Ísafold - 18.08.1880, Page 2
78
hina flokkana báða saman, hægrimenn
og- vægðarmenn, og er hið nýja frum-
varp nú langt á leið komið í fólks-
þinginu og þar með hólpið, því lands-
þingið vita menn að lætur sjer það vel
líka.
Georg Grikkjakonungur er nú hing-
að kominn i kynnisferð til foreldra sinna,
og drottning hans Olga einnig frá Pjet-
ursborg.
Náttúrufræðingafundur í Stokkhólmi
7.—14. þ. m., frá öllum Norðurlöndum,
um 700 manns.
Kböfn, 31. júlí 1880.
þúnglok hjer 24. þ. m., loksins, eptir
nær 10 rnánaða þingsetu, eða 293 daga,
og er það meira en dæmi finnast til
bæði hjer og annarstaðar; langlengsta
þingseta ríkisþingsins önnur en þessi
hefir verið 243 dagar (1866—67). I
grundvallarlögunum er eigi gjört ráð
fyrir lengri þingsetu en í 2 mánuði.
Til þess fyrir fám árum var þingkostn-
aðurinn rúml. 200,000 kr. á ári að með-
altali; nú komst hann fram undir
800,000 kr. J>ó eru dagpeningar þing-
manna eigi hærri en fyr: 6 kr.
Attatíu og fjögur lagafrumvörp hafði
þetta langa þing til meðferðar: 63 frá
stjórninni, 21 frá þingmönnum. þujátiu
og níu náðu fram að ganga, þar á með-
al ekki nema 2 af þingmannafrumvörp-
unum.
Höfuðárangur þingsetunnar eru ný
herlög tvenn: fyrir landherinn og sjó-
herinn, sem hafa verið að hrekjast á
þingi í 7 ár samfleytt, sakir andróðurs
vinstrimanna, og varð nú sundurlyndi
þeirra lögunum til bjargar á endanum.
Stjórnin og hennar lið, hægrimenn, eiga
þar góðum sigri að hrósa, þótt nokk-
urs þyki á vant. Frumvarpinu um
landherinn lá við falli hvað eptir annað
fram undir þinglok, þar til er málið
komst í samþingisnefnd, og „vægðar-
menn“, þá er þar fjekkst ekkert sam-
komulag, bjuggu til nýtt frumvarp, við-
auka við hin eldri herlög, sem síðan
var rætt og samþykkt í snatri, þing-
skapalaust, og lokið við þinglausnar-
daginn. Eptir lauslegri áætlun verður
kostnaðurinn til landhersins eptir hin-
um nýju lögum rúml. 200,000 kr. meiri
en áður, eða nál. 8% milj. kr. á árialls;
til sjóhersins og sjóvarnanna ganga 5
—6 milj. kr. á ári. þ>að sem stjórnar-
mönnum þykir enn á bresta, til þess að
landið megi heita vel við búið ófriði,
er, að herskipastóllinn sje aukinn tölu-
vert’ og Kaupmannahöfn viggirt. Víg-
girðing Kaupmannahafnar er ætlað að
mundi kosta um 42 milj. kr., að með-
töldu kastalahverfi utan víggarðsins, á
sjó og landi. Garðurinn verður um
40,000 álnir á lengð; hann þarf nefni-
lega að vera rúmlega 1 mílu fyrir utan
borgina, af því að fallbyssur eru nú
orðnar svo langdrægar. þetta er nú
að vísu eigi komið fengra en á papp-
írinn enn, í blöðum og bæklingum.
Önnur merlc lög frá þessu þingieru
víxlbrjefalög, til orðin með samtökum
við Norðmenn og Svía, svo að nú ganga
ein vixlbrjefalög yfir öll Norðurlönd;
lög um umsjón með sparisjóðum; um
fjárforráð giptra kvenna; um lánstofn-
anir handa jarðeigendum hinum smærri.
Nýdáinn erhjer Buntzen yfirlæknir,
um sjötugt.
Tyrkjasoldán hefir færzt undan að
gegna áskorun stórveldanna frá Ber-
línarfundinum viðvíkjandi landaþrætu-
málinu við Grikki. Svar frá þeim apt-
ur heyrist ekki getið um enn þá. Tal-
að um, að þau muni Ieggja saman í
flotaleiðangur á hendur Tyrkjum, til að
ógna þeim, eða þá meir; en þeir hafa
viðbúnað eptir föngum til fands og
sjávar. Margar spár um, að nú dragi
að þeirra skapadægri. Öll von þeirra
er á því byggð, að samheldni stórveld-
anna þrjóti, er til kastanna kemur, enda
hefir það fyr orðið þeim til bjargar.
Abdurrhaman prins hefir tekið ríki í
Kabúl í Afganistan með samkomulagi
við Breta, og bjuggust þeir því til að
snúa á braut þaðan með lið sitt og fá
þannig lokið ófriðnum. En í sama
mund skall á þá hríð úr annari átt, frá
Ayub, jarli í Herat, útnorðurfjórðungi
landsins (Afganistans), bróður eða ná-
frænda Jakobs konungs. Hann hafði
haft liðsafnað, Bretum að óvöru, rjeðist
að einni höfuðsveit þeirra hjá Kanda-
har, og vann hana i skæðri orustu.
þ>essi tíðindi eru nýorðin, og því eigi
sannspurt um manntjón Breta, en mikið
orð á því gert. þ>eir búa nú lið af nýju,
bæði frá Indlandi og heiman frá Eng-
landi; verður því að líkindum enn langt
að bíða endaloka þessa ófriðar.
Belgar halda í sumar þjóðhátiðmikla
til minningar þess, að liðin er hálf öld
síðan þeir brutust undan Hollendingum
og urðu sjálfum sjer ráðandi. jpeim
hefir vegnað prýðilega síðan, eins og
kunnugt er, og stjórn landsins farið svo
vel úr hendi, að fyrirmynd þykir.
Rochefort hamast í París gegn
Gambetta og stjórninni, en fær svo lít-
inn byr, að lítill eða enginn uggur
stendur af honum. fjóðhátíðarhaldinu
var haldið áfram marga daga eptirþann
14., bæði í París og annarstaðar; Gam-
betta mestur hrókur alls þess fagnaðar.
Fornleifafjelagið.
þ>ann 2 ágúst þ. á. var haldinn árs-
fundur í fornleifafjelaginu- Fundurinn
byrjaði með því að varaforseti fjelags-
ins Sigurður Vigfússon hjelt fyrirlestur
um hinar síðustu rannsóknir fjelagsins
á Kjalarnesi, Hvalfjarðarströnd, Geirs-
hólma, o. fl. A Kjalarnesi var skoð-
aður Leiðvöllur þar sem elzta Kjalar-
nesþing á að hafa staðið, sömuleiðis
Hof á Kjalarnesi. Síðan skoðaði hann
Harðarhólma, mældi hann og tók landa-
brjef af honum, og er hólminn 250 fet
á lengd og 100 fet á breidd, síðan skoð-
aði hann alla þá staði á Hvalfjarðar-
strönd, sem við koma ILarðarsögu, og
reyndist lýsing sögunnar á þeim hin
nákvæmasta. Síðan skoðaði hann „blót-
húsið“ á J>yrli, tók fyrst teikningu af því
eins og það leit út áður en gröftur var
byrjaður, og Ijet svo grafa út alla tópt-
ina að utan og innan. Hún hafði öll
forn kennimerki. Hún er 57 fet á lengd,
og 17 fet á breidd, hvorttveggja út á ytri
hleðslur. Afhús er í öðrum enda húss-
ins og engar dyr á milli; á aðalhúsinu
eru dyr á hliðvegg nær öðrum enda,
og á sama hliðvegg eru útidyr á af-
húsinu. Grjótbálkur (stallur) fannstíaf-
húsinu, á móti dyrunum, og fannst
beggja megin við hann öskuþró, og
nokkuð af ösku, hrosstennur fundust
í öskunni. Blótsteinn sem á að hafa
verið í hofinu, fannst í bæjarveggnum á
jpyrli, hann var tekinn úr^veggnumog
iriynd tekinn af honum. I blótsteininn
er haglega klappaður lítill kringlóttur
bolli 4 þuml. að þverrnáh og 2 :/2 'buml.
á dýpt. Annar blótsteinri, sem kallað-
ur er, fannst í botni upp frá Hvaifirði
þar sem Geir bjó, fóstbróðir Harðar. Af
honum var einnig tekin mynd.
Síðan skýrði forseti fjelagsins, Arni
landfógeti Thorsteinsson, frá aðgjörðum,
ástandi og fyrirætlun fjelagsins næsta
ár. I fjelaginu hafa verið haldnir 6
fyrirlestrar, og hjelt Sigurður ,Vigfús-
son 4. en skólakennari Björn Ólssen 2.
Fjelagið hefir látið grafa á Júngvöllum,
eins og kunnugt er, og látið taka mynd
af Almannagjá eins og hún lítur út frá
Lögbergi, ennfremur hefir verið rann-
sakaður allur hinn forni farvegur Öxar-
ár, og er það fullsannað, að henni hefir
verið veitt í Almannagjá og á fingvöll,
eins og Sturlunga og Landnáma segja.
Aður rann hún út fyrir neðan Brúsa-
staði og Kárastaði, þar út hraunið, og
í Ölfusvatn fyrir utan Skálabrelcku.
Enn fremur hafa verið skoðaðir allir þeir
staðir, sem getið er um í_ Harðarsögu
kringum þfingvallavatn á Ölfusvatni og
víðar, einnig Dráttarhlíð sem kölluð er,
og liggur fram með Sogi. jþetta eru
þær helztu aðgjörðir fjelagsins, þá 8
mánuði sem það hefir staðið.
I fjelagið hafa gengið 19 fjelags-
menn með 25 kr. tillagi og 158 með 2 kr.
tillagi. jþar á meðal 18 konur, svo hefir
fjelagið fengið þetta ár 200 kr. styrk til
vísindalegra fyrirtækja. Fjelagið ætlar
að gefa út tímarit um fornfræðileg efni,
sem á að koma út síðast á þessu ári,
og fá fjelagsmenn það ókeypis; það
er áform þess að láta rannsaka hina
fornu hauga við Plaugavað hjá Traðar-
holti í Flóa, Goðahól við Flateyri, Borg-
arvirki í Húnavatnssýslu o. fl.
Svar
til yfirkennam H. E. Friðrikssonar.
Yfirkennari H. K. Friðriksson hefir í
blaðinu ísafold VII, 16. og 17. tölublaði,
tekið til máls af nýju til þess að styðja skoð-
anir sínar um íslenzka stafsetning 0. s. frv.
Eg er eigi hræddr um, að frœðimenn utan-
lands muni leggja mikinn trúnað á kenning-
ar hans og að því leyti eru þær eigi hættu-
legar, enn öðru máli er að gegna um landa
mína. Margir þeirra munu ætla, að sámaðr,
sem kent hefir íslenzku í meir enn þrjá tigi
ára, muni eigi fara með hégóma, þá er um
íslenzka stafsetning er að rœða eða yfir höf-
uð um eitthvað það, er snertir kunnáttu í ís-