Ísafold - 04.09.1879, Síða 4
88
síðan að dvelja hjer í Rvík til næstu
póstskipsferðar, 18. oktbr. Prófessor
Fiske talar og skrifar íslenzku, og föru-
nautur hans herra Reeves er einnig all-
fær orðinn í tungu vorri. í veizlu, sem
alþingismenn hjeldu landshöfðinga og
þessum góða gesti vorum, 24. f. m.
svaraði hann (prófessorinn) minni því,
er honum var drukkið, og Dr. Grímur
Thomsen mælti fyrir, á íslenzku, í löngu
erindi og fögru.
Einnig hafa ferðast hjer um land í
sumar þrír ítalir: Paolo Boggio riddari,
og tveir stúdentar frá háskólanum í
Túrín: Arturo Ceriano og Ludovico
Ceriano.
í»jóðvinafjelagið. Aðalfundur þjóð-
vinafjelagsins var haldinn á alþingi 23.
og 26. ágúst, undir stjóm varaforseta
fjelagsins, kaupstjóra og alþingismanns
Tryggva Gunnarssonar. í stjórn fje-
lagsins til næsta alþingis voru þessir
kosnir:
Forseti:
Varaforseti:
Forstöðunefnd:
Tryggvi Gunnarsson.
Grímur Thomsen.
(Magnús Andrjesson,
cand. theol.
‘ j Björn Jónsson, ritstjóri,
'þórarinn Böðvarsson,
prófastur.
Fundurinn fól hinni nýju stjórnfje-
lagsins sjerstaklega á hendur að rann-
saka reikninga þess um undanfarin ár
hin síðustu, og auglýsa svo greinileg
reikningsskil, sem auðið væri. Enn
fremur samþykkti fundurinn, að selja
mætti bókaleifar fjelagsins (Ný Fjelags-
rit o. fl.) með töluverðum afföllum.
Sömuleiðis var það lagt á vald stjórn-
arinnar, að selja aðra muni fjelagsins
(tjöld o. fl.), ef henni litizt það ráð.
Phönix, aðalpóstskipið, hafnaði sig
hjer 27. f. m. Með því kom adjunkt
Björn Magnússon Olsen, síra Guðmund-
ur Helgason, cand. theol. Steingrímur
Johnsen o. fl. —Með fyrri ferðinni, 27.
júli, sigldu hjeðan til Hafnar: frú Her-
dís Benediktsen og dóttir hennar fröken
Ingileif Benediktsen, konsúl C. P. A.
Koch, kaupm. W. Fischer, stud. theol.
Jón |>órarinsson, stúdentarnir: OlafFin-
sen, Bertel þorleifsson, Niels Lambert-
sen og Skúli Thoroddsen.
Díana, strandferðaskipið, kom hing-
að 2i.'f. m., frá Khöfn norðan og vest-
an um land með margt ferðafólk. Fór
aptur 2 q. um morguninn, með marga
alþingismenn, o. fl., austur fyrir land og
norður.
Camocns, hrossaskipið Slimons, fór
með 317 hross hjeðan 30. júlí; kom
aptur 27. f. m. norðan um land, og fer
í dag beiua leið til Skotlands. — Með
skipi þessu komu þessir farþegar 15.
júlí: frú Sigríður Magnússon frá Cam-
bridge, H. Magnússon, Hon. Emily Cath-
cart, Mrs. Morris, Mrs. I.axton, öll frá
London, J. F. Leatham frá Shrewsbury,
Mr. Hunt frá Cirenster, Dr. J. B. Dyer
frá Woolich, Mr. og Mrs. Craig frá Bel-
fast, Rev. G. D. Davenport frá Yar-
mouth, Mr. Hanold frá Birmingham, Mr.
og Mrs. Walst frá Manchester, A. G.
Taylor og M. H. Bobart frá Derby,
Miss Stuart, Mr. Stuart og A. Stuart
frá Edinburgh.
Auglýsingar.
fj'óðvinaíj clagið.
Fyrir árstillagið um árið 1879, 2
kr., fá þeir, sem eru í Tjóðvinafjelag-
inu, þessar bækur:
1. Almanak hins íslenzka jþjóð- S°j!1rve^ð'
vinafjelags um árið 1880 ... „35
2. Andvara, tímarit hins íslenzka
þjóðvinafjelags, V. ár, Rvík
i879 ........................ 1 30
3. Ágrip af Mannkynssögunni.
Eptir Pál Melsteð. Síðara
hepti. Rvík 1879............. 1 35
samt. 3
Bækur þessar hafa verið sendar
flestum útsölumönnum fjelagsins nú með
síðustu ferð Díönu, og verða sendar
hinum með fyrstu póstferð eða svo fljótt
sem ferð fellur.
þeir heiðruðu útsölumenn fjelags-
ins, sem eigi eru enn búnir að standa
skil á árstillögunum fyrir þetta ár eða
árið sem leið, þ. e. fyrir ársbækur fje-
lagsins, 2 kr. frá hverjum fjelaga um
árið, eru beðnir að gjöra það sem fyrst,
í hendur gjaldkera fjelagsins, cand. theol.
biskupsskrifara Magnúsi Andrjessyni í
Reykjavík.
Reykjavík, 1. sept. 1879.
Forstöðunefndin.
ÁCrllIP
af
MANNKYNSSÖGUNNI
eptir
Pál Melsteð
er ný komið út, frá ísafoldarprentsmiðju,
og fæst hjá bóksölum hjer í Rvík og víðar.
Kostar í kápu 2 kr., 70 a.
„Alþiiigisfrj' ettir“.
Blað þetta sem er viðaukablað við
þ. á. ísafold (VI. árgang), er nú allt út
komið, 19 númer (arkir) alls. Allir kaup-
endur ísafoldar fá það ókeypis, og eins
þeir, sem gjörast kaupendur að síðara
helming þessa árgangs hennar.
Undirskrifaður hefir fundið fstaða-
lausan, gamlan hnakk á veginum frá
Oskjuhlíð að Bústöðum. Eigandi get-
ur snúið sjer til mín eða Torfa þ>or-
grímssonar í Reykjavík, með því skil-
yrði að borga fundarlaun og auglýs-
inguna.
Bárður Nikulásson
frá Eyrarbakka.
Sökum þess að mikill sægur stóð-
hrossa úr fjarlægum hreppum, einkum
af Innnesjum og úr Reykjavík, safnað-
ist þegar á sumri þessu öndverðu að
slægjulöndum nokkurra búenda hjer í
sveitinni, og gjörði stórtjón á engjum
manna og jafnvel túnum, — enþeir, sem
urðu fyrir þessum usla, treystust eigi
að leggja mannafla til að verja slægjur
sínar —, sáum við sem stjórnendr hrepps-
ins okkur ekki annað fært, en að sinna
kvörtunum þessara hreppsbúa, og álit-
um rjettast að verja þá tjóninu með því,
að fjarlægja stóðhrossin frá engjum
manna og túnum. Beiddum við því prest-
inn á þingvöllum, að Ijá stóðinu haga
í þingvallakirkjulandi, fyrir innan Ar-
mannsfell, og leyfði hann stóðinu land-
ið móti lítilli borgun fyrir haga; ljetum
við svo smala stóðinu úr heimalöndum,
og reka í hið leyfða land. Vegnaþessa
tilkynnist öllum eigendum þessara stóð-
hrossa, að við munum láta smala hross-
unum til þingvallarjettar þeirrar, er
haldin verður 29. sept. næstkomandi.
Verða þá eigendur hrossanna að hirða
eða láta hirða þau, og borga leitarkaup
og hagatoll fyrir hvert hross með 1 kr.
33 a., sem skal gjaldast okkur undir-
skrifuðum, þegar er hrossin eru tekin
úr rjettinni. þ>au hross, sem engin hirð-
ir, verða meðhöndluð sem óskilahross
samkvæmt landslögum og landsvenju.
J>ingvallahreppi, 15. ágúst 1879.
Gísli Daníelsson, Jónas Halldórsson,
hreppstjóri. hreppsnefndaroddviti.
o
.5?
’co
0
1——t
d
0
C
«S
0
m
T3
fl
cS
m
•iH O
CÖ +3 fl
iJO T3
fl O
•|H u
rH P4
fl
cð
rfl
O
Fr
fl
o
•iH
m
m
O V.
O 2
u
. o
u
ft 0
rQ
Q
27
rÖ
fl
tí
o
cð
tí
>
X
C
0
■i
RS" par eð jecj fer utan 5. þ. m., eru þeir,
sem vilja koma greinum í ísafold meðan jeg
er fjarverandi, beðnir að senda þær til herra
Db. phil. Gríms Thomsen á Bessastöðum.
Auglýsingum veita þeir viðtöku: cand. theol.
Magnús Andrjesson og amtsskrifari Páll Jó-
hannesson.
Aðalútsölu og útsending blaðsins annast
amtsskrifari Páll Jóhannesson, sem býr í
húsum Hlutafjelagsverzlunarinnar hjer í bœn-
um. Andvirði blaðsins skal því greiða í hend-
ur honum.
Beykjavík, 1. septbr.
Björn Jónsson,
útgefandi Isafoldar.
Ritstjóri: BJörn Jónsson, cand. pliil.
Prentuð með hraðpressu Isafoldar-prentsmiðju.