Ísafold - 13.09.1881, Blaðsíða 4
92
salsbrjefinu, að kaupanda sje rjett að
hagnýta sjer laxveiðina samkvæmt lax-
veiðalögum landsins, þeim er nú eru
eða síðar sett verða. 3. með því að
bæta inní orðunum: „Herligheder og“,
sem ekki eru til í afsalsbrjefinu. þ>etta
heimildarlausa innskot er því þýðingar-
meira, sem orðið „Herligheder11 merkir
eigi að eins á voru máli gögn og gæði,
heldur og ítök. 4. með því missögli,
að í hæstarjettardómi (ie/2 75. sjáDóma-
safn 75, 66. bls.) segi, að veiðirjetti
jarðanna upp með Elliðaánum hafi við
sölu þeirra verið aptur haldið („tilbage-
holdt“), og með öðru fleira þvílíku. Nú
er það ein af megingreinum landbún-
aðarlaga vorra, að veiði öll fylgir landi
„nema með lögum sje frá komin“, og
þarf því hjer að koma fram sönnun
þess, að við sölu jarðanna sje veiði-
rjetturinn undanskilinn í afsalsbrjefun-
um sjálfum, eða á annan lögmætan hátt
frá kominn jörðunum.
Nefndin leiðir hjá sjer, að lýsa anda
og blæ, missögnum og misskilningi, á-
sökunum og ákærum þeim, er lýsa sjer
sjálf meir eða minna í nokkrum af brjef-
um þeim, er hjer eru prentuð að fram-
an í nefndarálitinu. Nefndin lætur sjer
nægja, að hafa leitt þessi skjöl fram
fyrir augu þingmanna og almennings,
og leggur þau í dóm þeirra. Neðri
deildin hefir tekið málið að sjer 1879,
til þess að vernda helgi laganna, tign
dómstólanna í landinu og rjettindi lands-
manna gegn ráðríki og skriffinsku inn-
an lands og gegn bakslettum og undir-
róðri við stjórnina í Danmörku. Nefnd-
in treystir því fyllilega, að neðri deild
alþingis sjái gjörla, að hún gætir bezt
sóma síns með því að vernda vandlega
allt hið fyrtalda nú og framvegis.
Nefndin hlýtur að benda deildinni til
þess, að henni þykir það eigi vel við
eiga, að landshöfðingi skuli hafa útveg-
að einmitt ritara sínum þetta konung-
lega umboð, eigi svo sakir mannsins
sjálfs, því hann er að minnsta kosti í
sumum greinum harðla frjálslyndur
maður, sem sakir hins, að hann er sem
landshöfðingjaritari háður landshöfð-
ingja. í annan stað er og á það að
líta, að ritarinn á í málaþrasi við ýmsa
háttstandandi menn (sjá 10. skjal), svo
sem landshöfðingja hlýtur að vera kunn-
ugt, og liggur því nærri að skilja út-
vegun hinnar konungl. umboðsskrár
ritaranum til handa nálega sem stork-
un gegn þessum mönnum af hálfu lands-
höfðingja.
Að lyktum hlýtur nefndin að leiða
alvarlega athygli deildarinnar að því
meginatriði málsins, að hversu ýmislega
sem menn svo skilja laxfriðunarlögin
11. maí 1876, og hverjum augum, sem
menn svo líta á laxveiðirjett Thomsens
kaupmanns í Elliðaánum gagnvart veiði-
rjetti hinna jarðanna upp með ánum,
þá stendur það þó stöðugt, að meðan
enginn fullnaðardómur er genginn um
veiðirjett Thomsens kaupmanns og jarða
þessara í tjeðum ám, verður eigi rjetti-
lega skorið úr því með dómi, hvort
kistubrotsmenn hafi brotið gegn 298.
gr. hegningarlaganna, eður sjálftæki
(Selvtægt) haíi átt sjer stað af þeirra
hendi. En þetta er mjögsvo hiðsama
sem, að hvorki verður hinn eðlilegi
málatilbúnaður fundinn, nje heldur sekt
eður sýkna kistubrotsmanna og annara
veiðimanna rjettilega ákveðin með dómi,
áður en genginn er dómur um veiði-
rjettinn í Elliðaánum. í þessari grein
er nefndinni það sannarlegt gleðiefni,
að geta lagt fram fyrir hina heiðruðu
deild nokkur skjöl (sjá 8. og 9. skjal
og fylgiskjal A.), er virðast að benda
í líka átt, sem nú var sagt. þ>ess ber
að geta, að landshöfðingjaritarinn hefir
látið þetta álit sitt í ljósi, eigi sem valda-
laus maður, heldur sem skipaður mála-
flutningsmaður (8. og 9. skjal), og síð-
an sem skipaður rannsóknardómari í
Elliðaármálunum.
Af íhugun málsskjalanna og af á-
stæðum þeim, er teknar hafo verið fram,
leyfir nefndin sjer að koma fram með:
T i 11 ö g u til þingsályktar.
Neðri deild alþingis ályktar:
I. að skora á ráðgjafa Islands.
1. að framkvæmd hinnar konunglegu
umboðsskrár 1. júlí 1881 verði
frestað þar til fullnaðardómur er
genginn um veiðirjett þjóðjarðar-
innar Hólms og kirkjujarðarinnar
Breiðholts í Elliðaánum gagnvart
veiðirjetti H. Th. A. Thomsens
kaupmanns, og um heimild nefnds
kaupmanns til að þvergirða Elliða,-
árnar.
2. að til þess að meðhöndla og dæma
þetta mál, verði skipuð dómnefnd,
er laxfróður maður í siti, og dæmi
hún málið á staðnum.
II. að kjósa úr sínum flokki 2mennmeð
því umhoði, að framfylgja áskor-
uninni við stjórnina í Danmörku.
Arnljótur Olafsson,
formaður og framsögumaður.
Benedikt Sveinsson. Th. Thorsteinson.
ÍTtskript
úr þingbók Jóns landshöfðingjaritara
Jónssonar í Elliðaáamálunum.
Ar 1880 hinn 15. desember um há-
degi var þing sett á bænum Elliðavatni
af dómaranum í viðurvist Jóhannesar
Oddssonar og (þorláks Guðmundssonar.
Var þá tekin fyrir rannsókn út af
kistubrotinu E., sem átti sjer stað 25.
júlí f. á.
Lagt var fram:
34. a og b, 2 stefnur til þessa rjettar-
halds.
35. eptirrit eptir hæstarjettardómi 16.
febr. 1875 í málinu: B. Sveinsson
gegn
H. Th. A. Thomsen.
36. Yfirrjettardómsgjörðir í sama máli,
lagðar fram í hæstarjetti 27. júlí
1874.
37- Hjeraðsdómsgjörðirnar í sama máli.
38. Loksins lagði dómarinn fram afstöðu-
uppdrátt til afnota við áreið þá, sem
stefnt hefir verið til.
Mættir voru:
Guðm. Magnússon bóndi í Helliskoti.
Sigurður Guðmundsson, bóndi í Gröf.
Sæm. Sæmundsson, bóndi á Elliðavatni.
Olafur Ólafsson, bóndi á Vatnsenda.
Bjarni Olafsson, bóndi á Árbæ.
þ>ar á móti voru ekki mættir ninir
stefndu, Páll Melsteð fyrir hönd H. Th.
A. Thomsens, Kristján sýslumaður Jóns-
son, sem umboðsmaður landssjóðsjarð-
arinnar Hólms, nje sjera Hallgrímur
Sveinsson, sem umráðamaður kirkju-
jarðarinnar Breiðholts. Aptur á móti
var mættur landseti prestsins á hálfri
jörðinni Breiðholti, Árni Jónsson, en
hann sagðist ekkert umboð hafa frá
prestinum; en verði að halda fram rjetti
ábýlisjarðar sinnar.
Enn fremur mætti óstefndur alþingis-
maður, borgari Egill' Egilsson, sam-
kvæmt umboðsskjali jómfrúar þ>orbjarg-
ar Sveinsdóttur, fyrir hönd bróður
hennar, sýslumanns Benedikts Sveins-
sonar, er var lagt fram sem nr. 39.
(Framhald síðar).
— Síra Guttormur Guttormsson á Stöð í
Stöðvarfirði og prófastur, síra Einar Hjör-
leifsson í Vallanesi, báðir dánir.
-— Síldarveiði lítil bæði á Seyðisfirði og
Eyjafirði. A Seyðisfirði voru 80 norsk
skip og 40 á Eyjafirði.
AUGLYSINGAR.
WILLIAM JAMIESON
FISKIYERZLUN í STÓRKAURUM
15, Pitts stræti í Liverpool, stofnsett 1821,
tekur að sjer að kaupa og selja í umboði
fyrir aðra (Commission) farma af salt-
fiski, löngu og ýsu frá Islandi ogFæreyjum.
Banki: Liverpool Union banki.
Uxidirskrifaður óskar að fá til kaups:
Fjölni allan.
Ársrit Yestfirðiuga allt.
fjóðólf aliau.
Isafold alla.
Orðskviðasafn Giiiðiu. Jónssonar 1880.
íslenzk sagnabliið 1817—1826.
Æfisögu Franklins.
Reykjavík, 9. ágúst 1881.
Kr. O. þorgrímsson.
Dönsk lesbók handa byrjöndum.
innihaldandi málfrœðisdgrip, leshafla og orða-
safn, fæst í bókaverzlun O. Finsens og í
Isafoldar prentsmiðju fyrir 50 aura.
Hjá kaupmanni þorláki O. Johnson í
Beykjavík getur hver sem vill, fengið keypt-
an hinn íslenzka fána með hvíta fálk-
anum. — Hann kostar 17 kr. Fálkinn er
þrykktur eða pressaður á dúkinn. þeir
sem vilja, geta fengið fánann sendan með
póstum, ef þeir senda póstávísun á undan.
Útgefandi: Björn Jónsaon, cand. phil.
Prentuð i ísafoldar prentsmiðju.