Ísafold - 08.05.1880, Síða 1

Ísafold - 08.05.1880, Síða 1
í S A F 0 L D. VII 12. Reykjavík, laugardaginn 8. maímán. 1880. JJjSF’' II. blað ísafoldar er dagsett „7. aprílmán.11 i staðinn fyrir: 8. maímán. (i dag). Um kynbætur á íslenzkuin fjárstofni. (Eptir Svein Sveinsson). Af 7. númeri ísafoldar, 13. marz þ. á., sje jeg að búnaðarfjelag suðuramts- ins hefir ákveðið að útvega skyldi í sumar hið svo nefnda skozk-norska fjárkyn frá vesturströnd Noregs til kynbótar hjer á landi, og er sagt að þetta muni vera gjört að ráðum síra Guðmundur Einarssonar á Breiðaból- stað vestra. Af þvi jeg er töluvert kunnugur þessu fjárkyni sem hjer er um að ræða, og líka hinu íslenzka fjárkyni, ætla jeg að leyfa mjer að fara fáeinum orðum um þetta málefni. petta svonefnda skozlc-norska fjár- kyn er blendingur af hinu nafnkenda skozka útigángsfje, hinu svokallaða ‘Svarthöfðakyni' (the black-faced sheep) og hinu innlenda norska fjárkvni. J>að var árið 1859 að hin fyrsta tilraun var gjörð með að innleiða þetta fjárkyn í Noregi. Sá sem fyrst byrjaði á þessu var Agronom Jóhann Schumann á Alder í Sunnfirði, sem er kunnur sumum hjer á landi af ritum sínum. Hann dvaldi í Skotlandi á árunum millum 50 og 60 til að kynna sjer þar búnað og eink- um fjárrækt, og var kominn til þeirrar niðurstöðu, að þetta sama fjárkyn sem er svo arðsamt fyrir fjallabændurnar á Skotlandi, mundi líka geta orðið eins nytsamt fyrir landa sína heima í Nor- egi, í stað hins kveifarsama og arðlitla fjárstofns, sem Norðmenn hafa. Nú í 20 ár hefir hann gjört tilraunir með þetta fjárkyn á nokkrum eyjum á vesturströnd Noregs fyrir norðan Björg- vín, einkum á eyjunni Alden, hvar hann hefir búið þessi seinustu 14—15 ár. J>etta fjárkyn hefir reynzt rjett vel, hefir þolað vel veðurlagið og gefizt vel við blöndunina saman við hið norska. það er þess vegna sjálfsagt rjett fyrir Norðmenn að koma þessu fjárkyni upp hjá sjer, í stað hins, sem þeir hafa áður, en það er allt annað spursmál um það, hvort það er nokkur arður fyrir oss að flytja þetta fjárkyn til íslands og blanda því saman við vort. Sumarið 1871, frá því. í apríl og þángað til seinast í október, dvaldijeg á Alder hjá Schumann til að kynna mjer fjárrækt hans, svo jeg þekki hana og fjárkynið nokkurnveginn. Schu- mann hefir 30—40 fjár, mestan part hreint svarthöfðakyn, en fátt af blönd- uðu kyni, þar á móthafa menn allvíða þar í kring blandað fjárkyn síðan Schumann hefir getað farið að selja nokkuð burtu af sínu eigin. Eyjan Alden er eiginlega einn fjallshnjúkur, sem rís upp úr sjávardjúpinu hjer um bil hálfa aðra milu undan landi, út af Sunnfirði, um 25 mílur fyrir norðan Björgvín, með litlu flatlendi í kring, grasi vaxin, klettótt, um 2000 fet á hæð og prýðilega vel löguð fyrir úti- gangsfje. Hún liggur einungis fáein- um mælistigum norðar en Skotland, er umgirt af sjónum á allar hliðar, hefir beztu hagbeit og liggur bæði til fjalls og fjöru. það er þess vegna ekki undarlegt þó fjárkynið geti haldið sjer, þegar kringumstæðurnar eru hjer um bil hinar sömu og heima á Skotlandi, en það er hætt við að öðruvísi færi, ef ætti að flytja það til íslands. þar næst er að lýsa fjárkyninu sjálfu. J>að er kallað svarthöfðakyn, því það er einkenni þess, að það er annaðhvort alsvart, ellegar svartdröfnótt í framan, og aptur á hnakka, fæturnir allt upp að knjám eru líka eins á litinn, ullin er aldrei vel hvít, en svipuð því eins og hún hafi legið um tíma í kolareik. Fjárkyn þetta er hornótt, hefir stutta rófu og er fjörugt, og fallegt í vaxtar- lagi. Ullin er ekkert betri eða meiri á þessu fjárkyni en á voru eigin, að jafnaði 2—3 pund væri hún þvegin, og sæmilega togmikil. Ketið vegur þetta frá 46—50 pund af sauðum í betra lagi. Mörinn er oftast lítill, hjer um bil 12— 20 merkur. Skozk-norska kynið (hið blandaða kyn) er minna. Að beztu sauð- ir og fullorðnir hrútar leggi sig oft betur, það er sjálfsagt, en miðlungs vigtin af ketinu verður undir 50 pund- um, allt svo lakara en okkar eigið. það er hjer, að sira Guðmundur, ísínu ágæti riti um sauðfjenað, misskilur Schumann og fer áttavilt í fjártegund- unum. Hann segir nefnil. að Schumann telji reifi af rosknum ám 8—10 marka og af geldum sauðum 10 til 14 marka. J>ar næst telur hann ketið af roskinni ær 50—70 pund og fullorðnum sauðum og hrútum 70 til 90 pund. Schumann talar hjer nefnil. ekki um sitt eigið fjárkyn svo sem sira Guðmundur hyggur heldurum “Chevi- ots“ fjárkynið, sem er töluvert stærra en hitt og á heima á Chevíotsfjöllunum millum Englands og Skotlands. J>að hefir á seinni árum verið flutt til Nor- egs, en Schumann hefir ekkert af því fjárkyni; þetta kyn er ullarbetra en hitt, en þolir ekki mikla hörku. J>ar sem Schumann talar um sitt eigið fjár- kyn, þá segir hann, að ærnar gefi 6—8 merkur af óþveg. ull, og sauðir og hrútar 8—12 merkur, einnig að ketið af sauð- unum sje 36—54 pd., og er það meðaltal, en aðþað getigengið uppúr 72 pd.er alveg eins og afbragðssauðir hjá oss geta gefið 80—90 pund af kjöti. Hið norska pund er heldur ekki svo þungt sem hið danska, og nýrnamörinn og nýrun fylgja venjulega með í kjötvigtinni erlendis. Maður getur þess vegna sjeð af þessu, að það er ekki mikill ábati fyrir oss að flytja þennan fjárstofn til ís- lands, því hann er eiginlega rýrari og lakari en okkar eigin. t. a. m. fyrir austan og norðan, og væri nær að reyna að bæta vort eigið fjárkyn eptir því sem hægt er, og útbreiða beztu fjártegundirnar sem viðast um kring. Fyrir utan kostnaðinn, (líklegast minnst 60—70 kr. fyrir hvern hrút þeg- ar hingað er komið), er það enganveg- inn áhættulaust að flytja hingað fje frá Noregi vegna ýmissa kvilla sem kunna að koma með; einmitt á þessu svæði í syðra og nyrðra Björgvinaramti gengur kláðinn stöðugt, og er reiknað að sá kvilli kosti þessi tvö ömt um 120,000 kr. það gengur' líka bráðapest hjá Schumann á hverjum vetri, en hvort það er hin sama sem er innlend hjer, er ekki gott að vita. |>ess víðar sem jeg kynnist kvikfjár- tegundum erlendis, þess betur og bet- ur sannfærist jegum það, að vjer mun- um engan ábata hafa á innflutningi eða blöndun útlendra kvikfjártegunda saman við vorar eigin. Af öllum úti- gangsfjártegundum (og annarskonar fjárkyn borgar sig ekki hjer) bæði í Noregi, Danmörk, Svíþjóð og Skot- landi, er vort eigið íslenzka fjárkyn hið bezta. J>að sama má líka segja um kúakynið hjá okkur að það er á- gætt í sjálfu sjer, og að tiltölu betra en víða annar staðar með allri þeirri van- hirðingu, sem það verður þó fyrir. Ekki mundum vjer heldur hafa neinn ábata á því að skipta um hestakynið eða blanda því saman við stærra kyn að minnsta kosti ekki á meðan vjer ekki höfum vagna og akbrautir. f>að hrossakyn, sem vjer höfum, er eins og það sje skapað beinlínis fyrir þær kringumstæður, sem hjer eru fyrir hendi, það er sterkt, þolgott og heimtar ekki, og nýtur heldur ekki góðrar meðferð- ar. þ>að er skynsamfegast fyrir oss

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.