Ísafold - 21.03.1883, Blaðsíða 4

Ísafold - 21.03.1883, Blaðsíða 4
28 Frjettir innlendar hafa nú með póstskipinu borist víðs vegar að; úr Múlasýslum og sveitum þeim er þar liggja næst, ná þær fram undir lok janúarmánaðar, en úr mest- um hluta landsins að öðru leyti fram- undir lok febrúarmánaðar eða lengur. Tíðarfarið hefur yfir höfuð verið gott, snjó þann er vjer gátum um í 3. blaði ísafoldar, að gjört hefði í Múla- sýslum fyrir jólaföstukomuna, tók upp í hlákum þeim, er gjörðu eptir þrett- ándann, en fremur var þó veðurátt þar rosamikil og umhleypingasöm fram eptir mánuðinum; að eins á ofanverð- um Jökuldal var enn jarðlítið í fyrstu viku þorra. í Strandasýslu var svo mikill snjór kominn fyrir nýjárið, að þar var viðast jarðskarpt svo lengi sem til hefur spurst; líkt má segja um þær sveitir í þingeyjarsýslu sem liggja til fjalla. Hvervetna annarstaðar hefur tiðarfarið yfir höfuð verið gott og sum- staðar í besta lagi; það var að eins 1 útsynningunum fyrstu vikuna af Góu að víða setti niður allmikinn snjó, en hann leysti þó að mestu leyti fljótt apt- ur; greindur bóndi hjer á suðurlandi hefur sagt oss að hann muni eigi eptir jafnhagstæðri veðurátt siðan veturinn 1855—56, og til dæmis um tíðarfarið 1 Húnavatnssýslu, getum vjer þess að Björn bóndi Eysteinsson í Forsæludal í Vatnsdal ljet lömb sín liggja úti fram undir miðja góu; þóttu þau þá enn í allgóðu standi, og höfðu komið á þau hornahlaup nokkur eptir nýárið, en að hann fór að hýsa þau var vegna dýr- bítis; „þetta mundu hafa þótt tíðindi", bætir sá við er oss ritar þetta, „hefði það frjest vestan úr Rauðárdal í Ame- ríkm*. J>að sem af er þessum mánuði má heita að hjer hafi verið sífelld blíð- viður, logn og sólbráð á daginn og væg frost á næturnar; vonandi er að það hafi og náð yfir allt land. Skepnuhöld hafa hvervetna verið sem frjest hefur mjög góð fram að þessum tíma, og hvergi höfum vjer heyrt getið um mikla bráðapest eða neina aðra kvilla; vjer gátum þess í haust, að gras mundi hafa verið krapt- mikið í fyrra sumar eins og vant er að vera þegar gróður kemur svo seint, að hann fær engan hnekki; þetta hefur og sýnt sig á því hvað beitin hefur verið góð fyrir skepnurnar, enda hef- ur jafnan í vetur verið frostalítið og rosar eigi tíðir. Hross voru því víða fram yfir miðjan vetur í haustholdum, og sauðfje hefur víðast hvar tekið upp lítil hey. Aptur á móti hafa gagns- munir af kúm verið víða mjög litlir, sakir þess að töðurnar voru svo víða stórskemdar, en ýmsir hafa þó nokkuð getað úr því bætt með korngjöf. £>eg- ar litið er á hvað lítil hey hafa eyðst í flestum hjeruðum landsins í vetur, þá er líklegt, að hjeðan af fari eigi svo, að menn lendi í heyskorti í þeim í vor, og í þeim sveitum þar sem tíðarfarið hefur harðara verið, eru menn mörg- um öðrum sveitum fremur fyrirhyggju- samir með ásetningu; það er því von- andi, að menn eigi þurfi hið nýbyrjaða vor að kvíða fyrir felli á skepnum. f>ess væri óskandi, að vorið 1882 yrði mönnum framvegis svo minnisstætt, að þeir höguðu ásetningu sinni eptir því, sem menn hefðu haft dugnað, hagsýni og ástæður til að afla mikils fóðursins. Bjargarskort manna á meðal er mikið talað um í Vestur-Skaptafells- sýslu og sumstaðar í Rangárvallasýslu1; mun því einkum valda það, að kúa- mjólkin hefir orðið miklu minni en menn hafa gjört ráð fyrir. Eptir að bjargarskorturinn í Skaptafellssýslu frétt- ist hingað, sendi hinn setti landshöfð- ingi hraðboða austur til að láta menn þar vita, að hann veitti hverjum hreppi í Vestur-Skaptafellssýslu 1250 kr. af gjafapeningum þeim, er hann hafði til umráða og Austur-Skaptafellssýslu 1300 kr., er menn skyldu verja til bjargræð- iskaupa hvar og hvernig, sem menn bezt gætu fengið það. Útvegsbændur á Vatnsleysuströnd hafa og ótilkvaddir boðið skiprúm fyrir 150 manns að aust- an, þó þeir kæmu allslausir. Gufuskip það með gjafakom, er getið var um í siðasta blaði, átti að leggja 1200 hálf- sekki af rúgi upp á Borðeyri, þar af 1000 handa Húnavatnssýslu, en 200 handa Strandasýslu og enn fremur 600 hálfsekki handa henni á Reykjarfirði; 600 hálfsekki á Olafsvík handa Snæ- fellsnessýslu og 1200 hálfsekki á Stykk- ishólmi, þar af 200 handa Snæfellsnes- sýslu, 800 handa Dalasýslu og 200 handa Barðastrandarsýslu. Fiskiafli var í janúarmánuði kominn töluverður á Austfjörðum; á Eyrarbakka var fyrir nokkru kominn bezti þorsk- afli; hjer á Innnesjum við Faxaflóa hefir nú um tíma mátt heita bezti afli á færi (og gæftirnar eptir því), en minni suð- urfrá og í net hefur ekkert aflast, enn sem komið er. Undir Jökli hefir lítill afli verið, svo til hafi spurst, en við ísa- fjarðardjúp var farið að aflast fyrir skömmu allvel; hákarlsafli á Ströndum var enn enginn orðinn. 1) f>að er merkilegt, ef hreppsnefndir og sýslu- nefndir láta eigi slíkt mál til sín taka fyrri en í það óefni er komið. að tvísýnt er, að full bót verði á því ráðin; en eins og það er lagaskylda þeirra, er í slíkum nefndum sitja, að gjöra hvað þeir geta til að forða vandræðum, svo er það og siðferðisleg skylda hvers manns, sem hefir færi á að sjá vand- ræðin fyrir höndum, að gjöra eitthvað til þess að minnsta kosti að vekja athygli annara á því. Af þess konar vesalingum, sem kúgaðir eru af eymd og volæði, er varla einusinni þess að vænta, að þeir beri sig í tæka tíð upp um bágindi sín, enn að þeir sem guð hefir gefið meira vit og lánað meira af lífsins gæðum skuli láta slíkt afskiptalaust, þang- að til tveir þriðjungar sveitarinnar eða meir eru orðnir bjargarlausir á miðjum vetri, það væri hryggi- legur vottur um hugsunarleysi þeirra um velferð þess fjelags, er þeir lifa í.^ Vesturheimsferðum er sagt að all- margfr menn hafi hug á á sumri kom- anda, einkum norðanlands; þar á með- al nokkuð á 2. hundrað manns í Skaga- firði, en minna í hinum öðrum hjer- uðum. Skiptapi varð 10. þ. m. á Eyrarbakka; fórust þar í lendingu 5 menn en öðrum varð bjargað; formaðurinn hjet Sigurð- ur Gamalíelsson. Húsbruni varð 20. f. m. í Nesi í Höfða- hverfi; brann nýtt timburhús, er alþing- ismaður Einar Ásmundsson átti. Með mönnum nýkomnum að vestan og norðan hefir frjest að farið var að aflast fyrir skemmstu allvel undir Jökli, og að gjafakornsskipið Neptun var kominn til Borðeyrar; það hafði orðið vart við hafís nokkurn fram undan Hornströndum; fyrir vestan og norðan sama veðurblíða að undanförnu sem hjer. Auglýsingar. Allir þeir, sem hafa bækur frá mjer til sölu, eru hjer með beðnir að greiða andvirði þeirra til herra prent- ara Sigurðar Kristjánssonar í Reykja- vík, og enn fremur að senda honum á sínum tíma það, er þeir eigi geta selt. Rvík 20. marz 1883. Sigm. Guðmundsson. — Hjer með gefst öllum þeim, sem eiga hatta hjá mjer—og framvegis vilja hafa viðskipti við mig—til vitundar, að í fjærveru minni erlendis hefi jeg falið alla hatta afgreiðslu herra Hannesi Skarphjeðinssyni, sem hjá mjer hefir lært, að endurbæta allskonar flókahatta, og mun hann taka hatta til endurbóta og leysa það starf fljótt og vel af hendi. Frá 25. marz þ. á. verður verksmiðja mín í húsi herra Rafns Sigurðsonar hjer í bænum. f>eir sem eiga hatta hjá mjer, eru beðnir að vitja þeirra fyrir júnímánað- arlok. Allir þeir, sem enn eiga mjer ó- greiddar skuldir, bið jeg vinsamlegast að borgi þær hið allra fyrsta til herra bæjargjaldkera Kr. O. þorgrímssonar. Virðingarfyllst. Jóel Sigurðsson. Til þess að fyrirbyggja allan grun og missagnir um hvarf á peningum peim, sem jeg var Kræddur um að jeg hefði misst á heimili mínu fyrir stuttu síðan, pá Ijsi jeg þvi hjer með yfir, að jeg er nú orðinn pess fúllviss, að slíkt hefnr ekki átt sjer stað. Reykjavík 21. marz 1883. Björn Simonarson. Fáein exemplör af ritinu Ástandið og umsjónin i latínuskólanum eptir Jón þorkelsson (stúdent) eru til sölu hjá undirskrifuðum fyrir 20 aura hvert. Rvík 20. marz 1883. Sigurður Kristjánsson. Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil. Ritstjóri: Eiríkur Briem. Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.