Ísafold - 11.06.1881, Síða 2
50
1. 48. gr. Sfjórnarskrdartnnar, er svo
hljóðar:
Sjerhver sá, sem tekinn er fastor, skal
leiddur fyrir dómara svo íljótt, pom auð-
ið er. Megi þá ekki jafnskjótt láta hann
lausan aptur, ber dómaranum--------í
seinasta lagi áður en 3 dagar sjeu liðnir
frá því, að sá, sém tekinn er fastur, var
leiddur fyrir dómara, að leggja áúrskurð,
er byggður sje á tilgreindum ástæðum,
um hvort hann skuli settur í varðhald,
og megi láta hann lausan móti veði, þá
skal ákveðið í úrskurðinum, hvert eða
hversu mikið það skuli vera.
Úrskurði þeim, sem dómarinn kveður
upp, má sá, sem í hlut á, þegar skjóta
sjer í lagi til æðra dóms.
Engan mann má setja í gæzluvarð-
hald fyrir yfirsjón, er að eins varðar fje-
sekt eða einföldu fangelsi. (sbr. 130 gr.
hegningarlaganna).
2. 127. gr. hegningarlaganna.
Ef að rannsóknardómari í sakamáli beitir
ólöglegri þvingun til þess að kúga mann
til játningar eða sagna, þá varðar það
einföldu fangelsi eða cmbœttismissi, eða
sektum, ef málsbætur eru.
3. 128.gr. hegmngarlaganna.
Dómara, sem setur eða lætur setja mann
í fangelsi ólöglega, eða heldur honum þar
að ólögum lengur en vera ber, skal refs-
að með einföldu fangelsi ekki skemur en
mánuð, eða með embœttismissi, ef að verk
hans ekki er svo vaxið, að þyngri refsing
hggi við því.
4. 129. gr. hegningarlaganna.
Hver sá embættismaður, sem að ólögum
setur mann fastan, rannsakar heimili
hans, eðatekur til sín brjef eða önnur
skjöl og rannsakar þau, eða lætur gjöra
nokkuð af þessu, skal sæta sektum eða
einföldu fangelsi, eða missa embœtti sitt,
ef miklar sakir eru til.
jón.
Afli hefir til þessa (snemma í júní-
mánuði) verið góður, og bætt vel upp
vetrarvertíðina, sem víðast hvar í inn-
verum reyndist litilfjörleg. þ>eir sem
ekki brúka lóðir, fá mestallt þorsk;
enda banna lóðirnar sig nú sjálfar, sök-
um beituleysis.
Sauðhurður hefir hjer nærlendis og
austanfjalls gefizt heldur illa, og lömb
farizt með mörgu móti; enda munu
ærnar hafa gengið illa undan, en gróður
lítill, þó vorgott væri í aprílmánuði, sjálf-
sagt vegna þess, hve mikill klaki var
og er enn í jörðu. I.ítur helzt út fyrir
að mór verði ekki tekinn upp, fyr en
um Jónsmessu, eða, ef til vill, á túna-
slætti. Eru þetta verstu afleiðingarnar
af hörðum vetrum, þegar skepnur ann-
ars tóra af.
Möðruvallaskólaliúsið varð í fyrstu
nokkuð dýrra, en um var samið, en
munar þó ekki því, að það sje nokk-
urt umtalsmál, ef húsið annars væri í
góðu lagi. En — oss er skrifað að
norðan, að það þegar í sumar muni
þurfa talsverðra aðgjörða við; „viður-
inn, sem í það var brúkaður, hafi ver-
ið grænn, húsið sje ekki laust við leka
o. fl.“; hafa sumir þeirra, sem þar búa,
kvartað yfir óþolandi kulda í vetur er
var, og er það nú raunar eðlilegt.
J>egar þeir þ>orsteinn umboðsmaður
Daníelsson og J. C. Stephánsson timb-
ursmiður sömdu áætlun sína um kostn-
aðinn við endurbyggingu hússins, að
meðtöldum notandi leifum hins brunna
húss, þá náði hún hjer um bil 27000 kr.
Húsið er nú, ef til vill, bæði stærra og
fyrirkomulagið öðruvísi, en þá var gjört
ráð fyrir, enda er það þegar orðið
dýrra, og verður miklum mun dýrra,
ef það nú þegar á að sæta nýrri að-
gjörð. J>ótt vjer sjeum sannfærðir um,
að sá maður, sem stóð fyrir endur-
byggingu hússins, hafi í þessu sem öðru
breytt eptir beztu sannfæringu, þá er
þó leiðinlegt, að nú þegar skuli þurfa
að umbæta húsið, og eru eflaust sumir
þeir þingmenn, sem kynoka sjer við
að veita fje á ný til þessa. En — allt
um það mun ekki verða hjá því kom-
izt, að veita það fje sem þarf, því bág-
ur búskapur væri, að láta nýtt hús
verða hrörlegt á fárra ára fresti.
Endurskoðun ísl. reikninga. Vjer
höfum heyrt, að sá maður, sem nú
hefir þessa endurskoðun á hendi, sje
ekki ánægður með þá póknun fyrir
hina umboðslegu endurskoðun, sem er
veitt á fjárlögunum með 2000 kr. á ári,
og að stjórnin muni ætla að biðja um
viðbót fyrir þetta starf. Vjer erum í
efa um, að þessi viðbót fáist, allra sízt
ef einhver annar hæfilegur maður væri
fáanlegur til að takast starf þetta á
hendur með þeim launum, sem því nú
fylgja. jþað getur verið viðsjált, að
ganga í upphafi að þeim kjörum, sem
bjóðast fyrir að leysa eitthvert verk af
hendi, en koma svo að vörmu spori og
heimta betri kjör. J>að gæti legið svo
í þinginu, að það reyndist hyggilegra
að fara ekki fram á meira fyrst um
sinn, en upphaflega var um samið.
En — máske þingið verði örlátt í sumar.
Brúin yfir Skjálfandafljót á að
leggjast í sumar, og hefir amtsráð
norður- og austuramtsins falið herra
Bald, sem nú stendur fyrir þinghúss-
byggingunni, að vera einnig þar fyrir
verkum. þetta er heppilega valið, þvi
það mun sannast, að þinghúsið lofar
meistarann. J>að mun eiga að byrja á
brúargjörðinni á mánaðamótum, eða
fyrst í júlímánuði; á að byggja stöpul
að minnsta kosti undir annan brúar-
sporðinn. Fáum vjer nú reynslu fyrir,
hvemig þessi brú gefst í vatnavöxtum
og jakaburði, og er gott að hafa feng-
ið þessa reynslu, áður en byrjað er á
stærri og dýrri brúárgjörðum. Brúin
á að leggjast skammt frá Goðafossi.
Kosningar til alþingis. í þessum
mánuði á að kjósa á ný 2 þingmenn
fyrir Árnessýslu. Hversu góð þing-
mannaefni, sem þeir tveir menn kunna
að vera, sem kosnir voru í fyrra skipt-
ið, þá er þingið þó þegar orðið svo
bírgt af prestum að æskilegt væri að
Árnesingar sendu að minnsta kosti
annan þingmanninn af öðru sauðahúsi,
en andlegu stjettinni. En sjer í lagi
væri áríðandi, að kjósa einhvern mann,
hverrar stjettar sem hann er, sem ekki
er eins og reyr af vindi skekinn, og
talar ekki eins og hver vill heyra, held-
ur veit hvað hann vill. J>ar sem þessi
kostur er góðri greind samfara, þar er
og bezta efnið í góðan þingmann.
Hafísillll mun að því er menn ætla,
vera horfinn, að minnsta kosti um sinn,
því sigling er, að sögn, komin, ekki
að eins á Eskifjörð, Vopnafjörð, Húsa-
vík og Akureyri, heldur og á Sauðár-
krók. Allt um það er veðuráttufarið
heldur kalsafengið og umhleypinga-
samt.
Aiutsráðskosningar í Suðuramtinu.
Kosnir voru þeir sömu og áður til næstu
6 ára : Dr. Grímur Thomsen amtsráðs-
maður, og kaupmaður Guðm. Thor-
grímssen á Eyrarbakka varamaður.
Arcturus fór hjeðan 3. þ. m., til þess
í þriðja sinn að reyna að komast norð-
ur um landið. J>að er vonandi, að
þetta megi nú heppnast. Með skipinu
fóru meðal annars amtmaðurinn í vest-
uramtinu til þess að halda þar amtráðs-
fund.
Fregn unx eldgos í Hekluhrauni,
sem um daginn barst hingað, er nú
borin til baka. Hafa menn að líkind-
um getið sjer til að svo væri, sökum
misturs, sem nokkra daga var í loptinu.
Síldarveiði. Yngismaðurinn ívar
Helgason í Flekkuvik, sem eptir ráð-
stöfun amtsráðsins í suðuramtinu, var
látinn fara til Noregs, til þess að kynna
sjer aflabrögð Norðmanna, hefir í vor
með litlu síldarneti aflað sjer svo mik-
illar síldar, að hann ognágrannar hans
hafa haft næga beitu, og aflað þorsk
afbragðs vel á hana. J>að væri, í þeim
beituskorti, sem nú er, óskandi, að þetta
yrði almennt tekið upp.
í Norvegi hefir í vetur verið góður
afli í Lófóten, en brugðizt í Finnmörk.
Kemur því ekki eins mikill fiskur á
markaðinn, eins og í fyrra. J>ettahlýt-
ur að liafa þau áhrif á saltfisksverðið
í sumar, að saltfiskur verði í hærra
verði nú en í fyrra. Sundmagi er að
stíga í verði bæði ytra og hjer, og
myndi stíga meira, ef hann væri betur
verkaður. Hann mun nú vera borgað-
ur hjer syðra með 8o-—90 a. pundið og
hær bráðum krónunni, eins og brenni-
vínspotturinn.
Elliðaáamáliii. Rannsóknarskjölin í
máli þessu eru nú komin til ráðherr-
ans. Sagt er, að ekki muni vera á-
stæða til að höfða opinbert mál móti
neinum þeirra, sem Jón landshöfðingja-
ritari Jónsson ljet setja inn, sem grun-
aða um „þjófnað“ (sbr. Stjórnartíð. 1880,
B. bls. 131). J>ví, eins og hver maður