Ísafold - 11.07.1883, Side 1

Ísafold - 11.07.1883, Side 1
Argangurinn, 32 blöð, lcostar 3 kr. innanlands, en í Danm., Svíþjóð og Norvegi um 3*/^ kr., i öðium löndum 4 kr. Borgist i júlím. innanlands, erlendis fyrir fram. ISAFOLD. Auglýsingar koí-ta ] ett hver lína’: aur< Ímeð meginletri ... 10 með smáletri.... 8 p ímeð meginletri ... 15 \með smáletri.....12 X 14. Reykjavik, miðvikudaginn 11. júlímán. 1883. 53. Innlendar frjettir. Smáklausur. 54. Frá alþingi T. 56. Flugrit um latínuslcólann. Auglýsingar. Skrifstofa ísafoldar er í ísafoldarprent- smiðju, við Bakarastiginn, 1. sal. Afgreiðslustofa ísafoldar er á sama stað. Afgreiðslustofa ísafoldarprentsmiðju er á sama stað. Alþingisfundir í neðri deild að jafnaði hvern rúmhelgan dag á hádegi. Alþingisfundir i efri deild að jafnaði hvern rumhelgan dag kl. i e. m. Forngripasafnið, i Alþingishúsinu, opið hvern miðvikudag og laugardag kl. 2—3. Iþaka. Bókasafnþess fjelags, í Skólabókhlöð- unni, er opið hvern þriðjudag og laugardag ld. 2-3. Landsbókasafnið, i Alþ.húsinu, opið hvern mánudag, miðvikudag og laugardag ld. 12—3. Sparisjóður Rvíkur opinn hvern miðvikudag og laugardag kl. 4—5. Reykjavík II. júlí 1883. Alþingi sett 2. júlí, af settum landshöfð- ingja Bergi Thorberg, í umboði konungs. Byrjaði á guðsþjónustugjörð í dómkirkjunni. Síra þorkell Bjarnason stje í stólinn. Eptir að þingmenn voru saman komnir í Alþingishúsinu, í þingsal neðri deildar, las landsh. upp umboðsskjal sitt og því næst boðskap konungs til alþingis. Lýsti síðan yfir, að hið 5. löggefandi alþingi væri sett. Jón Sigurðsson frá Gautlöndum stóð upp og mælti: lengi lifi konungur vor, Kristján níundi! Tóku þingmenn undir það í einu hljóði. Síðan gekkst elzti þingmaður, Pjetur biskup Pjetursson, fyrir kosningu forseta í sameinuðu þingi. |>að varð Magn- ús Stephensen yfirdómari með 19 atkv.; A. Thorsteinson landfóg. hlaut 10. Vara- forseti varð Lárus Blöndal með 19 atkv. Skrifarar í sameinuðu þingi urðu þeir Ei- ríkur próf. Briem og Eiríkur próf. Kuld. Forseti í neðri deild var kosinn undir stjórn hins elzta þingmanns þar, síra Ja- kobs Guðmundssonar, Jón Sigurðsson frá Gautlöndum með 17 atkv. af 19; varafor- seti Tryggvi Gunnarsson með 13; skrifarar Magnús Andrjesson (16) og H. Kr. Prið- riksson (13). Forseti í efri deild varð Pjetur biskup Pjetursson með 8 atkv.; varafors. A. Thorsteinson með 10; skrifar- ar Magnús Stephensen og Sigurður Melsteð. Daginn eptir lagði landshöfðingi fyrir þing- ið 17 stjórnarfrumvörp og ein bráðabirgð- arlög. Synodus haldin 4. júlí. Á fundi 3tiptsyfirvöldin, ð prófastar, 8 prestar og forstm. prestaskólans. Síra Jóhann þor- kelsson á Mosfelli prjedikaði. Úthlutað styrktarfje meðal uppgjafapresta ogprests- ekkna. Lagt fram frumvarp til laga um opinbera guðsþjónustugjörð, frá fundi að Höfða í Múlas. 2. júní; vísað frá eptir nokkrar umr. sem óhafandi. Biskup skýrði frá, að prestsekknasjóðurinn ætti nú nær 16 þús. kr. Bókmenntafjelagsfundur í Keykjavlk- urdeildinni 9. júlí. Bornar upp til sam- þykktar breytingartillögur við lög fjelags- ins, í þá átt, að gjöra báðar deildir að einni heild. Breytingarnar samþykktar hver fyrir sig eptir talsverðar umræður með miklum atkvæðamun, og lögin þannig breytt síðan samþykkt með nafnakalli með 90 atkv. gegn 12. Verða síðan sendar Hafnardeild- inni til samþykktar; fá fullnaðargildi, nema þar komi 34 nei og ekkert já, eða sem þeirri tiltölu svarar. Nýir fjelagsmen nhjer í deildinni 54, margt stúdentar og skólapilt- ar. Bækur hjer í deildinni þetta ár: eitt hepti af Veraldarsögu Melsteðs, eitt hepti af Sýslumannaæfum, Othello, Frjettir frá Islandi 1881 og 1882, og Tímaritið. Stjórn- in endurkosin, og ritnefnd Tímaritsins sömuleiðis, nema Björn Jónsson ritstjóri kosin í hana í stað Páls Melsteðs, er beðizt hafði undan kosningu. Búnaðarfjelagsfundur í Suðuramtinu hald- inn 5. júlí í Kvík. Forseti H. Kr. Friðriks- son. Tíu eða 12 manns á fundi. Fjelaga- tal nú 242. Fjelagið átti til í árslok 1882 um 15670 kr. Veittar á fundinum 400 kr. til að verja Safamýri í K.vallasýslu ágangi af vatni; var flutningsmaður þess Sighv. alþm. Árnason. Áður veittar til þess af amtsráði 800 kr. Camoens kom norðan hingað að iir strandinu 3. júlí, bætt svo til bráðabirgða, að haffært hefur þótt, og með vesturfarana hjeðan, 84. Fór sama kvöld með þá áleiðis til Skotlands. Herskip frá Austurríki, Pola, kom hjer 30. júní, á leið norður á Jan Mayen eptir veðurathuganamönnum þeim og náttúru- fræðingum frá Austurríki, er þar hafa setið síðan í fyrra. Skipið bíður hjer fram undir mánaðarlok. Latínuskólanum sagt upp 30. júní. Ný- sveinar reyndir og teknir inn 29. júní : fimmtán í 1. bekk, og sex í annan. Útskrif- aðir níu, og auk þess fjórir utanskólamenn, dagana 30. júní til 5. júlí. Tala lærisveina í latínuskólanum nú 123. þessir þrettán stúdentar eru (rómv. talan táknar einkunn, hin stig) : Guðmundur Magnússon ............. I 105 Oddur Jónsson.................... I 102 Bjarni þorsteinsson............ I 98 Sigurður Hjörleifsson ........... I 96 Klemens Jónsson.................. I 96 Sigurður Briem................. I 91 Pálmi þóroddsson ................ I 89 Valtýr Guðmundsson .............. I 89 Gísli Brynjólfsson .............. I 86 Brynjúlfur Kúld ................. I 86 Ólafur Ólafsson ................ II 83 Guðmundur Scheving.............. II 65 Mattías Eggertsson..............III 53 Guðmundur Magnússon hefir ágætisein- kunn. Hana hefir alls einn stúdent fengið áður frá Rvíkurskóla: Hallgr. Sveinsson dómkirkjuprestur. — |>að er skrítin brúkun á fjenu sem fjárlögin ætla í styrk til vísindalegra og verklegra fyrirtækja, að gefa það prests- ekknasjóðnum. það hefir samt verið gert fyrir skömmu, þó farið hafi varið dálítinn krók með það. það hefir verið látið heita svo sem þetta fje, 600 kr. hjer um bil, hafi verið veitt biskupnum, dr. P. Pjeturs- syni, til að gefa út hugvekjusafn til hús- lestra, en hann síðan auglýst, að prestsekkna- sjóðurinn ætti að vera aðnjótandi gjafarinnar eða arðsins af fyrirtækinu. f>etta er óneitan- legajkátleg aðferð. Oghvar skal staðarnum- ið, ef slíkt er upp tekið; ef hver þurfaling- ur, hvort heldur eru almennar stofnanir eða einstakir menn, getur krækt í þetta fje og ef til vill aðra gjaldliði á fjárlögunum með því að fara svo lítinn krók: láta annan mann biðja um það sem ekki þarfnast þess og alls engin ástæða er til að veita slíkan styrk. Væri ætlað fje úr landsjóði til verðlauna fyrir mikil ritstörf og góð, mundu líklegast fáir neita því, að dr. P. Pjetursson ætti að koma þar til greina fremur flestum öðrum íslenzkum rithöfund- um, þeim er nú eru uppi. En að veita honum styrk til vísindalegra fyrirtækja, það getur ekki verið alvara; honum, sem er einhver mesti auðmaður landsins og hef- ir eflauzt fjenast á bókum sínum miklu meira en nokkur annar íslenzkur rithöfund- ur; sem hefir það fyrirtaksorð á sjer fyr- ir bækur sínar meðal alþýðu, að hvað sem frá hans hendi kemur eða undir hans um- sjón af guðsorðabókum að minnsta kosti flýgur út undir eins viðstöðulaust. Sje þessi fjárveiting, sem mælt er, eitt- hvert hið síðasta embættisverk hins fyr- verandi landshöfðingja, yfirpræsidents Hilm- ars Finsens, þá má segja næst um því, að honum hafi sagt fyrir. |>að var viðurkennt á hverju alþingi eptir annað, að hann færi miklu betur með þenna gjaldlið á fjárlög- unum heldur en stjórnin í Khöfn. Prestsekknasjóðurinn er bæði þurfandi og gjafa maklegur. En svo er um fleiri nyt- sama styrktarsjóði. f>ví skyldu þeir ekki koma á eptir, þegar honum tekst svo vel. Oss minnir að til sje sjóður hjer í Kvík, sem heitir styrktarsjóður fátækra verzlun- armanna eða eitthvað því um líkt. Til þess að útvega þessum sjóði gjöf úr landssjóði þyrfti eptir þessu lagi ekki annað en að ein- hver af kaupmönnum, t. d. annarhvor þeirra, sem hafa annar 50 þús. og hinn 40 þús. kr. í tekjur á ári, sækti um styrk af fjenu »til verklegra fyrirtækja« til þess að koma sjer upp þilskipaútveg eða til einhvers annars arðvænlegs fyrirtækis, eins og reynslan sýnir að bókaútgáfa er biskupnum,

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.