. getað
komið löglegu nafni á kosninguna.
Ymsir hjer viðstaddir, sem greitt höfðu
atkvæði á fyrra fundinum, voru ekkert
látnir vita af hinum síðara. Annars var
ekkert kapp á þessum kjörfundi eða
áhugi, og á fyrra fundinum fengu 12
atkvæði“.
l)áið merkisfólk. Hinn 21. júlí
andaðist hjer í bænum húsfrú Kristín
Jónsdóttir, ekkja Sveins prests Bene-
diktssonar á Sandfelli í Öræfum, móðir
þeirra Benedikts sýslumanns Sveinsson-
ar og hans systkina, á níræðisaldri.
Snemma í f. m. andaðist Pjetur bóndi
Sívertsen á Höfn í Borgarfirði, úr lungna-
bólgu. Hinn 9. f. m. andaðist hjer á
Sjúkrahúsinu húsfrú Kristín Pálsdóttir
(prests Jónssonar í Víðivík), kona óðals-
bónda fyrrum alþingismanns Einars B.
Guðmundssonar á Hraunum í Fljótum,
og systir Snorra alþingismanns Páls-
sonar á Siglufirði. Lík hennar var flutt
norður á Díönu. fegar það var hafið
út frá Sjúkrahúsinu, 28. f. m., talaði síra
Matth. Jochumsson nokkur húskveðju-
orð, og flutti þessi erindi:
„Nú heim, í herrans nafni,
Frá hörðum næturstað! —
J>að dugar eigi að dvelja,
jpví Drottinn skipar það.
Stíg örugg hafs á öldu,
Guðs engill ræður för,
J>ú svífur sæl af bárum
Er sólin gyllir vör.
J>ú kvaddir hóp þíns hjarta,
Er heljar- nísti mein,
Ó, góða, blíða brúður!
J>á byrgði margur kvein:
Nú falla tár í Fljótum
J>ví fölnuð er sú rós,
Er Hraunum vegleg veitti
Sinn varma, krapt og ljós.
J>ú finnur hóp þíns hjarta
Á himnaríkis strönd,
Og læknir allra lýða
Svo ljúft þjer rjettir hönd.
Ó, góði, göfgi svanni,
J>á grær þitt banasár —
Far heil til föðurhúsa,
Far heil um eilíf ár!
Ó, stutta tíð til tára,
Ó, tæpa lifs vors skeið!
Sjá, ferjan er á floti,
Vjer förum sömu leið.
Ó, maki, barn og bróðir,
J>ó byrgi sorg þinn munn,
í gegn um dauðann dynur
Guðs djúpa kærleiks grunn“.
Matth. Jochumsson.
Prestaskólinn. Embættispróf frá
prestaskólanum tóku 18.—23. f. m. þeir
Einar Jónsson, með 1. eink., 45 tr.
Morten Hansen með 1. eink., 45 tr.
Jóhann J>orsteinsson með 1. eink., 43 tr.
Spurningar til hins skrifl. prófs:
í biblíuþýðing: Lúcas 22, 24—32.
í trúfræði: að útlista hina gnostísku
skoðun á persónu Krists, og meta
hann frá sjónartniði kristilegrar opin-
berunar.
í siðfræði: að lýsa eðli og kostum
sannrar vináttu, og gjöra grein fyrir
því með rökum, hvort kristindómur-
inn sje eptir anda sinum minna með-
mæltur henni, en hin heiðna fornald-
arspeki.
Ræðutexti: sálmurinn 23. allur.
Yeitt Ibraiið 27. f. m. Fell í Sljettu-
hlíð cand. theol. Einari Jónssyni; og
Lundarbrekka í Bárðardal 29. f. m.
síra Jóni J>orsteinssyni í Húsavik.
Prestvígsla. Sunnudaginn 31. f. m.
vígður til Fells í Sljettuhlíð cand. theol.
Einar Jónsson.
Settur lijeraðslæknir í Sigluíjarð-
arumdæmi 28. júlí cand. med. & chir.
Helgi Guðmundsson, frá 1. þ. m.
Útlendir ferðainenn. Meðalhinna
mörgu útlenda ferðamanna, er hingað
hafa komið i sumar, notandi hinar ó-
venjulega tíðu gufuskipsferðir, skal sjer-
staklega getið hins nafnkennda íslands-
vinar Willards Fiske, prófessors í Norð-
urlandamálum o. fl. við Cornell-háskóla
í bænum Ithaka í Bandarikjunum í
Vesturheimi, sá er sendi hingað hinar
miklu bókagjafir á þúsundárahátíðinni.
Hann kom með Camoens til Húsavík-
ur seint í júlí, og með honum annar
Vesturheimsmaður, ungur blaðamaður
og prentsmiðjueigandi, Arthur M. Reeves
að nafni, frá Richmond í Indiana. J>eir
ferðuðust fyrst víða um Norðurland,
komu hingað í miðjum f. m. og fóru
nú með Díönu umhverfis lancjið: ætla