Ísafold - 15.10.1881, Blaðsíða 3

Ísafold - 15.10.1881, Blaðsíða 3
IOI áleiðis í toll-lögum Spánverja, en það getur verið, að Danir geti nokkuð á unnið, ef þeir fara svo að, sem jeg hefi nú þegar bent á.«« Síðari hluti brjefs þessa hljóðar um það, hversu haga ætti kaupræðismennsku Dana, bæði á Spáni og annarsstaðar, og hversu hirðulitlir Danir sjeu í því efni f saman- burði við aðrar þjóðir, og loksins stingur brjefritarinn upp á því, að láta gufuskip ganga frá Eystrasalti, og taka svo á Ieið- inni fisk í Noregi og fiytja til Spánar; en með því að þetta allt er til engrar skýring- ar fyrir fiskiverzlun Islendinga, hirðum vjer eigi um, að taka það hjer upp. Síra í>órarinn Böðvarsson og sannleikurinn. I 23. tölublaði »ísafoldar« er það borið fram, að jeg á síðasta þingi hafi »tvisvar gjört þá játningu, að jeg á tveim þingum samfleytt (1877 og 1879) hafi í einu máli (skiptingu Kjósar- og Gullbringusýslu): talað á móti sannfæringu minni». Jeg verð að lýsa yfir því, að þetta er ranghermt. Jeg tók það fram, að jeg hefði borið mál þetta fram, ekki af eigin hvötum, heldur eptir ítrekaðar áskoranir nokkurra kjósenda minna, sem vildu um fram allt, að mál þetta væri borið upp, þó að það fjelli. Jeg lofaði þeim að síðustu, að bera málið upp eptir ósk þeirra, og mæla það með þvf, sem eptir sannfæringu minni væri satt og rjett, og það gjörði jeg, eins og þingtíðindin frá þeim árum sýna. Aðrir þingme.nn tóku það fram, sem móti því mátti mæla. 1877 mátti tölu- vert mæla með máli þessu, þar sem Gull- bringusýsla var þá nálega sauðlaus, lausa- fjártíundir þar fyrir þá sök sárlitlar og gjöld til sýslusjóðs þess vegna tilfinnanlega þyngri á Kjósarsýslubúum, en Gullbringusýslu- búum. 1879 var þetta farið að breytast, enda mælti jeg þá fátt með málinu. Nú eiga Gullbringusýslubúar fjölda fjár og er því aðal ástæðan til skiptingarinnar að mestu fallin, enda mælti jeg nú móti henni. Jeg neita því sem ranghermdu, að jeg hafi gjört þá játningu, að jeg hafi ntalað f máli þessu móti sannfæringu minni«, eða fært þær á- stæður, sem eptir meðvitund minni voru ó- sannar eða rangar. |>eim ummælum um mig í »ísafold«, sem byggð eru á þessu, vil jeg engu svara. Að jeg hafi verið »einn af þeim sem slitu« er mjer ókunnugt, eins og fleira, sem fram er borið f hinni sömu grein. Jeg krefst þess, að þjer, herra ritsjóri, takið línur þessar sem fyrst í blaðið »ísa- fold«. Með virðingu Görðum, 22. september 1881 pórarinn Böðvarsson. Við fyrstu umræðu um frumvarp til laga um skiptingu Gullbringu- og Kjós- arsýslu í 2 sýslufjelög á 45. fundi neðri deildar 12. ágúst 1881 kl. 5 e. m., sagði síra þórarinn Böffvarsson meðal annars: —»Jeg verð einnig að mótmæla mínum lögfróða sessunaut (2. þingmanni Skagfirð- inga), jeg hefi ekki sagt að jeg hafi haft rangt; heldur hef jeg áður borið málið fram irwti sannfæringu minni, og fyrir þrábeiðni kjós- enda minna-----«. Við 3. umræðu um sama mál á 58. fundi neðri deildar 20. ágúst kl. 5 e. m. sagði síra þórarinn Böð'varsson meðal annars: — »Viðvíkjandi því, sem framsögumaður sagði um 3. gr. frumvarpsins, að hún væri eptir mínu frumvarpi 1879, þádugar honum ekki að vitna til þess lengur. Jeg hefi fyrir löngu gefið ástæðu fyrir því, hví jeg bar mál þetta fram, þó það væri á móti sannfœringu minni, af þrábeiðni ogfyrir ítrekaðar áskoran- ir frá einstöku mönnum í Kjósarsýslm—. Orðin: „þó það væri á móti sannfær- ingu minni“, hafa á síðaristaðnum verið strykuð út; á fyrri staðnum standa þau óbreytt, eins og skrifararnir hafa tekið þau eptir prófastinum. En því til sönn- unar, að þau einnig á síðari fundi hafi töluð verið, er það, að einn þnngmaður, sem talaði í málinu rjett á eptir pró- fastinum, mælti þannig: —»það er óþarfi fyrir mig að blanda mjer inn í viðskipti þeirra, hins háttvirta varafor-' forseta (þórarins Böðvarssonar) ogflutnings- manns málsins (síra þorkels), en þegar eg lít á þá játningu varaforseta, semvið þekkj- um allir að því, að vera staðfestumaður, að hann hafi á tveim þingum borið fram líkt lagafrumvarp móti sannfæringu sinni, en nú á 3. þingi mæli móti því eptir sannfæringu sinni, þá er þetta f sannleika fróðlegt«- Á þingi 1879 þykist prófasturinn hafa mælt fátt með málinu. þó. það væri máske fátt, þá var það, ef til vill, þess merkilegra, t. d., þessi ræðubotn pró- fastsins 1879: —„Úr Gullbringusýslu er að vísu engin bæn komin (um að skipta sýslunum), en ætla má, að jeg sem bj í henni, pekki nægilega til, svo jeg megi bera um pað, að pessi skipt- ing er líka vilji margra Gullbringusýslu- búa (alþ.tíð. 1879 II, bls. 982—983). En 1881 er Kjósarsýslubúum umkennt! eða var það eptir „þrábeiðni“ nokkurs Gullbringusýslubúa, að prófasturinn þá bar málið fram á móti sannfæringu sinni ? Forngripasafnið. Enskur vísindamaður, sem hjer ferð- aðist í sumar Mr. W. J. Birkbeck hefir heiðrað forngripasafnið með því, að gefa því einn hinn ágætasta grip í sinni röð, þ. e. brjóstmynd, steypta úr gipsi af hinum forngríska guði Hermes, (Merkúríus); mynd þessi, sem er upp- runalega gjörð úr marmara, er fyrir fáum árum síðan grafin upp í Olympíu á Grikklandi, og er gjörð af hinum heimsfræga myndasmið forngrikkja, Praxiteles á 4. öld f. Kr. Myndin er öll meiri enn í fullri stærð, handlegg- irnir eru brotnir af, en á vinstri hand- legg sjer hefir guðinn haldið á Bakkusi, sem hefir stutt hendinni á öxlina á henni, og sjest þar eptir af henni. Jeg læt hjer fylgja orðrjettan kafla úr brjefi til mín frá hinum háttvirta gefenda, er hann skrifaði mjer eptir að hann hafði afhent forngripasafninu myndina: — „Myndin hefir fundizt á hinum fjórum eða fimm síðustu árum við út- gröft í Olympíu, sem nú fer fram á kostnað hinnar þýzku stjórnar og undir umsjón hennar. Pausanías, er ritaði á annari öld eptir Kristsburð. nefnir myndina stuttlega og getur þess, að hún hafi staðið í hofi Júnóar; en fullkomin lýsing á myndinni finnst hjá einhverjum öðrum klassiskum höfundi, sem jeg er svo óheppinn að hafa gleymt nafninu á. Hið bezta, sem jeg get gjört, er að fá skýring um hana frá hinu Keisaralega Museo í Berlín, og vinur minn Eiríkur Magn- ússon hefir boðizt til að þýða hana á íslenzku fyrir mig. Myndsmiðurinn Praxiteles lifði á fjórðu öld fyrir Kristsburð, og ætlajeg, að hin helztu verk hans sje gjörð á árunum 360— 340 f. Krb., og meðal þeirra þessi Hermes, sem er partur af Hermes mynd, er heldur ábarninu Bacchusi á vinstra handlegg, og rjettir vínberja- klasa að honum með hægri hendinni. Hinum þýzku útgraftarmönnum hefir nú tekizt aðfinnanæstum allt verkið, og hefir frummyndin að ætlan minni verið flutt til Aþenuborgar. Mjer þyk- ir slæmt, að jeg get eigi gefið ná- kvæmari eða greinilegri lýsing, en jafnskjótt sem jeg kem aptur til Eng- lands, ætla jeg að útvega hana frá jþýzkalandi, og jeg efast alls eigi um, að þjer munið fá hana í haust hingað til íslands“. fessi heiðursmaður á miklar þakkir skilið af oss íslendingum fyrir að hafa fyrstur manna orðið til þess að gefa okkur þessa fögru og vönduðu eptir- mynd af einhverju hinu ágætasta forn- gríska listaverki, sem fundizt hefir, því jeg hygg að fullyrða megi, að þess konar eptirmyndað listaverk hinna fræg- ustu forngrísku myndasmiða, hafi ekki sjezt hjer á landi fyrri. Jeg leyfi mjer því hjer með að votta

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.