Ísafold - 31.12.1881, Qupperneq 4
119
8. Lög um gagnfræðaskólann á Möðru-
völlum.
9. Lög um breyting á 1 gr. í lögum
27. febr. 1880 um skipun prestakalla
10. Lög um breyting á tilskipun um
póstmál 26. febr. 1872 oglögumi5
Okt. 1875 um breyting á sömu til-
skipun.
Póstmál. Eptir auglýsingu lands-
höfðingjans hefir ráðgjafinn fyrirísland
samþykkt þessar breytingar á póst-
göngunum.
1, að aðalpósturinn milli Akureyrar og
Reykjavikur leggi leið sína um verzl-
unarstaðinn Blönduós í Húnavatns-
sýslu, bæði á suður- og norðurferð-
um sínum, og að þess vegna
a, brjefhirðingastaður verði stofnaður
á Blönduós, en að brjefhirðinga-
staður sá, er verið hefir á Reykj-
um, verði lagður niður, og
b, að aukapósturinn út á Hólanes
(Skagastrandarpósturinn, sbr. 8. gr.
f, auglýsngar 3. maí 1872) eptir-
leiðis hefji göngu sína ekki frá
Sveinsstöðum en frá Blönduós í
hvert sinn, er pósturinn kemur
þangað að sunnan.
2, að jþingeyjarsýslupósturinn, sem er
aukapóstur aðalpóstsins frá Akureyri
til Seyðisfjarðar og fer frá Grenjað-
arstað norður á Sauðanes (sbr. 8. gr.
h. auglýsingar 3. maí 1872) haldi á-
fram leið sinni frá Sauðanesi að verzl-
unarstaðnum Vopnaíirði, og að stofn-
aður verði nýr aukapóstur frá Höfða
í Vallnahreppi á VopnaQörð, er fari
á stað undir eins og aðalpósturinn er
kominn frá Höfða að Prestsbakka;
en aptur á móti að aukapósturinn frá
Grímsstöðum á aðalpóstleiðinni frá
Akureyri til Seyðisfjarðar verði lagð-
ur niður.
3, að stofnuð verði brjefhirðing á Möðru-
völlum i Hörgárdal.
4, að stofnaður verði aukapóstur frá
Stykkishólmi til Flateyjar, og að
stofnuð verði brjefhirðing á síðar-
nefndum stað.
Breytingar þessar ná gildi 1. jan-
úar 1882.
(íjöf geheime-etazráðs A. F. Kriegers
til landshókasaínsius.
Lögvísi 80 bindi.
þar á meðal 10 bindi af Kritisehe Viertel-
jahrschrift, og sænskt lagasafn, 14 bindi.
Saga og Bókmenntasaga 146 bindi.
þar á meðal eru rit eptir marga ágæta
frakkneska rithöfunda, svo sem: Beulé,
Gaston Boissier, Michelet, Miquet, Maxime
du Camp, Amédée Thierry, Mad. de Sevi-
qué, Nisard, Villemain, Sainte-Beuve,
Wallon, og fl.
Stjórnfrœði og landshagsskyrslur 173 bindi
og hepti.
þar á meðal eru rit eptir Jules' Simon,
L. Audiffret Pasquier og fl. merka stjörn-
fræðinga. Landshagsskýrslurnar eru flest-
ar norskar.
j Fögur vísindi 56 bindi.
þar á meðrl eru öll Bellmanns rit, og rit
eptir Frederikke Bremer, Aug. Blanche,
og fl.
Yeitt prestaköll.
4. nóv. Setberq síra Jens V. Hjaltalín í
Nesþingum. ■
24. — Stöð í Stöðvarfirði síra Jóni Aust-
mann í Saurbæ.
29. — Hof 1 Álptafirði síra Brynjúlfi
Jónssyni á Beynisþingum.
5. d. Fjörður í Mjóafirði cand. theol.
þorsteini Halldórssyni frá Hofi í
Vopnafirði.
12. nóv. er slra Jón þórðarson skipaður til
að vera prófastur í Húnavatnspró-
fastsdæmi.
22. — var síra Geiri Bachamann í Mikla-
holti veitt lausn frá embætti frá
næstkomandi fardögum.
Ur Skagafirði er skrifað 15. þ. m.,
að þar hafi, fram að þeim tíma, jafnan
verið góð tíð og snjólítið, en norður í
Eyjafirði hafði komið snjór, og bloti of-
an á, svo að þar var, í byrjun þessa
mánaðar, jarðbönn mikil. í öllum veiði-
stöðum norðanlands hafði afli verið góð-
ur, og í Eyjafirði jafnvel svo, að menn
mundu varla annan því líkan. Hinir
norsku síldarveiðarmenn voru farnir í
miðjum nóvbr. og hjelzt síldaraflinn þá
enn við Hrísey; síldaraflinn á Eyjafirði
í sumar og í haust hafði orðið undir
80000 tunnur; síldarveiðarfjelag það, er
Tryggvi stofnaði í fyrra hafði fengið
um 6500 tunnur.
Fiskisýning á aðvera í Edinborg 12.
april 1882, en með því engum munum
verður veitt þar viðtaka eptir 1. mars
næsta ár, og engin miðsvetrarferðverð-
ur hjeðan þangað í vetur, eru íslend-
ingar, þótt vildu, útilokaðir frá því, að
taka þátt í sýningu þessari.
Færeyingar hafa borið sig upp við
ráðherrann um fiskisamþykktir Austfirð-
inga (Seyðis- Reiðar- Norðfirðinga o.
fl.) er þeir segja traðki þegn-rjettindum
sínum, og meini sjer að stunda fiskiveið-
ar við ísland.
AUGLÝSINGAR.
Menn hafa eflaust heyrt getið um hinn
mikla síldarafla á Eyjafirði í sumar, og hvern-
ig þeir innlendir menn, er í fyrra vor gjörðu
þar fjelag til síldarveiða hafa fengið peninga
sína margfalt borgaða. ' En með því að
margir kunnugir menn hafa sagt mjer, að
mikil von sje til, að hjer við Faxaflóa muni
mega hafa mikla síldarveiði, og það einmitt
helzt fyrri hluta sumarsins, þegar veiðivon-
in er minnst annarsstaðar, þá virðist mjer
mjög áríðandi, að gjöra hjer tilraunir til að
veiða sild, því verið getur, að hjer felist eigi
minni auðsuppspretta, en síldarveiðin hefir
reynzt annarsstaðar. Til þess að reyna að
koma framkvæmd á málið, vil jeg hjer með
biðja þá menn, sem taka vildu þátt í því,
að koma á fund til að tala um þetta á borg-
arasalnum miðvikudaginn 4. janúar, kl. 5.
e. m. Beykjavík, 31. des. 1881.
Eggert Gunnarsson.
Mig undirskrifaðan vantar af fjalli rautt
mertryppi, veturgamalt, með mark: sýlt
vinstra og biti aptan. Bið jeg hvern þann,
sem hitta kann tryppi þetta, að gjöra mjer
þar um vísbending móti sanngjarnri borgun.
Bakka, 28. desember 1881.
Arni J. Grimsson.
Seltlar óskilakindur
í Biskupstungnahreppi haustið 1881.
1. Hvít ær veturgömul, mark: tvírifað í
sneitt framan hægra, heilrifað standfjöð.
fr. vinstra ; hornmark : miðhlutað hægra,
2 standfjaðrir apt. v.; brennim. G J
2. Hvít ær veturg., mark : blaðst. fr., stand-
fj. apt. h., sneitt fr., biti apt. v.
3. Hvítt gimbrarlamb, mark : sneitt fr. v.
4. Svartbíldótt gimbrarlamb, mark : lögg
fr. hægra, gat vinstra.
5. Hvítt gimbrarlamb, mark : stýft, lögg fr.
hægra, stúfrifað vinstra.
6. Hvítt gimbrarlamb, mark : sýlt, lögg fr.
hægra, sýlt vinstra.
7. Svart geldingslamb, mark: sneiðrifað a.,
standfj. fr. h., miðhlutað biti apt. v.
8. Hvítur lambhrútur, mark : sneiðrifað fr.
h., sýlt, biti fr. v.
9. Hvítur lambhrútur, mark : stýfðurhelm-
ingur apt. h., sýlt vinstra.
10. Hvítur lambhrútur, mark : stýfður helm-
ingur, hamarskorið vinstra.
11. Hvítur lambhrútur, mark : gagnbitað h.,
stýft, biti apt. v.
12. Mórautt gimbrarlamb, mark: stýfður
helmingur apt. hægra, sýlt vinstra.
13. Bíldótt geldingslamb, mark : gagnfjaðr-
að hægra, Hvatt vinstra.
14. Hvítt geldingslamb, mark: gagnfjaðrað
hægra, stúfrifað vinstra.
15. Hvítt geldingslamb, mark: tvístýft, stand-
fj. a. h., heilrifað v.; hornm.: tvístýft
apt. hægra, stýft vinstra.
16. Hvítt geldingslamb, mark : Tvístýft apt.
h., hangfj. apt. v.
17. Góltott hrútlamb, mark : gagnfj. hægra,
hvatt vinstra.
18. Hvítt gimbrarlamb, mark: miðhlutáð h.,
sneitt fr. vinstra.
19. Hvítt gimbrarlamb, mark : sneitt fr. h.,
sýlt, standfj. fr. v., bragð apt vinstra.
20. Hvítt gimbrarlamb, mark : sneitt fr. h.,
miðhlutað vinstra.
Eigendur framanskrifaðra kinda geta feng-
ið verð þeirra að frádregnuin kostnaði hjá
undirskrifuðum ef þeir gefa sig fram fyrir
næstkomandi fardaga.
Biskupstungnahreppi, 5. desbr. 1881.
Tómas Guðbrandssqn, E. Kjartanssoii.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í Isafoldar prentsmiðju.