Ísafold - 11.06.1881, Blaðsíða 3

Ísafold - 11.06.1881, Blaðsíða 3
51 vissi, var enginn fótur undir þessum á- burði H. Th. A. Thomsens. þ>að þarf því ekki að efa það, að nefndur kaup- maður verði lögsóttur fyrir rangar saka- giptir samkvæmt 226. gr. hegningarlag- anna. Saklaust fólk á ekki að liggja bótalaust undir þess konar meðferð. Uin sxirliey. (Tekið úr norsku tímariti.) Með þvi að það ber ósjaldan við á vætu- og rigningarsumrum, að meira eða minna af peningsfóðri liggur undir skemmdum eða spillist algjörlega, ann- aðhvort af því, að grasið verður ekki slegið fyrir sífelldum rigningum og rýrn- ar þannig að kostum óslegið, eða þá af því, að langvinnar rigningar og þerri- leysi tekur við, eptir að búið er að slá grasið—og er það reyndar miklu al- mennast og höfuðorsökin til skemmd- anna-—, þá virðist eigi illa til fallið að minnast á, hvernig farið er að búa til súrhey. þ>essi meðferð á heyi mun vera lítt kunn almenningi hjer á landi (þ. e. í Norvegi) og því síður, að hún sje al- mennt notuð. þ>að væri því æskilegt, að fleiri reyndu hana; þvf það er mín óbilug sannfæring, að hún mundi koma að mjög miklu gagni. þ>ar á móti hefir hún verið alkunn lengi í ýmsum öðrum löndum, þar á meðal t. d. á Frakklandi. þ>essi meðferð, heysúrsunin, á vel við, hvaða gras sem er og yfir höfuð við allt peningsfóður, sem mikill safi er í. |>ó á hún sjer í lagi við það fóður, sem illa þornar, svo sem smára, alls konar kál og kálkennt gras, og yfir höfuð allt stórgert og ólystugt gras; súrsunin gjörir það bragðbetra og mýkra og þar með auðmeltara. En líklegast kemur þessi aðferð sjer 'samt allra bezt við hána. Há er að jafnaði svo sein- slegin, að opt er mjög örðugt eða jafn- vel ómögulegt að fá nógan þurk á hana, því hún þarf hann mikinn. þ>ar að auki á og súrsunin vel við rófur og aðrar ætirætur, sem á að geyma vetr- arlangt, svo og kartöflur, ef þær eru sýktar, en þá er samt bezt að sjóða þær áður, enda er það gott ráð til að verja því, að sýkin aukist. Einfaldast og fyrirhafnarminnst er að hafa til heysúrsunarinnar tóman kjall- ara, ef hann er til. Sje það ekki, eða sje mikið úm að vera, verður kostnað- ariflinnst að grafa sjer til þess gryfju, um 3 álnir á dýpt og 4!/2 al. á breidd. Lengdina má hafa eptir hentugleikum, eptir því hvað heyið er mikið, sem súrsa á. Svo verður að verja hana vatni með afveizluskurðum og lokuðum ræsi í botninum. Hliðarnar verður að gjöra svo þjettar sem auðið er. þ>að er því bezt að grafa hana í leir eða leirkennda jörð, eða hafa leirlimda hleðslu í hliðunum. Sumir vilja jafn- vel hafa sement í hleðsluna. J>að mun þó þykja nokkuð kostnaðarsamt; en bezt verður það samt og vissast, það er ó- efað; þvi undir því er mest komið, ef súrsunin á að lánast, að lopt og vat/n komist sem allra minnst að heyinu. Að grafa heygryfjurnar í sandbörð, sem sumir hafa lagt til, verður sjálfsagt kostnaðarminnst; en þá kemst bæði lopt og vatn að heyinu miklu heldur, svo það er ekki hollt, nema þá að gryfjan sje hlaðin vel innan og þjett. J>egar heyið er látið í gryfjuna, eða hvaða fóður sem er, ríður á að þrýsta því mjög fast. Rófur eða þesskonar er bezt að brytja niður áður, til þess að það megi þjappa þeim betur sam- an. Sje fóðrið af ýmsu tagi, er bezt að rugla því sem bezt hverju innan um annað. J>að má gjarnan vera vott; það virðist jafnvel vera reynsla fyrir að það gefist bezt, að láta heyið niður í rigningu, svo það sje sem allra vot- ast. Til þess að heyið þrýstist sem bezt niður og lopt verði sem minnst í því, hafa margir það ráð, að láta einn eða tvo hesta traðka til og frá eptir gryfjunni, meðan verið er að láta í hana. Gryfjan er látin meira en barmafull. Ofan á heyið er látið vænt lag af hálmi (hjer mætti nota marhálm, þang, torf), og þar ofan á mokað mold, leir eða öðru hentugu efni, og lagið af því haft hjer um bil 11/2 fet á þykkt. J>essari mold- ar- eða leirþekju verður að þjappa vel saman, bæði að upphafi, og eins seinna, þegar fara að koma sprungur í hana af því að heyið sígur. — Gott er að sá dálitlu af salti í heyið um leið og það er látið niður, einkum þar sem langt er frá sjó; og er nóg að ætla 2 pund í 5 hesta af heyi af 10 fjórðungabandi, þ. e. 1 pd. af salti í 500 pd. af heyi. Nú hitnar í heyinu innan skamms, og á svo að vera, til þess að það komi gerð í það, en þá leysast næringarefn- in f fóðrinu, svo það verður miklu auð- meltara en ella. Eptir 10—12 daga er það svo orðið full-súrsað. Sje það ekki varið lopti nokkurn veginn, mygl- ar það og verður þá að einni ýldu- klessu með tímanum. f>egar fram á veturinn kemur og á að fara að brúka heyið, er tekið af öðrum endanum gryfjunnar og þekj- unni mokað ofan af jafnóðum og gefið er. Hafi þá rjett verið meðfarið frá upphafi, er heyið hjer um bil eins grænt og nýlegt að sjá og þegar það var nýslegið. Ylmandi er það ekki á lykt, sem sumir hafa sagt, en mjög vel láta skepnur við því og verða ólm- ar í það, þegar þær venjast því, enda mjólka þær hjer um bil eins vel af því og af nýslegnu heyi. Sýsluuiannaæfir eptir Boga Bene- diktsson, með skýringum og viðaukum eptir Jón jústitíaríus Pjetursson, I. h. 295. bls., yfirgrípur æfir valds-og sýslu- manna í Júngeyjar- og Eyjafjarðarsýsl- um. Rit þetta mun flestum virðast mjög fróðlegt og ómissandi undir sögu lands- ins, þegar einhver verður til að semja hana. Var það vel til fallið af bók- menntafjelaginu, að koma því fyrir al- menningssjónir. Skýringar ogviðaukar Jóns Pjeturssonar eru til mikilla bóta, en vafi er oss á, hvort ekki hefði verið glöggvara, þar sem J. P. fortakslaust telur eitthvað ranghermt hjá Boga, að taka leiðijettinguna upp í textann, og hafa þá meiningu Boga neðanmáls. Bókin myndi með þessu móti, ef til vill, hafa orðið ljósari og hægri aflestr- ar. Eins og nú er, verður annað aug- að jafnan að vera ofanmáls, hitt neð- anmáls. J>að hefði verið haganlegra fyrir lesendur, að allt það rjetta og ó- efaða hefði verið sjer, en villurnar og vafinn sjer. Annað er það, að þar sem t. d. um sumt, er snertir sjer í lagi ættartölur, er vfsað til annarar sýslu, hefði verið hentugt að til nefna blað- síðutalið í bókinni; nú verður lesandi að leita að þvi einhverstaðar eptir nöfnum, ogkemur það óþolinmóðum lesanda ekki vel, sjer í lagi þegar vísað er til þeirra kafla, sem enn þá eru óútkomnir, t. d. bls. 25 neðanmáls (sjd Hi'mavatnssýslu), 29 (sjá Húnavatnsping), 42 (sjd Rang- árping), 43 (sjá Strandasýslu), s- st. (sjá Hegra?iesping), 83 neðanmáls (sjá Barðastrandarsýslu), 216 neðanmáls (sjá Hegranesping), og víða. En J. P. hefir líklega gengið það til, að hann hefir ekki viljað breyta neinu í hand- riti Boga, og láta skýringar sfnar hver- vetna leiðast við textann. Gjörir þetta og minna til, þegar bókin er öll út komin. J>að er helzt, meðan á þvf stendur, að þetta er dálítið tilfinnan- legt. En, þó svo sje, þá er það ekki teljandi hjá þeirri nákvæmni, vand- virkni, og alúðarfullri eptirleitni eptir sannleikanum, sem bæði textinn og skýringarnar bera vott um. En—nær kemur nú framhaldið? Bráðlátur. HITT OH I>ETTA. A ofanverðum embættisárum Guðbrandar bisk- ups, kom til Hóla snauður förudrengur, og hittir biskup úti staddan, fyrstan manna, kveður hann og segir: sæll vertu. Biskup tekur kveðju hans. Lætur drengur nú hvað reka annað, spyr biskup, hvort hann ráði hjer nokkru. „Svo er það kallað“, segir biskup.—„Villtu þá lofa mjer að veraínótt?“, segir drengur.—„Vera má það“, segir biskup, spyr dreng síðan að nafni og ætterni. Drengur leysir úr því. Kanntu nokkuð að starfa?“ segir biskup. „moka fjós, rífa þorskhöfuð og tefla skák“. — „pá skulum við reyna eitthvað af þessu“, segir biskup. Setjast nú báðir inn í stofu, sinn á hvorn stól, og og fara að rífa þorskhöfuð. En—þegar biskup var búinn að rífa þrjú höfuð, var drengur búinn með sex. Nú fara þeir að tefla skák, og tefla frá einu kvöldi til annars (mun það hafa verið valdskák) og vann drengur taflið. j'á segir herra Guðbraþcl- ur: „á æskuárunum, þótti jeg kunna að rífa þorsk- höfuð, en skák hefi jegteflt bæði ungur og gamall; fjós hef jeg sjaldnast mokað; villtu ekki vera hjer i vetur?“—„Ójú“, segir drengur, „ef mjer er það

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.