Ísafold - 10.07.1882, Page 1
I/
Argangurinn kostar 3 kr.
innanlands, en 4 kr. er-
lendis. Bor^ýst Liúlímán.
ÍSAFOLD.
Pöntun er bindandi lynr
ár. Uppsögn til áraslcipta
með tveggja mán. fyrirvara.
Auglýsingar í blaðinu kosta 10 aura fyrir hverja línu með meginmálsletri, en 8 aura með smáletri.
IX 15.
Reykjavik, miðvikudaginn 10. júlímán.
Bréf úr Dalasýslu 20. júní.
(Eptir síra Jakob Guðmundssón á Sauðafelli).
Eins og kunnugt er orðið, eru af-
leiðingarnar af næstliðnum vetri og vori
orðnar hinar bágustu og ískyggilegustu
hér á vesturlandi, sem orðið hafa é
þessari öld.
í fyrra sumar var óvanalegt gras
leysi, einkum á túnum og útengis-harð-
velli, og varð því víðast að slá mest-
megnis óræktaðar sinumýrar, svo megn
ið af heyjum manna mætti ekki kallast
fóðurgæft; peningur i magrasta lagi
undan sumrinu; haustveðráttan var að
sönnu góð fram á jólaföstu, þá brá til
hrakviðra, svo fjenaður hafði enganfrið
úti eða inni; á útmánuðum komu út-
synningsköföld með fannfergju ogblot-
um, og leiddi þar af óvanaleg jarðbönn
jafnvel í jarðsælustu sveitum ; fyrir pásk
ana gerði bata, svo nokkrar jarðir komu
víða upp og ljetti því á útigangshros&
um og sauðum, en peningar þessir voru
víða orðnir grannir og sumstaðar lang-
dregnir. Síðan á páskum hefir verið
harðneskjutíð með grimdarhörkum og
áhlaupakafaldsbyljum af norðri hverjum
eptir annan; seint í maí gerði einn á-
hWjpabylinn með fannfergju og ofsa-
veðri á norðan, og fórst þá mikill hluti
aT geldfje manna, í Dala-, Barðastrand-
ar- og ísafjarðarsýslum, og mest hjá
þeim, sem áttu það bezt f standi, því
þar var búið að sleppa því á fjall, fjeð
fennti, sló um, hrakti í sjó, vatn, tjarn-
ir, ár og læki. Sumir urðu heylausir
um góulok, margir á einmánuði og all-
ur fjöldi manna um sumarmál. f>eir
sem betur máttu, tóku fénað af öðrum
og hjálpuðu þeim um hey, sem fyrri
komust í heyþrot, svo næstum allir urðu
jafnilla staddir á endanum, menn fengu
afarmikið korn í kaupstöðum bæði Borð-
eyri og Stykkishólmi handa fjenaði
sínum, en hvorki nógu snemma nje til
hlítar, svo mikið af fjenaðinum drapst
eptir sem áður. Sumstaðar hefir sauð-
fje orðið máttlaust í sæmilegum hold-
um, og sumstaðar orðið að skera það
af þó vel hafi sjeð til mörva í því; en
megnið af fjenaðinum mun þóhafafar-
izt af ljettu, óhollu og ónógu fóðri og
langsömum illviðrum, enda var sauð-
fjenaður víða orðinn lungnaveikur, en
veiki sú verður opt ásamt illri meðferð
að uppdráttarsýki og hordauða.
þ>að mun ýkjulaust, að í öllu vestur-
amtinu sje fallinn til jafnaðar fullur þriðj-
ungur alls sauðfjár, mikið af hrossum,
en langminnst að tiltölu af kúm.
Meginhluti allra unglamba er dauð
ur, þau fáu lömb, sem lifa, verða að
engu gagni, og líklegt að ærnar, sem
undir lifir, dragist upp á endanum —
kýr víðast orðnar nær því eða alveg
geldar, svo víðast hvar er engrar mál-
nytu von í sumar — þorri manna bú-
inn að eyða meiri kornmat handa mönn-
um og skepnum í vor, en þeir geta
borgað í sumar.
Á ísafirði og sumstaðar undir Jökli
hefir verið allgóður afli í vor, og að
því leyti eru þeir betur farnir, sem til
sjávar ná, en að hinu leytinu eiga þeir
enga von í kaupavinnu við heyskap í
sumar og enga von til að fá feitmeti
úr sveit, nema ef vera skyldi litið eitt
af kindum, tólg eða keti í haust.
En guð, sem upp lýkur hendi sinni
og seður alt sem lifir, hefir sent mikið
af hvölum umhverfis Miðfjörð og Hrúta-
fjörð, og er mælt, að á þessu svæði
hafi komið að landi yfir 40 hvalir, en
það hefir að sögn gengið bæði klaufa-
lega og óhappalega að hirða þessa
guðs gjöf — einkum á Ánastöðum á
Vatnsnesi, þar sem mælt er að komið
hafi að landi yfir 30 hvalir. J>að er
sagt, að Kirkjuhvammshreppur hafi
tekið að sjer 11 eða 12 hvali, skorið
lítið eitt af hverjum, og þannig gert
þá alla að ræksnum, sem mjög torvelt
sje að koma nær landi eða á land á
eptir, en suma hvalina hafi tekið út
aptur í heilu líki. Sagt er, að Ásgeir
bóndi á f ingeyrum hafi tekið einn hval
fyrir sig og sveitunga sína, komið með
áhöld til að draga hann nær því á þurt
land, og þar hafi hann verið skorinn
upp til agna, enda 'muni það hafa verið
eini hvalurinn þar á Vatsnesinu, við
hvern menn hafi gengið þrifalega að
mat sínum. Mælt er og, að Ásgeir
hafi boðið að ljá áhöld sín við hina
hvalina fyrir sanngjarna þóknun, en
enginn tímt eða haft menning til að
nota það tilboð. J>essum óhöppum
hafa valdið stjórnleysi, ódugnaður, ill-
viðri og mislingaveikin.
|>að er mælt, að á Ánastaðafjöru
hafi menn vaðið mörinn, hvaltungurn-
ar og ketgrautinn í sokkaband, og þó
hafa menn farið þangað svipferðis til
hvalfanga; menn austan úr Svartárdal
fóru þangað með 30 hesta, sem þeir
að sögn manna ráku alla lausa heim
aptur, enda mun þá hafa staðið yfir
einn kafaldsbylurinn.
J>að er mjög líklegt, að hin mesta
mergð af hvölum sje dauð f ísnum
ri^ll
18 82.
fyrirj 311 u norðurlandi, og að mörgum
þeirra mætti ná í heilu líki, þegar ísinn
fer að lóna sundur, ef hægð væri á
veðrinu, ogþáværu við hendinanokkr-
ir gufubátar til að hirða þá og draga
að landi á ýmsum höfnum, og gæti
það verið mikil búbót fyrir landið f
þessum yfirvofandi feitmetis- og bjarg-
arskorti.
Athugasemdir
um mislingaveikina og hin helztu smáskamta-
meðöl við veiki þessari og afleiðingum henn-
ar. Hvað aðbúnað og mataræði snertir er
ráðlegast að fara eptir hinni nýprentuðu leið-
beining Jónassens læknis, og sleppi jeg því að
tala um það.
Menn ættu að veita nákvæma eptirtekt
þessum fjórum tímabilum veikinnar.
1. Undirbúningstímabilið (Prodrómalstadi-
um). það er frá því menn hafa fengið
í sig mislingaeitrið þangað til þeir fara
að koma út, og gengur til þess lengri eða
skemmri tími, vanalega 3 til 5 dagar, en
í lengsta lagi 10 dagar.
það tefur mjög fyrir mislingunum að
koma út, ef menn eru að dragast lengi á
ferli sóttveikir úti í ýmsu veðri, er því
bezt að leggjast strax í rúmiðíhlýju húsi
í 14—16° hita.
2. Útsláttartímabilið (Eruptions stadium),
og varir það vanalega 24 til 36 stundir,
í lengsta lagi 3 daga. f>á er mjög hættu-
legt að hafa ekki góðan aðbúnað og
mátulegan hita.
3. Tími sá, sem mislingarnir eru í fullum
blóma, (Florescents-stadium), og varir
það vanalega 1 til 2 daga, sjaldan leng-
ur, þangað til flekkirnir fara að blikna
og hverfa, og þá byrjar hið fjórða tíma-
bilið eða:
4. Afhreistrunartímabilið (Stadium desqva-
mationis), þegar hreistrið fer að falla af,
og ganga opt til þess 10 til 14 dagar
þangað til hörundið er orðið jafngott apt-
ur, og er mjög áríðandi að menn á þess-
um tíma klæði sig hlýjum fötum og forð-
ist allt innkuls. Annars getur mönnum
slegið niður aptur, fengið tærandi niður-
gang, lungnabólgu og jafnvel lungnatær-
ingu, og fleiri hættulega sjúkdóma, því
menn eru svo viðkvæmir fyrir innkulsi
meðan hörundið er ekki orðið jafn gott
eptir afhreistrunina. Á þessu tímabili er
gott að þvo hörundið iðuglega, fyrst úr
ívolgu vatni, svo kaldara og kaldara,
seinast fullköldu, þetta flýtir fyrir að
styrkja hörundið.
MEÐOL, brúkuð eptir einkennum veik-
innar og afleiðingum hennar. þegar blóðhit-
inn er mikill, hörundið þurt, hóstinn harð-
ur og stuttur með holhljóði, uppgangur lítill